Morgunblaðið - 28.04.1983, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 1983
13
Sýningin var mjög fjölsótt eins og sjá mí. Þetta er hluti mannfjöldans.
tlr* ' * \rl
JÉS§|pPi
Hveragerði:
Nemendur héldu sýn-
inguna „Byggðin mína
Listaverk úr málmi eftir Sigurö Sólmundarson handíðakennara skólans.
Við verkið standa Þórður Jóhannsson hreppstjóri (t.v.) og Valgarð Run-
ólfsson skólastjóri.
Hveragerði, 19. aprfl.
Nemendur Gagnfræðaskóla
Ilveragerðis og Ölfuss voru með
merkilega sýningu í skólanum
sunnudaginn 17. aprfl kl. 14 og 18.
Hlaut sýningin nafnið „Byggðin
mín“. Var þar fjallað um fjölmargt
er tengist byggðinni okkar, menn,
málefni og umhverfl. T.d. landa-
fræði, jarðhita, umhverflsmál, ör-
nefni og þjóðsögur, félagsmál,
skipulags- og sveitarstjórnarmál og
um skólastarflð.
Voru allar skólastofur fullar
af verkefnum nemenda, vegg-
spjöldum og teikningum. Þá
mátti sjá mikinn fjölda ljós-
mynda úr skólalífinu og félaga-
starfseminni í bænum. Einnig
myndir og kynningar hinna
ágætu skálda og listamanna sem
hér hafa búið i lengri eða
skemmri tíma og voru verk
sumra þeirra flutt á skemmtun
sem nemendurnir efndu til fyrir
sýningargesti.
Þar komu fram: Fjóla Grét-
arsdóttir sem las ljóð eftir
Kristmann Guðmundsson og Jó-
hannes úr Kötlum og sögubrot
eftir Kristján Bender og Þor-
stein Matthíasson. Anna Sigríð-
ur Guðfinnsdóttir las sögukafla
eftir Gunnar Benediktsson og
ljóð eftir Gunnar Dal. Þá sungu
Hvergerðingarnir Bergþóra
Árnadóttir og Sigurður Dag-
bjartsson og léku undir á gítar,
lög eftir þau sjálf og aðra.
Skólastjórinn, Valgarð Run-
ólfsson, flutti ávarp og þakkaði
kennurum og nemendum mikil
og góð störf fyrir sýninguna.
Sagði hann að hefðbundin
kennsla hefði verið lögð á hill-
una síðastliðna viku, en nemend-
ur unnið í hópum með dyggri að-
stoð kennaranna. Hefðu þau
safnað öllum upplýsingum og
gögnum sjálf og vinnudagurinn
oft orðið langur.
Grétar Unnsteinsson, skóla-
stjóri Garðyrkjuskólans, þakk-
aði ánægjulega sýningu og
skemmtun fyrir hönd okkar
gestanna.
Kynnir á samkomunni var
Bergdís Una Bjarnadóttir.
Sýningin var mjög vel sótt og
hlaut mikið lof gestanna. Nem-
endur í Gagnfræðaskóla Hvera-
gerðis eru 67 talsins. Sigrún
Noregur:
Stefnt að samruna 11
járnblendiverksmiðja
— Rætt um hlut Elkems í íslenzka járnblendifélaginu
SAMRUNI ellefu norskra járnblendiverksmiöja í eitt stórt
fyrirtæki er nú til umræðu og er Elkem-samsteypan stærsti
aðilinn þar í. í þessum viðræðum er m.a. rætt um, hvort
verksmiðjueign Elkem í Bandarfkjunum og á íslandi kæmu
inn í þessa mynd, en eins og kunnugt er á Elkem tæplega
helming í íslenzka járnblendifélaginu á Grundartanga og sér
um sölu á allri framleiðslu verksmiðjunnar.
Þessi fyrirtækjasamruni myndi
hafa í för með sér fjárhagslegan
ávinning upp á 21—28 milljónir
Bandaríkjadollara á ári, sam-
kvæmt nýlegum útreikningum. Á
síðasta ári var tap þessa iðnaðar
um 28 milljónir Bandaríkjadoll-
ara.
Viðræðurnar í Noregi hafa ekki
einungis snúist um hugsanlegan
samruna, heldur eru forráðamenn
fyrirtækjanna einnig undir það
búnir að þurfa að draga úr fram-
leiðslu í Noregi um 15% þegar á
þessu ári. Það jafngildir því, að
1—2 verksmiðjum yrði lokað í
Noregi.
Þótt engar endanlegar ákvarð-
anir hafi verið teknar um sam-
runa fyrirtækjanna, né hvernig
eignarhlut verði háttað, hafa for-
ráðamenn fyrirtækjanna þó orðið
ásáttir um að miða samrunann við
I júlínk., verði afhonuní'
Hafnarfjarðarbær:
Samningaviðræður um
kaup á Karmelklaustri
NÚ STANDA yfir viðræður á milli Hafnarfjarðarbæjar og fulltrúa
Karmelklaustursins í Hafnarfirði um kaup bæjarins á klaustrinu, en
eins og kunnugt er stendur brottför nunnanna í klaustrinu af land-
inu fyrir dyrum.
Samkvæmt upplýsingum
sem Mbl. fékk hjá Einari Inga
Halldórssyni bæjarstjóra í
Hafnarfirði eru í gangi samn-
ingaviðræður við lögmann
klaustursins, en ekki treysti
hann sér til að nefna hvenær
samningum lyki eða gefa upp
það verð sem klaustrið væri
falt fyrir. Einnig sagði Einar
Ingi að kaupsamningur þyrfti
að sendast til útlanda til af-
greiðslu.
Mikill munur á lyfja-
notkun á Norðurlöndum
ÚT ER komið 1. og 2. bindi rits um norræna lyfjamarkaðinn
„Nordisk lákemedelstatistik“, sem gefið er út af Norrænu
Lyfjanefndinni (NLN), en nefndin var sett á laggirnar 1.
janúar 1975 samkvæmt ákvörðun ráðherranefndar Norður-
landaráðs. Nefndinni er ætlað að vinna að samræmingu
löggjafar og framkvæmdar á sviði lyfjamála á Norðurlöndum.
Tilgangur með útgáfu þessa rits
er að birta sambærilegar upplýs-
ingar um lyfjanotkun á Norður-
löndum, sem og aðrar upplýsingar
er varða lyf og hvetja þannig til
umræðu um lyfjanotkun og rann-
sókna á því sviði, eins og segir í
fréttatilkynningu um útgáfu rits-
ins.
í því kemur m.a. fram, að í Sví-
þjóð er notað fimm sinnum meira
insúlín en á íslandi, að notkun
sýklalyfja virðist helmingi meiri
hér á landi en í Danmörku, að 25%
sænskra kvenna á aldrinum
15—44 ára nota „pilluna", en að-
eins 11% finnskra kvenna, að
lyfjameðferð við háþrýstingi virð-
ist ódýrust í Danmörku, en dýrust
í Noregi, og að mikill munur virð-
ist á lyfjanotkun á Norðurlöndum
þrátt fyrir náin samskipti á fé-
lagslegum og menningarlegum
vettvangi.
í þessari útgáfu eru þrjú bindi. 1
fyrsta bindi er gerður samanburð-
ur á lyfjanotkun og nær hann til
sem næst helmings þeirra lyfja,
sem notuð eru á Norðurlöndum. I
öðru bindinu er að finna skrá yfir
öll lyf á markaði á Norðurlöndum
sem og virk efni og er þeim raðað
eftir hinu alþjóðlega viðurkennda
ATC-kerfi (Ánatomical Terapeut-
ic Chemical Classification Syst-
em). Þá er einnig lýsing á mæli-
einingunni DDD (Defined Daily
Dose), sem gerir kleift að bera
saman lyfjanotkun landanna.
Þriðja héftið er ætlað til kynn-
ingar og leiðbeiningar um flokkun
lyfja samkvæmt áðurnefndu
ACT-kerfi.
Fulltrúar íslands í Norrænu
lyfjanefndinni eru Árni Kristins-
son og Ingolf J. Petersen.
Hætt við hestasýningu
í Laugardalshöll?
FLEST bendir til að hætt verði við
fyrirhugaða hestasýningu sem
halda átti í Laugardalshöll í vor,
að því er fram kemur í blaðinu
Eiðfaxa.
Segir þar að eftir athuganir hafi
komið í ljós að fyrirtækið væri
framkvæmanlegt, en dýrt. Hafi
aðalvandinn verið fólginn í því að
verja gólf sýningarhallarinnar, en
þegar tekist hafi að finna lausn á
því vandamáli, hafi hún þótt of
dýr til þess að hún borgaði sig.
Blaðburðarfólk
óskast!
Miðbær I
Austurbær
Laugaveg 101 — 171
ftttqpstiÞIaMfr