Morgunblaðið - 10.07.1983, Qupperneq 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. JÚLÍ 1983
Nýyöknuð í fanginu i mömmu.
Dagur í lífi
hreyfíhamlaðs
barns
Arnór bróðir Lindu fylgist grannt með þegar spelkumar eru settar i h»n»
Málefni fatlaðra
barna hafa
töluvert verið
til umræðu að
undanförnu og eru nú liðin
tíu ár frá því stofnað var for-
eldrafélag barna með sér-
þarfír. Til að kynnast málinu
betur fékk blm. Mbl. að
fylgjast með Lindu Sigurð-
ardóttur í einn dag en Linda
fæddist með klofínn hrygg
og vatnshöfuð. Er hún því
lömuð og tilfínningalaus
neðan mittis.
Þegar Linda var þriggja mánaða
gömul gekkst hún undir aðgerð þar
sem ventill var settur í höfuð henn-
ar til að stöðva óeðlilega vökva-
myndun þar. Fram að þeim tíma
hafði höfuðið stækkað um 18 cm í
þvermál frá fæðingu en hefur aðeins
stækkað um tvo cm síðan. Þá var
gerð mikil aðgerð á Lindu þegar hún
var átta mánaða gömul þar sem
bakinu var lokað. Aðgerðin tókst vel
og er Linda eins og hvert annað
þriggja ára gamalt barn, nema hvað
hún þarf aðstoð við hreyfingu. Fötl-
un hennar kemur á engan hátt í veg
fyrir að hún lifi eðlilegu lífi á heim-
ili sínu ásamt foreldrum og tveim
yngri bræðrum. Hún er indælt og
greint barn sem lætur fötlun sina
ekki hindra sig i leik og tekur þvf
sem eðlilegum hlut að geta hvorki
gengið né hlaupið eins og önnur
börn, það er í lagi því svo margt
annað er til sem hún getur gert.
Linda fer núorðið f reglulega
skoðun hjá barnalækni en ljóst þyk-
ir að bati fáist ekki við fötlun henn-
ar. Hún er á sérdeild fyrir fötluð
börn á barnaheimilinu Vfðivöllum í
Hafnarfirði þar sem Linda býr.
Deildin tók til starfa í október 1977
og hefur Linda verið þar í eitt og
hálft ár en börnin á deildinni eru á
aldrinum tveggja til sex ára.
„Góöan daginn“
Dagurinn hófst hjá Lindu þegar
hún vaknaði, nuddaði stýrurnar úr
augunum og bauð góðan dag.
Mamma tók hana í fangið og hélt á
henni fram í stofu þar sem hún var
lögð á gólfið og klædd i peysu og
sokkabuxur. Utanyfir sokkabux-
urnar var Linda sett í spelkur, sem
eru þannig gerðar að þær ná frá
mitti og niður undir tær. Einnig eru
spelkurnar með hreyfanlegum liða-
mótum þannig að Linda getur setið f
þeim og gengið með hjálp göngu-
grindar. Notar hún göngugrind bæði
á barnaheimilinu og heima fyrir en
fyrstu spelkurnar fékk hún 18 mán-
aða gömul. Voru þær án liðamóta og
því á engan hátt eins þægilegar og
spelkurnar sem Linda notar nú og
hefur gert frá því í október sl.
Eftir að mamma hafði fest spelk-
urnar klæddi hún Lindu í buxur og
skó. Sfðan var beðið eftir skólabíln-
Stöllurnar Linda og Ásbjörg á leið til Víðivalla.
Guðrúnu Svöru, fóstru, bjálpað rið að festa mynd á töfluna.
um sem sækir Lindu eins og öll
börnin á sérdeildinni. Deildin er
starfrækt fyrir allt Reykjanesið og
eru börnin sótt og keyrð heim dag-
lega.
Á meðan Linda beið eftir bílnum
spjallaði hún við mömmu, pabba og
Adda bróður sinn og lét forvitni
blaðamanns og ljósmyndara ekkert
á sig fá, enda fannst henni bráðsnið-
ugt að sýna ókunnugum dagheimilið
sitt. Þegar rútan renndi í hlað var
fjölskyldan kysst bless og haldið af
stað til Víðivalla.
Á sérdeildinni við dagheimilið
Víðivelli, sem er önnur tveggja
slfkra á höfuðborgarsvæðinu, eru
daglega 11 börn, flest ailan daginn.
Átta starfsmenn eru á deildinni og
skipta með sér fimm stöðum. Þegar
Linda og skólasystkin hennar voru
mætt settust allir við morgunverð-
arborð en að því loknu hófst morg-
unstund. Skiptist hópurinn síðan f
tvennt og fór Linda með tveim öðr-
um börnum í morgunstund hjá Guð-
rúsu Svövu Guðmundsdóttur,
fóstru. Var fyrst rifið af dagatalinu,
en börnin skiptast á um það. Sfðan
ræddu þau um hvaða dagur væri
kominn, hver hefði verið á undan og
hvaða dagur kæmi þá næst og sungu
saman lag um dagana. Þá var merkt
við í kladdann og fékk Guðrún
Svava dyggilega aðstoð við að sjá
hverjir væru mættir og hverjir ekki.
Börnin spjölluðu um það sem þau
gerðu eftir að skóla lauk, deginum
áður, það sem þau höfðu séð, hvert
þau fóru og sögðu frá þvf sem þeim
Rösldega tekið tíl maUrins við morgunverðarborðið. F.t. Ásbjörg E. Kristjánsdóttir, Rut Brynjaredóttir, starfsmaður, Linda í sjúkraþjálfun hjá Báru, deildarstjóra.
Tbeódóra Lind Thorarensen, Agla Bjarnadóttir, starfsmaóur, Linda Sigurðardóttir, Guðrún Halla Guðmundsdóttír,
þroskaþjálfi og ísak Ólafsson.