Morgunblaðið - 06.07.1983, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JtJLÍ 1983
Hljómsveit skipuð
þroskaheftum kemur
til tónleikahalds
Hér sjást hljóðfæraleikararnir sem koma ( dag á vegum Rauða kross fslands og Svíþjóðar. Hljómsveitina skipar
einungis þroskaheft fólk.
í DAG kemur hingað til íslands
hópur sænskra gesta. Er þar um
að ræða 20 manna hóp hljóðfæra-
leikara sem er sérstæður að því
leyti að þeir eru allir þroskaheftir.
Með hljóðfæraleikurunum í
förinni er kennari þeirra, Stina
Jarvá, en hún hefur fengist við
þær fræðigreinar sem nefndar
eru tónlistarlækning og tónlist-
aruppeldi. Hún hefur starfað við
sérskóla sænska ríkisins í Vest-
erás og þar stofnaði hún þessa
20 manna hljómsveit sem kemur
ásamt henni hingað til lands.
Hljóðfæraleikararnir eru á
aldrinum 14—42 ára og er þar
um að ræða úrval þeirra mörgu
nemenda skólans sem nú leggja
stund á nám á mörgum sviðum
tónlistar.
Aðdragandi þess að Arosblá-
ararna, en svo nefnist hljóm-
sveitin, kemur hingað til lands
er að 1981 hlustaði Hólmfríður
Gísladóttir, deildarstjóri Rauða
kross fslands, á leik þeirra og
varð það þá að ráði að þeir
kæmu hingað til lands sumarið
1983 með tilstyrk Rauða kross
íslands og Rauða kross Svíþjóð-
ar.
Hópurinn mun ferðast um
landið og halda hljómleika.
Verður fyrsti viðkomustaður
hópsins á Akureyri en þar verð-
ur hann á morgun, fimmtudag.
Þá fer hann einnig sama dag til
Dalvíkur og Ólafsfjarðar. Á
föstudaginn kemur hópurinn til
Reykjavíkur og dvelur hann þar
til sunnudags. Þá fer hann aust-
ur yfir fjall og verður með tón-
leika í Skálholtskirkju kl. 16.00.
Að lokum verða síðan tónleikar í
Norræna húsinu mánudaginn
11. júlí og hefjast þeir kl. 21.00.
Ekki er enn fullráðið hvort
víðar verður spilað opinberlega
en í kynnisferðum mun sveitin
ávallt hafa hljóðfæri sín með-
ferðis og leika á þau þegar færi
gefst.
Héðan heldur hópurinn heim
til Svíþjóðar miðvikudaginn 13.
júlí.
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Rekstrarstjóri —
Sjálfstæður rekstur
Verzlun með sérhæföar vörur í heilbrigðis-
og læknisþjónustu óskar að ráða rekstrar-
stjóra, karl eða konu, til að sjá um daglegan
rekstur.
Til greina kemur aö veita réttum aöila hlut-
deild í fyrirtækinu.
Umsóknir, sem greini aldur, menntun, fyrri
störf og aðrar upplýsingar, sem eiga viö,
óskast sendar í pósthólf 451 fyrir 11. júlí.
Húsasmiðir
Tveir til þrír vanir röskir smiöir óskast, við
byggingu verslunarhúss á Seltjarnarnesi.
Úti- og innivinna.
ÓSKAR & BRAGISF
BYGGINGAFÉLAG
Héalsititbraul 58—60 (Miðbaar) Sími 85023.
Sölumaður —
fasteignasala
Fasteignasali í miðborginni óskar eftir að
ráða sölumann. Góð laun í boði fyrir dugleg-
an mann. Nauðsynlegt að viðkomandi hafi bíl
til umráöa.
Upplýsingar um aldur, menntun og fyrri störf,
sendist Mbl. fyrir þriðjudaginn 12. júní merkt:
„A — 8612“.
Lausar stöður
í ágúst nk. verða lausar þrjár stöður þroska-
þjálfa og fóstra viö Meöferöarheimili ein-
hverfra barna, Trönuhólum 1, Reykjavík.
Laun samkvæmt launakjörum oþinberra
starfsmanna.
Umsóknir sem tilgreini menntun og fyrri störf
skulu berast félagsmálaráðuneytinu eigi síð-
ar en 15. júlí nk. Frekari upplýsingar veitir
forstöðumaður í síma 79760.
Félagsmálaráðuneytið,
29. júní 1983.
Starf bæjarritara á Sauðárkróki er laust til
umsóknar. Viðkomandi þarf að geta hafiö
störf 20. ágúst nk.
Allar upplýsingar veitir bæjarstjóri í síma 95-
5133. Umsóknarfrestur er til 20. júlí nk,
Bæjarstjórinn á Sauðárkróki.
Stúlka óskast
til afgreiðslustarfa.
Hlíðabakari,
Skaftahlíð 24.
Skrifstofumaður
óskast nú þegar í fullt starf hjá stofnun í
Reykjavík fram til nóvemberloka og síðan í
hálft starf. Góð vélritunarkunnátta nauðsyn-
leg. Umsókn um starfiö með upplýsingum um
aldur, menntun og fyrri störf sendist blaðinu
merkt: „Skrifstofumaður — 2100“.
raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
tilkynningar
GM bifreiðaeigendur
Vegna sumarleyfa starfsfólks, verður bif-
reiðaverkstæði Véladeildar Sambandsins að
Höfðabakka 9 lokað frá 18. júlí til 15. ágúst
1983.
Þennan tíma verður veitt neyðarþjónusta á
staðnum, en við biðjum viöskiþtavini velvirð-
ingar á þeirri óhjákvæmilegu röskun sem
þetta kann aö valda.
Véladeíld
Sambandsins
Þjónustumiðstöð, Höfðabakka 9.
__________________________________
Til sölu GMC 4500
vörubifreið, árg. 1974. Bifreiöin er skoðuð
1983 en er ekki í ökufæru ástandi nú. Á
bifreiðinni er 6 metra langt vöruflutningahús,
byggt í Borgarnesi.
Nánari upplýsingar veitir Guömundur
Óskarsson, í síma 82299.
húsnæöi i boöi
Hús til leigu
Eldra einbýlishús í Hafnarfirði er til leigu.
Upplýsingar í síma 54361.
Skrifstofuhúsnæði
til leigu
Til leigu er nýstandsett skrifstofuhúsnæði í
Holtahverfi Reykjavík á tveimur hæðum 200
m2 hvor hæð. Leigist í einu eða tvennu lagi.
Tilboð óskast sent augld. Mbl. „merkt:
H — 8678“.
Fiskiskip til sölu
270 lesta byggt 1966 mjög gott togskip. 230
lesta með nýrri vél og nýrri brú.
Fiskiskip,
Austurstræti 6, 2. hæð.
Sími 22475. Heimasími 13742.
Jóhann Steinason hrl.