Morgunblaðið - 15.06.1983, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 1983 45
VÍÐIR
„Allir leikirnir
verða erfíðir“
».Ég er svona mátulega bjart-
sýnn á deildarkeppnina í sumar.
Við komum vel undirbúnir til
leiks. Æfingasókn hefur verið góð
og breiddin í hópnum það mikil að
keppni er um hvert s»ti í liðinu,"
sagði Haukur Hafsteinsson, þjálf-
ari Víðis, í samtali við Mbl.
Þetta er í fyrsta skipti sem
Víðir leikur í 2. deild og munur-
inn á 3. og 2. deild er talsverður.
í fyrra voru leikirnir mjög mis-
erfiðir. En ljóst er að í sumar
verða allir leikir erfiðir.
I sambandi við hvaða mark-
mið við höfum sett okkur, þá
Haukur Hafsteinsson,
þjálfari.
höfum við einsett okkur að taka
einn leik í einu og sjá þannig til í
hvaða baráttu við lendum. Þó
verður maður að gæta þess að
vera raunsær. Við erum nýliðar í
deildinni og því hlýtur fyrsta
markmiðið að vera að halda sér f
deildinni."
Viltu spá einhverju?
„Ég vil sem minnstu spá um
röð liða í deildinni. Mér finnst þó
ekki ólíklegt að þau lið, sem
komu niður úr 1. deildinni, Fram
og KA, skipi tvö efstu sætin. Um
það hverjir falla vil ég engu
spá.“
„Takmarkiö að halda
okkur í deildinni“
„Sumarið leggst mjög vel í mig
og ég er nokkuð bjartsýnn á góðan
árangur á þessu keppnistímabili,"
sagði fyrirliði Víðis, Guðjón Guð-
mundsson í samtali við Mbl. —
„Þar sem við erum nýliðar í 2.
deild þá verður það takmark okkar
að halda sæti okkar í deildinni.
Núna erum við búnir að spila 2
leiki og erum með 2 stig og ef
marka má þessa leiki þá eru liðin í
2. deild mun sterkari en þau f 3.
deild.
— Núna erum við búnir að æfa
mjög vel í vor og tel ég að við
komum vel undirbúnir á mótið.
Við erum með mjög góða breidd
og það er hart barist um sæti í
liðinu. Það er mjög gott, því þá
verður hver maður að sýna sitt
besta í leikjum til að haída sínu
Guðjón Guðmundsson,
23 ára miðvallarleik-
maður, fyrirliði.
sæti. Við erum með blandaðan
hóp af ungum og efnilegum
strákum og einnig leikreyndum
strákum/mönnum.
—- Ég vona að knattspyrnan
verði betri í sumar en í fyrra, en
þá léku öll liðin of stífan varn-
arleik. Fyrstu umferðirnar lofa
góðu því það hefur verið skorað
mun meira núna en undanfarin
ár — það eru nefnilega mörkin
og lífleg knattspyrna sem fólk
kemur á völlinn til að sjá.“
— Viltu spá einhverju um úr-
slitin?
— „Ég spái því að Fram og KA
verði í toppbaráttunni og að
Völsungar og FH fylgi þeim fast
á eftir, en hin liðin verða mjög
svipuð að styrkleika."
„Verðum í meðal-
mennskunni í sumar“
„ÉG get ekki sagt annað en ég sé
tiltölulega bjartsýnn á sumarið.
Þetta er í fyrsta skiptið sem við
lcikum í annarri deild, og setjum
því markið ekki hærra en að halda
okkur í henni. Fótboltinn sem leik-
inn er í 2. deild er bæði harðari og
hraðari og við þurfum tíma til að
átta okkur á því, þess vegna reikna
ég með því að við verðum allir í
meðalmennskunni," sagði Ingi-
mundur Guðnason formaður Víðis
þegar Mbl. ræddi við hann á dög-
unum.
Hvernig gengur að fjármagna
þetta?
„Það hefur gengið sæmilega.
Við höfum haft góða fjáröflun-
arnefnd og svo vonumst við til að
áhorfendum fjölgi eitthvað i
formaður Víðis.
sumar til að styðja við bakið á
okkur. Annars er óhætt að segja
að við höfum haft góða áhorf-
endur á síðustu árum og þurfum
ekki að kvarta undan fámenni á
vellinum. Ein góð aðferð til að
afla peninga er að halda dans-
leiki, það er alltaf gróði af þeim.
Einnig gáfum við út dagatal með
auglýsingum á og fengum góðan
pening út úr því.“
Viltu spá einhverju?
„Nei, ég held ég láti það eiga
sig, en því er ekki að neita að
þegar maður hugsar um hugs-
anlega sigurvegara þá koma
stóru nöfnin alltaf upp í huga
manns og á ég þá við Fram og
FH en ég vil samt engu spá.“
sus
01
Ll
Gísli Heiðarsson,
18 ára markvörður.
Helgi Bjarnason,
29 ára markvörður.
Sigurður Magnússon,
23 ára varnarmaður.
Halldór Einarsson,
25 ára varnarmaður.
Jón Ögmundsson,
27 ára varnarmaður.
Björn Vilhelmsson,
18 ára varnarmaður.
28 ára varnarmaður. 21 árs miðvallarleikmaður. miðvallarleikmaður.
Svanur Þorsteinsson,
18 ára miðvallarleikmaður.
Baldvin Gunnarsson,
23 ára miðvallarleikmaður.
Klemenz Sæmundsson,
20 ára miðvallarleikmaður.
Guðmundur J. Knútsson, Jónatan Ingimarsson, Grétar Einarsson,
27 ára sóknarmaður. 28 ára sóknarmaður. 18 ára sóknarmaður.
Daníel Einarsson,
24 ára sóknarmaður.