Morgunblaðið - 13.07.1983, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR
156. tbl. 70. árg.
MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 1983
Prentsmiöja Morgunblaðsins
•mr v A « m • Sfmamjnd AP.
Ungfru alheimur
• llngfrú Lorrianc Downes frá Nýja-Sjálandi var í gær kjörin Ungfrú alheimur í feguröarsamkeppni sem haldin
var í St. Louis í Bandaríkjunum. Fegurðardrottningin er í miðjunni, en með henni eru þær stúlkur sem voru í
næstu sætum. Þær eru, talið frá vinstri.-ungfrú England, Karen Moore, ungfrú írland, Roberta Brown, þá
sigurvegarinn, ungfrú Lorraine, ungfrú Bandaríkin, Juli Hayek, og loks ungfrú Sviss, Lolita Morena. Sjá nánar
frétt á blaðsíðu 14.
Afganistan:
Mótmælt
• Nokkuð var um mótmæli á götum Santiago í Chile í
gær, þrátt fyrir að stjórnvöld í landinu höfðu lagt blátt
bann við því. Var um að ræða framhald á ólgu og verkföll-
um sem staðiö hafa yfír í landinu síðustu vikurnar. Þátt-
taka í mótmælagöngum og þvíumlíku var minni en reikn-
að var með, en herforingjastjóm Pinochets forseta hefur í
j • Sfmamynd AP.
Santiago
haldi flesta af öflugustu og sterkustu verkalýðsleiðtogum
landsins. Til átaka kom varla, en mótmælendur sprengdu
langferðabifreið í loft upp án þess þó að nokkur biði bana.
í gærkvöldi var svo útgöngubann í helstu borgum lands-
ins til að afstýra frekari mótmælum.
Enn óvissa um
afdrif stúlkunar
Rómarborg. 12. júlí. AP.
LÖCREGLAN á Ítalíu er engu nær um afdrif hinnar 15 ára gömlu Emanuelu
Orlandi, sem rænt var fyrir nokkrum dögum. Ónafngreindur maður hringdi í
lögregluna í gær og sagði stúlkuna látna. Lögreglan telur sig þó hafa ástæðu til
að ætla að um gabb hafí verið að ræða. Áður hafði ákveðinn maður hringt og
sagt að stúlkunni yrði ekki sleppt fyrr en tyrkneski hryðjuverkamaðurinn
Mehmurt Ali Agca hefði verið leystur úr haldi.
Símtalið í gær kom eftir að
frændi stúlkunnar hafði opinber-
lega krafist þess af mannræningj-
unum að þeir færðu fram sönnun-
argögn sem bentu til að stúlkan
væri á lífi og ómeidd. Hringdi sím-
inn skömmu síðar hjá lögreglunni í
Róm og sagði karlmannsrödd
stúlkuna látna. Sagði maðurinn að
lík hennar væri í bílskotti annað
hvort í götunni Via Sinti eða Via
Scinti. Heyrðist ógreinilega er
röddin nefndi götunafnið, en hvor-
ug gatan er til. Hins vegar fór lög-
reglan þegar í stað á stúfana að
leita að öllum götum sem heita lík-
um nöfnum. Atti líkið að liggja í
rauðri Fiesta-bifreið. Ekki fannst
stúlkan og var leitinni hætt í
gærkvöldi.
Ónafngreindur lögreglumaður
sagði að sem stæði væri litið á sím-
talið sem gabb. Maður sem talað
hefur við þann er segir sig hafa
stúlkuna í haldi segir hinn meinta
ræningja tala ítölsku með hreim.
„Hann gæti verið bandarískur,"
sagði hann.
*
Mannránið á Italíu:
Frelsisliðarnir
færast í aukana
Nýja Delhí, Indlandi. 12. júlí. AP.
FRELSISSVEITIR í Afganistan hafa
sótt mjög í sig veðrið síðustu vikurnar
og eftir því sem ónafngreindur vest-
rænn diplómat segir, var mikið blóö-
bað er frelsissveitarmenn létu til
skarar skríða í brúðkaupi í Kabúl.
Þar voru gestir um 80 talsins, margir
fyrrum frelsissveitarmenn sem snúist
hafa til stuönings ríkisstjórnar Babr-
aks Karmai. Felldu frelsissveitar-
menn rúmlega 40 manns og höföu
aðra nauðuga á brott með sér.
Þessar aðgerðir frelsissveitar-
manna voru hápunkturinn á vax-
andi umsvifum þeirra í höfuðborg-
inni Kabúl og nágrenni síðustu vik-
urnar. Árásin á brúðkaupsgestina
mun hafa átt sér stað 5. júlí, en
tveimur nóttum áður gerðu frels-
issveitir eldflaugaárás á stöðvar
sovéskra hermanna í Kabúl. Vökn-
uðu borgarbúar við mikinn gný og
vopnaskak, en talað var um að átta
sovéskir hermenn hefðu fallið í
árásinni. Ekkert fréttist af mann-
falli í röðum frelsisliða. Auk þessa
hafa frelsisliðarnir sprengt margar
sprengjur í íbúðarhverfum sov-
éskra diplómata og hernaðar-
ráðgjafa. Hafa sprengingarnar
Misheppn-
að flugrán
Moskva, 12. júlí. AP.
SOVÉSKA fréttastofan Tass greindi
frá því í gær, að tveir farþegar hefðu
gert tilraun til að ræna farþegaflugvél
frá Aeroflot, sem var í áætlunarfíugi
frá Moskvu til Tallin í byrjun þessa
mánaðar. Sagði Tass að aðrir farþeg-
ar og áhöfn vélarinnar hefðu í sam-
einingu yfirbugað ræningjana og
hefði annar þeirra látið lífið.
Hafði Tass eftir sjónarvottum,
að flugvélaræningjarnir hefðu sagt
að þeir væru með öflug sprengiefni
innan klæða sem þeir ætluðu að
sprengja ef ekki yrði gengið að
kröfum þeirra.
valdið miklum skemmdum, en litlu
eða engu mannfalli.
6. júlí gerðu frelsisliðar harða
hríð að tveimur herstöðvum Sov-
étmanna og afganskra stjórnar-
hermanna í Bala Hissar, komust
inn fyrir víglínuna í annarri þeirra
og stökktu mótherjum sínum á
flótta. Einnig skutu þeir eldflaug-
um á sovéska kornbirgðastöð,
skemmdu hana mjög og felldu þrjá
afganska gæslumenn. Rafmagns-
laust var í 12 klukkustundir í Share
Nabu, skammt norður af Kabúl,
eftir eldflaugaárás frelsissveita á
orkuver.
Lífseig-
ur hvít-
voðungur
Kansa.s City, 12. júlí. AP.
NÝFÆDDUR hvítvoðungur lifði af
með ótrúlegum hætti að vera
stungið í ruslapoka og settur því
næst í frystikistu.
Atvikið átti sér stað í Kansas
City um helgina. Eldri karlmað-
ur sá þá til ferða dóttur sinnar
þar sem hún kom útaf salerni
íbúðar þeirra með ruslapoka og
hvarf með hann ofan í kjallara.
Þótti föðurnum hátterni for-
vitnilegt og njósnaði því um
ferðir stúlkunnar. Setti hún pok-
ann í frystikistuna og hvarf síð-
an á brott. Var föðurnum litið
ofan í kistuna nokkru síðar og
fann þá nýfætt barn í pokanum.
Var barninu ekið í skyndi á
sjúkrahús og þótti með ólíkind-
um að það var enn á lífi. Síðast
er fréttist hafði það braggast vel
og var hugað líf. Stúlkan fannst
fljótt og var hún lögð á sjúkra-
hús. Gaf hún engar skýringar á
hátterni sínu, en fjölskyldumeð-
limir höfðu enga hugmynd um
aö hún væri með barni.
Stjórnarherinn
í Chad sækir sig
N’Diamena Chad, 12. júlí. AP.
N’Djamena Chad, 12. júlí. AP.
IDRISS Miskine, utanríkisráðherra
Chad, lýsti yfir í gær, að borgarastyrj-
öldin í landinu væri nú óðum að snúast
stjórnarhernum í hag og vendipunktur-
inn hefði verið í gær, er stjórnarher-
menn náðu á sitt vald hernaðarlega
mikilvægum samgönguæðum skammt
frá borginni Abeche auk borgarinnar
sjálfrar. Sagði Miskine skæruliða hafa
farið halloka á þessum slóðum, mann-
fall hefði verið mikið í þeirra röðum og
70 hefðu verið teknir höndum. Sagði
Miskine nokkra hinna handteknu hafa
verið Líbýumenn.
Goukouni Oueddei, fyrrum forseti
Chad, og foringi skæruliðanna, sagði
í samtali við franska dagblaðið Le
Matin að Mitterrand Frakklandsfor-
seti ætti að gæta sín á því að aðstoða
Habre forseta of mikið. „Vopnin sem
Frakkar senda honum munu ekki
stöðva okkur og það er eins gott fyrir
Mitterrand að ganga ekki iengra í
hjálparstarfinu, því þá mun skella á
stríð milli Chad og Frakklands. Við
höfum barist gegn Frökkum fyrr á
árum með hnífum og spjótum. Með
nútímavopnum yrðum við ekki auð-
sveipir, stríðið myndi ná allt til
Parísar, það er því eins gott að Mitt-
errand vari sig,“ sagði Oueddei.
Enn sem komið er, hafa Frakkar
ekki ákveðið að senda hermenn til
Chad. Mobutu, forseti Zaire, hefur
hins vegar ákveðið að koma Habre
til aðstoðar. Þegar eru 250 falihlífar-
hermenn frá Zaire í röðum stjórnar-
hers Chad, en Mobutu ætlar að
senda 1750 til viðbótar.
Sovétmenn hafa tjáð sig um gang
mála í Chad, en sovéska stjórni.n
hefur sent frá sér tilkynningu, þar
sem hún gagnrýnir harðlega „vest-
ræna afskiptasemi í Chad sem hefur
orðið til þess að venjulegt borgara-
stríð er þess í stað orðið að suðupotti
sem gæti stofnað heimsfriðnum í
hættu", eins og þar segir. Minntust
Sovétmenn ekki einu orði á þátt Lí-
býumanna, en fordæmdu Frakka
hins vegar harðlega fyrir að senda
stjórn Chad vopn og vistir.