Morgunblaðið - 08.05.1983, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. MAÍ 1983
. . . verdur sýnd á næstunni. . .
Af töfrasverð-
inu Excalibur
- sem Austurbæjarbíó sýnir á næstunni
Goðsagnir og töfrar hafa
ætíð verið mikilvægir þættir í
kvikmyndum John Boormans.
Hann hefur verið viðriðinn
kvikmyndir í rúm tuttugu ár
og goðsagnir og rómantískir
töfrar eru áberandi einkenni
flestra þeirra, sér í lagi goð-
sögnin um Arthur konung.
Börnin hans fjögur ólust upp
við ævintýri riddara hring-
borðsins en það var ekki fyrr
en árið 1980 að Boorman tókst
að láta draum sinn rætast, að
gera rómantíska kvikmynd um
téða riddara.
Hugmyndin fæðist
Það var árið 1969 sem Boor-
man datt fyrst í hug að gera
þessa kvikmynd og hann skrif-
aði handritið, en forráðamenn
stóru kvikmyndafyrirtækjanna
höfðu engan áhuga. Þeir
hvöttu hann til að kvikmynda
bók Tolkiens „The Lord of the
Rings". Boorman vann að
handritinu í hálft ár en engin
kvikmynd var gerð.
Nokkur ár liðu og Boorman
fylgdist með öðrum kvik-
myndagerðarmönnum kvik-
mynda draumaefnið sitt:
Bresson gerði „Lancelot du
Lac“, Python-hópurinn gerði
mynd um kalleikinn, Rohmer
gerði „Perceval de Gallois" og
Disney-fyrirtækið gerði „The
Spaceman and King Arthur".
En þessar myndir unnu ekki
hylli áhorfenda og það var ekki
fyrr en Stjörnustríðið var
frumsýnd árið 1977 að ævin-
týraæðið byrjaði.
Boorman heldur því fram að
George Lucas hafi byggt mynd
sína á goðsögninni um Arthur
konung. „Það er augljóst," seg-
ir hann, „að Obi-Wan Kenobi
er Merlin og Luke Skywalker
er Arthur á unga aldri og það
þarf ekki mikið hugmyndaflug
til að sjá hver Darth Wader er.
Leia prinsessa er Guenevere og
Han Solo er Lancelot."
Vinsældir Stjörnustríðsins
vöktu áhuga forráðamanna
stóru fyrirtækjanna á draumi
Boormans og allir sem vettl-
ingi gátu valdið reyndu að feta
í fótspor hans. Boorman fékk
fé til að framleiða „Excalibur".
Godsögnin um
Arthur konung
Boorman var á krossgötum
og hann steig bensínið í botn
þegar grænt ljós var gefið.
Hann viðaði að sér efni um
goðsögnina og hafði það til
hliðsjónar við gerð endanlega
handritsins þótt hann kynni
söguna utanað. Meðal verka
sem hann las voru „Le Morte
d’Arthur" eftir Malroy, „The
Wasteland" eftir T.S. Eliot,
„The Once and Future King"
eftir T.H. White og „Camelot".
Sagan hefst í skóginum sem
umkringir Tintagel-kastalann.
Blóðugt stríð er á enda og Uth-
er Pendragon gerir hosur sínar
grænar fyrir brúði hins nýja
Arthur konungur og
Guenevere drottning hans.
Lancelot, lékum eitt atriðið á
vatnsbakka í nístandi kulda.
Við þurftum að liggja nakin og
það var hræðilegt þegar pödd-
ur og alls konar maurar byrj-
uðu að skríða á okkur og bíta.
Mjög rómantískt eða hitt þó
heldur."
Boorman leikstjóri heldur
áfram: „En ég hafði algerlega
frjálsar hendur, öðru vísi hefði
ég ekki getað gert myndina. Ég
tók engin laun fyrir mína
vinnu, flestir leikaranna voru
tiltölulega óþekktir, svo við
þurftum ekki að borga þeim
stjarnfræðilega há laun.“
Riddarar berjast.
John Boorman leikstjóri sýnir
hvernig fara á með töfrasverðið.
vinar síns, hertogans af Corn-
wall. Þessi nótt er örlagarík
því þá kom Arthur undir.
Átján árum síðar berjast
hefðarmenn hins konungslausa
konungsríkis um réttinn yfir
töfrasverðinu Excalibur, sem
var stungið í stein þegar Uther
dó. Engum tekst að leysa
sverðið nema Arthur (Nigel
Terry); hann gerir tilkall til
krúnunnar og með aðstoð hins
dularfulla Merlin Nicol Willi-
amson) reynir hann að sam-
eina landsmenn. Stuttu síðar
kvænist hinn ungi konungur
hinni fallegu Guenevere
(Cherie Lunghi).
Vináttubönd myndast milli
hans og riddara hringborðsins
en hugsjónir þeirra, sannleik-
ur, hugrekki og hreinleiki
hjartans, persónugervast í hin-
um tigna Lancelot (Nicholas
Clay).
En hin gullna öld missir
ljóma sinn; riddarar hring-
borðsins gleyma hugsjónum
sínum og Lancelot gerist elsk-
hugi drottningarinnar sjálfrar.
Spillingin eykst, siðleysi,
svik, metnaður eru orð dagsins
en þá hefst barátta milli hins
góða og illa í leit að kaleiknum
og töfrasverðinu Excalibur.
Á vatnsbakka í
nístandi kulda
Boorman lítur á yfirdrottn-
un Arthurs sem miðdepil hinn-
ar dularfullu fortíðar mann-
kynsins þegar töfrarnir og
rómantíkin voru að breytast í
raunsæi; Merlin sé táknrænn
fyrir þá breytingu. „Mig lang-
aði alltaf til að segja þessa
frægu sögu á minn hátt.“
í september-hefti Films 111-
ustrated 1981 ræðir Tony
Crawley við Boorman um
kvikmyndunina sem var mikil
kvöl fyrir leikstjórann.
„í fyrsta lagi barðist ég við
fjárhagsáætlunina sem var
vægast sagt erfitt. Myndin
kostaði rúmar 11 milljónir
dollara sem er lítið. í öðru lagi
var sumarið 1980 það versta í
írlandi í hundrað ár. Við unn-
um í regni og díkjum allan tím-
ann.“
Cherie Lunghi, sú er leikur
drottninguna, segir svo frá:
„Ég og Nicholas, sem leikur
Boorman skýrir frá því í við-
talinu að eftir að hugmyndinni
að þessari stórmynd skaut
fyrst upp í huga hans, hafi
sögusagnir um að hann ætlaði
að ráða stórstjörnur í aðalhlut-
verkin gengið fjöllunum hærra.
Faye Dunaway átti að leika
drottninguna, Marlon Brando
Arthur konung, Robert Red-
ford Lancelot, Lee Marvin og
Sean Connery komu einnig til
álita og jafnvel Max von Syd-
ow. Slíkar sögusagnir gengu
manna á milli um langt skeið,
en Boorman segir að lítið hafi
verið hæft í þeim. „Blessaður
vertu," segir hann, „við hefðum
aldrei getað borgað öllum þess-
um leikurum þau laun sem þeir
krefjast." Boorman hafði sam-
band við Donald Sutherland,
sem hann metur mikils, en
kappinn var upptekinn þá
stundina við að leika í mynd
Redfords „Ordinary People".
Áhorfendur tóku myndinni
vel þegar hún var frumsýnd í
Englandi og Bandaríkjunum
snemma árs 1981, sér í lagi
vestanhafs. Hún hlaut sömu
viðtökur og hin geggjaða mynd
„The Rocky Horror Picture
Show“. Aðdáendur mættu í
kvikmyndahúsin klæddir ná-
kvæmlega eins og persónur
myndarinnar og hún gengur
enn fyrir fullu húsi í nokkrum
borgum vestanhafs.
HJÓ
SEX
6 af helstu hótelum
Reykjavíkur.
EURQCARD
TIL DAGLEGRA NOTA
í Kaupmannahöfn
FÆST
M BLAÐASÖLUNNI
A JÁRNBRAUTAR-
STÖÐINNI
OG Á KASTRUP-
FLUGVELLI
Ný sending frá
TOPS
Leðurskór, stærð 35—41.
Litir: Rautt, hvítt, grænt,
blátt. Verð kr. 550,-
Leöurmokkasíur, stærö
35—41.
Litir: Svart, blátt, hvítt,
rautt. Verð kr. 550,-
Kínaskór.
Litir: Svart, hvítt, blátt.
Verð kr. 135,-
íþróttaskór
með frönskum rennilás.
Verð kr. 380,-
Hér gefur að líta fáar
gerðir af mörgum sem
, nýkomnar eru.
Póstsendum
VELTUSUND11
21212