Morgunblaðið - 15.06.1983, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 1983
47
Frá afmKlishófinu í Arnesi.
í afmæl-
ishófi
Steinþórs
á Hæli
Kjördæmisráð Sjálfstæðis-
flokksins á Suðurlandi hélt af-
mælishóf föstudaginn 3. júní
til heiðurs Steinþóri Gestssyni
fyrrverandi alþingismanni
sjötugum. Hófið var haldið í
Arnesi og var það fjölsótt af
gestum víðs vegar af Suður-
landi. Meðal fjölda ræðu-
manna í hófinu voru Geir
Hallgrímsson formaður
Sjálfstæðisflokksins, Ingólfur
Jónsson fyrrverandi ráðherra
og Helgi ívarsson bóndi í Hól-
um, sem flutti ávarp fyrir
hönd kjördæmisráðs. Veizlu-
stjóri var Jón Ólafsson bóndi
Eystra-Geldingaholti. Með-
fylgjandi myndir tók Ólafur K.
Magnússon ljósmyndari Morg-
unblaðsins, en að loknu kaffi-
samsæti var stiginn dans fram
eftir nóttu. Nokkur skemmti-
atriði voru í afmælishófinu og
m.a. söng Ágústa Ágústsdóttir
við undirleik Gunnars
Björnssonar.
Eva Jónsdóttir, Ingólfur Jónsson og Steinþór Gestsson, en þeir félagar
unnu um langt árabil saman á Alþingi.
Það var glatt á hjalla I afnuelisbófl Steinþórs og mikió sungið.
Fyrrverandi og núverandi alþingismenn Suðurlands. Frá vinstri: Eggert Haukdal alþingismaður, Árni Johnsen alþingismaður, Ingólfur Jónsson
fyrrverandi ráðherra, Steinþór Gestsson fyrrverandi alþingismaður, Guðmundur Karlsson fyrrverandi alþingismaður og Þorsteinn Pálsson alþingis-
maður.
Ungbarnafatnaður
í úrvali
Svefnpokar kr. 455. Skór á alla
fjölskylduna. Munið ódýra
hornið frá kr. 20—90.
Sumarfatnaður
— tízkufatnaður
í miklu úrvali á
alla fjölskylduna.
Utsölumarkaðurinn
í kjallara Kjörgarðs fæst fatnaður á alla
f jölskylduna m.a.
Flauelsbuxur, verð frá kr. 145—225. Sumarbuxur frá kr. 95—150, bolir — peysur —
blússur — anorakkar og ótal margt fleira.
Kvenbuxur frá kr. 90—390, jakkar kr. 100, skyrtur frá kr. 50—230, sumarjakkar frá kr.
195—490.
ENDUM I POSTKRÖFU, SIMI 28640.
Stór Útsölumarkaóurinn
í kjallara Kjörgarös