Morgunblaðið - 28.04.1983, Síða 3
Allt komið
úr böndunum
— segir Jón Helgason for-
maður Einingar um niður-
stöður Þjóðhagsstofnunar
„AF ÞVÍ sem ég hef heyrt, þá er
ástandið ekki björgulegt og ég tel að
það sé að koma í Ijós að það er búið
að missa allt úr böndunum", sagði
Jón Helgason formaður Einingar á
Akureyri, er Mbl. spurði hann álits á
nýjustu útreikningum Þjóðhags-
stofnunar um stöðu efnahagsmála.
en Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ
er erlendis og Björn Þórhallsson
varaformaður er fjarverandi vegna
veikinda.
Jón sagðist ekki hafa kynnt sér
útreikninga Þjóðhagsstofnunar í
einstökum liðum en af heildarnið-
urstöðunni væri ljóst að vá væri
fyrir dyrum. „Mér sýnist að það sé
ekki gæfulegt framundan. Þegar
svona sveiflur verða á launum er
náttúrulega allt komið úr böndun-
um. Ég kvíði því framhaldinu, að
minnsta kosti fyrir lægst launaða
fólkið. Það er öruggt að ef svona
heldur áfram, eins og horfir, þá er
þetta allt að bresta hjá okkur,"
sagði hann.
Snorri Páll Snorrason
Snorri Páll
Snorrason
fær prófessors-
nafnbót
SNORKA Páli Snorrasyni lækni,
dósent í lyflæknisfræði við Háskóla
íslands, hefur verið veitt prófessors-
nafnbót, en það er heiðurstákn, sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðs-
ins. Snorri Páll var skipaður pró-
fessor persónubundinn í stöðu,
þannig að staðan fellur niður er
hann hættir störfum.
Snorri Páll er fæddur 22. maí
1919 í Rauðuvík í Árskógshreppi í
Eyjafirði, sonur Snorra Halldórs-
sonar héraðslæknis á Breiða-
bólstað á Síðu og fyrri konu hans,
Þóreyjar Einarsdóttur.
Snorri varð stúdent frá MA
1940 og cand. med. frá Háskóla
íslands 1949. Hann stundaði fram-
haldsnám í læknisfræði við lyf-
lækningadeild Landspítalans og
Harvard Medical School í Boston
1950 til 1955, við spítala í Boston
og New York 1960 og National
Heart Hospital í London 1964.
Snorri hefur stundað lækn-
ingastörf frá 1949. Hann fékk al-
mennt lækningaleyfi 1950 og við-
urkenndur sérfræðingur í lyf-
lækningum með sérstöku tilliti til
hjartasjúkdóma 1955. Lektor varð
hann við læknadeild Hí 1959 og
dósent 1966.
Snorri Páll Snorrason er kvænt-
ur Karólínu Kristínu Jónsdóttur
Vogfjörðs málarameistara í Vest-
mannaeyjum Vigfússonar.
JNNLENT
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 1983
3
Húsið opnað kl. 19.00 v ^
Gestum fagnaö meö fordrykk. Afhending happdrætt
ismiöa. Sala bingóspjalda — glæsilegir vinningar.
Áríðandi orðsending
frá DAIHATSU-UMBOÐINU
til handhafa öryrkjaleyfa
Verðtryggið leyfin
ykkar með kaup-
um á DAIHATSU
fyrir mánaðamót.
Verð frá kr. 137.250,- meö öllu.
Nýtt tollgengi tekur gildi eftir næstu helgi og þá hækka bílar í veröi. Ef þiö komið og veljiö ykkur verðlaunabíl frá DAIHATSU,
afhendiö okkur leyfiö og fé til að bankagreiða bílinn, hafiö þiö tryggt ykkur fast verö og getiö gengiö endanlega frá kaupum viö
hentugleika.
DAIHATSU — viðurkennd gæði, viðurkennd þjónusta.
Daihatsu-umboðió.
Ármúla 23, 85870 — 81733.
Vorfagnaður Útsýnar
í Broadway Jjtsýn/
Austurlenskur
kvöldverður
Matreiddur af Ólafi Reynissyni, yfir-
matreiöslumanni Broadway í sam-
vinnu viö Ning de Jesus, frá Manila.
Matseöill:
Bali-salad
Hrísgrjón
Guale Kambing
Agar-Agar meö
bl. ávöxtum og kókoshnetumjólk.
Verð aðeins kr. 330
högun og ata y ^cinS'
myndum. Gestur kvotósin •
Rita cheon?’ur,st Ottice
Singapore Tounsi
Ungfrú og herra Hinar fræknu fimleikastúlkur
Útsýn 1983 Jazz-sport
Dómnefnd hefur valið 30 sýna listir sinar.
keppendur í lokakeppn-
[ina og veröa þeir allir
ikynntir á hinu glæsilega
ísviöi Broadway.
W ^ Spilaöar ver
* ' nmforAir íílœ
Spilaðar veröa 3
umferöir. Glæsilegir
vinningar.
Dans — Danssýning
Hljómsveit Björgvins Hall- Reynir
dórssonar og Kara
Diskótek Gisli Sveinn Lofts-
son
Tízkusýning:
TKUtW
sýna glæsilegan
tískufatnað
frá
fl]
Aðgöngumiðar ocj boröapantanir í Broadway í dag.
Pantid tímanlega því alltaf er fullt á Útsýnarkvöldum.