Morgunblaðið - 28.04.1983, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 1983
31
Lagerhúsnæði Alko í Helsinki, sem lýst er í greininni. Mannshöndin kemur
þar hvergi nærri.
og sjálfir segja forráðamennirnir,
að fullkomnari verksmiðjur af
þessari gerð finnist ekki í heimin-
um. Eftir að hafa skoðað húsa-
kynni verksmiðjunnar í Helsinki,
Salmisaari, er varla hægt annað
en að leggja bókstaflegan trúnað á
orð þeirra.
Ekki aðeins er tæknin við fram-
leiðsluna fullkomin heldur og allt
annað er málið snertir. Átöppun-
arvélin í Salmisaari afkastar t.d.
24.000 flöskum á klukkustund.
Sérstaka athygli blm. vakt 500
metra langt færiband, sem flytur
framleiðsluna frá verksmiðjunni
yfir í geymsluhúsnæðið. Færi-
bandið er um 25 metrum undir yf-
irborði sjávar í geysilega miklum
jarðgöngum, sem lokið var við að
gera fyrir fimm árum, og þegar
komið er að enda þess tekur við
fullkomnasti lager sem blm. hefur
nokkru sinni séð.
Húsnæðið er um 40 metrar á
hæð, 25—30 metra breitt og tals-
vert á annað hundrað metra langt.
Þar kemur mannshöndin hvergi
nærri. Tölvustýrðir kranar flytja
allt áfengi á þar til gerðum brett-
um um bygginguna þannig að nýt-
ingin er geysilega góð. Pekka
Hoppania, aðstoðarframleiðslu-
stjóri, tjáði mér að 7 milljónir
flaska væru í byggingunni daginn,
sem ég heimsótti verksmiðjuna.
Honum stökk aftur á móti ekki
bros þegar ég minntist á að það
væri eins gott að Finnland lægi
ekki á virku jarðskjálftasvæði.
Harri Fagerlund gat hreint ekki
svarað því hvað lægi að baki
ákvörðun manna um að kaupa
finnskt vodka öðrum tegundum
framar. Hann var helst þeirrar
skoðunar, að umbúðirnar um vör-
una svo og kynning hennar vægi
þyngra en sjálfur drykkurinn.
Vodka væri í sjálfu sér næstum
sami drykkurinn nær alls staðar í
heiminum.
Finnska vodkað sagði hann þó
hafa einn kost umfram margar
aðrar tegundir og það væri af-
bragðsgott vatn. Gat hann sér
þess til, að þar væri kannski að
finna skýringuna á finnsku vodka
á íslandi.
Wiener Festwochen
VIKUFERÐ TIL VINARB0RGAR
FYRIR AÐEINS 12.800 KRONUR!
Eitt glæsilegasta ferðatilboð sumarsins
Ferðaskrifstofan Farandi efnir til sérstakrcir hópferðar til Vínarborg-
ar, dagana 2. til 9. júní næstkomandi. Hér er um að ræða einstakt
tækifæri, sem varla gefst aftur fyrir þetta verð.
Vínarborg, ein fegursta borg í heimi, býður farþega okkar velkomna
með mikilli listahátíð, Wiener Festwochen. Á þessari hátíð gefst
tækifæri til að sjá Rigoletto, Ástardrykkinn, Sígaunabaróninn
og My Fair Lady í Vínaróperunni, Svanavatnið, Romeo og
Júlíu, o.fl. með Bolschoi Ballettinum rússneska, hlýða á Vínar-
drengjakórinn flytja hámessu, sækja kammertónleika, sin-
fóníutónleika, og margs konar leikhús, jazzklúbba og kaffihús.
Vínarborg er í fegursta vorskrúða á þessum tíma árs. Vínarbúar eru
líka í hátíðaskapi með vín, söng og kæti á hverju homi. Vínar-
stemmningin er engu lík. Farþegum Faranda er auðvitað frjálst að
verja tíma sínum í Vínarborg eins og þeim best hentar, en Farandi
verður með íslenskan fararstjóra til taks, sem er þaulkunnugur borg-
inni.
Þetta ferðatilboð til Vínarborgar verður ekki endurtekið. Verðið er
ótrúlegt, aðeins 12.800.00, en það innifelur beint flug til Vínarborgar
og til baka, gistingu á þægilegu austurrísku hóteli, morgunverð og
aðstoð við öflun aðgöngumiða á tónleika, ópemsýningar, balletta,
söngleiki, skoðunarferðir í Austurríki eða jafnvel til Ungverjalands,
- dagsferð til Budapest.
Þetta er eitt glæsilegasta ferðatilboð sumarsins.
Verðið er ótrúlega viðráðanlegt.
Aðeins takmarkaður fjöldi kemst með!
Nánari upplýsingar á skrifstofunni.
Ifaiandi
Vesturgötu 4 - sími: 17445.
Sérfræðingar í spennandi sumarleyfisferðum
JANE FONDA
jantf runua 9 worKOUl aiDUm
Fáar hljómplötur hafa vakið annað eins umtal
og athygli síðustu árin og æfingaplatan henn-
ar Jane Fonda. Salan hefur verið slík aö nú
vermir þessi einstaka plata poppvinsælda-
lista um víöa veröld. Nú er tækifærið að gera
leikfimisæfingarnar með Jane Fonda sjálfri,
hvar og hvenær sem er. Fæst á plötu og
kassettu.
&KARNABÆR stdoor
HLJÓMPLÖTUDEILD
HLJÓMPLÖTUDEILD
Austurstræti 22, Laugavegi 66. Rauöarárstig 16. Glassibæ
Mars. Hafnarfiröi, Ptðtuklubbur/ Póstkröfusími 11620