Morgunblaðið - 15.06.1983, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 1983
49
fólk í
fréttum
+ Þau hafa alltaf veriö élitin hamingjusöm hjón, Patrick Duffy og
Carlyn, þótt afbrýðisemi Carlyn hafi stundum skyggt nokkuö á.
Jafn staðfastur
í einkalífinu og
í Dallas-þáttunum
+ „Þegar við hittumst tók
hjartað að slá hraöar,“ sagöi
franska söngkonan Mireille
Mathieu þegar hún lýsti fyrsta
fundi þeirra Patricks Duffy,
sem er betur þekktur sem
Bobby í Dallas.
Þau hittust fyrst í San
Francisco þegar Mireille kom
þar fram og var Duffy meðal
áheyrenda. Hann hreifst mjög
af söng hennar eins og aðrir og
á eftir fór hann upp í búnings-
herbergið hennar til að óska
henni til hamingju. Þau spjöll-
uðu saman um stund og sagði
Mireille seinna, að sér hefði
fundist hún vera horfin inn í
einhvern Dallas-þáttinn, Duffy
og Bobby væru greinilega einn
og sami maðurinn.
Það, sem skyggði á alla þessa
rómantík, var að Duffy er gift-
ur og þar sem hann er jafn til-
litssamur í einkalífinu og i
Dallas-þáttunum, kom það
aldrei til mála að hann færi að
skilja við konuna sína, Carlyn,
sem hann hefur verið giftur í
mörg ár. Þau Mireille hafa að
vísu hist nokkrum sinnum síð-
an en það hefur allt verið í
mestu siðsemi og aðallega snú-
ist um starfið.
+ Patrick Duffy maö franska
söngfuglinum Mirailla Mathieu.
Jerry Lee
Lewis finnur
brúði nr. 5
+ Hr. Rokk og ról, hinn 47 ára
gamli Jerry Lee Lewís, hefur
nú gengið í þaö heilaga í
fimmta sinn og að þessu sinni
heitir brúðurin Shawn Steph-
en og er 25 ára gömul.
Jerry varð ekkill á síðasta ári
en þá vildi þaö slys til, aö kona
hans, Jaren Gunn Lewis,
drukknaöi í sundlauginni viö
heimili þeirra hjóna. Um þaö
leyti stóöu þau hjónin í skiln-
aöi.
Rokkstjarnan Jerry Lee Lewis
og nýja konan hans, Shawn.
Þegar Jerry Lee Lewis gifti
sig í fyrsta sinn lá viö aö borg-
arastyrjöld brytist út í Banda-
ríkjunum svo miklum deilum
olli ráöahagurinn og hneykslun.
Þetta var árið 1958 þegar Jerry
var 23 ára gamall en eiginkon-
an vart komin af barnsaldri,
ekki nema 13 ára.
Jerry er nú að undirbúa
kvikmynd um sinn litríka lífsfer-
il og segir, aö brúökaupsferöin
veröi aö bíða þar til henni er
lokiö.
+ Eins og áður hefur veriö sagt
frá gekk kvikmyndaleikarinn
Yul Brynner nú fyrir skemmstu
aö eiga 25 ára gamla dansmey
af kínverskum mttum, Kathy
Lee að nafni. Nokkur bið varð á
því aö þau færu í brúökaups-
feröina en í síðustu viku létu
þau loksins veröa af því. Mynd-
in var tekin þegar þau komu til
Heathrow-flugvallar í London
frá Los Angeles á leið sinni til
Frakklands. „Ég hef veriö svo
önnum kafinn að það er fyrst
núna, sem ég á lausa stund,“
sagöi Brynner við fréttamenn,
en hann er 40 árum eldri en
brúðurin.
COSPER
n* 11 * ‘ ,‘ntT
! iiíiliíii
•J^11 ' ' •i‘ ‘l' ‘ J utÍT!"1" .•• i‘*i' i,,'i‘
Cv, ■, i 1 ■ : u‘ ui: n ■ ‘,i 'tu ‘i' .■
Þjónusta fagmanna
Vrðhalds- og viðgerðarvinna
á húsum. Múrviðgerðir,
þéttingar o.fl. Notum
aðeins þraut-
reynd Thoro
efni frá
■■
!| steinprýðihf
Leitið til þeirra sem
ráða yfir verkkunn-
áttu og reynslu —
leitið til fagmanna.
Vönduð vinna.
Hringið og leitið
upplýsinga.
^MURAFLhf
Sími 36022
Límtré-bitar
Nýkomnir á lager.
Stæröir: 90x300 mm., 90x400 mm.
115x300 mm, 115x400 mm.
78x233 mm, 78x300 mm.
PÁLL ÞORGEIRSSON & CO.
Ármúla 27. — Símar 34000 og 86100.
Korpa
(Úlfarsá)
Sala á veiöileyfum í Korpu (Úlfarsá) er hafin.
Versl.
Veiðimaðurinn,
Hafnarstræti 5.
130 sófasett
á einum stað
Hver bíður betur
Greiðslukjör i 6 til 8 manuði
HSSG&GNAUOLLIN
BÍLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVÍK S 91-81199 og 81410