Morgunblaðið - 28.04.1983, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 1983
Möguleikar íslendinga til
ódýrra og skemmtilegra sumar-
leyfisferda aldrei verið fleiri
eftir Þorkel
Sigurlaugsson
Undanfarið hafa þeir, sem
flytja íslendinga í fríið, keppst
við að bjóða sem hagstæðastar
og skemmtilegastar ferðir. Sam-
keppni hefur aukist, og hinn nýi
mðguleiki, að sigla með fram-
bærilegum bílferjum, hefur
opnað ferðamönnum nýjan
heim, sem á eftir að boða tíma-
mót í ferðamálum landsmanna.
Nýr möguleiki til ad fá
sem mest út úr fríinu
Sólarlandaferðir, stuttar ferð-
ir til stórborga Evrópu og gist-
ing í sumarhúsum, hafa notið
vaxandi vinsælda undanfarin ár.
Þessar ferðir hafa kennt íslend-
ingum að ferðast og gert al-
menningi kleift að breyta til og
njóta hvíldar og ánægju sem er
nauðsyn sérhverjum manni.
En þetta var eingöngu byrjun-
in. Nú eru að verða tímamót.
Fólk hefur lært að ferðast og vill
sjá meira. Skilningur fyrir mik-
ilvægi þess að auka þekkingu á
umheiminum fer vaxandi. Að
kynnast lifnaðarháttum og
menningu nágrannaþjóðanna er
mikilvægt íslendingum. Ein-
angrun okkar frá umheiminum
hefur verið nokkuð mikil og í
sumum tilvikum verið okkur til
trafala.
Efnahagserfiðleikar og
minnkandi kaupmáttur gera
ferðalög almennings fjárhags-
lega erfiðari, enda hafa ferða-
skrifstofur kvartað yfir minni
bókunum en á sama tíma í fyrra.
Ekki er heldur útilokað að þeir
sem hafa bókað hætti við þar
sem ný og áhugaverð ferðatilboð
skjóta stöðugt upp kollinum.
Aukin samkeppni og nýir
möguleikar fyrir íslendinga að
ferðast ódýrt með frambæri-
legum bílferjum, eru þáttaskil,
sem líkja má við endurvakningu
á sviði ferðamála, sem kemur
eins og sólargeisli á erfiðleika-
tímum, eftir harðan vetur.
Þorkell Sigurlaugsson
Koma erlendra ferda-
manna hingað getur
skapað talsveröar gjald-
eyristekjur. Ekki er þó
síöur mikilvægt að við
spörum gjaldeyri sjálf...
Ef íslendingar taka bfl-
inn með í fríið, sparast
milljónir í gjaldeyri.
Fólk vill ferðast ódýrt,
en jafnframt fá sem
mest út úr fríinu
Áberandi um þessar mundir
er, að fólk hikar við að leggja
mikla fjármuni í ferðalög. Óviss-
an í efnahagsmálum og stjórn-
málum veldur ótta, sem eðlilegt
er. Aftur á móti er það ekkert
vafamál, að fólk hefur þörf fyrir
að taka sér hvíld frá daglegum
störfum og breyta til. Ferðalög
þurfa ekki að vera dýr og fólk
sparar frekar við sig stórar fjár-
festingar í bílum, íbúðarhúsum,
fjárfestingum til heimilisins og
öðrum áhættusömum munaði.
Fólk mun áfram fara í frí, en
vandar nú e.t.v. valið meira en
áður, og vill reyna eitthvað nýtt
og ódýrt. Stuttar ferðir, gisting í
sumarhúsum í Evrópu og vin-
sældir bílferja og þeirra pakka
sem þær bjóða upp á, er dæmi-
gert fyrir þá breytingu sem orðið
hefur. Fólk vill í vaxandi mæli
hafa bíl til afnota erlendis, til að
geta skoðað sig um frjálst.
Aukin ferðakunnátta
landsmanna
Hinn mikli áhugi fólks á því
að ferðast á bíl erlendis, er lýs-
andi dæmi um aukna kunnáttu
landsmanna. Hér áður fyrr þótti
það í frásögur færandi ef maður
ferðaðist á bíl erlendis. Fólk
í sumar mun það ráðast, hvort grundvöllur er fyrir rekstri farþegaskips milli
íslands og útlanda.
Vinsældir sólarlandaferða fara minnkandi, þótt fjöldi fólks muni áfram
kjósa slíkar ferðir.
vildi helst fara í skipulagðar
hópferðir, þar sem allt var fast-
bundið. Nú vilja menn ferðast
eftir eigin geðþótta eða velja
pakkaferð eða hópferð við hæfi,
jafnvel með íslenskum lang-
ferðabifreiðum. Haga ferða-
hraða samkvæmt eigin hentug-
leika. Skoða þá staði sem hugur-
inn girnist og gista þar sem um-
hverfið heillar mest. Allir sem
hafa ekið erlendis eru á sama
máli um það, að það er síst erfið-
ara en hér heima, jafnvel auð-
veldara.
Það er ódýrara að
taka bflinn með
Samkvæmt útreikningum FÍB
kostar það um 6 krónur að aka
hvern kílómetra hér á landi á
meðalbíl, miðað við að bíl sé ekið
15.000 kílómetra á ári. Þetta
skiptist þannig:
1. Breytilegur kostnaður
Krónur á ári
fyrir meðal bíl:
bensín 24.300
smurning 1.250
hjólbarðar 2.802
varahlutir 5.741
viðgerðir 7.552
Samtals 41.645
2. Fastur kostnaður
ábyrgðartrygging 7.729
kaskótrygging 2.431
afskriftir 7.694
vextir 25.629
ýmislegt 3.336
Samtals 46.819
Samtals liðir 1 og 2 88.464
Samtals gera þetta tæplega 6
krónur fyrir hvern ekinn kíló-
metra, miðað við 15.000 kíló-
metra akstur. Miðað við þetta
kostar það um 7.400 krónur á
mánuði að reka meðalbíl á ís-
landi. Ekki skal hér lagt mat á
réttmæti þessarar tölu, en flest-
um kemur hún eflaust á óvart.
Það sem er athyglisvert við
þetta er, að 53% af kostnaðinum
er fastur kostnaður, sem fellur á
bílinn að mestu óháð því hve
mikið honum er ekið. Bensín-
kostnaður er svo önnur 27%.
Um það hefur verið skrifað í
fjölmiðlum, að bílar séu svo dýr-
ir í rekstri, að betra sé að skilja
bílinn eftir heima á íslandi. Ef
tölurnar hér að ofan eru skoðað-
ar, sést að 59% af kostnaðinum,
þ.e. tryggingar, afskriftir, vextir
o.fl. eru áfram til staðar, þó bíll-
inn standi heima. Bensínkostn-
aður er svo nokkuð lægri erlend-
is, auk þess sem kaupa þarf
bensín jafnt á bilaleigubíl sem
eigin bíl. Breytilegur kostnaður,
þ.e. hjólbarðar, varahlutir, við-
gerðir og smurning er eingöngu
kr. 17.345 á ári, eða rúmlega 1
króna á kílómetra.
Það kostar því aðeins 1 krónu
á kílómetra, að taka bílinn með í
Dalvík:
Fannkoma og
sumardaginn
Dalvík á Humardaginn fyr.sU.
VETURINN kvaddi okkur Dal-
vfkinga heldur óblíðlega að
þessu sinni með mikilli fann-
komu og töluverðu frosti. Því er
það nú í sumarkomu að hér ríkir
hið mesta vetrarríki. Til fjalla og
í byggð er aldeilis óhemju mikill
snjór. Það má segja, ef litið er til
fjalla, að hvergi sjáist fyrir laut-
um eða öðrum kennileitum, allar
dældir slétt fullar, og varla sjáist
á dökkan dfl.
Samgöngur hafa verið af og
til með erfiðasta móti bæði út-
frá bænum svo og innan hans.
Nú er svo komið að allur snjó-
ruðningur á götum bæjarins er
frost á
fyrsta
í meira lagi erfiður þar sem
þau opnu svæði sem tiltæk eru,
eru þegar orðin yfirfull af
snjó, allhá snjófjöll hafa
myndast þessa síðustu daga
vetrarins, unga fólkinu til
hinnar bestu dægrastyttingar
en því eldra til mestu armæðu.
FrélUriUri
Kærkomið fyrir unga fólkið á Dalvfk.
Fiskverkunarhús við Dalvfkurhöfn. Bárugata á Dalvík.