Morgunblaðið - 15.06.1983, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 1983
43
Knattspyrnu-
félagið
FRAM
• Morgunblaðið kynnir nú leik-
menn og þjálfara allra liða sem leika
í 2. deild íslandsmótsins í knatt-
spyrnu í sumar.
„Ætti að lengja
keppnistímabilið“
„VIÐ hefdum átt aö halda sæti
okkar í 1. deildinni í fyrra — en
við vorum mjög óheppnir í síðustu
leikjunum,“ sagði Andrzej Strejl-
au, hinn pólski þjálfari Fram.
„Við vorum þá með mjög ungt
lið, þess má geta að tíu leikmenn
úr öðrum flokki léku í 1. deild-
inni — þar af sex á miðárinu í
flokknum. Það er staðreynd að
ungir leikmenn eru yfir höfuð
ekki nógu agaðir — og það hefur
sýnt sig hjá Fram. Við leikum
mjög vel í einum leik, en í þeim
næsta gengur kannski fátt upp.
Við lékum t.d. mjög vel gegn
Víkingum í Reykjavíkurmótinu
— og það sama má segja um
leikina gegn Val og KR, en gegn
lakari liðum eins og t.d. Ár-
manni var lið mitt mjög slakt."
Strejlau sagði að Fram-liðið
væri næstum algerlega nýtt lið
frá því fyrir tveimur árum. „Við
höfum missst menn til útlanda,
og nú er helmingur varnarinnar
frá því í fyrra ekki með: Trausti
Andrzej Strejlau
og Marteinn. En engu að síður
hefur vörnin verið góð. Hjá
Fram reyna allir að vinna vel: öll
Fram-fjölskyldan, þjálfari,
leikmenn og þeir sem standa i
kringum liðið.
Marteinn ætti að geta orðið
góður af meiðslunum í júlí, og
mín skoðun er sú að næsta
keppnistímabil eigi hann að geta
leikið af fullum krafti með Fram
og landsliðinu."
Strejlau sagði að það sem
fyrst og fremst vantaði 1 ís-
lenska knattspyrnu væri meiri
tækni. Það væri númer eitt, tvö
og þrjú. „Ég sá t.d. báða lands-
leikina við Spán á dögunum —
og sérstaklega fannst mér yngri
strákarnir standa sig vel, þegar
haft er í huga að Spánverjarnir
eru algjörir atvinnumenn. En
þeir höfðu miklu betri tækni. Ég
held að það sé ekki vandamál að
bæta tækni íslenskra leikmanna
— hún lagast t.d. með fleiri
leikjum. Mér finnst tímabilið
hér á landi allt of stutt. Ég vil
láta leika til 1. október — og
ljúka keppnistímabilinu á möl.
Það er leikið á möl á vorin —
þannig að það ætti að vera hægt
á haustin líka,“ sagði Strejlau.
- SH.
„Megum ekki ofmetnast“
„ÞAÐ er ágætt að koma aftur í
Fram-liðið. Það hefur orðið mikil
endurnýjun síðan ég lék síðast
með Fram, en það var í Evrópu-
.'teppninni gegn Hvidavre hér
heima 1. október 1980,“ sagði Jón
Pétursson, fvrirliði Fram, í samtali
við Mbl.
„Ég er hættur í fótboltanum,
en tók svo að mér að sjá um æf-
ingar fyrir meistaraflokkinn hjá
Fram þar til þjálfarinn kæmi.
Nú, svo þegar vantaði í lið á æf-
ingum þá lék ég með til að fylla
uppí, og ég hef alltaf haft það
mikinn áhuga á fótbolta að þeg-
ar ég var kominn í svo góða æf-
ingu sem raun bar vitni ákvað ég
að vera með.“
Jón sagðist hafa fulla trú á því
að Fram kæmist aftur upp í 1.
deild í ár — ef menn ofmetnuð-
ust ekki. Það væri það sem höf-
uðmáli skipti. „Þetta verður ekk-
ert léttara í 2. deildinni en þeirri
fyrstu, því öll liðin vilja standa
„Deildin
„ÉG hef fulla trú á því að við för-
um upp í 1. deild," sagði Halldór
B. Jónsson, formaður knattspyrnu-
deildar Fram.
„Það má segja að eina verkefni
deildarinnar í ár sé að komast aft-
ur upp — a.m.k. langstærsta verk-
efnið. Strax og Ijóst var í fyrra að
fall varð staðreynd var hafist
handa við það verkefni, og ég hef
trú á að með mjög góðu starfi
þjálfara, aðstoðarmanna og leik-
manna takist það.“
Halldór sagði að sumir hefðu
verið hissa á því að liðið væri
áfram með hinn pólska þjálfara
sinn þrátt fyrir fall, en hann
sagði að menn hefðu sest niður
og komist að þeirri niðurstöðu
að ástæður fallsins hefðu verið
allt annars eðlis en orsök þjálf-
arans. „Það var hreint ótrúlega
mikið um meiðsli hjá okkur í
fyrra og það er auðvitað aðalor-
sökin. Þjálfari okkar er mjög
snjall og það var alls ekki við
hann að sakast að við féllum."
Halldór vildi engu spá um
Jón Pétursson,
32 ára varnarmaður
sig gegn þeim liðum sem duttu
niður í fyrra, og kannski frekar
gegn Fram en KA því við höfum
verið svo lengi í 1. deild.
óyenjuvel
Halldór B. Jónsson.
lokastöðu deildarinnar, en sagði
þó sem fyrr að Framarar ætluðu
sér fyrsta sætið, og hann hefði
trú á því að KA og FH myndu
berjast um annað sætið, og Völs-
ungar kæmu þar á eftir.
„Ég held að 2. deildin sé betri
nú en oft áður,“ sagði Halldór.
„Ég held að hún sé óvenjuvel
samsett nú — en hún hefur
stundum verið heldur slæm. Ég
Og ég held að leikirnir gætu
orðið erfiðir ef við náum ekki að
skora, og ef spilið gengur ekki
upp, förum við að spila eins og
andstæðingarnir — förum að
hugsa meira um að berjast um
boltann en að spila léttan bolta,“
sagði Jón.
Fram-liðið er mjög ungt, og
Jón sagði að strákarnir yrðu að
gera sér grein fyrir þvi að það
sem þeir unnu í yngri flokkunum
væri liðin tíð — þeir lifi ekki á
því nú. „En ef við leikum eðlilega
þá eigum við að fara upp aftur.
Það er ekki nóg að vita að við
séum sterkari á pappirnum —
við verðum að sýna það inni á
vellinum.
En ég hef trú á strákunum og
ég hef bjargfasta trú á þvi að við
vinnum, og það hefst ekki með
öðru en að taka alla leiki mjög
alvarlega. Ef eitthvað verður
slakað á, gæti farið illa.
— SH
samsett“
á við að þessi efstu lið, sem ég
nefndi, eru a.m.k. ekki þekkt
fyrir að leika annað en góða
knattspyrnu. Ég hef ekki sömu
áhyggjur og sumir að leikmenn
2. deildar séu þannig að þeir
sparki í allt sem hreyfist —
heldur býst ég við að léttleikinn
verði í fyrirrúmi."
Að sögn Halldórs er starf
knattspyrnudeildar Fram geysi-
umfangsmikið — t.d. væri ungl-
ingastarfið mjög mikið. „Við er-
um með mjög hæfan þjálfara í
yngri flokkum okkar, og þá er
knattspyrnuskóli okkar öðrum
til fyrirmyndar, en Pólverjinn
stjórnar honum. En allt starf
okkar tengist fjárhagnum — og
það er ekki hægt að halda deild-
inni gangandi á innkomu af
leikjum — þannig að mikið starf
liggur í fjáröflun. Við ætlum að
reyna í sumar að tryggja fjárhag
deildarinar verulega, og vonum
að það hafi tekist í haust, sam-
fara því að við tryggjum okkur
sæti í 1. deild.“
1
Guðmundur Baldurss.
24 ára markvörður.
Friðrik Friðriksson, Þorsteinn Þorsteinsson,
18 ára markvörður 19 ára varnarmaður
Hafþór Sveinjónsson,
21 árs varnarmaður
Marteinn Geirsson,
31 árs varnarmaður
Sverrir Einarsson,
23 ára varnarmaður
\
Guðjón Ragnarsson,
19 ára varnarmaður
Jón Sveinsson,
17 ára varnarmaður
Trausti Haraldsson,
26 ára varnarmaður
Bragi Björnsson, Arni Arnþórsson, 19 ára Gísli Hjálmtýsson, 19
20 ára miðvallarspilari miðvallarleikmaður ára miðvallarleikmaður
mm
Kristinn Jónsson, 19 Viðar Þorkelsson, 20 Steinn Guðjónsson, 19
ára miðvallarleikmaður ára miðvallarleikmaður ára miðvallarleikmaður
Ólafur Hafsteinsson, Einar Björnsson, 19 ára
21 árs sóknarmaður
sóknarmaður
Halldór Arason,
25 ára sóknarmaður
Guðmundur Torfason,
21 árs sóknarmaður
■^\J
Bryngeir Torfason,
23 ára sóknarmaður