Morgunblaðið - 15.06.1983, Side 12
44
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 1983
Akureyri
Þorvaldur Jónsson, 19 Logi Einarsson, 19 íra Tómas Vilbergsson, 23
ára markvörður. markvörður. ára varnarmaður.
Erlingur Kristjánsson, Haraldur Haraldsson, Jóhann Örlygsson, 20
21 árs varnarmaður. 27 ára varnarmaður. ára varnarmaður.
Ólafur Haraldsson, 24 Gunnar Gíslason, 22 Ásbjörn Björnsson, 21
ára varnarmaður. ára miðjuleikmaður. árs miðjuleikmaður.
Jóhann Jakobsson, 30 Þórarinn Þórhallsson, Kristján Kristjánsson,
ára miðjuleikmaður. 23 ára miðjulcikmaður. 21 árs miðjuleikmaður.
Ormarr Örlygsson, 21 Steingrímur Birgisson, Kagnar Rögnvaldsson,
árs framherii. 19 ára framherji. 21 árs framherji.
Hinrik Þórhallsson, 28 Friðfinnur Hermannsson, Bjarni Jónsson, 18 ára
ára framherji. 20 ára sóknarmaður. sóknarmaður.
„Erum í betri æfingu
en síðastliðið sumar“
Guðjón Guðjónsson fyrirliði KA
leikur nú sitt þriðja keppnistímabil
með KA. Áður lék hann með ÍBK.
Guðjón sagði að sumarið legð-
ist vel í sig. „Eg held að 2. deildin
skiptist í tvennt, fimm lið berj-
ast á toppnum og fimm í neðri
hlutanum. Það er erfitt að dæma
getu KA-liðsins af þeim leikjum
sem búnir eru, en ég er samt
bjartsýnn.
Við höfum æft mjög vel og
mikill hugur í mönnum. Ég tel
að liðið sé í mun betri æfingu
núna en síðastliðið sumar, þá
Guðjón Guðjónsson
var liðið ekki í nógu góðri æfingu
og átti það stærstan þátt í því að
við féllum. Við höfum æft mun
meira í vor en í fyrra og einnig
eru æfingarnar erfiðari og
skemmtilegri núna.
Ef ég á að spá, þá held ég að
KA, Fram og FH berjist um
þessi tvö sæti sem losna í 1.
deild, en annars verði röðin
þannig: 4. KS, 5. Völsungur, 6.
Njarðvík, 7. Víðir, 8. Fylkir, 9.
Einherji, 10. Reynir.
AS.
„Of langt milli
keppnistímabila“
Þjálfari KA í sumar er þýskur og
heitir Fritz Kissing, 35 ára gamall.
Hann þjálfaði lið Breiðabliks sl.
tvö sumur. Hvað finnst þér um ís-
lenska knattspyrnu?
„Mér finnst vera of lítil festa
hjá liðunum hér og árangurinn
mikið upp og niður, vantar stöð-
ugleika. Einnig finnst mér liðin
taka of langt frí á milli keppnis-
tímabila, liðin ættu að byrja að
æfa strax í nóvember á fullu, en
að vísu er erfitt að æfa úti hér,
seinni hluta vetrar.
Einnig finnst mér að menn
taki vetraræfingar ekki nógu al-
varlega þar sem þeim finnst svo
langur tími þar til byrjað er að
leika, en það er nú takmarkið
hjá þeim.“
Hvað viltu segja um KA-liðið?
Fritz Kissing
„í liðinu er góð blanda af ung-
um og eldri og reyndari leik-
mönnum og í þeim leikjum, er
búnir eru, hefur okkur gengið
bærilega að' mínu mati, það eru
margir leiknir strákar í liðinu og
svo margir sem eru mjög sterk-
ir.“
Viltu spá um röð liðanna í 2.
deild?
„Ég held að Fram og Völsung-
ur verði aðalkeppinautar okkar
um 1. deildar-sæti en ég þekki
ekki nógu vel til liðanna í deild-
inni og geta því einhver önnur
lið komið til með að blanda sér í
toppbaráttuna.
Eg vona bara að KA komist
upp í 1. deild og ég held að þeir
hafi ekki síðri möguleika til þess
en þau lið sem ég hef séð til í 2.
deildinni, ef við sleppum við
meiðsli."
AS.
„Æfingaaðstaða hefur
verið hræðileg"
Gunnar Kárason er formaður
knattspyrnudeildar KA og er þetta
þriðja árið sem hann er formaður
deildarinnar. Gunnar sagðist álíta
að fjögur lið muni berjast um sigur
í 2. deild, og það yrðu sennilega
KA, Fram, Völsungur og Fylkir.
„Ég held að KA-liðið sé mjög
svipað að styrkleika og það var á
síðasta keppnistímabili og litlar
breytingar hafa orðið á mann-
skap en ég er bjartsýnn á árang-
ur liðsins í sumar, strákarnir
hafa æft mjög vel og er mikill
hugur hjá þeim að endurheimta
1. deildar-sæti sitt.
Annars hefur aðstaða til æf-
inga í vetur verið alveg hræðileg,
vegna óhagstæðrar tíðar og get-
Gunnar Kárason
ur slíkt komið niður á liðinu auk
þess sem möguleiki til æfinga-
leikja á vorin er til muna verri
hjá okkur en liða af Reykjavík-
ursvæðinu og spilar kostnaður-
inn við það miklu.
Vellirnir á Suðurlandi eru
miklu fyrr tilbúnir en hér fyrir
norðan, en við höfum ekki fjár-
magn til að ferðast suður á vorin
til að leika æfingaleiki.
Kostnaður við deildina er
mjög mikill og sjáum við ekki
fram á að endar nái saman og
má benda á það að ferðakostnað-
ur liða af Stór-Reykjavíkur-
svæðinu er aðeins um 15% af
okkar ferðakostnaði," sagði
Gunnar að lokum.
AS