Morgunblaðið - 25.05.1983, Qupperneq 1
68 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
115. tbl. 70. árg.
MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1983
Prentsmiðja Morgunblaösins
Staðan á miðnætti í stjórnarmyndunarviðræðum Sjálfstæðisflokks og Framsóknar:
Samningar
á lokastigi
Flokksráðs- og miðstjórnarfundir í dag
Á MIÐNÆTO í nótt um það leyti sem Mbl. fór í prentun voru
samningar á lokastigi rnilli þingflokka Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks um myndun nýrrar ríkisstjórnar og var þá
reiknað með að ríkisstjórn þeirra gæti tekið við á morgun,
fimmtudag. í dag, miðvikudag, kemur flokksráð Sjálfstæðis-
flokksins saman til fundar kl. 16 og miðstjórn Framsóknar-
flokksins er boðuð til fundar á sama tíma, en flokksstofnanir
þessar taka endanlega afstöðu til þátttöku flokkanna í ríkis-
stjórnum.
Þingflokkur Alþýðuflokksins
sem verið hefur í óformlegum
stjórnarmyndunarviðræðum með
Sjálfstæðisflokki og Framsóknar-
flokki ákvað á þingflokksfundi
sínum í gær að vera ekki með í
frekari stjórnarmyndunarviðræð-
um. Samkvæmt heimildum Mbl.
höfðu alþýðuflokksmenn farið
fram á að fá þrjú ráðherraemb-
ætti og þrjú ráðuneyti, sem hinir
flokkarnir gátu ekki fallist á. Eið-
ur Guðnason sagði aftur á móti á
blaðamannafundi í gær, að engar
kröfur eða skilyrði hefðu komið
fram um ráðherraembætti af
þeirra hálfu nú, og alþýðuflokks-
menn gáfu út þá yfirlýsingu á
fundinum að fyrirhugaðar efna-
hagsaðgerðir hefðu ráðið afstöðu
þeirra.
Frá því að Svavar Gestsson
formaður Alþýðubandalagsins
skilaði stjórnarmyndunarumboði
sfnu til forseta íslands síðdegis sl.
laugardag hafa þingmenn Sjálf-
stæðisflokks, Framsóknarflokks
og Alþýðuflokks setið á stöðugum
fundum, eða þar til í gær, að
alþýðuflokksmenn ákváðu að
hætta viðræðum. Drög að stjórn-
arsáttmála lágu fyrir nokkuð full-
mótuð um það leyti er Alþýðu-
flokkurinn ákvað að hætta þátt-
töku, en þegar sú afstaða lá fyrir
þurfti að breyta þeim nokkuð. Á
miðnætti voru nokkur atriði varð-
andi efnahagsaðgerðir 1. júní enn
til umræðu og Ijóst að unnið yrði
fram eftir nóttu að nánari út-
færslu.
Skipting ráðuneyta hefur verið
rædd innan þingflokkanna, en
engar endanlegar ákvarðanir
teknar. Framsóknarmenn hafa
samkvæmt heimildum Mbl. farið
fram á að fá fimm ráðherra á móti
fimm frá Sjálfstæðisflokki, en
sjálfstæðismenn helst hallast að
skiptingunni fimm til handa
Sjálfstæðisflokki en að Framsókn-
arflokkur fái fjóra í samræmi við
þingstyrk flokkanna, þ.e. að fækk-
að verði um einn ráðherra, en þeir
eru nú tíu. Samhliða því fái
Sjálfstæðisflokkur sjö ráðuneyti
en Framsóknarflokkur fimm.
Sjá miðopnu: Ummæli Geirs Hall-
grímssonar og Steingríms Her-
mannssonar og frásögn af blaða-
mannafundi Alþýðuflokksins.
Geir llallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Steingrímur Her-
mannsson, formaður Framsóknarflokksins, ganga til fundar í Alþingis-
húsinu. Ljósm: Mbl. ÓI.K.M.
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings:
í MX-flaugarnar
samþykktar
Einn mótmælendanna sparkar táragashylki meó tilþrifum í átt til foðurhús-
anna.
Átök í París
l'arís, 24. maí. AP.
LÖGREGLA beitti í dag táragasi og
vatnsdælum til þess að reyna að
sundra hópi tíu þúsund mótmælenda
skammt frá þinghúsinu, þar sem verið
var að ræða umdeilt umbótafrumvarp f
málefnum háskólanna.
Þetta var sú stærsta þriggja mót-
mælagangna, sem stúdentar efndu
til í París í dag. Að sögn sjónarvotta
grýttu stúdentarnir steinum, flösk-
um og nánast öllu tiltæku að
lögreglumönnum, sem reyndu að
hrekja mótmælendurna frá Invalid-
es-svæðinu. Reistu stúdentarnir
götuvígi, sem þeir síðan lögðu eld að.
„Þetta er gerólíkt stúdentaóeirð-
unum 1968,“ sagði leiðtogi mótmæl-
endanna, Olivier Esquirol. „Þá var
um að ræða byltingartilraun sósíal-
ista í því augnamiði að kollsteypa
ríkisstjórninni. Hér er á ferð óháð
mótmælahreyfing með allt önnur
markmið."
Washington, 24. maí. AP.
ENN einni hindruninni var rutt úr
vegi varnarmálastefnu Ronald Reag-
ans í kvöld þegar fulltrúadeild Banda-
ríkjaþings samþykkti í kvöld með 239
atkvæðum gegn 186 þá áætlun forset-
ans að verja 625 milljónum dollara til
þróunar og tilrauna á MX-flaugunun
umdeildu.
Atkvæðagreiðsla þessi hefur í för
með sér bráðabirgðasamþykkt
þingsins á 17 milljarða dollara
heildaráætlun varðandi MX-flaug-
arnar. Atkvæðagreiðsla fulltrúa-
deildarinnar í dag þýðir það einnig,
að flugherinn getur nú þegar hafið
tilraunir með MX-flaugarnar. Talið
er næsta víst að öldungadeild þings-
ins samþykki áætlunina i atkvæða-
greiðslu sinni annað kvöld, miðviku-
dagskvöld. Repúblikanar eru í
meirihluta í öldungadeildinni.
Demókratar eru i meirihluta í
fulltrúadeildinni, en talið er að það
hafi fyrst og fremst verið fyrir per-
sónulegar viðræður forsetans við
einstaka þingmenn deildarinnar, að
atkvæðagreiðslan fór á þann veg,
sem raun bar vitni í kvöld. Fyrr í
dag töldu bæði fulltrúar demókrata
og repúblikana, að mjög mjótt yrði á
mununum.
Reagan sagði í grein, sem birt var
í Washington Post í dag, að at-
kvæðagreiðslan um MX-flaugarnar
væri annað og meira en ákvörðun
um hernaðartæki. Hér væri verið að
greiða atkvæði um hvort hægt væri
að efla friðinn í heiminum í ljósi
þeirra vopnasáttmála, sem gerðir
hefðu verið.
Herforingi grun-
aður um njósnir
Stokkhólmi, 24. maí. Frá Gudfinnu Ragnarsdottur, fréttaritara Morgunbladsins.
.'qilKKIHMIIII, Ó4. IMI. r TB ViUIMIIIIIU l\aþ;iiarMI
HÁTTSETTIJR herforingi í sænska
hernum er nú grunaður um njósnir.
Herforinginn vinnur við flotadeild
hersins og var handtekinn fyrir
skemmstu þegar hann sótti peninga,
scm pólska sendiráðið hafði greitt
honum fyrir hernaðarlegar upplýs-
ingar.
Pólska sendiráðið hafði áður
gert sænsku leynilögreglunni við-
vart og fékk lögreglan það til þess
að taka þátt í leiknum. Herforing-
inn var svo gripinn þegar hann
ætlaði að sækja 25.000 sænskar
krónur, sem biðu hans í ákveðnu
pósthólfi.
Herforinginn hefur neitað öllum
sakargiftum. Dómsmálaráðherr-
ann, Ove Reiner, sagði í kvöld, að
ekki væri trúlegt, að herforinginn
hefði náð að selja upplýsingar, sem
skaðað gætu Svía.