Morgunblaðið - 21.07.1983, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 21.07.1983, Blaðsíða 17
10 ár frá stofnun Flugleiða MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JÚLl 1983 17 Flugvélin var keypt ný frá Boeing-verksmiðjun- um árið 1980. DC-8 þotum Flugleiða er skipt yfir vetrartímann, þannig að vörur eru á pöllum í framhluta vélarinnar, en farþegar í afturhlutanum, en með því fæst mun betri nýting yfír rólegasta tímann. „Aðilar að samningum við 38 stéttarfélög “ — segir Erling Aspelund fram- kvæmdastjóri stjórnunarsviðs Erling Aspelund, framkræmdastjóri stjórnunarsrids Flugleiða. „I’að hefur lítil hreyfing verið á starfsfólki Flugleiða undanfarin ár; en þó vinnur einungis u.þ.b. helming- ur þeirra starfsmanna enn sem hóf störf hjá félaginu við sameininguna,“ sagði Erling Aspelund, framkvæmda- stjóri stjórnunarsviðs Flugleiða er blm. Mbl. ræddi við hann í tilefni 10 ára afmælis félagsins. Flest þau mál, sem varða starfs- menn Flugleiða heyra undir stjórn- unarsvið auk reksturs gistihúsa fé- lagsins, Hótel Loftleiða og Hótel Esju, og bílaleigu. Þess vegna var Erling spurður að því hvort starfs- mönnum hefði fjölgað eða fækkað eftir ’79 og ’80 en þá þurfti félagið sem kunnugt er að segja upp fjölda manns vegna rekstrarerfiðleika. „Segja má að starsmannafjöldi fyrirtæisins hafi staðið nokkurn veginn í stað síðustu ár. T.d. vinna nú 857 fastráðnir starfsmenn hjá fé- laginu hér á landi og fjölgaði þeim um 8 frá síðasta ári. Hins vegar kemur þar á móti að starfsmönnum erlendis, sem nú eru 165, hefur fækkað um 14 á þessu ári, má rekja til sviptingar flugleyfis til Amster- dam. — Að viðbættum starfsmönn- um hótela og bílaleigu starfa nú alls 1.209 manns á vegum félagsins og er þá ekki sumarfólk meðtalið. Ef á heildina er litið hefur því starfs- mönnum raunverulega fækkað um 6 miðað við síðasta ár.“ Hlynntir starfs- greinafélögum — Hvernig er gerð kjarasamn- inga við starfsfólk háttað? „Flugleiðir eru aðilar að samn- ingum við 38 stéttarfélög og lætur nærri að um 600 launaflokka sé hér að ræða. Þetta hefur vitaskuld mikla vinnu í för með sér þó að reynt sé að samræma samninga við starfsmenn með því að ná sam- komulagi á svipuðum grundvelli við mörg stéttarfélög í einu. En ýmis sérákvæði í samningum, t.d um vinnufyrirkomulag og tíma vegna þess að starfsmenn heyra ólíkum stéttarfélögum til, hafa oft og tíðum valdið vandkvæðum. Því erum við hlynntir starfsgreinafélögum þar sem allir starfsmenn fyrirtækis yrðu félagar í einu stéttarfélagi. Tvisvar sinnum hefur verið reynt innan vébanda ASÍ að koma á fót starfsgreinafélagi starfsliðs Flug- leiða, en án árangurs. Það er aftur á móti ekkert vafamál að slíkt starfs- greinafélag mundi bæði vera stjórn- endum og starfsmönnum Flugleiða til mikilla hagsbóta." — Hefur verið gerð könnun á vinnuafköstum starfsmanna Flug- leiða miðað við önnur flugfélög? „Já — og við getum verið mjög ánægðir með okkar hlut í saman- burði við önnur evrópsk flugfélög því að samkvæmt þeim þremur mælieiningum, sem Alþjóðsamtök flugfélaga, IATA, fer eftir við gerð slíkrar könnunar voru Flugleiðir tvisvar sinnum í öðru sæti og einu sinni í því fyrsta. Okkur hefur ekki enn borist upplýsingar fyrir árið 1982 vegna þess að lokauppgjör flugfélaga liggur ekki enn fyrir; en við munum að sjálfsögðu halda áfram að fylgjast með könnunum af þessu tagi.“ BoÖleidir styttar — Hvernig fara samskipti stjórn- unarsviðs og starfsmanna fram? „Stjórnunarsvið gengst fyrir starfsmannafundum og námskeið- um og veitir ráðgjöf af ýmsu tagi. Geta starfsmenn þá t.d. rætt um persónuleg vandamál sín og önnur hugðarefni. Enda leggur félagið kapp á að halda uppi góðum starfs- anda. Ennfremur er eftirlit með starfsmönnum í verkahring stjórn- unarsviðs t.d. til að tryggja öryggi á vinnustað, og ýmiss konar skjala- varsla sem lýtur að starfsliði félags- ins. Einnig má geta þess að yfir vetrarmánuðina eru haldnir fundir í hinum einstöku deildum þar sem forstjóri og framkvæmdastjórar gera grein fyrir rekstri félagsins. Tilgangur þessara funda er að stytta boðleiðir milli stjórnenda og annarra starfsmanna og gefa starfsliði kost á að spyrja spurninga um reksturinn. Þá stendur stjórn- arsvið fyrir námskeiðum í því augnamiði að þjálfa starfsfólk fé- lagsins. Þjálfunin er mjög mismun- andi eftir því hvaða starfsstéttir eiga i hlut; hún er t.a.m. mikil hjá öllu flugliði, flugmönnum og flug- freyjum og — þjónum." Nýting hótela lakari — En ef við víkjum að öðru við- fangsefni stjórnunarsviðs. Hvernig hefur rekstur hótelanna tveggja og bílaleigunnar gengið á þessu ári? „Nýting hótela félagsins eins og reyndar annarra hótela hér í Reykjavík hefur verið heldur lakari en á síðasta ári. Á Hótel Loftleiðum hefur nýtingin verið tæpum 3% minni en í fyrra og á Hótel Esju rúm 3%. Kemur einkum tvennt til: Annars vegar slæmt tíðarfar hér í vetur og hins vegar minnkandi kaupgeta almennings. Ljóst er að færri gestir utan af landi komu til borgarinnar vegna illviðrisins en venjulega. Þó hefur nýting hótela félagsins það sem af er sumrinu ver- ið svipuð og undanfarin ár. Annars fara nú fram endurbætur á her- bergjum beggja hótelanna til að koma til móts við breyttar þarfir og kröfur gesta; enda þótt herbergin hafi þjónað ága'tlega hlutverki sinu frá því að hótelin voru reist á sínum tíma. — Um bílaleiguna er það að segja að rekstur hennar hefur geng- ið álíka og undanfarin ár. Að vísu tók færra utanbæjarfók sér bíl á leigu i vetur sökum veðráttunnar; en þó má segja að reksturinn hafi gengið mjög þokkalega. Enda höfum við einkum þrjá þætti í huga þegar keyptar eru inn bifreiðir á veguni bílaleigunnar: traustleika þeirra, varahlutaþjónustu og endursölu- kosti. Og þessi skilyrði hafa þær 107 Volkswagen- og Mitsubishi-bifreið- ir, sem eru i eigu bílaleigunnar, upp- fyllt,“ sagði Erling Aspelund að lok- um. Sa.nanburður á framleiðni (á starfsmann). Flugfélag Tonn km. Röð Farþegar áætlunarflugi Arðbærir farþega-km. Röð í áætlunarflugi Röð British 102.498 4 340 5 866.208 2 Flugleiðir 117.346 2 474 2 1.052.639 1 KLM 134.860 1 208 7 789.126 3 Lufthansa 117.301 3 422 3 70.4.804 5 Sabena 97.937 5 214 6 541.299 7 SAS 89.404 7 523 1 672.326 6 Swissair 96.010 6 390 4 728.714 4 Heimild 1ATA 1981 DATA A þessari töflu er samanburður á afköstum starfsmanna Flugleiða og annarra flugfélaga. Mælistikur eru þrjár: Seldir tonn-km á hrern starfsmann, farþegar í áætlunarflugi á hrern starfsmann og arðbæri farþega-km á hrern starfs- mann. Eins og sjá má eru Flugleiðir einu sinni í fyrsta sæti og trisrar í öðru sæti samkræmt þessum mælieiningum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.