Morgunblaðið - 15.06.1983, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 1983
39
Þjóðarframleiðsla
mun aukast um 1,5%
í magni á Norður-
löndunum í ár
I»JÓÐARFRAMLEIÐSLA Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar mun
aukast um 1,5% að meðaltali í magni á þessu ári, samkvæmt niðurstöðum
nýbirtrar efnahagsspár fyrir löndin, sem unnin er af efnahagssérfræðingum
sænska bankans Svenska Handelsbanken.
Sérfræðingar bankans segja að
þessi aukning þjóðarframleiðslu
Norðurlandanna sé nokkuð um-
fram meðalaukningu í löndum inn-
an Efnahags- og framfararstofn-
unar Evrópu, OECD, sem verði ef
að líkum lætur í kringum 0,5%.
Hins vegar verði aukning þjóðar-
framleiðslu í Bandaríkjunum og í
Japan nokkru meiri, eða 2,5% í
Bandaríkjunum og 3% í Japan.
Ef litið er á stöðuna í einstökum
löndum, spá sérfræðingar bankans
því, að aukningin verði minnst í
Danmörku innan Norðurlandanna,
eða um 0,5%. Þá muni þjóðar-
framleiðsla aukast um 1% í Noregi,
en hins vegar um 2% bæði í Finn-
landi og Svíþjóð.
í spánni kemur fram, að vænt-
anlega muni atvinnuleysi heldur
fara minnkandi á Norðurlöndun-
um, samfara aukinni þjóðarfram-
leiðslu, en um þessar mundir er at-
vinnuleysið mest í Danmörku, eða
10% af mannafla. Það er um 6% í
Finnlandi og 3,5% í Noregi og Sví-
þjóð.
Opel stefnir að 15%
söluaukningu á árinu
Markaðshlutdeild Opel í Evrópu jókst
úr 8,3% í 9,6% 1982
„VIÐ ERUM ákveðnir í að selja 1.100.000 bfla í Evrópu í ár, sem er liðlega 15%
aukning frá síðasta ári, sem þó kom mjög vel út fyrir fyrirtækið," sagði
Ferdinand Beickler, aðalforstjóri Opel
Beickler sagði ennfremur, að á
síðasta ári hefði Opel selt alls
955.234 bíla í Evrópu, sem hefði
verið um 18% aukning frá árinu
þar á undan, á sama tíma og bíla-
sala almennt jókst um 1,9% í Evr-
ópu. „Okkur tókst að auka mark-
aðshlutdeild Opel úr 8,3% í 9,6%,
sem við erum mjög ánægðir með.“
A síðasta ári varð söluaukning
Opel langmest í Frakklandi, eða
nærri 50% og í Bretlandi, þar sem
söluaukningin var um 40% milli
ára. Þá nefndi forstjórinn, að sölu-
aukningin í hefðbundnum mark-
aðslöndum Opel eins og Belgíu og
Austurríki hefði verði um 20% á
síðasta ári.
Beickler nefndi ennfremur, að
sala Opel í Hollandi hefði aukizt
um 19% á síðasta ári, en Opel hef-
ur verið mest seldi bíllinn þar í
landi sl. 14 ár. Opel jók markaðs-
hlutdeild sína í Vestur-Þýzkalandi
■verksmiðjanna vestur-þvzku.
úr 16,2% í 18,2%, sem Beickler
sagði sérstaklega ánægjulega
þróun fyrir fyrirtækið.
Aðalsölubíll Opel-verksmiðjanna
er Kadettinn, en ennfremur var
mikil sala í Ascona-bílnum og nýja
Rekordinum, sem hefur fengið
betri viðtökur, en Opel-menn þorðu
að vona fyrirfram. Beickler sagði
ennfremur, að viðtökur fólks við
nýjasta bíl verksmiðjunnar, Corsa,
væru mjög góðar, en um smábíl er
að ræða. „Við stefnum að því að
selja um 200.000 bíla af þeirri gerð-
inni í ár í Evrópu."
Að síðustu kom það fram hjá
Beickler, að forsendan fyrir því, að
evrópskir bílaframleiðendur gætu
haldið áfram að auka markaðssókn
sína og hreinlega taka þátt í hinni
hörðu baráttu á bílamarkaðinum,
væri síaukin framleiðni og hefði
Opel gert sérstakt átak í þeim efn-
um á liðnum misserum.
Ungverjar bjóöa skatt-
frjálsa bankareikninga
„Sviss Austur-Evrópu“?
UNGVERJAR hafa fyrstir þjóða í Austur-Evrópu heimilað vestrænum aðilum að
opna skattfrjálsa bankareikninga, sem ekki eru gefnar upplýsingar um til
viðkomandi yflrvalda.
Stjórnvöld í Ungverjalandi
ákváðu á síðasta ári, að gera tilraun
með þetta til að fá inn í landið
meira af vestrænum gjaldeyri, en
reynzla síðustu sex mánaða af þess-
ari bankastarfsemi er að mati
Ungverja góð. Samkvæmt upplýs-
ingum sænska viðskiptaritsins
Veckans Affárer, hafa um 40 millj-
ónir dollara verið lagðar inn á þessa
skattfrjálsu reikninga til þessa.
Vextir á þessum reikningum eru
3—4% yfir vöxtum eins og þeir eru
á Vesturlöndum um þessar mundir,
auk þess sem eigendur fjárins geta
innleyst það þegar þeim helzt hent-
ar.
Talsmaður ungverska seðlabank-
ans sagði á dögunum, að Ungverjar
hefðu ekkert á móti því að verða
„Sviss Austur-Evrópu".
STAÐGREIÐSLU-
AFSLÁTTUR
Modei Hjarta er íslensk gæðavara, hönnuö í gömlum
bændastíl, aóeins í nýrri og betri útfærslu.
Framleitt úr valinni, massífri furu. Fæst í Ijósum viöar-
lit eóa brúnbæsað og lakkað meó sýruhertu lakki.
Velja má ó milli þess að seta og bak sé úr viöi eóa
klætt meö áklæöi aö eigin vali.
Model Hjarta nýtur veröskuldaóra vinsælda, enda
ákaflega hlýlegt sett, hvort sem er í boröstofunni eöa
eldhúskróknum — og jafnt í nýjum húsum sem gömlum.
EÐA
20%
ÚTBORGUN
OG EFTIRSTÖÐVAR
Á 6-8 MÁN.
FRAMLEIÐANDI FURUHÚSGAGNA i HÆSTA GÆOA-
FLOKKI
FCIPUHÚS ÍÐ HF.
Sudurlandsbraut 30 105 Reykjavík • Simi 86605.
LÆKKIÐ BYGGINGA- og VIÐHALDSKOSTNAÐ
meö
DC 781 SILICONE KITTI
BERIÐ SAMAN VERÐIÐ ÁÐUR EN ÞIÐ KAUPIÐ EN ÞAÐ
SEM EKKI ER HÆGT AÐ BERA SAMAN ERU ...
GÆÐIN
1. DC 781 Silicone Kitti var fyrst á heimsmarkaðnum.
2. DC 781 Yfir 20 ára vandræðalaus notkun.
3. DC 781 er eina Silicone Kitti sem stenzt kröfur.
SNFJ, Frakklandi,
DIN, Þýzkalandi,
BSI, Englandi,
Fed. Spec., Bandaríkjunum.
4. DC 781 er mest selda Silicone Kitti í heimi og á íslandi.
5. DC 781 inniheldur ekki fylliefni og er 100% Silicone.
Biöjiö um ókeypis myndalista um DC 781 Silicone Kitti
DOW CORNING
Fyrstir með Silicone í heimi.
KISÍLL HF
Fyrstir meö Silicone á íslandi.
Lækjargata 6B — Pósthólf 527 — 121 Reykjavík.