Morgunblaðið - 15.06.1983, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 1983
55
Fjórðungsmót hestamanna í Eyjafirði:
Búist við allt að
400 keppnishrossum
FJÓRÐUNGSMÓT norölenskra
hestamanna veröur haldið á Mel-
gerðismelum í Eyjafiröi dagana 30.
júní til 3. júlí í sumar, aö því er segir
í fréttatilkynningu frá undirbúnings-
nefnd, er Morgunblaðinu hefur bor-
ist.
I»að eru hestamannafélög allt frá
Hrútafíröi austur um til Þistilfjarö-
ar, sem standa aö mótinu. Hesta-
menn úr þessum félögum sýna gæö-
inga sína á kynbóta- og gæðingasýn-
ingum mótsins, en öll fótfráustu
kappreiðahross landsins reyna með
sér á hlaupabrautinni.
í frétt frá undirbúningsnefnd-
inni segir:
„Undirbúningur fyrir mótið hef-
ur staðið allt frá því um áramót.
Framkvæmdanefndin, sem skipuð
er fulltrúum frá öllum félögunum
á svæðinu, hefur haldið fundi nær
mánaðarlega. Þess á milli hefur
framkvæmdaráðið komið saman,
og hiti og þungi undirbúningsins
hvílir á framkvæmdastjóranum,
Ævari Hjartarsyni, og formanni
undirbúningsnefndarinnar, Gunn-
ari Egilssyni.
Melgerðismelar vel gerðir
fyrir hestamannamót
Mótssvæðið á Melgerðismelum
er sameign hestamannafélaganna
við Eyjafjörð, Funa í Eyjafirði,
Léttis á Akureyri og Þráins á
Grenivík. Félögin hafa landið á
leigu, en það er í eigu hreppsins.
Auk hestamannafélaganna er
ungmennafélag hreppsins aðili að
uppbyggingu á svæðinu.
Framkvæmdir á Melgerðismel-
um hófust sumarið 1975 og árið
eftir var haldið þar fjórðungsmót,
sem lengi verður í minnum haft,
enda veðursæld einstök í Eyjafirði
mótsdagana. Síðan hafa verið
haldin þar árlega stór sem smá
mót, m.a. Islandsmót í hesta-
íþróttum. Árlega hefur aðstaðan á
melunum verið bætt og nú á
næstu vikum verður lokaátakið
gert í þeim efnum. Stærsta bygg-
ingin í sumar verður bygging 300
metra hringvallar, sem er vel á
veg komin. Auk þess verður byggt
nýtt hús yfir snyrtingar, veit-
ingaskáli stækkaður og önnur að-
staða fyrir mótsgesti og starfs-
menn stórbætt. Þá má geta þess,
að á undanförnum árum hefur
markvisst verið unnið að upp-
græðslu á melunum með mjög
góðum árangri. Það er mál hesta-
manna, að eftir framkvæmdirnar
fyrir mótið í sumar, verði Mel-
gerðismelar fullkomnasta móts-
svæðið fyrir hestamannamót hér á
landi.
Gunnar Egilsson formaöur fram-
kvæmdanefndar Fjórðungsmótsins
á Melgeröismelum.
Fáir útvaldir
Á Melgerðismelum verða sýndir
allir bestu gæðingar Norðlend-
inga, sem valdir verða á úrtöku-
mótum, sem þegar eru hafin.
Þorkell Bjarnason sér um að velja
kynbótahrossin og hefur hann yf-
irreið sína í Vestur-Húnavatns-
sýslu 30. maí. Daginn eftir verður
hann í austursýslunni, en 2. júní á
Dalvík og Ólafsfirði. 4. júní fer
Þorkell um Eyjafjörð, 6. júní um
Suður-Þingeyjarsýslu, 7. júní um
Þistilfjörð, 8. júní um Öxarfjörð
og Kelduhverfi og 10. og 11. júní
verður Þorkell á Vindheimamel-
um.
Kappreiðahross verða að ná
ákveðnum lágmarkstímum til að
hafa þátttökurétt á Fjórðungs-
mótinu. Þau verða að hafa runnið
150 metra skeið á 17 sek. og 250
metra skeið á 26 sek. á keppnis-
tímabilinu. Þá þurfa hlaupahross-
in að hafa stokkið 250 metrana á
21 sek., 350 metrana á 28 sek. og
800 metrana á 65 sek. Brokkararn-
ir verða að hafa 300 metrana á 39
sek. Að sjálfsögðu sakar ekki þótt
hrossin hafi farið þessar vega-
lengdir á skemmri tíma, þar sem
um lágmarkstíma er að ræða!
Unglingar hafa á undanförnum
árum unnið sér sess á öllum helstu
stórmótum hestamanna. Á Fjórð-
ungsmótinu á Melgerðismelum
verður lögð áhersla á unglinga-
keppnina, en það hefur viljað
brenna við að unglingarnir hafi
verið einskonar „aukanúmer" á
mótum. Keppt verður í yngri og
eldri flokki og keppnin fer fram á
aðalvellinum.
Búist við fjölmenni
Reikna má með 300—400 keppn-
ishrossum á Melgerðismelum á
Fjórðungsmótinu, en auk þess
verða þar ferðahestar mótsgesta
og aðrir hafa með sér hesta til
útreiða á meðan á mótinu stendur.
Hvað mótsgestir verða margir er
erfitt að spá um. Það fer eftir
veðri og öðrum aðstæðum. Móts-
stjórnin gerir sér vonir um að sjá
5—6 þúsund manns á svæðinu,
sem er ekki óraunhæft miðað við
aðsókn að Landsmótinu í fyrra.
Ef vel tekst til má því búast við
að vísir að hestamannaþorpi rísi á
Melgerðismelum í sumar. Lögð
verður áhersla á að þorpsbúum
geti liðið sem best, við að skoða
falleg hross, hrossakaup, skemmt-
anir og útreiðar síðast en ekki síst,
enda liggja reiðvegir til allra átta
á Melgerðismelum.
Þá er stefnt að því að þjónustan
við þorpsbúa verði með þeim
hætti, að þeir þurfi sem minnst að
leita út af mótssvæðinu á meðan
mótið stendur. Reist verður stórt
þjónustutjald, þar sem m.a. verður
kjörbúð frá Kaupfélagi Eyfirð-
inga, sem Jens Ólafsson ætlar að
sjá um að standi undir nafni, eins
og hans er von og vísa. Og þó að
slitni gjörð eða annað tilheyrandi
reiðtygi þá kemur það ekki að sök,
því slíkt verður hægt að fá í versl-
un mótsins. Þar verða einnig seld-
ir veggplattar og aðrir minjagrip-
ir tengdir mótinu.
Mikil vinna hefur þegar farið
fram við undirbúning Fjórð-
ungsmótsins á Melgerðismelum í
sumar, en meira þarf til og nú er
lokaátakið framundan. Allt er
unnið í sjálfboðavinnu. Sem dæmi
má nefna, að þessa fjóra mótsdaga
þurfa norðlenskir hestamenn að
vinna um 500 stundir við sjálft
mótið, samkvæmt vaktaskrá sem
þegar hefur verið gengið frá.
Það er því ljóst, að mikið verður
um að vera á Melgerðismelum í
sumar, enda stærsta hestamanna-
mót hérlendis í ár. Þangað liggja
leiðir hestamanna og annarra
landsmanna, sem una sér með
glöðu fólki og fallegum hrossum.
Skráningu lýkur um mánaða-
mótin. Þátttökutilkynningar þarf
að senda til skrifstofu Búnaðar-
sambands Eyjafjarðar eða Lands-
sambands hestamanna í Reykja-
vík.“
Dagskrá Fjórðungsmótsins
Fimmtud.:
Kl. 10.00 Mótssetning.
Kl. 10.10 B-flokkur gæðinga
dæmdur — aðalvöllur
Kl. 10.30 Hryssur dæmdar — efri
völlur
Kl. 16.00 Eldri flokkur ungl.
dæmdur — aðalvöllur
Hrímnir frá Hrafnagili var einn þeirra hesta er athygli vöktu á Melgeröis-
melum 1981. Hér fer Bjöm Sveinsson á gæöingnum.
Lögö verður áhersla á aö gera veg unglinga sem mestan á fjórðungsmótinu.
Myndin er tekin á íslandsmóti í hestaíþróttum, sem fram fór á Melgerðis-
melum sumarið 1981.
Föstud.:
Kl. 09.00 Stóðhestar dæmdir —
efri völlur
Kl. 09.00 A-flokkur gæðinga
dæmdur — aðalvöllur
Kl. 15.30 Yngri flokkur ungl.
dæmdur — aðalvöllur
Kl. 18.00 Undanrásir kappreiða
250 m stökk
300 m brokk, fyrri
sprettur
350 m stökk
800 m stökk
Kl. 21.00 Kvöldvaka.
Laugard.:
Kl. 09.00 Yngri flokkur unglinga
kynntur — aðalvöllur
Kl. 09.45 Eldri flokkur unglinga
kynntur — aðalvöllur
Kl. 10.30 B-flokkur gæðinga
kynngur — aðalvöllur
Kl. 11.30 A-flokkur gæðinga
kynntur — aðalvöllur
Kl. 13.00 Stóðhestar sýndir
samkv. skrá.
Kl. 14.30 Hryssur sýndar samkv.
skrá.
Kl. 17.00 Sýning hrossaræktun-
arbúa og ræktenda.
Kl. 18.00 Milliriðlar kappreiða
150 m skeið, fyrri
sprettur
250 m skeið, fyrri
sprettur
Kl. 19.00 Sölusýning — efri völlur
Kl. 21.00 Kvöldvaka.
Sunnud.:
Kl. 10.00 Hópreið aðildarfélaga.
Kl. 10.30 Helgistund.
Kl. 10.45 Ávörp.
Kl. 11.00 Yngri flokkur unglinga,
verðl. veitt.
Eldri flokkur unglinga,
verðl. veitt.
Kl. 11.30 Stóðhestar sýndir, dóm-
um lýst.
Kl. 13.00 Hryssur sýndar, dómum
lýst.
Kl. 15.30 Sýning hrossaræktun-
arbúa og -ræktenda.
Kl. 16.00 A-flokkur gæðinga, úr-
slit, verðl. veitt.
Kl. 16.45 B-flokkur gæðinga, úr-
slit, verðl. veitt.
Kl. 17.30 Kappreiðar, úrslit
150 m skeið, seinni
sprettur, verðl. veitt.
250 m skeið, seinni
sprettur, verðl. veitt.
250 m stökk, verðl. veitt.
300 m brokk, seinni
sprettur, verðl. veitt.
350 m stökk, verðl. veitt.
800 m stökk, verðl. veitt.
Kl. 18.00 Dregið í happdrætti
mótsins.
Mótsslit.
Egilsstaðir:
Trésmiðja Fljóts-
dalshéraðs 10 ára
KgilHstöðum, 5. júní.
f GÆR var haldið upp á 10 ára
afmæli Trésmiöju Fljótsdalshéraös
hf. í Fellabæ. Einar Orri Hrafn-
kelsson, framkvæmdastjóri, bauö
gesti og starfsmenn velkomna til
afmælishátíðarinnar, rakti aðdrag-
anda aö stofnun fyrirtækisins,
sögu þess og uppbyggingu.
Trésmiðja Fljótsdalshéraðs er
rekin í hlutafélagsformi, en að-
aleigandi og framkvæmdastjóri
er Einar Orri Hrafnkelsson auk
ættingja sinna og Freys Jóhann-
essonar, tæknifræðings í
Reykjavík. Fyrirtækið var form-
lega stofnað 2. febrúar 1973, en
fyrsti áfangi byggingar sjálfrar
trésmiðjunnar var hafinn árið
áður. Síðan hefur húsakostur
rýmkast mjög og enn er fyrir-
huguð bygging viðbótarálmu við
trésmiðjuna.
I ávarpi sínu þakkaði Einar
Orri sérstaklega Helga Gísla-
syni, fyrrum oddvita Fella-
hrepps, góðar viðtökur þegar
hann sótti um lóð fyrir trésmiðj-
una í Fellahreppi á sínum tíma.
Trésmiðja Fljótsdalshéraðs er
nú með stærstu húseiningafram-
leiðendum á landinu; framleiðir
um 20—30 hús á ári — en fyrsta
og annað starfsárið voru einung-
is framleidd 5 og 12 hús. Fyrsta
einingahús Trésmiðju Fljóts-
dalshéraðs var reist á Eskifirði í
april 1973 — en þau hafa síðan
verið reist víða um land, m.a. við
Sigöldu, en flest þeirra á Mið-
Austurlandi.
I ávarpi sínu brýndi Orri ráða-
menn til að efla austfirskan iðn-
að og fagnaði sérstaklega stofn-
un Iðnþróunarfélags Austur-
lands — sem hann taldi verða
austfirskum iðnaði lyftistöng.
Trésmiðju Fljótsdalshéraðs
bárust margar árnaðaróskir í
tilefni þessara tímamóta, m.a.
heillaóskaskeyti frá iðnaðarráð-
Trésmiöja Fljótsdalshéraös í Fellabæ.
herra, Sverri Hermannssyni, og
einnig frá fráfarandi iðnaðar-
ráðherra, Hjörleifi Guttorms-
syni. Þá tóku margir gestir til
máls og óskuðu fyrirtækinu alls
hins besta.
Að loknum ávörpum var við-
stöddum boðið til kvöldverðar í
Veitingaskálanum við Lagar-
fljótsbrú.
Trésmiðja Fljótsdalshéraðs er
einn stærsti vinnustaðurinn í
Fellabæ. Þar vinna nú að stað-
aldri 20 menn — en í upphafi
voru starfsmenn fyrirtækisins
einungis tveir til þrír.