Morgunblaðið - 13.07.1983, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.07.1983, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR 156. tbl. 70. árg. MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 1983 Prentsmiöja Morgunblaðsins •mr v A « m • Sfmamjnd AP. Ungfru alheimur • llngfrú Lorrianc Downes frá Nýja-Sjálandi var í gær kjörin Ungfrú alheimur í feguröarsamkeppni sem haldin var í St. Louis í Bandaríkjunum. Fegurðardrottningin er í miðjunni, en með henni eru þær stúlkur sem voru í næstu sætum. Þær eru, talið frá vinstri.-ungfrú England, Karen Moore, ungfrú írland, Roberta Brown, þá sigurvegarinn, ungfrú Lorraine, ungfrú Bandaríkin, Juli Hayek, og loks ungfrú Sviss, Lolita Morena. Sjá nánar frétt á blaðsíðu 14. Afganistan: Mótmælt • Nokkuð var um mótmæli á götum Santiago í Chile í gær, þrátt fyrir að stjórnvöld í landinu höfðu lagt blátt bann við því. Var um að ræða framhald á ólgu og verkföll- um sem staðiö hafa yfír í landinu síðustu vikurnar. Þátt- taka í mótmælagöngum og þvíumlíku var minni en reikn- að var með, en herforingjastjóm Pinochets forseta hefur í j • Sfmamynd AP. Santiago haldi flesta af öflugustu og sterkustu verkalýðsleiðtogum landsins. Til átaka kom varla, en mótmælendur sprengdu langferðabifreið í loft upp án þess þó að nokkur biði bana. í gærkvöldi var svo útgöngubann í helstu borgum lands- ins til að afstýra frekari mótmælum. Enn óvissa um afdrif stúlkunar Rómarborg. 12. júlí. AP. LÖCREGLAN á Ítalíu er engu nær um afdrif hinnar 15 ára gömlu Emanuelu Orlandi, sem rænt var fyrir nokkrum dögum. Ónafngreindur maður hringdi í lögregluna í gær og sagði stúlkuna látna. Lögreglan telur sig þó hafa ástæðu til að ætla að um gabb hafí verið að ræða. Áður hafði ákveðinn maður hringt og sagt að stúlkunni yrði ekki sleppt fyrr en tyrkneski hryðjuverkamaðurinn Mehmurt Ali Agca hefði verið leystur úr haldi. Símtalið í gær kom eftir að frændi stúlkunnar hafði opinber- lega krafist þess af mannræningj- unum að þeir færðu fram sönnun- argögn sem bentu til að stúlkan væri á lífi og ómeidd. Hringdi sím- inn skömmu síðar hjá lögreglunni í Róm og sagði karlmannsrödd stúlkuna látna. Sagði maðurinn að lík hennar væri í bílskotti annað hvort í götunni Via Sinti eða Via Scinti. Heyrðist ógreinilega er röddin nefndi götunafnið, en hvor- ug gatan er til. Hins vegar fór lög- reglan þegar í stað á stúfana að leita að öllum götum sem heita lík- um nöfnum. Atti líkið að liggja í rauðri Fiesta-bifreið. Ekki fannst stúlkan og var leitinni hætt í gærkvöldi. Ónafngreindur lögreglumaður sagði að sem stæði væri litið á sím- talið sem gabb. Maður sem talað hefur við þann er segir sig hafa stúlkuna í haldi segir hinn meinta ræningja tala ítölsku með hreim. „Hann gæti verið bandarískur," sagði hann. * Mannránið á Italíu: Frelsisliðarnir færast í aukana Nýja Delhí, Indlandi. 12. júlí. AP. FRELSISSVEITIR í Afganistan hafa sótt mjög í sig veðrið síðustu vikurnar og eftir því sem ónafngreindur vest- rænn diplómat segir, var mikið blóö- bað er frelsissveitarmenn létu til skarar skríða í brúðkaupi í Kabúl. Þar voru gestir um 80 talsins, margir fyrrum frelsissveitarmenn sem snúist hafa til stuönings ríkisstjórnar Babr- aks Karmai. Felldu frelsissveitar- menn rúmlega 40 manns og höföu aðra nauðuga á brott með sér. Þessar aðgerðir frelsissveitar- manna voru hápunkturinn á vax- andi umsvifum þeirra í höfuðborg- inni Kabúl og nágrenni síðustu vik- urnar. Árásin á brúðkaupsgestina mun hafa átt sér stað 5. júlí, en tveimur nóttum áður gerðu frels- issveitir eldflaugaárás á stöðvar sovéskra hermanna í Kabúl. Vökn- uðu borgarbúar við mikinn gný og vopnaskak, en talað var um að átta sovéskir hermenn hefðu fallið í árásinni. Ekkert fréttist af mann- falli í röðum frelsisliða. Auk þessa hafa frelsisliðarnir sprengt margar sprengjur í íbúðarhverfum sov- éskra diplómata og hernaðar- ráðgjafa. Hafa sprengingarnar Misheppn- að flugrán Moskva, 12. júlí. AP. SOVÉSKA fréttastofan Tass greindi frá því í gær, að tveir farþegar hefðu gert tilraun til að ræna farþegaflugvél frá Aeroflot, sem var í áætlunarfíugi frá Moskvu til Tallin í byrjun þessa mánaðar. Sagði Tass að aðrir farþeg- ar og áhöfn vélarinnar hefðu í sam- einingu yfirbugað ræningjana og hefði annar þeirra látið lífið. Hafði Tass eftir sjónarvottum, að flugvélaræningjarnir hefðu sagt að þeir væru með öflug sprengiefni innan klæða sem þeir ætluðu að sprengja ef ekki yrði gengið að kröfum þeirra. valdið miklum skemmdum, en litlu eða engu mannfalli. 6. júlí gerðu frelsisliðar harða hríð að tveimur herstöðvum Sov- étmanna og afganskra stjórnar- hermanna í Bala Hissar, komust inn fyrir víglínuna í annarri þeirra og stökktu mótherjum sínum á flótta. Einnig skutu þeir eldflaug- um á sovéska kornbirgðastöð, skemmdu hana mjög og felldu þrjá afganska gæslumenn. Rafmagns- laust var í 12 klukkustundir í Share Nabu, skammt norður af Kabúl, eftir eldflaugaárás frelsissveita á orkuver. Lífseig- ur hvít- voðungur Kansa.s City, 12. júlí. AP. NÝFÆDDUR hvítvoðungur lifði af með ótrúlegum hætti að vera stungið í ruslapoka og settur því næst í frystikistu. Atvikið átti sér stað í Kansas City um helgina. Eldri karlmað- ur sá þá til ferða dóttur sinnar þar sem hún kom útaf salerni íbúðar þeirra með ruslapoka og hvarf með hann ofan í kjallara. Þótti föðurnum hátterni for- vitnilegt og njósnaði því um ferðir stúlkunnar. Setti hún pok- ann í frystikistuna og hvarf síð- an á brott. Var föðurnum litið ofan í kistuna nokkru síðar og fann þá nýfætt barn í pokanum. Var barninu ekið í skyndi á sjúkrahús og þótti með ólíkind- um að það var enn á lífi. Síðast er fréttist hafði það braggast vel og var hugað líf. Stúlkan fannst fljótt og var hún lögð á sjúkra- hús. Gaf hún engar skýringar á hátterni sínu, en fjölskyldumeð- limir höfðu enga hugmynd um aö hún væri með barni. Stjórnarherinn í Chad sækir sig N’Diamena Chad, 12. júlí. AP. N’Djamena Chad, 12. júlí. AP. IDRISS Miskine, utanríkisráðherra Chad, lýsti yfir í gær, að borgarastyrj- öldin í landinu væri nú óðum að snúast stjórnarhernum í hag og vendipunktur- inn hefði verið í gær, er stjórnarher- menn náðu á sitt vald hernaðarlega mikilvægum samgönguæðum skammt frá borginni Abeche auk borgarinnar sjálfrar. Sagði Miskine skæruliða hafa farið halloka á þessum slóðum, mann- fall hefði verið mikið í þeirra röðum og 70 hefðu verið teknir höndum. Sagði Miskine nokkra hinna handteknu hafa verið Líbýumenn. Goukouni Oueddei, fyrrum forseti Chad, og foringi skæruliðanna, sagði í samtali við franska dagblaðið Le Matin að Mitterrand Frakklandsfor- seti ætti að gæta sín á því að aðstoða Habre forseta of mikið. „Vopnin sem Frakkar senda honum munu ekki stöðva okkur og það er eins gott fyrir Mitterrand að ganga ekki iengra í hjálparstarfinu, því þá mun skella á stríð milli Chad og Frakklands. Við höfum barist gegn Frökkum fyrr á árum með hnífum og spjótum. Með nútímavopnum yrðum við ekki auð- sveipir, stríðið myndi ná allt til Parísar, það er því eins gott að Mitt- errand vari sig,“ sagði Oueddei. Enn sem komið er, hafa Frakkar ekki ákveðið að senda hermenn til Chad. Mobutu, forseti Zaire, hefur hins vegar ákveðið að koma Habre til aðstoðar. Þegar eru 250 falihlífar- hermenn frá Zaire í röðum stjórnar- hers Chad, en Mobutu ætlar að senda 1750 til viðbótar. Sovétmenn hafa tjáð sig um gang mála í Chad, en sovéska stjórni.n hefur sent frá sér tilkynningu, þar sem hún gagnrýnir harðlega „vest- ræna afskiptasemi í Chad sem hefur orðið til þess að venjulegt borgara- stríð er þess í stað orðið að suðupotti sem gæti stofnað heimsfriðnum í hættu", eins og þar segir. Minntust Sovétmenn ekki einu orði á þátt Lí- býumanna, en fordæmdu Frakka hins vegar harðlega fyrir að senda stjórn Chad vopn og vistir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.