Morgunblaðið - 21.07.1983, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JtJLÍ 1983
37
Janúar-júní:
Um 6,51% sam-
dráttur í útgáfu
Eurobond-bréfa
ALLS voru gefin út 268 svokölluð
„Eurobond" skuldabréfalán fyrstu
sex mánuöi ársins, samtals að verö-
mæti um 23.614,56 milljónir dollara.
Til samanburðar voru gefin út
skuldabréf að verömæti 25.259,10
milljónir dollara á sama tíma í fyrra.
Samdrátturinn er því um 6,51% milli
ára.
Um 79,75% af bréfunum eru
gefin út í dollurum, eða samtals að
upphæð um 18. 830,96 milljónir
dollara. Þá koma bréf í vestur-
þýzkum mörkum að verðmæti um
2.857,48 milljónir dollara, sem
jafngildir um 12,1% af útgáfunni.
í þriðja sæti eru bréf útgefin í
“ECU“, en þau voru að verðmæti
um 842,16 milljónir dollara, sem
jafngildir um 3,57% af heildinni. í
fjórða sæti eru bréf gefin út í
kanadískum dollurum, en verð-
mæti þeirra er um 468,16 milljónir
dollara, sem iafngildir um 1,98%
af heildinni. I fimmta sæti koma
bréf útgefin í brezkum pundum,
en verðmæti þeirra var 442,14
milljónir dollara, sem jafngildir
um 1,87% af heildinni.
Ef litið er á útgáfuna landfræði-
lega kemur í ljós, að 56,75% bréf-
anna fara til aðila í Evrópu,
15,94% fara til aðila í Bandaríkj-
unum, um 9,71% til aðila í Kan-
ada, og síðan minna hlutfall til
ýmissa landa víðs vegar um heim-
inn.
Noregur í júní:
Vöruskiptajöfn-
uður jákvæður
um 1,7 milljarða
VERULEG breyting varð á vöruskipt-
um Norömanna viö útlönd í júnímán-
uði sl., þegar vöruskiptajöfnuöur
landsmanna var jákvæöur um liðlega
1,7 milljaröa króna, en hann var já-
kvæöur um aðeins 1,2 milljarða
króna í maí sl.
Ef síðan er litið ár aftur í tímann
kemur í ljós, að vöruskiptajöfnuður
Norðmanna var neikvæður um 218
milljónir króna í júnímánuði 1982.
Hann hefur því batnað um liðlega
1.918 milljónir króna á einu ári.
Útflutningur Norðmanna í júní-
mánuði var að verðmæti liðlega
9.941 milljón króna, en innflutn-
ingsverðmætið var á sama tíma um
8.178 milljónir króna. Sambæri-
legar tölur fyrir júní á síðasta ári
eru útflutningsverðmæti upp á
8.418 milljónir króna og innflutn-
ingsverðmæti upp á 8.636 milljónir
króna.
Vöruskiptajöfnuður Norðmanna
fyrstu sex mánuði ársins var hag-
stæður um liðlega 14.287 milljónir
króna, en til samanburðar var
vöruskiptajöfnuðurinn hagstæður
um 7.415 milljónir króna á sama
tíma í fyrra.
Útflutningsverðmæti Norð-
manna fyrstu sex mánuðina var
um 60,5 milljarðar króna, en inn-
flutningsverðmætið á hinn bóginn
um 46,2 milljarðar króna. Sam-
bærilegar tölur fyrir janúar til júní
á síðasta ári eru 52,6 milljarða
króna útflutningsverðmæti og um
45,2 milljarða króna innflutnings-
verðmæti.
Gunnar Gröndal, deildarstjóri.
Ragnar Sigurjónsson, sölustjóri.
Mannabreytingar
hjá Sambandinu
EINS og fram hefur komiö í fréttum
lét Magnús G. Friögeirsson af starfi
um sl. mánaöamót sem sölustjóri í
Sjávarafuröadeild fyrir skreiö, mjöl
og lýsi. Geröist hann frá sama tíma
meö-framkvæmdastjóri í Búvörudeild
Sambandsins.
Við starfi Magnúsar sem sölu-
stjóri fyrir skreið, mjöl og lýsi hef-
ur nú tekið Ragnar Sigurjónsson.
Ragnar starfaði í Skipadeild Sam-
bandsins frá 1960 til 1964. Næstu
tvö árin var hann við nám og störf
í Noregi og Bretlandi. Hann hóf
aftur störf hjá Sambandinu 1971;
starfaði í Véladeild til 1976 og eftir
það fjögur ár á skrifstofu Sam-
bandsins í Hamborg. Sl. 3 ár hefur
Ragnar verið deildarstjóri í Um-
búða- og veiðarfæradeild Sjávar-
afurðadeildar. Hann er kvæntur
Sigríði Thorlacius og eiga þau 2
börn.
Við starfi Ragnars sem deildar-
stjóri í Umbúða- og veiðarfæra-
deild tekur Gunnar Gröndal.
Gunnar starfaði í Innflutnings-
deild Sambandsins frá 1971 til
1980, en hefur sl. 3 ár starfað á
skrifstofu Sambandsins í Ham-
borg. Gunnar er kvæntur Oddnýju
Björgvinsdóttur og eiga þau tvo
syni.
/7
GUÐNIGUÐMUNDSSON
REKTOR M.R.
SÝNIR SINA EDINBORG
í VIKUFERÐ TEj N-A ENGLANDS
OG SKOTLANDS
Hann leiðir menn um rómuð héruð:
Northumberland þjóðgarðinn og
hæðir Devonhéraðs.
Á leiðinni gefst færi á að rifja upp
sjálfstæðisbaráttu Skota forðum daga
og tilurð Ijóðsins fræga:
Yul tak the high road
an I’ll tak the low road
an I’ll be in Scotland afore ye.
For me an my true love
will niver meet agin
on the bonnie, bonnie banks
of Loch Lommond.
Guðni þekkir svæðið vel, greip þar
í gítar stöku sinnum á námsárunum.
Sagan geymist vel í ljóðum.
Að sjálfsögðu gefst þátttakendum
færi á að versla í Princes Street og
skoðunarferð um bæði Stirling Castle
og Edinborgarkastala.
Gist er í afbragðs hótelum:
Park Hotel í Falkirk við Edinborg
og Holiday Inn í Newcastle.
Hér kemur svo einn góður sem Skotar kunna manna best að meta:
Verðið er kr. 9.500
Fargjald og gisting alla leið ásamt morgunverði og kvöldverði í landi.
Brottför 27.júlí “nsl 19/7 85
Afbragðsgóð greiðslukjör
FARSKIP
AÐALSTRÆTI 7 REYKJAVÍK SÍMI 2 5166
Askriftarshnmn er 83033
8S 40