Morgunblaðið - 06.07.1983, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 1983
3
pKiAéííííí
með
espeare línuna
Nýju SIGMA flugulínurnar auðvelda
þér lengri og nákvaemari köst.
Fjölbreytnin gefur þér kost á línunni
sem hentar þér best. Shakespeare
flugulínur, fluguhjól og flugustangir,
t.d. Boron, Graphite eða Ugly Stick,
tryggja þér ánægjulega veiðiferð.
Þú ert öruggur með Shakespeare.
Shakespeare veiðivörur fást i nœstu
sportvöruverslun.
Þorskafli 1983:
Spáð 80 þúsund
tonna aflarýrnun
SAMKVÆMT endurskoðadri þjóð-
hagsspá 1983 eykst útflutningur að
raungildi um 13—14%.
Reiknað er með 300 þúsunda
tonna þorskafla samanborið við
382 þúsund tonn á sl. ári. Hins veg-
ar er gert ráð fyrir 250 þúsund
tonna loðnuafla á síðustu mánuð-
um ársins. Miðað er við svipað
veiðimagn af bolfiski, öðrum en
þorski. Þannig fæst út 4% sam-
dráttur á verðmæti heildarafla, en
8—9% samdráttur í afla öðrum en
loðnu.
Þá er spáð 3—4% aukningu í
sölu áls og að önnur útflutnings-
framleiðsla aukist um 9—10%, en
þar vega ullarvörur og niðursuðu-
vörur þyngst. Gert er ráð fyrir
töluverðri sölu eldri framleiðslu.
Niðurstaðan í spánni er 1% sam-
dráttur útflutningsframleiðslu í
heild.
Guðrún Guðjohnsen, formuAur HuMUrekUrfélags ísUnds, afhendir Fjölnir
blómaskreytingu og ávísun frá félaginu vegna vinnuUpsins sem hlaust af
fangavistinni. ViA hliA Fjölnis eru þau Valur Tryggvason og Emilía Sigur-
steinsdóttir, félagar í Hundaræktarfélaginu.
Hundseigandinn laus
úr prísundinni
UNGI hundseigandinn, Fjölnir Geir Bragason, sem ákvaA aA sitja af sér
fjársekt vegna hundahalds, hefur nú veriA leystur úr haldi. Enn er á huldu
hver greiddi þá upphæA sem sektin hljóAaði upp á, en einhver óþekktur
maAur kom að hegningarhúsinu á Skólavörðustíg í gærmorgun og greiddi
sektina. Ilundaræktarfélagið lagði til 2.000 krónur til að bsU upp vinnutap
Fjölnis, og hefur sett á stofn sérstakan sjóð fyrir þá hundaeigendur sem
kjósa að fara að dæmi Fjölnis og greiða ekki sektir vegna hundahalds.
í morgun gekk maður upp að Fjölnir Geir sagði í samtali við
Skúla Steinssyni, forstöðumanni Mbl. að hann væri ánægður yfir
hegningarhússins á Skólavörðu-
stíg, og afhenti honum þá upphæð
sem sekt Fjölnis Bragasonar fyrir
hundahald hljóðaði upp á, og sagði
að það væru verðlaun fyrir hund-
inn, og skyldi greiðslan notuð til
að leysa Fjölni úr haldi. Steinar
kom þeim skilaboðum til Fjölnis
og var hann feginn og þakklátur
manninum fyrir greiðsluna. Ekki
er þó enn vitað hver maðurinn er,
en það var ekki Guðmundur
Óskarsson, fisksali, sem boðist
hafði til að láta draga sekt Fjölnis
frá útistandandi skuldum hegn-
ingarhússins við fiskbúðina Sæ-
björgu.
athyglinni sem af fangavist hans
hefði vakið og sagðist hafa orðið
var við stuðning fólks við málstað-
inn, m.a. hefði verið gengið að
honum á götu og honum óskað til
hamingju með að vera sloppinn út.
Fjölnir hafði frétt af sjóði þeim
sem Hundaræktarfélagið ætlar að
setja á stofn og leist mjög vel á að
hundaeigendur í svipaðri aðstöðu
og hann yrðu styrktir af félags-
skapnum.
Guðrún Guðjohnsen, formaður
Hundaræktarfélags íslands, af-
henti Fjölni blómaskreytingu,
styttu og ávísun upp á tvö þúsund
krónur, frá félaginu sem viður-
kenningu og bót fyrir vinnutap
sem hlaust af fangavistinni. Guð-
rún sagði að félagið hefði stofnað
sjóð til styrktar þeim hundaeig-
endum sem stæðu í sömu baráttu
vegna hunda sinna og Fjölnir.
Guðrún sagði einnig að þetta væri
örugglega einsdæmi í heiminum
að fólk væri sett í fangelsi vegna
hunda sinna og kvað sorglegt að'
ungur piltur væri kominn á saka-
skrá hjá lögreglunni fyrir það eitt
að eiga hund.
Valur Tryggvason og Emilía
Sigursteinsdóttir, félagar f
Hundaræktarfélaginu, voru sam-
mála Guðrúnu um að þetta atvik
yrði vonandi til að koma málstað
hundaeigenda á framfæri og
sögðu þau að nú væri unnið að
reglugerð um hundahald, sem gilt
gæti um allt land enda tæki hún
tillit til bæði hunda, hundaeig-
enda og annarra borgara.
„Þótt Fjölnir sé nú laus úr prís-
undinni, er þó ekki séð fyrir end-
ann á baráttu okkar fyrir hunda-
haldi í Reykjavík og annars staðar
þar sem það er bannað," sögðu
hundavinirnir að lokum.
Fjölnir heldur hér á ávís-
uninni og styttu af dreng
og hundi, en hundurinn
Pete er hinn rólegasti þrátt
fyrir allt umstangið.
Fjallvegir smám
saman að opnast
„FJALLVEGIR koma meira og meira til eftir því sem hlýnar í veAri og
líAur á sumar,“ sagAi Lórens Kafn hjá vegaeftirlitinu er Mbl. spurAist
fyrir um ástand fjallvega. Lórens sagAi aA af vegum vestanlands væru
Uxahryggir enn ófærir svo og SteingrímsfjarAarheiAi, en TröllatunguheiAi
væri orðin fær jeppum. ÞorskafjarAarheiAi er fær, en þar eru enn 7 tonna
öxulþungatakmarkanir vegna aurbleytu.
Af vegum norðanlands er í vikunni, en lokað er inn að Snæ-
Þverfjall enn ófært en Lágheiði felli.
er orðin fær jeppum. Af fjallveg- Hellisheiði eystri er ófær og
um norðaustan- og austanlands
er fært um Hólssand og upp í
Hólmatungur og Hljóðakletta og
Axarfjarðarheiði er fær jeppum.
Jeppum er heimilaður akstur um
Kjöl en engum öðrum bílum, unn-
ið er að því að gera hann færan.
Fært er fyrir jeppa í Kerlingar-
fjöll. Sprengisandur er lokaður
vegna snjóa og bleytu, en fært er
i Herðubreiðarlindir og jafnvel
inn í Drekagil. Vonast er til að
fært verði inn í Kverkfjöll seinna
óvíst hvenær hún verður fær, en
jeppafært er í Mjóafjörð. Ennþá
er ófært inná Lónsöræfi og
göngubrúin yfir Jökulsá í Lóni
inn við Illakamb er ófær gang-
andi fólki þar sem burðarstreng-
ur í henni slitnaði. Fært er í
Eldgjá úr Skaftártungum og von-
ast er til að vært verði i vikulokin
í Landmannalaugar, en ófært er
um Fjallabaksleið syðri og um
Jökuldali á milli Eldgjár og
Landmannalauga. Fært er orðið
fyrir jeppa inn í Veiðivötn.