Morgunblaðið - 28.04.1983, Page 25

Morgunblaðið - 28.04.1983, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 1983 25 Neyðarsendirinn reyndist í lagi og hefur 5ur af vegna legu flugvélarinnar í vatninu. aftur, en það bendir til þess að hreyfillinn n snúningi er flugvélin skall í sjávarflötinn. igtruflana flugvéla, sem eru í aðflugi og brottflugi frá vellinum vegna vél- arhávaða. Logn var þegar slysið varð og berst hljóð betur við þær kringumstæður. í ljós hefur komið að neyðarsend- ir flugvélarinnar var í lagi og fór í gang þegar flugvélin skall í sjávar- flötinn. Hins vegar heyrðust send- ingar ekki á neyðarby'gjum og er ástæðan talin sú að sendirinn var meira og minna skermaður af vegna legu flugvélarinnar í sjónum. orðan Kleppsmýrarvegar í gær, en sina hefur Morgunblaöið/Ól.K.M. œmur fram íáskólasjóös skemmtunar til ágóða fyrir Háskólajóð. Verður hún haldin í Háskólabíói að kvöldi dags 28. mái nk. Þar mun vænt- anlega koma fram hinn heimsfrægi leikari og píanóleikari, Victor Borge, en hann mun síðar skemmta í Þjóðleikhús- inu. Á skemmtuninni í Háskólabíói 28. maí munu einnig koma fram frægir hérlendir listamenn og skemmtikraftar, og verður nánar greint frá því síðar, er dagskráin hefur verið endanlega ákveð- in. (Fréttatílkynning frá Stúdentafélagi Reykjavíkur.) Lögbann lagt við sements- flutningum til Kröflu AÐ KRÖFU Bílstjórafélags Suður-Þingeyjasýslu var kveðinn upp í gær lög- bannsúrskurður af sýslumannsembættinu í Þingeyjarsýslu við flutningum á sementi frá Húsavík til Kröfluvirkjunar. Er þetta annar lögbannsúrskurður- inn sem lagður er á þessa flutninga á einu ári, en 26. aprfl 1982 var samskonar íögbannsúrskurður kveðinn upp af sýslumannsembættinu og hann síðan staðfestur með dómi sem gekk 17. desember í vetur í aukadóm- þingi Þingeyjarsýslu. Þeim dómi hefur verið áfrýjað til Hæstaréttar. Úr- skurðinn kvað upp Sigurður Gizurarson, sýslumaður og tekur lögbannið gildi strax og lögð hefur verið fram 20 þúsund króna trygging fyrir því. Málsatvik eru þau að Bílstjórafé- lagið telur sig hafa einkarétt á þessum flutningum innan síns fé- lagssvæðis og hafi sá einkaréttur verið staðfestur með fyrrgreindum dómi frá í vetur. Byggja þeir mál sitt meðal annars á ákvæðum laga um leigubifreiðar nr. 36/1970 og vísaði lögmaður þeirra einkum til fyrrgreinds dóms um röksemdir fyrir því að farið yrði nú að kröfu um lögbann. Gerðaþoli, sem er verktakafyr- irtækið Drif sf, ásamt Rafmagns- veitum Ríkisins fyrir hönd Kröflu- virkjunar, telur að Bílstjórafélagið hafi fyrirgert einkarétti sínum, ef um einhvern slíkan rétt er að ræða, en það eigi Hæstiréttur eftir að staðfesta, með því að taka þátt í útboði sem fram fór á sements- flutningum og öðrum flutningum til Kröfluvirkjunar í vetur. Þar gerði Bílstjórafélag Suður-Þingeyj- arsýslu ásamt Bílstjórafélagi Húsavíkur tilboð í einn verkþátt- inn, sementsflutninganna, en verk- þættir voru 6 og gerðu alls 15 aðil- ar tilboð í einhverja þeirra eða alla. í útboðsgögnum sé áskilinn réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum og hafi Bílstjórafélög- in, með því að taka þátt í útboðinu, gengist undir þá skilmála. Þegar ljóst hafi verið að tilboði Bílstjóra- félaganna yrði ekki tekið, vegna Hagvangur hf.: Um framkvæmd skoðanakannana Morgunblaðinu hefur borist eftirfarandi umsögn frá Hagvangi hf. um framkvæmd skoðanakannana. Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum gerði Hagvangur hf. skoðana- könnun á fylgi stjórnmálaflokkanna fyrir Alþingiskosningarnar 23. aprfl sl. Könnunin var unnin í samráði við Norman Webb, ritara alþjóðasamtakanna „Gallup International", og tókst hún í alla staði mjög vel. Það er fullvissa okkar og ráðgjafa okkar, að niðurstöður könnunar- innar hafl geflð glögga mynd af viðhorfum kjósenda á þeim tíma sem könnunin fór fram. I þessu sambandi er rétt að taka fram, að könnunin sagði að- eins til um viðhorf kjósenda hálfum mánuði fyrir kjördag, en var á engan hátt spá um raun- veruleg úrslit kosninganna. Ef svo væri, er m.a. verið að halda fram að kosningabarátta fram- boðslista síðustu vikurnar fyrir kjördag sé tilgangslítil og höfði á lítinn sem engan hátt til kjós- enda. Þegar þannig er ekki um spá að ræða, er allur samanburður á niðurstöðum ólíkra kannana og kosningaúrslita marklítill. I Vestur-Evrópu hefur þróun- in á síðustu misserum einkennst af fráhvarfi kjósenda frá hefð- bundnum flokkum, auk þess hafa rannsóknir sýnt, að mun al- gengara er en áður, að kjósendur skipti um skoðun eftir því sem nær dregur kjördegi, og jafnvel á síðustu stundu. Þessi þróun virð- ist vera sambærileg við niður- stöður kosninganna 23. apríl, og koma því að þessu leyti ekki á óvart. Til að unnt sé að spá um úrslit kosninga á grundvelli kannana þarf að eiga sér stað markviss upplýsingasöfnun um fylgni og samhengi á milli raunverulegra úrslita og niðurstaðna úr skoð- anakönnunum. Sem dæmi má nefna að í um- ræddri könnun fengust upplýs- ingar um kosningarnar 1979. Aukning fylgis milli flokka, skoðanir og breytingar þeirra eftir aldurshópum, kyni, búsetu, atvinnu, menntun o.fl. Allar þessar upplýsingar geymir Hagvangur hf., sem trúnaðarmál og hefur enginn utan fyrirtækisins aðgang að þeim. Með þessum hætti er fenginn einn fyrsti vísir hér á landi að áreiðanlegum upplýsingum, sem unnt er að nota í framtíðinni, m.a. þegar gerðar eru kosn- ingaspár. I þeim athugunum sem Hag- vangur hf. og samstarfsaðilar fyrirtækisins hafa gert, hafa þessar upplýsingar þegar sannað gildi sitt og lofa góðu um fram- haldið. Ein af grundvallarforsendum við gerð skoðanakannana á al- mennum stjórnmálaviðhorfum er sú, að gagnkvæmt traust sé á milli þátttakenda og fram- kvæmdaaðila. Reynsla Hag- vangs hf., hvað þetta varðar var mjög góð, enda fékkst mun hærra svarhlutfall en áður hefur þekkst í sambærilegum könnun- um hér á landi. Það er mikilvægt að vanda til allra vinnubragða og gera lágmarkskröfur til þeirra er standa að slíkum könn- unum, bæði aðferðafræðilega séð og varðandi túlkun á niðurstöð- um. Eins og gert var ráð fyrir, verður framhald á samvinnu Hagvangs hf., og Gallup Inter- national. Mun fulltrúi Hagvangs hf., sækja alþjóðlegt þing Gall- up-fyrirtækjanna sem er haldið í Bandaríkjunum um þessar mundir. Með þessu samstarfi er vonanst til að unnt verið að nýta reynslu erlendra rannsókn- arfyritækja, og skapa skilyrði fyrir innlendar rannsóknir á stjórnmálaviðhorfum. Að lokum er rétt að geta þess, að á síðustu árum hefur gerð skoðanakannana aukist hér á landi, jafnframt sem umræður um framkvæmd þeirra og með- ferð upplýsinga hafa orðið meiri. Raddir hafa verið uppi um, að setja í ríkari mæli ákveðnar reglur þar að lútandi, og telur Hagvangur hf. að slík umræða sé af hinu góða, og reyndar nauðsynlegt að finna slíkum rannsóknum ákveðinn farveg sem allir geti sætt sig við. Vill Hagvangur hf. því hafa forgöngu um að haldin verði ráðstefna á næsta vetri þar sem öll þessi málefni verða til um- fjöllunar. Hagvangur hf. Frá málarekstrinum í gær vegna lögbannsbeiðninnar. Sigurður Gizurarson, sýslumaður lengst til vinstri. Umboðsmaður gerðarþolenda, Drift sf., Þórar- inn Þórarinsson, flytur mál sitt. Morgunblaðið/KEE. þess að önnur tilboð voru lægri, hafi þau gripið til hótana um lög- bann, ef ekki yrði gengið til samn- inga við þá og vísað til dómsins í því sambandi. Bílstjórafélögin halda því hins vegar fram að ekki muni miklu á þeirra tilboði og öðrum tilboðum sem bárust í verkið, þar sem þeirra tilboð hafi eitt tilboða gert ráð fyrir flutningi beint frá skipshlið og uppskipunar- og geymslukostn- aði verði því að bæta við hin tilboð- in, til þess að þau gefi rétta mynd af flutningskostnaðinum. Einungis eru það 200 tonn af sementi, sem málið snýst um. Til- boð Bílstjórafélaganna var upp á 300 krónur á tonn eða samtals upp á 60 þúsund krónur, en tilboð Drif sf. var upp 150 krónur á tonn eða samtals 30 þúsund krónur, en því til viðbótar telja fulltrúar Bístjóra- félaganna að þurfi að bæta 110—115 krónum á tonn, þar sem það tilboð hljóðaði ekki upp á flutning frá skipshlið, heldur frá Húsavík. Hjá gerðarþolendum kom fram sú skoðun að þetta mál snúist í raun um atvinnufrelsi og frjálsa verktakastarfsemi í landinu, sem og það að geta tekið hagkvæmasta tilboði í flutninga hverju sinni. Hjá gerðarbeiðendum kom fram, að þeir væru með lögbannsbeiðninni að verja atvinnurétt sinn. „Tefli helzt ekki á tvær hættur“ segir Hilmar Karlsson skákmeistari íslands „ÞETTA var strembið og reyndi á þrekið,“ sagði Hilmar Karlsson, skák- meistari íslands, í samtali við Morgun- blaðið, en á þriðjudag varð hann ís- landsmeistari í skák, eftir úrslita- keppni við Elvar Guðmundsson og Ágúst S. Karlsson. Hilmar og Elvar urðu jafnir að stigum f úrslitakeppn- inni, en Hilmar hlaut meistaratitilinn þar sem andstæðingar, sem hann bar sigurorð af á Skákþinginu, voru stiga- hærri en þeir sem Elvar vann. Hilmar er 25 ára Reykvíkingur, hefur starfað í Búnaðarbankanum frá í fyrra, en stundar að öðrum kosti nám í Kennaraháskólanum og hyggst ljúka námi næsta vor. „Þetta byrjaði allt saman í kring- um einvígi þeirra Fischers og Spasskýs 1972, þá greip dellan mig eins og aðra og ég fylgdist með um fjórðungi skákanna í Laugardalshöll af miklum áhuga. Ég tók að sækja æfingar og keypti mér skákbækur til að nema íþróttina. Og þannig hefur skáknámið verið, æfingar með félögunum, þar sem við höfum teflt okkar á milli og farið yfir okkar eigin skákir og meistar- anna, auk lesturs skákbóka og blaða. Ég hefði þurft að gefa mér meiri tíma í námið um dagana. Þetta hefur fyrst og fremst verið sjálsfnám, en þróunin er sú að verið er að gera mönnum auðveldara að nema sig í skák. Ég á ekki von á því að ég mundi skella mér í atvinnumennsku þótt það byðist. Mér finnst nóg að hafa skákina sem hobbý, að vísu nokkuð stórt. Ég get ekki sagt að ég haldi upp á neinn sérstakan meistara. Ég hef velt þessu mikið fyrir mér, en hef ekki tekið neinn þeirra mér sérstak- lega til fyrirmyndar," sagði Hilmar. Hilmar hefur teflt fyrir Taflfélag Seltjarnarness í fimm ár rúm, var áður í Taflfélagi Reykjavíkur, en fór yfir í Seltjarnarnesfélagið með nokkrum félögum sínum af nesinu eftir stofnun félagsins 1977. Hann hefur þrívegis orðið skákmeistari Seltjarnarness. Hann byrjaði að Hilmar Karlsson, skákmeistari ís- lands, að talfi. Á borðinu er loka- staðan í síðustu viðureigninni á skákþinginu. Morgunblaðið/KOE keppa á mótum strax 1972 og árið 1976 varð hann unglingameistari Is- lands. Hann hefur aðeins einu sinni keppt á móti í útlöndum, á Norður- landamóti 1973. En hann tefldi á Reykjavíkurmótinu á Kjarvalsstöð- um í fyrravetur, sem var alþjóðlegt mót. Meðal verðlauna fyrir sigurinn á Skákþinginu var þátttaka í Norð- urlandamótinu, og býst Hilmar við að tefla í úrvalsflokki þar, en mótið fer fram í sumar. Éinnig hlaut Hilmar sólarlandaferð að launum. „Þetta var fjórða keppni mín á Skákþingi íslands og sú þriðja í landsliðsflokki. Ég held að það sé ekkert öðru fremur sem einkennir minn skákstíl. Þó reyni ég yfirleitt að tefla ekki á tvær hættur og geng mjög langt í þeim efnum, reyni að leika þeim leikjum sem eru eðlilegir og þvinga ekkert fram. Ég mundi segja að endataflið væri veikasta hliðin, en að ég væri sterkur í byrj- unum og miðtaflinu," sagði Hilmar Karlsson að lokum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.