Morgunblaðið - 10.07.1983, Page 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. JtJLl 1983
Morgunbladið/Steinar Garðarsson.
Fingurbjðrg er sérkennilegt fjall sem tilheyrir Mávabyggðum og er helsti áningarstaður f jöklaferðunum.
Jöklaferdir fyrir
unga sem aldna
JÖKLA-og háfjallahéruð íslands hafa eflaust eggjað margan ferðamann-
inn til klifurs, en flestir hafa látið sérþjálfuðum fjailgöngugörpum eftir að
reika um vafasöm en falleg öræfin. Nú gefst hins vegar hinum almenna
ferðamanni tækifæri á að heimsækja sjálfan konung íslenskra jökla,
Vatnajökul, í fylgd með reyndum mönnum. Það er fyrirtækið Jöklaferðir
hf. á Höfn í Hornafirði sem skipuleggur ferðir á jökulinn, mislangar eftir
óskum, og þarf lítið annað en venjulegan útilegubúnað í styttri ferðirnar.
landinu, og þaðan er eitt stór-
kostlegasta útsýni sem gefur að
líta á okkar mikilfengna landi.
Af Snæbreið sást yfir stóran
hluta Vatnajökuls, Hvannadals-
hnjúk og snævi prýdd fjöll. Mið-
nætursólin dofnaði smám saman
og hvarf að lokum, en skaut upp
rauðum kolli sínum skömmu
seinna. Nýr dagur risinn eftir
stutta nótt.
Ferð lík þessari tekur 16—18
klst., en í spjalli við þá félaga
hjá Jöklaferðum, kom fram að
Blaðamanni Mbl. var boðið í
eina jökulför með aðstandendum
Jöklaferða fyrir skömmu og var
lagt upp í blíðskaparveðri frá
Reykjavík með Flugleiðum, en
Flugleiðir bjóða einmitt sér-
fargjöld fyrir þá sem hafa í huga
að fara í samskonar ferðir.
Á Höfn tók Gísli Geir Sigur-
jónsson, einn frammámanna
Jöklaferða, á móti jöklaförum og
var þá haldið áleiðis að Breiða-
merkurjökli, en rétt austan við
Breiðalón er ekið upp á jökulinn.
Er upp var komið, beið þar snjó-
bíll sem notaður er til ferða um
snæbreiður Vatnajökuls. Við
snjóbílinn voru mættir hinir
tveir aðstandendur Jöklaferða,
þeir Gísli Hjálmarsson og Guð-
laugur Vilhjálmsson auk Ijós-
myndara Mbl. á Höfn, Steinars
Garðarssonar. Aftan í snjóbílinn
voru festar tvær þotur og reipi
til að draga skíðamenn og að
sögn Gíslanna beggja og Guð-
laugs, er alveg tilvalið að fólk
taki skíðin með og láti draga sig
upp breiðurnar með snjóbílnum,
en bruni síðan niður endalausar
brekkurnar.
Fyrsti áningarstaðurinn var
við Fingurbjörg, sem er lítið
fjall í stórum fjallaklasa er
nefnist Mávabyggðir. Fingur-
björg og Mávabyggðir eru helstu
áningarstaðirnir í styttri ferð-
unum, en í kynningarferðinni
var aftur á móti haldið enn
lengra, eða upp á Öræfajökul.
Ferðinni linnti ekki fyrr en upp
á Snæbreið, öðrum hæsta tindi á
.. og stuttu seinna reis sólin á ný eftir stutU nétt
yfirleitt færu þeir einungis með
fólk upp að Mávabyggðum, enda
væri ágætt útsýni þaðan og
nægði það flestum.
Gíslarnir og Guðlaugur höfðu
eytt mörgum stundum á jöklin-
um áður en þeir ákváðu að
stofna fyrirtæki um jöklaferðir
fyrir aðra. Upphaflega voru þeir
fjórir með fyrirtækið, en sá
fjórði, Jóhann Magnússon, er nú
hættur. Ástæðuna fyrir stofnun
fyrirtækisins sögðu þeir vera þá
að leyfa öðrum að njóta fegurð-
arinnar sem jökullinn býr yfir.
Þeir réðust í kaup á snjóbíl sem
hefur kostað þá um eina milljón
króna að fullgera, en bíllinn var
upphaflega snjótroðari. Þeir
hafa einnig í sinni þjónustu rútu
sem tekur jafn marga farþega og
snjóbíllinn, eða tólf manns, og í
henni flytja þeir jöklafara frá
Höfn eða Skaftafelli að jöklin-
um, en þessa tvo staði hafa þeir
hugsað sér sem upphafsstaði
jöklaferðanna.
Guðlaugur sagði að þetta ár
yrði eins konar prófsteinn fyrir
fyrirtækið, en ýmsar tillögur og
hugmyndir eru í deiglunni fyrir
næsta ár, s.s. skáli upp við
Mávabyggðir og jafnvel samn-
ingur við fyrirtæki í Reykjavík
um leigu á skíðum og öðrum út-
búnaði fyrir ferðalanga á jöklin-
um. Lengd ferðanna sem Jökla-
ferðir hf. bjóða upp á fer eftir
óskum farþeganna, en stystu
ferðirnar eru u.þ.b. 5 klst., þar af
2 á jökli, enda er þá ekki farið
nema rétt upp á jökulinn. Slik
ferð kæmi til með að kosta um
1300 krónur, en ferðir upp á ör-
æfajökul rúmlega 2000 krónur.
Engan sérstakan útbúnað sögðu
þeir félagar að þyrfti í styttri
ferðirnar, nema venjulegan úti-
legubúnað, en ef fólk vill dvelja
lengur á jöklinum er vissara að
útbúa sig vel.
Með í þessari kynningarferð
var Jóhann D. Jónsson, sölu-
stjóri innanlandsflugs Flugleiða,
og sagði hann möguleika á að
sameina í einn „pakka“ t.d.
svona jöklaferð og flugferð og
fengist þá heildarferðin á hag-
stæðari kjörum. Ef keypt er önn-
ur ferðaþjónusta á áfangastað
samtímis flugfarseðli, sagði Jó-
hann að Flugleiðir byðu veruleg-
an afslátt af flugferðum, enda
væri á þennan hátt auðvelt og
ódýrt að sameina flug, skoðunar-
ferðir, hótelgistingu og bíla-
leigubíl á áfangastað.
„Jöklaferðir eru fyrir fólk á
öllum aldri,“ sögðu félagarnir á
Höfn, enda voru þeir þá nýbúnir
að fara með hóp af öldruðum
Frökkum á jökulinn, og hafði
allt gengið að óskum. Jökullinn
er hættulegur óvönum yfirferðar
þar sem hann er síbreytilegur og
óútreiknanlegur og fara verður
um hann með fyllstu varkárni.
Félagarnir þrír hjá Jöklaferðum
hf. sögðust sneiða hjá hættu-
svæðum og þeir gerþekktu þau
svæði sem þeir ferðast um og
þess vegna væru jöklaferðir ekki
eins hættulegar og margir halda,
enda ætla þeir sér að drepa nið-
ur „grýluímyndina" sem lengi
hefur loðað við konung Vatna-
jökul.
Besta sólbaðié fæst með því að láta snjóbflinn draga sig um jökulinn, annaðhvort á skíðum
eða á litlum þotum.
Hvannadalshnjúknr séður ofan af Snæbreið, ððrnm hæsta tlndi íslands.