Morgunblaðið - 08.05.1983, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. MAÍ 1983 3
Lísa Rut var skírð á barnaspítala Hringsins þann 25. mars 1982, fjögurra
daga gömul.
Jóhanna María sagðist hafa ver-
ið flutt suður á Landspítalann
strax þegar hún missti legvatnið.
Eftir þrjá daga fæddist stúlku-
barn og eins og áður sagði 3%
mánuði fyrir tímann, eftir aðeins
24 vikna meðgöngutíma. Barnið
var að sjálfsögðu afar skammt á
veg komið í þroska og alveg eins
hægt að kalla það fóstur eins og
barn. Það var sett í hitakassa og
öndunarvél á vökudeild Barnaspít-
ala Hringsins, sem er nokkurs
konar gjörgæsludeild fyrir ungab-
örn. Fyrstu dagana léttist það og
var komið niður í rúmar 2 merkur
eftir nokkra daga en fljótlega fór
barnið, sem nú er búið að skíra
Lísu Rut, að braggast. Hún var
tekin úr öndunarvélinni eftir 2
mánuði og mánuði seinna var hún
útskrifuð af sjúkrahúsinu, þá orð-
in 9 merkur að þyngd.
Lísa Rut er nú komin á annað
árið. Hún þroskast mjög vel og er
hin sprækasta að sjá. Hún er þó
enn talsvert á eftir jafnöldrum
sínum á sumum sviðum en að sögn
lækna ætti hún að hafa náð þeim
tveggja eða þriggja ára gömul.
Mbl. hafði samband við tvo
lækna vegna þessa máls. Sögðu
þeir að mælingar og þroskamat
staðfestu 24 vikna meðgöngutíma
Lísu Rutar. Kristján Baldvinsson
læknir tók á móti Lísu Rut ásamt
Freyju Antonsdóttur ljósmóður.
Staðfesti hann það sem áður sagði
um meðgöngutíma hennar, þyngd
og lengd. Jafnframt sagðist hann
ekki vita til að nein önnur börn
hér á landi hefðu lifað af eftir jafn
stuttan meðgöngutíma. Sagði
hann að mjög litlar líkur væru á
að börn sem fæddust áður en 28
vikur væru liðnar af meðgöngu-
tíma lifðu af.
Gunnar Biering, yfirlæknir á
vökudeild Barnaspítala Hringsins,
sagði að Lísa Rut hefði verið
ótrúlega sprækt barn miðað við
hversu óþroskuð hún hefði verið
við fæðingu. Einstakt væri hversu
vel hún hefði komist í gegnum
þetta. Hann sagðist heldur ekki
vita til að neitt barn sem fæðst
hefði jafn skammt meðgengið og
Lisa Rut hefði lifað af, en hinsveg-
ar væru staðfest dæmi erlendis
frá um slíkt.
Umboðsmál
KLM á ís-
landi eru
í athugun
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi fréttatilkynning frá
hollenzka flugfélaginu KLM:
„Vegna frétta í íslenzkum fjöl-
miðlum um umboð fyrir KLM,
konunglega hollenzka flugfélagið,
vill KLM gefa eftirfarandi viðbót-
arupplýsingar:
Arið 1953 gerðu Flugfélag ís-
lands og KLM gagnkvæman
samning um að vera aðalum-
boðsaðili hvors annars í eigin
heimalandi. Vegna vissra skipu-
lags- og áætlunarflugsbreytinga
hættu Flugleiðir þann 01.02. ’83
að hafa KLM sem aðalumboðs-
aðila í Hollandi, með samþykki
KLM.
Sömu ástæður gera að verkum
að KLM verður að endurskoða
umboðsmál sín á íslandi. Flug-
leiðir hafa samþykkt að halda
áfram umboði sínu fyrir KLM á
íslandi þar til niðurstöður þess-
arar endurskoðunar liggja fyrir.
Bókanir í ferðir með KLM er
hægt að gera í gegnum íslenzkar
ferðaskrifstofur, umboðsaðilann
og í gegnum CORDA, tölvubók-
unarkerfi Arnarflugs, sem er í
beinu sambandi við bókunar-
kerfi KLM.“
Ný stjórn kosin
í Kísiliöjunni:
Sigurður Rúnar
Ragnarsson skip-
aður formaður
NÝ STJÓRN tók við í Kísiliðjunni
við Mývatn 20. apríl sl., en hana
skipa þrír fulltrúar kosnir af Al-
þingi til fjögurra ára og tveir full-
trúar Mannville, meðeiganda
ríkisins.
Iðnaðarráðherra skipaði Sig-
urð Rúnar Ragnarsson formann
stjórnarinnar, en hann hefur
setið í stjórn fyrirtækisins sl.
fjögur ár og er starfsmaður Kis-
iliðjunnar. Aðrir í stjórn voru
kosnir Jón Illugason og Lárus
Jónsson. Úr stjórn gengu Magn-
ús Jónsson, sem var formaður,
og Pétur Pétursson.
^\skriftar-
síminn er 830 33
í sumarleyfið
Austurstræti 17, sími 26611.
Akureyri:
Hafnarstræti 98, sími 22911.
GISTISTAÐIRNIR ERU ALVEG VIÐ LJOSA, MJÚKA SANDSTRÖNDINA
„GULLNU STRONDINA“, SEM ER í ALGJÖRUM SÉRFLOKKI.
LUNA er vandaður, vinsæll, gististaður með björt-
um, rúmgóöum íbúðum og tullkomnustu þjónustu-
miðstöð, sem völ er á og eigin skrifstofu Útsýnar
(°Pin daglega). 25 verzlanir á jarðhæö, veitingahús,
kaffihús, ísbúö, hjólaleiga, hárgreiöslu- og snyrti-
stofa, diskótek. Skemmtigaröur (Tívoli Luna Park) í
300 m fjarlægð. Dagleg ræsting framkvæmd af ís-
lenzku starfsfólki, barnagæzla.
BROTTFARARDAGAR:
31/5, 21/6, 12/7, 26/7, 2/8, 9/8, 16/8,
23/8, 30/8, 2 eöa 3 vikur.
OLIMPO — TERRA MARE
Nýjasta og glæsilegasta íbúðasamstæðan í LIGN-
ANO viö eina stærstu og glæsilegustu skemmtibáta-
höfn Evrópu.
Þú getur ekiö bílnum að byggingunni ööru megin og
siglt að hinum megin.
Stílhreinar nýtízkuíbúðir með vönduðum búnaöi. Eig-
in skrifstofa Útsýnar á jaröhæð ásamt fjölda
þjónustufyrirtækja, verzlana og veitingastaða.
Sérstakt afmælisverð
á 0LIMP0
sólin skín
IGNAN0
BYÐUR ÞIG
VELKOMINN í 10. SINN
sem
GULLNA
Hvaö segja farþegarnir?
Við hjonin og dottir okkar eigum ekki orð yfir það. hvað ferð okkar til LIGNANO
a ykkar vegum var storkostlega anægjuleg
Það er undravert. hvað Ferðaskrifstofan UTSYN hefur komið ser vel fyrir þarna
og getur veitt Islendingum goða aðhlynningu í fögru umhverfi og fjölbreytni i
ferðalogum. Við vonumst fastlega eftir þvi að geta farið þangað mörgum sinn-
um aftur og munum hvetja kunningja okkar til þess að gera slíkt hið sama.
y^kar Sig Árni Sigurðsson og frú, Neshaga 5, R.
Lignano er alveg frábær staður. Öll þjonusta goð, af-
greiðslufólkið alveg sérlega lipurt. Staðurinn fær eins
margar stjörnur og hægt er að fá. Förum þangaö aftur
við fyrsta tækifæri.
Viðar Magnússon og fjöiskylda,
Einigrund 14, Akranesi.