Morgunblaðið - 24.07.1983, Page 8

Morgunblaðið - 24.07.1983, Page 8
52 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. JÚLl 1983 Veröld .Múlasnarnir' Kókaínið flæðir Kólombíu Kóiombíumenn, sem leggja leið sína til Bandaríkjanna, hafa lengi kvartað sáran yfir meðferðinni, sem þeir verða fyrir við tollskoðunina. Á sama tíma og ferðalangar frá öðrum Suður-Ameríkuríkjum sigla í gegn án þess að opna töskurnar sínar, er far- angur Kólombíumanna rifinn sundur lið fyrir lið og sumum hefur meira að segja verið gert að striplast allsnaktir á meðan leitin stendur yfir. Þetta á þó ekki aðeins við um Bandaríkin, Bretland þykir nú það land í gamla heiminum, sem fjand- samlegast er kólombísku ferða- fólki, og er ástæðan ein og hin sama — alþjóðlegt kókaínsmygl. Um nokkurra ára skeið hafa um 80% af því marijúana og kókaíni, sem neytt er i Bandaríkjunum, komið frá Kólumbíu. Marijúana- ræktunin þar fer hins vegar minnkandi vegna þess að Banda- ríkjamenn eru farnir að framleiða sitt eigið marijúana, sem þykir miklu betra, og af þeim sökum hafa glæpamennirnir snúið sér meira að kókaíninu, sem auk þess er auð- veldara að smygla. Bandaríkin eru enn sem fyrr aðalmarkaðurinn en glæpaflokk- arnir hafa auk þess verið að færa út kvíarnar í Bretlandi og öðrum Evrópulöndum með þeim afleiðing- um, að blásaklaust ferðafólk frá Kólombíu, sem látið hefur sig dreyma um sæluríkt sumarfrí í höfuðborgum Evrópu, verður fyrir hverri niðurlægingunni annarri meiri. Það er einkum í Bretlandi, sem Kólombíumennirnir verða fyrir mestu hrellingunum, enda hafa starfsmenn tollgæslunnar og inn- flytjendaeftirlitins á Heathrow- flugvelli það orð á sér, að þeir séu hinir tortryggnustu og ókurteis- ustu í allri Evrópu. „Þeir virðast telja það alveg víst, að maður sé í hlutverki „múlasnans", sagði kaup- sýslumaður nokkur í Bogota. „Múlasnar" kallast flugfarþegar, sem smygla kókaíni í farangri sín- um, innan klæða, í gipsi utan um útlimi, sem eiga að heita brotnir, og — sem gerist æ algengara — í iðrum sér eftir að hafa gleypt litla böggla með eitrinu. Þeir eru samt fáir Kólombíu- mennirnir, sem hafa verið teknir fyrir eiturlyfjasmygl í Bretlandi, en að undanförnu hefur þeim þó farið fjölgandi. Það sem af er þessu ári, eru þeir 12 talsins, þar af fimm konur, en voru aðeins sex á árabil- inu 1980—’82. Aðeins einn þessara 12 smyglara er talinn vera reyndur í faginu, en hinir voru flestir að reyna við það í fyrsta sinn; með kókaínið í far- angrinum eða í maganum. Hagn- aðarvonin hjá „múlösnunum" er sjaldan mikil, kannski nokkur hundruð að nafniundruð dollarar fyrir eiturskammt, sem selst fyrir stórfé á götum stórborganna. Ein konan, sem tekin var yrir smygl, hafði kynnst manni nokkr- um af ókunnu þjóðerni í Bogota og kvaðst hann mundu geta útvegað henni góða vinnu í London og borg- að fyrir hana farið þangað, ef hún vildi vera svo væn að taka með sér ferðatösku fyrir kunningja sinn. Ferðataskan reyndist að sjálfsögðu vera með tvöföldum botni og hólfið fullt af kókaíni. Þessi kona er dæmigerð fyrir flesta „múlasn- ana“, sem falla í hendur lögregl- unnar. Glæpaforingjarnir kólomb- ísku græða á tá og fingri en eiga sjaldnast mikið á hættu sjálfir. — GEOFFREY MATTHEWS INepal Uppræta sjá fa sig með rányrkjunni Fyrirheitna landið í augum ferðamannsins, fjallgogumanns- ins, Ijósmyndarans, prangarans og fuglaskoðarans heitir Nepal. Fyrir hagspekinginn, lækninn, þjóðfélagsfræðinginn, skógrskt- armanninn og áhugamenn um umhverfisvernd er það hins veg- ar ein allsherjar martröð. Við fyrstu sýn blasir við rómantísk fjallafegurð en þeg- ar betur er að gáð kemur ann- að í ljós. Ástæðan fyrir því er einföld. í landinu er alltof margt fólk og alltof fá tré. Nepalbúar eru 18 milljónir talsins, fleiri en landið ber, og þeim fjölgar um 2,6% á ári. Þjóðartekjur á mann eru um 3.300 kr. ísl., meðalævin 46 ár og aðeins 23% þjóðarinnar eru læs. Holdsveiki og blinda hrjá landsfólkið, börnin þjást af vannæringu, nauðsynlegt hreinlæti er í lágmarki og göt- urnar í borgunum sorphaug líkastar. Og þá er komið að skógar- högginu. Nepalbúar hafa ekki annað en viðinn til eldunar og upphitunar og þeir sækja hann stöðugt lengra og lengra — hátt upp í fjallshlíðarnar þar sem enn er skóg að hafa. í Annapurna er það daglegt brauð að sjá nærri 20 metra há og 200 ára gömul tré falla fyrir öxinni þótt það eigi að heita bannað með lögum að nýta annað en dauðan við. OFBELDI Lögfrædingur býður landræningjum birginn Smábændurnir, sem erja ófrjóa jöró- ina í noróausturhéruðum Brazilíu, loka aldrei svo augunum eftir erfiðan dag að þeir biðji ekki fyrst almættið um að senda sér líknandi regnskúr. Þetta fá- tæka fólk á þó við fieira að stríða en náttúruöflin ein, á bak við næsta leiti kann dauðinn að bíða þess í líki byssu- kúlunnar. Stórbændurnir, sem aldrei fá satt jarðahungur sitt, hafa á sínum snærum svokallaða „jaguncos", vopn- aða málaliða, sem gera kotbændunum tvo kosti, annaðhvort skulu þeir selja skikann sinn fyrir smánarpening eða hafa verra af ella. Lögreglan á þessum slóðum er oftast nær mútuþegi stórbændanna og dregur heldur ekki af sér við að „koma vitinu fyrir smábændurna", að því er Carlos Alberto Oliveira segir, lögfræðingur, sem hefur sér- hæft sig í jarðamálum. Oliveira hef- ur tekið upp hanskann fyrir bænd- urna og situr nú einn uppi með meira en þúsund mál, sem fjalla um yfirgang og jarðastuld stórbænd- anna. Oliveira átti sér félaga og sam- starfsmann, en sá var myrtur í byrj- un þessa árs, fannst sundurskotinn í bíl sínum. Oliveira hefur sjálfum verið hótað dauða nokkrum sinnum, en hann er staðráðinn í að gefast ekki upp. „Ég reyni þó að vera var- kár, haga ferðum mínum með ýms- um hætti og ber á mér litla skamm- byssu. Ég hef jafnvel tekið á mig 200 mflna langan krók til að komast á áfangastað í 100 mílna fjarlægð og það geri ég til að villa um fyrir hugsanlegum fyrirsátursmönnum. Hótanirnar skulu ekki koma f veg fyrir að ég vinni mitt verk.“ Oliveira segir, að jarðaþjófarnir sendi fyrst útsendara sína til að „semja“ við smábændurna. Samn- ingarnir eru fólgnir f því að bjóða þeim hlægilegt verð fyrir að hypja sig burtu af jörðinni, oftast minna en sem svarar til 3.000 ísl. kr. fyrir 60 ekrur lands, sem er meðalbýli á þessum slóðum. Sumir bændanna, sem eiga f ærnum erfiðleikum með að framfleyta sér og sínum í þessu harðbýla og þurra landi, láta sér þetta lynda og setjast að f fátækra- hverfum stórborganna til þess eins að draga þar fram lífið við sömu harmkvæli og áður. Aðrir vilja vera um kyrrt og þurfa þá ekki að bíða þess lengi, að byssumennirnir, Jag- uncos“, komi í heimsókn. Margir bændur hafa verið myrtir fyrir að neita að selja stórbændun- um jörðina sína. Morðunum hefur að vísu fækkað nokkuð að undan- förnu, en ofbeldisverkunum ekki. Einn skjólstæðinga Oliveira, svert- ingi að nafni Dede, þráaðist við þeg- ar einn stórbóndinn vildi „kaupa“ jörðina hans og var þá ekki að sök- um að spyrja. Bærinn var brenndur ofan af honum. Dede, kona hans, Marinalva, og dætur þeirra tvær vissu hvað til stóð þegar þau urðu vör við leiguþýin og gátu forðað sér í tæka tíð. Eftir nokkra daga höfðu vinir þeirra hjóna og nágrannar endurbyggt bæinn og Dede höfðaði mál á hendur stórbóndanum, sem nú, tveimur árum síðar, hefur enn ekki verið tekið fyrir. Eitt af sfðustu málunum, sem Oliveira hefur tekið að sér, snýst um mann nokkurn að nafni Alcides Oliveira, sem ræktaði á landi sínu maís, baunir og „mamona", en úr þeirri plöntu er unnin olía til iðnað- arnota. Nautgripabóndi í nágrenn- inu hafði gefið Alcides mánaðar- frest til að selja jörðina, en Alcides neitaði. Nautabóndinn lét þá nokkra skósveina sína, vel vopnum búna, rífa upp girðingarnar hjá Alcides og beitti síðan land hans eins og hann ætti það. Og ekki nóg með það. Lögreglan tók Alcides fastan, flutti hann á lögreglustöðina, afklæddi hann, barði, og kastaði sfðan inn í klefa þar sem hann varð að sofa nakinn á beru steingólfinu. Sólar- hring síðar var hann látinn laus með þeim orðum, að hann skyldi ekki framar reyna að sölsa undir sig annars manns land. Var þá átt við, að hann skyldi bara hypja sig og láta sér ekki til hugar koma að leita réttar sfns. — i.IIKE ROSE Tindar Himalaja eins og Nepalbúar sjá þá, fögur fjallasýn, ófagrar fram- tíðarhorfur. Þegar skógarnir hverfa hefst landeyðingin. Gróður- moldin skolast í burtu, mon- súnrigningarnar valda skriðu- föllum og afleiðingar láta ekki á sér standa. Minni uppskera, meiri vannæring og þjóðin er komin á vonarvöl. Verður að taka sér betlistaf í hönd og reiða sig á molana, sem hrjóta af borðum þeirra sem betur mega sín. — Walter Brown. Umferðin Beltin hafa bjargað 1000 mannslífum Bfibeltin hafa bjargað lífi allt að þúsund manns í Bretlandi á fyrstu þremur mánuðunum frá því gert var að skyldu að nota þau, að því er segir í niðurstöðum könnunar á þessum málum. Þótt bfiaumferðin ykist um 12%, fskkaði dauðaslys- um og alvarlegum meiðslum af hennar völdum um 25% á þessum tíma. Á fyrsta ársfjórðungi þessa árs voru slys almennt 5% færri en í fyrra og dauðaslys og alvar- leg meiðsl 10% færri, en árum saman hafði þeim stöðugt verið að fjölga og náðu þau hámarki í fyrra. Lögin um bílbeltin hafa valdið því, að slys í umferðinni eru nú færri en þau hafa verið í heilan áratug og það þótt um- ferðin hafi stóraukist á þessum tíma. — GEOFF ANDREWS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.