Morgunblaðið - 15.06.1983, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 1983
53
l^L^AKANDI
SVARAR Í SÍMA
10100 KL. 10—12
FRA MANUDEGI
Á þurrkasvæðunum í Eþíópíu I mars síðstliðnum: Hjúkrunarkona með fár-
sjúkt barn.
virtist nánast engin. En flestir
vita, að eldri menn þurfa oftar að
gegna þörfum sínum en fólk á
besta aldri. Af þessu spunnust enn
ný leiðindi og var þó varla á baet-
andi. Svo var það á síðasta
áfangastað að afinn útvegaði sér
bát og fór út á vatn að veiða. Þeg-
ar fjölskyldan var búin til heim-
ferðar þá var hann ennþá úti á
vatninu að fiska og neitaði að
koma í land fyrr en honum sjálf-
um sýndist. Og húsbóndinn varð
eðlilega æfur af reiði og hrópaði
til gamlingjans: „Þú skalt svo
sannarlega á elliheimili við fyrsta
tækifæri." Og þannig endaði
myndin.
Minna má á brúðartertu hins
nýríka danska skemmtiferðarek-
anda, sem þurfti háan lyftukrana
til að hægt væri að byrja að úða í
sig tertutoppinum. Já, dæmi þessu
lík eru mýmörg. Ofneysla bæði í
mat og drykk, klæðnaði og á flest-
um öðrum sviðum neyslu. Dæmi-
sagan um ríka manninn, sem
klæddist pelli og purpura og lifði
hvern dag í dýrlegum fagnaði,
meðan hinn fátæki lá hungraður,
klæðlítill og kaunum hlaðinn við
dyrnar, er nú að gerast í æ stærri
í Kaupmannahöfn í maí síðastliðn-
um: Fulltrúar fri Heimsmetabók
Guiness slá máli á brúðartertu Sím-
onar Spies.
stíl, miðað við hið gegndarlausa
óhóf vestrænt, meðan íbúar hinna
vanþróuðu þjóða veslast upp og
deyja þúsundum saman af alls-
leysi.
Að lokum eitt vers úr okkar
stórágætu sálmasöngbók:
Jesús grætur, heimur hlær,
hismið auma síkátt lifir.
Svndaþra llinn séð ei fær
sverd er höfdi vofir yfir.
vSál hans viðjum vefjast lætur.
VeröM hlær, en Jesús grætur.**
Karlmannaföt
frá kr. 1.795,00
Terylenebuxur, nýkomnar
Gallabðxur
Flauelsbuxur
Gallabuxur, kvensmö
Stretch-gallabuxur
Regngallar o.m.ll. ódýrt
kr. 475,00
kr. 315,00 og kr. 365,00
kr. 330,00
kr. 330,00
kr. 525,00
kr. 585,00
Andrés, herradeild,
Skólavöröustíg 22, sími 18250.
Á einum stað
130 sófasett
að skoða
Greiðslukjör í 6 til 8 mánuði
UÚSGACNARÖLLIN
BlLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVÍK 8 91-81199 og 81410
Furðulegt þjóðfélag
Kristín Lárusdóttir skrifar:
„Kæri Velvakandi.
Stjúpdóttir mín á von á barni
sínu nú um miðjan júní. Hún býr
úti á landi og var alltaf ákveðin í
að koma suður til að fæða þetta
barn eins og hin tvö, af vissum
öryggisástæðum. En hún er orðin
ansi þreytt og ákvað því að fæða í
heimabæ sínum í þetta sinn.
Og svo fóru þau hjónin að at-
huga með þetta fæðingarorlof sem
talað hefur verið um, að eigin-
manninum beri réttur til. Spurn-
ingin var, hvort hann gæti ekki
bara verið heima sjálfur til að
passa litlu börnin þeirra, sem eru
eins og tveggja ára og ákaflega
hænd að foreldrum sínum.
Mamma þeirra hefur alltaf verið
heima, svo að þau eru ekki vön því
að vera fjarri pabba og mömmu.
Það yrðu því ansi mikil viðbrigði
fyrir angana litlu, ef einhver nán-
ast ókunnugur þyrfti að gæta
þeirra á meðan mamma verður
fjarverandi vegna barnsfæðingar-
innar.
En þá kemur í ljós, að þetta er
svolítið skrýtið þjóðfélag sem við
búum í. Sú furðulega staðreynd
blasir nefnilega við, að faðir má
aðeins taka þriðja mánuðinn frá
starfi sínu í launalausu fríi, en
alls ekki fyrsta mánuðinn. Þetta
finnst mér ákaflega einkennilegt,
því ef allt gengur vel, þá er móðir-
in komin heim og orðin allhress
þriðja mánuðinn eftir fæðinguna
og þarf þá ekki undir venjulegum
kringumstæðum á hjálp hans að
halda.
Til hvers er þetta fæðingarorlof
fyrir karlmenn ætlað? Spyr sá,
sem ekki veit.
Svo er annað mál sem mig lang-
ar til að koma á framfæri og
snertir þetta furðuiega þjóðfélag
sem við búum í.
Ég á sjálf sex börn, það yngsta á
öðru ári. Svoleiðis vill til, að ég
þarf að fara á sjúkrahús í aðgerð,
en þá kemur upp annað vandamál.
Þegar ég fór að huga að því, hvar
ég gæti fengið fóstur fyrir yngsta
barnið, blasir sú staðreynd við
mér, að allir mínir nánustu vinir
eru úti á vinnumarkaðinum til að
afla heimilunum tekna, þvi að
ekki veitir víst af í þessu verð-
bólguþjóðfélagi. í öðru lagi eru
eldri ættingjar mínir sjúklingar
og hafa alls enga heilsu til að
hjálpa mér í þessu efni.
Það er til hundavinafélag og
kattavinafélag og guð má vita
hvað mörg vinafélög. Og maður
getur komið kettinum sínum í
fóstur eða hundinum sínum, ef á
þarf að halda, jafnvel þótt aðeins
eigi að bregða sér í sumarfrí. En
það er ekkert barnavinafélag tii,
sem tæki við barninu manns í
fóstur, þegar svona stendur á,
hvað þá, ef maður ætlaði nú bara í
sumarfrí.
Ætli það þurfi enn eina kerf-
isstofnunina í viðbót til þess að
sinna þessu verkefni?
Virðingarfyllst."
BROSTU!
MYNDASÖGURNAR
✓
Vikuskammtur afskellihlátri
auGlysingastofa kristinar mf