Morgunblaðið - 28.04.1983, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 1983
Bráðabirgðalög
um takmörkun hækk-
unar húsaleigu
GEFIN voru út sl. föstudag bráðabirgðalög að tillögu forsætisráðherra, sem
takmarka hækkanir á húsaleigu. í frétt frá forsætisráðuneytinu segir, að
lagasetningin sé til þess ætluð að koma í veg fyrir að ójöfn dreifing hækkun-
ar vísitölu húsnæðiskostnaðar á greiðslutimabili frá april 1982 til jafnlengdar
1983, leiði til óeðlilega mikillar hækkunar á húsaleigu frá 1. aprfl 1983, að því
er varðar leigusamninga sem tengdir eru þessari vísitölu.
Segir í fyrstu grein laganna að
mánaðarleiga fyrir íbúðarhúsnæði
samkvæmt nýjum eða endurnýj-
uðum samningi gerðum á 12 mán-
aða tímabilinu frá apríl 1982 til
mars 1983, megi ekki hækka meira
þann 1. maí nk. frá þeirri mánað-
arleigu sem gilti í mars 1983, en
um 45% fyrir samninga sem gerð-
ir voru á tímabilinu apríl til júní
1982. Hámark hækkunar leigu
vegna samninga, sem gerðir voru
á tímabilinu júlí til september
1982 er 32%, samsvarandi hámark
vegna samninga gerðra á tímabil-
inu október til desember 1982 er
21% og hámarkið fyrir janúar til
mars 1983 er 10%. Þá skal húsa-
leiga fyrir maímánuð 1983 haldast
óbreytt í júni 1983, enda sé við-
komandi húsaleigusamningur enn
Notkun sóllampa getur fylgt
nokkur áhætta. Af þeim sökum og
vegna fjölda fyrirspurna hefur
Hollustuvernd ríkisins sent út
dreifibréf til heilbrigðisnefnda
með upplýsingum og leiðbeining-
um um slíka starfsemi.
Geislar lampanna geta skaðað
augun, ef ekki eru notuð þar til
ætluð varnargleraugu og vitað er
að langvarandi útfjólublá geislun
getur valdið varanlegum breyting-
um á húð. Gestum sólbaðsstofa
skal ennfremur bent á að leita
ráða læknis noti þeir lyf t.d. fúka-
lyf eða geðlyf. Þá er vitað að viss
fegrunarlyf geta valdið ofnæmi og
ber því að hreinsa húðina vand-
lega fyrir sólböð. Persónulegt
hreinlæti og góð þrif alls búnaðar
eru mikilvæg.
í gildi. Húsaleiga sem samkvæmt
samningi gerðum fyrir 1. apríl
1982 fylgir vísitölu húsnæðis-
kostnaðar fyrir íbúðarhúsnæði,
hækkar frá 1. apríl 1983 um
51,04% samkvæmt henni. Taka
þessi ákvæði aðeins til húsaleigu
samkvæmt samningum, þar sem
ákveðið er að hún skuli fylgja
breytingum vísitölu húsnæðis-
kostnaðar.
í lögunum segir að húsaleiga
samkvæmt fyrrgreindum samn-
ingum skuli fylgja hlutfallslegum
breytingum meðallauna og breyt-
ast ársfjórðungslega. Húsaleiga
fyrir atvinnuhúsnæði sem fylgir
breytingum sérstakrar vísitölu
fyrir það hækkar frá 1. apríl 1983
um 53,03% samkvæmt henni.
Aðeins er heimilt að nota sól-
lampa sem viðurkenndir hafa ver-
ið af Hollustuvernd ríkisins og
þess gætt að farið sé eftir þeim
reglum er um slíka lampa gilda og
notkun þeirra.
Eftirfarandi leiðbeiningar skulu
hanga uppi á sólbaðsstofum:
1. Notið hlífðargleraugu.
2. Baðið yður að lokinni geislun.
3. Hafið samráð við lækni yðar, ef
þér notið lyf.
4. Viss fegrunarlyf geta valdið
ofnæmi, hreinsið því húðina
vandlega fyrir sólböð.
5. Búnaður sé hreinsaður eftir
hverja notkun.
6. Fylgið leiðbeiningunum um
lengd og tíðni sólbaða.
(Frcttatilkynning.)
Handritið gefur hún í minningu
um afa sína, Lýð Guðmundsson í
Hlíð og Guðmund Brynjólfsson á
Keldum, en 12. apríl sl. var öld
liðin frá andláti hans.
í meginhluta handritsins er
fylgt biskupasögum Jóns prófasts
Halldórssonar í Hítardal, er lýkur
með sögu Jóns biskups Vídalíns,
en síðan heldur Þorsteinn áfram
eftir öðrum heimildum og endar á
Hannesi biskupi Finnssyni.
Jafnframt er í handritinu Hirð-
stjóraannáll Jóns prófasts Hall-
dórssonar, en hann var sem kunn-
ugt er prentaður í umsjá Guð-
mundar Þorlákssonar í 2. bindi
Safns til sögu íslands og íslenzkra
bókmennta 1886. Seinast í hand-
ritinu fer kafli, er nefnist Lög-
menn á fslandi og Þorsteinn hefur
einkum skrifað eftir lög-
mannatölum þeirra feðga, sr. Jóns
Halldórssonar í Hítardal og sr.
Vigfúsar sonar hans.
Dr. Jóni Þorkelssyni og Hannesi
Þorsteinssyni var ekki kunnugt
um handrit Þorsteins, er þeir gáfu
út biskupasögur Jóns Halldórs-
sonar 1903—15, og er afstaða þess
til annara handrita sagnanna
rannsóknarefni, er nú bíður úr-
lausnar.
Handrit Þorsteins er skrifað af
mikilli alúð og víða snilld, enda
var hann í flokki snjöllustu skrif-
ara.
f greinargerð, er fylgdi hand-
ritagjöfinni, er m.a. vitnað til
gamalla ummæla um hinn elju-
sama skrifara. Þar segir, eftir
handriti Skúla Guðmundssonar á
Keldum:
„Þorsteinn Halldórsson var
sagður maður stór og þrekinn,
fríður sýnum og hinn heitfengasti.
Það er með sannindum sagt, að
hann hafi setið á skemmuþrösk-
uldi sínum við skrifstörf sín og
haft blekbyttuna í barminum, svo
að ekki frysi í henni, en var inni í
skemmunni, þegar kaldast var og
næði og húsrúm vantaði í baðstof-
unni og ljós þraut."
í greinargerðinni er einnig sagt
frá ferli handritsins. Guðmundur
sonur Þorsteins erfði það við lát
hans 1818, flutti það með sér vest-
ur yfir Þjórsá, er hann settist að í
Hlíð í Gnúpverjahreppi; Lýður
sonur hans, einnig bóndi í Hlíð,
erfði síðan handritið. Árið 1906
kviknaði í baðstofunni í Hlíð, en
handritið bjargaðist úr eldinum.
Svanborg dóttir Lýðs erfði hand-
ritið eftir föður sinn og flutti það
að Keldum á Rangárvöllum, var
gift frænda sínum, Skúla Guð-
mundssyni Brynjólfssonar. Svan-
borg gaf loks Kristínu dóttur sinni
handritið 1949, og fluttist það með
henni til Reykjavíkur 1965.
Handritið hefur þannig haldizt í
ætt Þorsteins Halldórssonar og
jafnan verið talið ættardýrgripur.
í Landsbókasafni eru til fyrir
allmörg handrit Þorsteins Hall-
dórssonar í Skarfanesi, og er eitt
þeirra í hópi stærstu handrita
safnsins, lagauppskriftir marg-
víslegar, alls á nítjánda hundrað
blaðsíðna.
Landsbókasafn efnir nú til sýn-
ingar í anddyri hússins á handrit-
um Þorsteins Halldórssonar, og
verður biskupasagnahandritið
nýkomna þar á meðal.
Sýningin mun standa nokkrar
vikur á venjulegum opnunartíma
Landsbókasafns, mánudaga til
föstudaga kl. 9—19 og laugardaga
kl. 9 til 12.
(Frétt frá Landsbókasafni fslands)
Leiðrétting
í FRETT í Mbl. í gær af viðskiptum
Ljónsins og kaupfélagsins á ísafirði
var missagt, að Páll S. Pálsson hefði
átt þátt í sáttaumleitunum aðila.
Þær önnuöust Jón Finnsson og
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson.
Þegar þær reyndust hins vegar
árangurslausar lýsti Páll S. Páls-
son yfir riftun fyrir hönd Ljóns-
ins.
Þá féll niður í frásögn blaðsins
af dómi Hæstaréttar í landa-
merkjamáli Skarðshrepps og
Sauðárkróks, að Páll S. Pálsson
hrl. flutti mál Sauðárkróks og Sig-
urður Ólason hrl. mál Skarðs-
hrepps.
Bíl stolið
UM SÍÐUSTU helgi var bifreiðinni
R-65376 stolið frá Skólavörðuholti.
Þetta er Volkswagen-rúgbrauð,
árgerð 1971, ljósgræn að lit. Þeir,
sem vita hvar bifreiðin er niður-
komin, eru beðnir að láta lögregl-
una í Reykjavík vita.
Deilan um gjöf úr Reykjahlíðarlandi til samvinnustarfsmanna:
Málið vonandi leyst á frið-
samlegan hátt innan tíðar
— segir Reynir Ingibjartsson, framkvæmdastjóri
Landsambands íslenzkra samvinnustarfsmanna
„UPPHAF málsins var það, að Landssamband íslenzkra samvinnu-
starfsmanna rituðu nokkrum sveitarfélögum á Norð-Austurlandi bréf í
september 1981, þar sem falast var eftir landsvæði fyrir nýtt orlofshúsa-
svæði, en eins og kunnugt er eiga Samvinnustarfsmenn orlofshús að
Bifröst í Borgarfirði og víðar,“ sagði Reynir Ingibjartsson, framkvæmda-
stjóri Samtaka samvinnustarfsmanna í samtali við Mbl., er hann var
inntur álits á ummælum Finns Baldurssonar í Morgunblaðinu, þar sem
hann heldur því fram, að aðeins 4 eigendur Reykjahlíðarlands af 17
hefðu undirritað gjafabréf um 2,5 hektara lands til Landssambands
íslenzkra samvinnustarfsmanna undir orlofshús og væri málið því ekki
frágengiö.
„Sveitarstjóri Mývatnssveitar
hafði samband við okkur og kvað
Mývetninga hafa áhuga á að
kanna málið nánar. Við sendum
þeim því greinargerð með hug-
myndum okkar og þeir sendu
málið áfram til Náttúruvernd-
arráðs til umsagnar.
Náttúruverndarráð hefur hins
vegar ekki tekið málið til af-
greiðslu ennþá og er því alrangt
hjá Finni Baidurssyni, að ráðið
hafi lagzt gegn hugsanlegri
orlofshúsabyggð okkar nyrðra,"
sagði Reynir ennfremur.
Reynir Ingibjartsson sagði
samvinnustarfsmenn hafa fund-
að með landeigendum að Reykja-
hlíð í september á síðasta ári um
umrætt landsvæði, sem komið
hefði inn í umræðuna. „Þá hélt
sveitarstjórnin fund, þar sem
fjallað var almennt um byggingu
oriofshúsa og þar kom fram, að
fjórir af fimm sveitarstjórnar-
mönnum voru heldur mótfallnir
slíkri byggð á svæðinu," sagði
Reynir Ingibjartsson.
„Það næsta sem gerðist í mál-
inu er, að 8. febrúar sl. fengum
við sent gjafabréf frá tvennum
hjónum, sem eru eigendur að
Reykjahlíðarlandinu að hluta.
Gjafabréfið var þó með þeim
fyrirvara, að aðrir eigendur
samþykktu það. Reyndar var
öðrum eigendum samhliða gefin
kostur á að undirrita bréfið.
Þessi höfðinglega gjöf var af
hálfu þessara eigenda fyrst og
fremst hugsuð sem afmælis og
minningargjöf, vegna 100 ára af-
mælis Kaupfélags Þingeyinga og
til minningar um Jakob Hálf-
dánarson, fyrsta starfsmann
Samvinnuhreyfingarinnar og
Petrínu Pétursdóttur.
I kjölfar þessa var óskað eftir
sérstakri samstarfsnefnd okkar,
landeigenda og hreppsins. Við
vorum að sjálfsögðu tilbúnir til
viðræðna, enda viljum við síður
en svo efna til einhverra ill-
deilna við heimamenn og von-
umst reyndar til þess, að hægt
verði að koma þessu máli frið-
samlega í höfn innan tíðar,"
sagði Reynir Ingibjartsson.
Reynir Ingibjartsson sagði
samvinnustarfsmenn hafa hugs-
að sér þessa orlofshúsabyggð til
heilsársnotkunar. „Við gerum
ráð fyrir að hægt verði að nota
væntanleg orlofshús bæði til
dvalar fyrir starfsmenn, auk
þess að halda ýmiss konar nám-
skeið og fundi," sagði Reynir
Ingibjartsson að síðustu.
Hollustuvernd ríkisins:
Notkun sóllampa
getur fylgt áhætta
NOTKUN sóllampa hefur aukist hin síðari ár og sólbaðsstofum fjölgar ört.
5í)ia ’íak
300RS ftiL|U |jallWsfon.oir
jiúrrcx Anncxr þa-iKir
mru. /ja.lltar
^ ^OollUrinx
fy-p Jitmft utn A.r,
£>ij^ap (EVan^oJij^-u um 0 Ar,
SÁripíl /,«.|J f. mi LjUy » Sli-nji.
i.J*"-. m?. -f ©az
Úr biskupasagnahandriti Þorsteins Halldórssonar í Skarfanesi, er nýlega hefur verið gefið Landsbókasafni. Handrit-
ið er nú ásamt mörgum öðrum handritum Þorsteins til sýnis í anddyri Safnahússins við Hverfisgötu.
Merkilegt biskupasagnahand-
rit gefið Landsbókasafni
Frú Kristín Skúladóttir frá Keldum, nú búsett í Reykjavík, hefur nýlega
afhent Landsbókasafni að gjöf biskupasagnahandrit langalangafa síns,
Þorsteins fræðimanns Halldórssonar í Skarfanesi, er hann hóf aö skrifa þar
á nýársdag 1796 og lauk við 28. aprfl 1801.