Morgunblaðið - 28.04.1983, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 1983 23
Fórnarlömb þurrka
Myndin sýnir fórnarlömb gífurlegra þurrka í Gondar-héraði í Eþíópíu, þar sem þau taka við
dagskammti sínum af matvælum sem send hafa verið fólkinu til bjargar.
Skýríngin á AIDS-sjúkdómnum e.t.v. fundin?:
Telur svínasótt orsök kynvill-
ingaplágunnar í Bandaríkjunum
Lundúnum, 27. aprfl. AP.
BANDARÍSKUR sérfræöingur við heilsugæsluskólann í Harvard, dr.
Jane Teas, hefur í bréfi til ritstjóra breska læknaritsins Lancet, leitt
getum að því, að sjúkdómur, sem nefndur hefur verið kynvillingaplágan í
Bandaríkunum, kunni að vera afbrigði af svínasótt frá Haiti.
Sjúkdómur þessi, sem á fag- meirihluti tilfellanna kominn
máli hefur verið skammstafaður
AIDS (Acquired Immunes Def-
iciency Syndrome), hefur valdið
mikilli skelfingu í Bandaríkjun-
um á undanförnum mánuðum og
til þessa hafa læknar staðið ráð-
þrota gagnvart honum.
Sjúkdóms þessa varð fyrst
vart fyrir rúmu hálfu öðru ári,
svo að segja samtímis í Los Ang-
eles, New York og San Francisco,
og þá hjá kynvillingum. Þótt
hann hafi nú breiðst út í ýmsa
þjóðfélagshópa, er yfirgnæfandi
frá kynvillingum, eða um 72%
þeirra rúmlega 1.300 tilfella sem
vitað er um. Um 40% allra
þeirra, sem tekið hafa sjúkdóm-
inn, hafa látist innan þriggja ára
og enn er ekki vitað til þess að
nokkur hafi náð fullum bata eft-
ir að hafa smitast af AIDS.
„Tengsl á milli svínasóttar og
AIDS eru slík, að ég tel að nauð-
synlegt sé að rannsaka það frek-
ar,“ segir Teas m.a. í bréfi sínu.
Leiðir hún getum að því, að
kynvillingur á Haiti hafi smitast
af svínasótt er hann neytti sýkts
kjöts og síðan hafi hann smitað
bandaríska kynvillinga, sem hafi
átt leið um eyjarnar.
AIDS-sjúkdómurinn brýtur
niður ónæmisvarnir líkamans og
veldur stundum sjaldgæfu af-
brigði af krabbameini, sem fyrst
varð vart á Haiti 1978. Þá bendir
Teas á þá staðreynd, að báðir
þessir sjúkdómar hafi hita í för
með sér svo og lystarleysi. Þá
bendir hún á, að sjúkdómsein-
kennin séu mjög svipuð í báðum
tilfellum. Síðast en ekki síst
brjóti svínasótt viðnámsþrótt
líkamans á bak aftur með sama
hætti og AIDS.
Segja erfiðustu hindr-
uninni rutt úr veginum
S*n Snlvador. El Salvador. 27. aDrfl. AP.
San Salvador, El Salvador, 27. aprfl. AP.
LEIÐTOGAR vinstrimanna og bandarískur diplómat eru sammála um, að
med dauða skæruliðaleiðtogans Cayetano Carpio nýverið hafi erfiðustu
hindruninni í samningaviðræðum á milli skæruliða og stjórnvalda verið rutt
úr vegi.
Tveir dóu
eftir „yfir-
heyrslur“
Bonn, 27. aprfl. AP.
SEXTÍU og átta ára gamall Vestur-
Þjóðverji lézt sl. þriðjudag á austur-
þýzkri landamærastöð. Er það annað
dauðsfallið af þessu tagi á skömmm-
um tíma. Sagði talsmaður fyrir sam-
þýzka ráðuneytið f Bonn f dag, að
maðurinn, sem hét Heinz Moldenhau-
er, hefði dáið, er han var „yfirheyrð-
ur“ af austurþýzkum tollþjónum í
landamærastöðinni í Wartha fyrir
norðaustan Frankfurt.
Dauði 45 ára gamals manns í yf-
irheyrslum austur-þýzkra lögrelgu-
þjóna á landamærastöð í Austur-
Berlín fyrr í þessum mánuði, hefur
jafnframt valdið vaxandi deilum
milli samstarfsflokka stjórnarinn-
ar í Bonn. Hafa ýmsir ráðherrar úr
röðum kristilegra demókrata viljað
taka upp harðari aðgerðir gegn
Austur-Þýzkalandi af þessum sök-
um, en forystumenn frjálsra demó-
krata hafa aftur á móti snúizt gegn
því og varað við því, að slíkt yrði til
þess að spilla enn sambúð þýzku
ríkjanna.
Austur-þýzka stjórnin afhenti á
mánudag skýrslu, sem lofað hafði
verið varðandi dauða mannsins,
sem lézt 10. apríl, en hann hét
Ewald Modt Burkert, 45 ára að al-
dri. Ekki hefur verið skýrt frá efni
skýrslunnar opinberlega, en áður
höfðu austur-þýzk stjórnvöld sagt,
að Burkert hefði dáið af hjartaslagi
við landamærastöðina Drewitz í
Berlin. Vestur-þýzka stjórnin hefur
aftur á móti haldið því fram, að
áverkar hafi fundizt á líki Burkerts,
sem engin skýring hafi fengizt á.
Á fundi með fréttamönnum í síð-
ustu viku, sem fram fór í Miinchen,
sagði Frans Josef Strauss, forsæt-
isráðherra Bæjaralands, að ekki
væri annað hægt en að líta á dauða
Burkerts sem „morðmál".
Hindri vígbún-
að í geimnum
Moskvu, 27. aprfl. AP.
YURI Andropov, leiðtogi sovézka
kommúnistaflokksins hvatti í dag
bandaríska vísindamenn til þess
að gera allt, sem í þeirra valdi
stendur til þess að koma í veg
fyrir, að vígbúnaðarkapphlaupið
yrði látið ná út í heimingeiminn.
Samkvæmt frásögn sovézku
fréttastofunnar TASS kom þessi
áskorun Andropov fram í svari
hans við skímskeyti til hans frá
ýmsum bandarískum vísinda-
mönnum og „fleiri kunnum
mönnum" í Bandaríkjunum, sem
áhyggjur hafa af hervæðingu
geimsins.
„Það leikur ekki neinn vafi á því
nú, að staðan er miklu opnari nú
en hún var,“ sagði starfsmaður
bandaríska sendiráðsins í San
Salvador, sem óskaði nafnleyndar.
Carpio var leiðtogi stærstu og
þá um leið róttækustu skæruliða-
samtakanna í landinu, en saman
börðust fimm þeirra við að velta
stjórninni úr sessi. Að sögn yfir-
valda í Nicaragua framdi Carpio
sjálfsmorð í Managua þann 12.
apríl sl., er hann frétti af því, að
náinn samstarfsmaður hans hefði
staðið á bak við morð á varamanni
hans og hægri handar innan sam-
takanna.
Vinstrisinnar, sem fréttamenn
hafa rætt við, eru þeirrar skoðun-
ar að dauði tveggja æðstu leiðtoga
þeirra, hafi rutt brautina fyrir
hófsamari öfl innan samtakanna.
Sumir höfðu meira að segja á orði,
að miklu skipti að Carpio væri all-
ur því með hann við stjórn hefði
aldrei náðst samkomulag.
HANDFÆRAVINDUR
FÆREYSKAR
NÆLONLÍNUR
HANDFÆRAÖNGLAR
MEÐ GERVIBEITU
HANDFÆRASÖKKUR
1125—2000 gr.
TIL SJÓSTANGAVEIÐI
HANDFÆRAVINDUR
MEÐ STÖNG
SJÓVEIÐISTENGUR
MEÐ HJÓLI
SJÓSPÚNAR OG PILAR
MJÖG FJÖLBR. ÚRVAL
KOLAFÆRI OG VINDUR
KOLANET
SILUNGANET
RAUÐMAGANET
GRÁSLEPPUNET
NETAFLOT
SIGURNAGLAR
HÁKARLAÖNGLAR
SKÖTULÓÐARÖNGLAR
BJÖRGUNARVESTI
FYRIR BÖRN OG FULLORÐNA
GARÐYRKJUÁHÖLD
SKÓFLUR ALLSKONAR
RISTUSPAÐAR
KANTSKERAR
GAROHRÍFUR
GIRÐINGATENGUR
GIROINGAVÍR, GALV.
GARÐKÖNNUR
GARÐSLÖNGUR
VATNSÚÐARAR
SLÖNGUKRANAR
SLÖNGUTENGI
SLÖNGUGRINDUR
JÁRNKARLAR
JARÐHAKAR
SLEGGJUR
•
GÚMMÍSLÖNGUR
ALLAR STÆRÐIR
PLASTSLÖNGUR
GLÆRAR MEÐ OG
ÁN INNLEGGS
Sími 28855
Opið laugardaga 9—12.
Gengi 7/4 '83.
NÚ ER TÆKIFÆRIÐ AÐ TRYGGJA SÉR ÞENNAN
VINSÆLA BÍL Á VERÐI SEM EKKI KEMUR AFTUR
VERÐ FRA KR. 191.000
HONDA Á ÍSLANDI — VATNAGÖRÐUM 24 — SÍMI 38772 — 39460