Morgunblaðið - 28.04.1983, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 1983
37
Ástmundi alúðarfyllstu þakkir
fyrir áratuga heillarík störf.
Ágústu og fjölskyldunni allri
vottum við okkar dýpstu samúð.
Oddur Ólafsson
í tilefni þess, að frændi okkar og
vinur, Ástmundur Guðmundsson,
verður í dag borinn til grafar,
langar okkur bræður að kveðja
hann með nokkrum orðum, því
okkur er það ljóst nú, að hann
hafði óvenju sterk og mótandi
áhrif á hug okkar og skoðanir í
æsku.
Ástmundur Guðmundsson
fæddist á Eyrarbakka 28. júlí
1910. Hann var sonur hjónanna
Guðmundar Guðmundssonar, bók-
haldara, og konu hans, Snjólaugar
Sveinsdóttur, og var því afabróðir
okkar í föðurætt. Ástmundur gift-
ist Ágústu Ágústsdóttur, dóttur
Ágústs Guðmundssonar og konu
hans, Ingigerðar Sigurðardóttur.
Þau eignuðust fjögur börn: írisi,
Guðlaugu, Björn Ágúst og Ástu
Ingigerði og bjuggu þeim óvenju
gott og hlýlegt heimili. Þrátt fyrir
að Ástmundur hafi verið sérlega
virkur og störfum hlaðinn for-
stjóri í stóru fyrirtæki, kom hann
okkur aldrei fyrir sjónir öðruvísi
en sem næmur og áhugasamur
maður um málefni unga fólksins.
Hann fann ávallt upp á nýjum
og oft ótrúlegustu hlutum til að
koma unga fólkinu skemmtilega á
óvart og virkja athafnasemi þess.
Enda virtist hann hafa mikla þörf
fyrir að hjálpa og gleðja aðra.
Hið myndarlega heimili þeirra
hjóna var okkur alltaf sem opið
hús hvenær sem okkur bar að
garði og Ágústa sá um að enginn
slapp við að fá eitthvað gott í
magann.
Ogleymanleg verða okkur hin
árlegu jólaboð við Hringbraut og
seinna að Grenimel 1, svo og allar
minni eða meiri háttar heimsókn-
ir þangað. En ekki síst höfum við
ljúfar endurminningar um Ást-
mund úr Mosfellssveit þar sem
þau hjón bjuggu ávallt sumar-
langt í nágrenni við foreldra
okkar í notalegum sumarbústað
sínum á „Eyrinni". Þar má segja
að við bræðurnir höfum átt okkar
annað heimili í uppvexti okkar í
bræðralagi við Björn Ágúst
frænda okkar. í þá daga var margt
brallað og margt af því, sem við
tókum okkur sameiginlega fyrir
hendur, orkaði vissulega tvímælis,
en aldrei minnumst við þess, að
Ástmundur léti okkur gjalda þess.
Hann gerði ævinlega gott úr öllu
og er okkur ekki grunlaust um
(svona eftirá) að hann hafi haft
lúmskt gaman af öllu saman.
Enda nýtti hann sér stundum full-
vel ýmis mistök okkar í sérgrein
sinni, „stríðninni", enda vorum við
farnir að reikna með stríðnisglós-
um hans, sem báru vott um
hnitmiðaða kímnigáfu.
Ástmundur skynjað snilldarvel
hvernig bregðast skyldi við gagn-
vart unga fólkinu. Refsing fyrir
víxlspor var ekki hans aðferð, en
stríðnin kom seinna þegar allt var
komið í jafnvægi. Slíkt var næmi
hans og skilningur á unglingum.
Það skýrir jafnframt, að eftir að
við vorum komnir til vits og ára,
sannreyndum við, að mörg af eft-
irminnilegustu ævintýrum æsku
okkar voru að hluta til skipulögð
af honum. Ef til vill komumst við
aldrei alfarið að því sanna í þeim
efnum, en svo mikið er víst, að
hann bjargaði ýmsum vítaspyrn-
um á okkur í horn í gegnum tíðina.
— Það verður því að segja, að
auk okkar eigin foreldra hafi
Ástmundur frændi okkar haft
mikil áhrif á uppeldi okkar og
hamingjusama æsku. Okkar
endurminningar um þennan sér-
staka frænda okkar verða sem
betur fer aldrei frá okkur teknar
og faúm við seint fullþakkað allt
það sem hann gerði vel til okkar.
Nú, þegar Ástmundur Guð-
mundsson hefur kvatt þennan
heim eftir áratugar sjúkdómslegu,
minnumst við með aðdáun styrks
og þrautseigju konu hans, Ágústu,
og systkinanna í þungri raun. Við
vottum þeim okkar innilegustu
samúð.
Guðmundur og Kjartan
Lárussynir.
Þegar SÍBS hóf starfsemina að
Reykjalundi á útmánuðum ársins
1945 í landi Suður-Reykja í Mos-
fellssveit var nokkurt landnám
þegar hafið í grenndinni, þar sem
Varmá rennur hægt fram með
hlíðum rétt suðvestan við þar sem
Reykjalundur síðar reis. Hjónin
Ágústa Ágústsdóttir og Ástmund-
ur Guðmundsson voru meðal land-
nema á berum melunum, sem þar
voru þá, og áttu myndarlegt
sumarhús á eyrinni við ána. Þau
höfðu þegar hafist handa við
ræktun lands, m.a. komið af stað
umfangsmikilli trjárækt. Eyrin
breyttist smám saman í gróður-
reit í þess orðs eiginlegri
merkingu. Nú gnæfa þar tré, stolt
og reisuleg, og bera um langa
framtíð vott um handbragð og
hugsjónir þeirra sem þar stóðu að
verki. Þau hjón, Ágústa og Ást-
mundur, áttu þar ekki minnstan
hlut að máli.
Tengsl þeirra við Mosfellssveit-
ina urðu sterk og farsæl. Sambýli
Reykjalundar og þeirra hefur var-
að frá upphafsdegi starfseminnar
og staðið nú í 38 ár. Sambýli leiðir
af sér samskipti og þau hófust
jafnsnemma sambýlinu, jukust
með árunum og hafa ávallt verið
Reykjalundi í hag, allt frá frum-
býlingsárum til dagsins í dag.
Ávinningurinn einatt verið
Reykjalundar.
Samskiptatengsl Ástmundar og
Reykjalundar voru vafalítið greið-
ari í upphafi fyrir þá sök, að hann
hafði þegar hér var komið sögu
kynnst berklaveiki af eigin raun.
Tæplega þrítugur veiktist hann,
árið 1939, af lungnaberklum.
Hann var aðeins 5 mánuði á Víf-
ilsstöðum, skömm vist og vel
sloppið á kvarða þess tíma. Það
var hins vegar svo með lungna-
berklana á þeim árum að sjúkl-
ingarnir voru sjaldnast búnir að
bíta úr nálinni þótt tækist að
komast fyrir sýkinguna sjálfa. í
flestum tilvikum stóðu eftir var-
anleg ummerki, minnkuð afköst
lungnanna, og var svo hjá Ást-
mundi í umtalsverðum mæli. Ekki
lét hann þó afleiðingar lungna-
berklanna skerða athafnaferil
sinn, hvorki í starfi, fjölskyldu-
högum, áhugamálum eða félags-
lífi. Hann tókst á við afleiðingarn-
ar og bar þær ofurliði með dyggri
aðstoð konu sinnar.
Bein afskipti Ástmundar af
málefnum Reykjalundar hófust
nokkrum árum eftir að starfsemin
þar hófst með því að þing SÍBS
kaus hann varamann í stjórn
Reykjalundar. Á 11. þingi SÍBS
árið 1958 var hann síðan kjörinn
formaður stjórnar Reykjalundar
og formennsku gegndi hann í 24
ár, allt til haustsins 1982. Hann
var röggsamur formaður og glæsi-
legur, áhugasamur og ákveðinn,
ekki gefinn fyrir málskrúð og
vangaveltur, heldur gekk snar og
hiklaus til verka. Vegna atvinnu
sinnar bjó hann yfir langri og
góðri reynslu af hvers konar fram-
kvæmdum og viðskiptum og naut
Reykjalundur góðs af. Hann lagði
kapp á að Reykjalundur stæði við
fjárhagslegar skuldbindingar sín-
ar, að rekstur verkstæðanna væri
með þeim hætti að þau stæðu und-
ir nafni og fengju staðið eða fallið
með gæðum framleiðslu sinnar.
Með því móti einu gætu vistmenn
átt þess kost að spreyta sig á al-
vöruverkefnum á vinnustað, sem
gerðu þá færari fyrir bragðið að
standast samkeppni síðar meir á
almennum vinnumarkaði.
Einn var sá þáttur í lífsmáta
Ástmundar sem fór leynt, sá að
veita liðsinni fólki sem sýndi því
hug að ná tilteknum markmiðum
en mætti hindrunum af einu tagi
eða öðru. Oftar en ekki réði lið-
veisla hans baggamuninn. Svo var
ekki fjölyrt um það meir.
Árið 1973 varð Ástmundur enn
fyrir alvarlegu heilsufarsáfalli,
rúmlega 63 ára gamall, en sinnti
engu að síður formennskunni
áfram í stjórn Reykjalundar. Án
efa hefur Ástmundi, hugmynda-
ríkum dugnaðarmanni, fallið
þungt að bati brást, þótt ekki sæj-
ust merki þess í dagfari hans. Lík-
amleg áföll léku hann grátt hvað
eftir annað síðasta áratuginn, en
fengu í engu skert andlega reisn
hans sem hélst óbreytt til hinsta
dags, 19. þ.m.
Því fylgdi fögnuður að fá að
kynnast Astmundi og eiga með
honum samstarf.
Starfsmenn og vistmenn á
+ Faöir okkar og tengdafaöir,
HJÁLMAR PÁLSSON frá Kambi, Deildardal,
veröur jarösunginn frá Hofskirkju á Höföaströnd laugardaginn 30.
apríl kl. 2.
Guörún Hjálmarsdóttir, Hjálmar Sigmarsson,
Páll Hjálmarsson, Ragnar Hjálmarsson, Erla Jónsdóttir,
Ásta Hjálmarsdóttir, Pétur Kúld Ingólfsson,
Þóranna Hjálmarsdóttir, Hafsteinn Lárusson,
Hulda Hjálmarsdóttir, Þórarinn Andrewsson,
Skarphéöinn Hjálmarsson, Linda Steingrímsdóttir.
+
SIGURLAUG SIGURJÓNSDÓTTIR
frá Stoinnesi,
verður jarðsungin frá Þingeyrarkirkju laugardaginn 30. apríl kl.
14.
Vandamenn.
+ Móöir okkar, tengdamóöir og systir,
JÓNÍNA GUÐJÓNSDÓTTIR, Njaröargötu 37, Reykjavík,
veröur jarösungin frá Fossvogskapeliu föstudaginn 29. apríl kl.
10.30.
Elínborg Reynisdóttir, Skarphéöinn Árnason,
Guöjón Reynisson, Laufey Magnúsdóttir,
Guörún Reynisdóttir, Ragnar Þorsteinsson,
Siguröur Reynisson, Guðrún Guöjónsdóttir. Kristjana Guömundsdóttir.
þökk og söknuði. Þeir flytja Ágústu, börnum þeirra, tengda- börnum og barnabörnum innileg- +
ar samúðarkveðjur. Bróöir okkar, ■
Haukur Þórðarson BJARNI MATTHÍASSON, Fossi, Hrunamannahreppi,
Góður maður er genginn. Ég frétti hjá sjúkri vinkonu minni, að veröur jarösunginn frá Hrunakirkju, laugardaginn 30. apríl kl. 1 e.h. Jarðsett veröur í Tungufelli.
Systkinin.
afabróðir barnanna minna hefði
fengið hvíldina. ósjálfrátt fór ég
að hugsa um dauðann og þá orð
Kahil Gibran sem sagði: „Þú leitar
að leyndardómi dauðans. En
hvernig ættir þú að finna hann ef
þú leitar hans ekki í æðaslögum
lífsins."
Hugurinn leitar 20 ár aftur í
tímann, og ég sé fyrir mér Ást-
mund Guðmundsson, stóran og
glæsilegan mann, en umfram allt
lifandi mann, með hlýjar tilfinn-
ingar og stórt hjarta. Mann sem
kunni að gleðjast og mann sem
kunni að finna til og sýna það sem
hann fann.
Fyrir þetta og ótal margt annað
vil ég þakka honum og segja: „Og
þegar jörðin krefst líkama þíns,
muntu dansa í fyrsta sinn.“
Helga Mattína.
+
Eiginmaður minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi,
HANNES GUÐMUNDSSON,
Reykjavíkurvegi 7,
verður jarösunginn frá Þjóðkirkjunni ( Hafnarfiröi, föstudaginn 29.
apríl kl. 13.30.
Steinþóra Níelsdóttir,
Páll Hannesson,
Jóhanna Hannesdóttir,
Margrót Hannesdóttir,
Níels Hannesson,
Guörún Ásbjörnsdóttir,
Jón Sigurösson,
Sverrir Marinósson,
Lára Magnúsdóttir
og barnabörn.
+
Þökkum sýnda samúö við andlát og útför bróöur okkar,
LOFTSJÓHANNESARJÓNSSONAR
frá Lœkjarbotnum.
Syatkinin.
+
Móðir okkar,
ÓLÖF JÓNSDÓTTIR
frá Katanesi,
Vallholti 17, Akranesi,
veröur jörðuö frá Hallgrímskirkju í Saurbæ, föstudaginn 29. apríl
klukkan 14.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á sjúkrahús Akraness.
Jónína B. Jónsdóttir, Ólafur Jónsson.
Lokaö á morgun, föstudag 29. apríl, eftir hádegi vegna
jarðarfarar
BENEDIKTU JÓNSDÓTTUR.
J.P. innréttingar hf.,
Skeifunni 7.
+
Móðir mín og tengdamóöir,
ÞURÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR,
veröur jarösungin frá nýju Fossvogskapellunni föstudaginn 29.
apríl kl. 13.30.
Magnús E. Baldvinsson,
Unnur Benediktsdóttir.
Lokaö vegna jaröarfarar
Vegna jarðarfarar
ÁSTMUNDAR GUÐMUNDSSONAR,
fyrrv. stjórnarformanns,
verða skrifstofur og söludeild lokuð f.h. fimmtudaginn
28. apríl.
Vinnuheimiliö aö Reykjalundi.
+
Hjartkær eiginkona mín og móöir, tengdamóöir, amma og lang-
amma,
KRISTÍN GÍSLADÓTTIR,
Búöargeröi 5, Reykjavík,
veröur jarösungin frá Bústaðarkirkju, föstudaginn 29. april kl.
15.
Þeir, sem vildu minnast hennar, láti líknarstofnanir njóta þess.
Lárus Salómonsson,
Ármann J. Lárusson, Björg Árnadóttir,
Grettir Lárusson, Ólafía Þóröardóttir,
Kristján Heimir Lárusson, Sigurlaug Björgvinsdóttir,
Brynja Lárusdóttir, Júlíus Einarsson,
Lárus Lárusson, Agnes Tryggvadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.