Morgunblaðið - 28.07.1983, Qupperneq 1
56 SÍÐUR MEÐ MYNDASÖGUBLAÐI
169. tbl. 70. árg.
FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
HARMLEIKUR í LISSABON
Lögreglumaður ber Ifk eiginkonu tyrknesks sendifulltrúa í Lissabon út úr sendiherrabústaðnum eftir
sprengjuárás armenskra hryðjuverkamanna. Armenarnir drápu einnig portúgalskan lögreglumann, en sviptu
sjálfa sig því næst lífi.
Sjálfemorðssveit
ræðst á sendiráð
LÍHHabon, 27. júlí. AP.
FIMM ARMENSKIR hryðjuverkamenn létu lífið eftir að þeir réðust á
bústað tyrkneska sendiherrans í Lissabon í Portúgal í dag. Eiginkona tyrkn-
esks sendiráðsstarfsmanns svo og einn portúgalskur lögreglumaður biðu
bana af völdum sára í árásinni. Að sögn dómsmálaráðherra Portúgals,
Eduardo Pereira, er talið að armensk sjálfsmorðssveit hafi staðið að verkn-
aðnura.
Pereira sagði að allt benti til að
fjórir hryðjuverkamannanna
hefðu sprengt sjálfa sig í loft upp
af ásettu ráði, og hefði eiginkona
tyrkneska sendifulltrúans látið
lífið í sömu sprengingunni. Fimmti
Armeninn féll hins vegar fyrir
byssukúlu öryggisvarða, er áráá-
arliðið ruddist inn í húsið, sem er í
útjaðri höfuðborgarinnar. Sér-
þjálfaðar lögreglusveitir gerðu
áhlaup að byggingunni fjórum
klukkustundum síðar, en mættu
engri andspyrnu.
Lítt þekkt samtök, er kalla sig
„Armenska byltingarherinn",
lýstu á sig ábyrgðinni af árásinni í
skilaboðum er þau komu áleiðis til
fréttastofu AP. Þar sagði: „Við
höfum ákveðið að sprengja bygg-
inguna í rúst án þess að hörfa frá
henni sjálfir. Þetta er ekki
sjálfsmorð, heldur öllu heldur
fórn á altari frelsisins." í orðsend-
ingunni sagði að ástæða árásar-
innar væri sú að „Tyrkir og
bandamenn þeirra hefðu neitað að
játa á sig þjóðarmorð á Armen-
um.“
Tyrkneski sendifulltrúinn, Ca-
hide Mihcioglu, og sautján ára
gamall sonur hans, særðust lítil-
lega í sprengingunni, en portú-
galskur lögreglumaður hlaut skot-
sár á fæti í byrjun árásarinnar.
Sendiherra Tyrklands í Portú-
gal, Ismail Soysal, hætti störfum
og snéri aftur til heimalands síns
fyrr í mánuðinum.
Reagan vill fá heit
íyrir brottnámi liðs
Biskupar
sjá vofu
Stalíns
Varsjá, Póllandi, 27. júli. AP.
KAÞÓLSKA kirkjan í Póllandi
mótmælti í dag nýsamþykktum
kúgunarlögum kommúnista-
stjórnarinnar og lét að því liggja
aó þau minntu á ógnarstjórn
stalínista á sjötta áratugnum.
Talsmaður kirkjunnar sagði
að biskupar í Póllandi hefðu
undirritað bréf og afhent það
pólska þinginu í morgun.
Þrátt fyrir að texti bréfsins
hafi ekki verið birtur, er haft
eftir heimildum innan kirkj-
unnar að þar hafi lögum
stjórnarinnar aimennt verið
mótmælt tæpitungulaust. Seg-
ir einnig að í bréfinu komi
fram að kirkjan óttist að verið
sé að hörfa aftur að tímabilinu
fyrir 1956. Stalín er ekki
nefndur á nafn í bréfinu, en
stalínisminn er að jafnaði tal-
inn hafa liðið undir lok í Pól-
landi 1956.
Þegar herlögum var aflétt í
Póllandi í síðustu viku veitti
pólska þingið nær átta hundr-
uð manns sakaruppgjöf, en
samþykkti jafnframt viðbót-
artillögur við stjórnarskrána,
er herða yfirstjórn valdhafa í
stjórnmálum og efnahagslífi.
Sendibréf Jozef Glemps, kard-
ínála, varð þó til þess að
stjórnvöld frestuðu umfjöllun
frekari þvingunaraðgerða, og
er talið að þingið muni ræða
þær á morgun, fimmtudag.
Aðstoðardómsmálaráðherra
Póllands, Tedeusz Skora,
skýrði frá því í dag, að seinni
lagaflokknum væri ætlað að
vera „fyrirbyggjandi".
Wa.shington, 27. júlí. AP.
Bandaríkjastjórn vill aö ísra-
elsmenn skuldbindi sig opinberlega
til að afturkalla allt herlið sitt í ifóng-
um frá Líbanon, að sögn háttsetts
starfsmanns bandaríska utanríkis-
ráðuneytisins í dag.
Starfsmaðurinn, sem ekki vildi
láta nafns síns getið, sagði að hugs-
anlegt væri að Bandaríkjamenn
myndu einnig fara fram á að ísra-
elsmenn settu fram áætlun með
dagsetningum. Hann bætti þó við
að ekki væri hægt að ætlast til þess
að ísraelsmenn kölluðu sitt herlið
aftur nema að Sýrlendingar gerðu
slíkt hið sama. Hann sagði að
Bandaríkin vonuðust þó til að
skuldbinding ísraelsmanna yrði til
þess að knýja Sýrlendinga til sam-
starfs.
Fari svo að ísraelsmenn sam-
þykki tillögur Bandarikjamanna,
er búist við að tilkynning verði gef-
in út á morgun, fimmtudag, að
YITZHAK
SHAMIR
MOSHE
ARENS
loknum fyrirhuguðum fundi Ron-
ald Reagans forseta, Yitzhak
Shamirs utanríkisráðherra og
Moshe Arens varnarmálaráðherra,
í Washington. Ráðherrarnir ræddu
í dag við George Shultz utanríkis-
ráðherra, en Arens sat einnig fund
með Caspar Weinberger varnar-
málaráðherra. Talið er að einkum
hafi verið rætt um brottflutning
liðs frá Líbanon á fundunum.
í fréttum frá Tel Aviv í dag segir
að fjórir Arabar hafi særst í átök-
um ísraelskra hermanna og mót-
mælenda við palestínskan háskóla
norðan við Jerúsalem. Áhrifamikill
Palestínuleiðtogi, Bassam Shakaa,
borgarstjóri í Nablus, bar ísraelsku
stjórnina þungum sökum er hann
sagði að árásin á Hebron-háskóla í
gær hefði verið „þáttur opinberrar
stefnu Israelsstjórnar, sem Banda-
ríkin styðja“.
Sjá nánar um Mió-Austurlönd
bls. 20.
Forsetar
til fundar
við Stone
San Salvafor, El Salvador.
Washin^ton. 27. júlí. AP.
SENDIMAÐUR Bandaríkjafor-
seta í Mið-Ameríku, Richard
Stone, ræddi í dag við forseta Col-
ombíu og Panama í El Salvador
meðan fulltrúadeild bandaríska
þingsins skeggræddi í Washington
hvort hætta skyldi stuðningi við
andstæðinga stjórnarinnar í Nic-
aragua.
Forseti Cólombíu, Belisario
Betancur, og forseti Panama,
Ricardo del la Espriella, hittu
Stone og forseta E1 Salvador,
Alvaro Magana, á skyndifundi í
forsetahöllinni í San Salvador.
Mun ekki hafa verið efnt til
slíkra fundarhalda síðan borg-
arastyrjöld brauzt út í E1 Salva-
dor fyrir fjörutíu og fimm mán-
uðum. Talið er að Stone reyni
enn að fá fulltrúa vinstrisinn-
aðra skæruliða í landinu til við-
ræðna. Engar fregnir hafa þó
borizt af fundi hans með forset-
unum í dag.
Ráðgert er að bandaríska full-
trúadeildin greiði atkvæði á
morgun, fimmtudag, um hvort
haldið skuli áfram leynilegum
stuðningi við andstæðinga sand-
ínista í Nicaragua. Þrátt fyrir
að andstæðingum stjórnarinnar
þyki sem fyrirætlanir hennar í
Mið-Ameríku hafi ekki verið
skýrgreindar sem skyldi eru
taldar litlar líkur á að þeir muni
bera sigur úr býtum í atkvæða-
greiðslunni.
Reagan Bandaríkjaforseti
skýrði frá því í gærkvöldi að
sovézkt flutningaskip, hlaðið
þyrlum og öðrum hergögnum,
hefði sézt halda til hafnar í
bænum Corinto í Nicaragua. Að
sögn embættismanna er þetta
þriðja skipið, sem flytur sandin-
istum sovézk og kúbönsk her-
gögn það sem af er árinu.
Sjá nánar um Bandaríkin og
Mið-Ameríku bls. 22.
Óskaði
að vera
fiskur
Argenteuil. Frakklandi. 27. júli. AP.
MAÐl'R á sjötugsaldri, sem lang-
aði að endurholdgast sem fiskur,
kastaði sér í Signu í dag og
drukknaði, að sögn lögreglu í bæn-
um Argenteuil í Frakklandi.
Siglingamaður á ánni suður af
París fann líkið og dró það að
landi. í jakkavasa mannsins upp-
götvaði lögregla langt bréf þar
sem höfundurinn útskýrði að
hann hefði „tröllatrú á endur-
holdgun" og óskaði „að verða
fiskur". Þegar síðast spurðist
hafði lögreglu enn ekki tekizt að
bera kennsl á manninn.