Morgunblaðið - 28.07.1983, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1983
Vegfarendur um skattana
L_
Valtýr Helgi Diego
Tbeódóra Reynisdóttir
Guöjón Herjólfsson
Úlfar Þormóösson
HH
Arndís Arnórsdóttir
Jákvæð viðbrögð
Nú hefur skattaglaöningum veriö dreift til landsmanna, og fólk vafalaust
misánægt meö hann, eins og vant er. Morgunblaðsmenn röltu um bæinn í
góða veðrinu í gær, og tóku nokkra vegfarendur tali og forvitnuðust um
viðbrögö fólks við sköttunum sínum í ár.
Hreinir
smámunir
„Ég er mjög ánægður með
skattana mína í ár, þetta voru
hreinir smámunir núna, og langt-
um minna en í fyrra. Ég á samt
ekki von á því að þeir verði jafn
mikið ánægjuefni næsta ár,“ sagði
Valtýr Helgi Diego, aðstoðarversl-
unarstjóri sem fyrstur var spurð-
ur um álit sitt á sköttunum.
unarfræðingur sagðist vera til-
tölulega ánægð með skattana sína
í ár, og taldi þá vera svipaða því
sem hún hefði átt von á, en eins og
hún sagði þá „mættu þeir vera
lægri".
Mættu vera lægri
Theódóra Reynisdóttir, hjúkr-
Komu mér ekkert á óvart
„Þetta var ósköp svipað og ég
átti von á, og kom mér ekkert á
óvart, en maður vonar að sjálf-
sögðu alltaf að þeir lækki," sagði
Guðjón Herjólfsson, trésmiður við
Morgunblaðsmenn er hann var
spurður um viðbrögð við „glaðn-
ingnum".
Stórkostlegir
Úlfar Þormóðsson, blaðamaður
var í sjöunda himni yfir sínum
sköttum, og kvað þá stórkostlega.
„Ég býst bara við því að verða
skattlaus næsta ár, því skattarnir
mínir fara alltaf lækkandi, svo
það endar með því að ég borga
ekki neitt.“
Stefán Már Ingólfsson
Átti von á þessu
„Þetta var alveg eins og ég átti
r_
SIF sendi saltfiskframleiðendum skeyti í gær:
Varað við slæmri
afkomu söltunar
STJÓRN Sölusambands ísl. fiskframleiðenda sendi öllum saltfiskframleið-
endum skeyti í gær, samkvæmt heimildum Morgunblaösins, þar sem vakin
er athygli á miklu tapi við söltun og bent á að ítrekaðar tilraunir til að
lagfæra rekstrarstöðuna hafi reynst árangurslausar.
Vegna þess að „það telst mjög
óvenjulegt" eins og einn saltfisk-
framleiðandi komst að orði við
Mbl. „að Sölusambanið sendi
skeyti á borð við þetta“, var Frið-
rik Pálsson, framkvæmdastjóri
SÍF inntur eftir ástæðunni. „Það
er rétt við sendum þessi skeyti,
enda töldum við skyldu okkar að
vekja athygli á hinni slæmu
rekstrarstöðu saltfiskframleiðsl-
unnar," sagði Friðrik. Hann var
næst spurður að því hvert fram-
haldið yrði í þessu máli.
„Við gerum okkur grein fyrir
því að margir framleiðendur á
sumri og hausti byggja afkomu
sína á örfáum mánuðum. Því eiga
þeir í raun ekki annars úrkosta en
halda áfram söltun. En við viljum
vara þá við hinni slæmu rekstrar-
afkomu. Samkvæmt okkar áætl-
unum mun t.d. tapið við söltun á
þorski í sumar eftir fiskverðs-
hækkunina í júní vera um 16%. Og
þá er hvorki talinn með kostnaður
við hreinsun á selormi í fsikinum
né önnur há útgjöld vegna sel-
ormsins. Má þar t.d. nefna launa-
kostnað við hreinsunina, rýrnun
birgða og lengri geymslutíma.
'O'
INNLENT
Aðspurður um ástæðuna til
hinnar slæmu rekstrarafkomu
svaraði Friðrik: „Orsökin er fyrst
og fremst hækkun dollars gagn-
vart evrópskum gjaldmiðlum, en
við seljum okkar saltfisk í dollur-
um. Til marks um þessa breytingu
má geta þess að portúgalski gjald-
miðillinn, escudos, hefur lækkað
um 126% á tveimur og hálfu ári
gagnvart dollar, spánski pesetinn
um 87% og ítalska líran um 67%.
Og þó að gjaldmiðlar samkeppnis-
þjóða okkar á þessum mörkuðum,
Norðmanna og Færeyinga, sem
selja framleiðslu sína í eigin
mynt, hafi lækkað um 42% og
55% gagnvart dollar á sama tíma,
hefur saltfiskverð þeirra haldist
óbreytt. Þess vegna höfum við
neyðst til að lækka söluverð salt-
fisks til að verða ekki undir í sam-
keppninni. En samt er verð okkar
á saltfiski mun hærra en Norð-
manna og Færeyinga."
Loks var Friðrik spurður að því
hvað SÍF hefði gert til að reyna að
fá lagfæringu á rekstrarstöðunni.
„Strax um mánaðamótin mars-
-apríl gerðum við stjórnvöldum
grein fyrri hvert stefndi og eftir
gengisfellinguna í lok maí óskuð-
um við eftir að halda fullum geng-
ismun. Auk þess höfum við bent
stjórnvöldum á að lækka útflutn-
ingsgjöld. En vegna þess að salt-
fiskframleiðslan er svo snar þátt-
ur í atvinnulífi landsmanna tel ég
annað útilokað en fundin verði
lausn á þessum vanda, — og það
hið bráðasta," sagði Friðrik að
lokum.
Morgunblaöið/ Kristján Einarsson
Hópur ævintýramanna, sem á næstunni ætla að leggja leið sína yfir Vatna-
jökul og niður Jökulsá á Fjöllum sýndi listir sínar á Nauthólsvík í gær. Gaf
þar meðal annars að líta þennan vélknúna vatnasvifdreka, sem öslar á
bárunni í Nauthólsvík áður en stjórnandi hans hóf hann á loft. Hyggjast
ævintýramennirnir svífa fram af Dettifossi og fleiri fossum íslenskum á
þessu flygildi sínu.
Aðalfundur ÍSAL fyrir 1982 í gær:
Humarvertíð
lauk í gærdag
„SEGJA má að aflabrögð hafi ver-
ið svipuð á þessari humarvertíð og
í fyrra,“ sagði Þórður Eyþórsson,
deildarstjóri í sjávarútvegsráðu-
neytinu í samtali við Mbl., en hum-
arvertíðinni lauk í gær, 27. júlí.
Að sögn Þórðar var að öllum
líkindum fyllt upp í kvótann sem
er 2.700 tonn eins og á síðasta
ári, en þá lauk vertíðinni 23. júlí.
Hann sagði einnig að nú hefði
110 bátaleyfum verið úthlutað og
væri hér um örlitla fjölgun að
ræða frá síðustu humarvertíð.
Hins vegar væri ljóst að ekki
hefðu allir bátarnir nýtt sér
leyfið á þessari humarvertíð,
sem hófst 26. maí sl. Það kom
ennfremur fram hjá Þórði, að
helztu humarmiðin hefðu verið á
svæðinu frá Djúpavogi til Akra-
ness.
406,5 míllj. kr. tap
Á aðalfundi íslenska álfélagsins í Straumsvík, scm haldinn var
gær, kom m.a. fram, að tap álversins fyrir árið 1982 nam 406.582.418
ísl. kr. eftir gjaidfærslu framleiðslugjalds. Afskriftir nema
247.961.811 kr., launakostnaður er 198.168.565 kr.
Halldór H. Jónsson, Gunnar
J. Friðriksson og Sigurður
Halldórsson voru endurkjörn-
ir í stjórn félagsins, en í stað
Paul H. Miiller, sem ekki gaf
kost á sér í stjórnina, var kjör-
inn dr. Dietrich Ernst. Þá var
dr. Ernst Bosshard kjörinn í
stað Wolfgang Capitaine, en
hann lést í febrúarmánuði sl.
Þeir Magnús Óskarsson borg-
arlögmaður og Þorsteinn
Ólafsson viðskiptafræðingur
voru tilnefndir í stjórn félags-
ins af hálfu ríkisstjórnarinn-
ar. Eyjólfur K. Sigurjónsson
og Werner Regli voru endur-
kjörnir sem endurskoðendur
íslenska álfélagsins. Einnig
sat fundinn lögmaður ÍSAL,
Axel Einarsson hrl.
77.400 tonn af fljótandi áli
framleidd í kerskálum ÍSAL,
en það er 88% af afkastagetu.'
Steypuskálinn framleiddi
42.700 tonn.
í ársyfirlitinu segir m.a., að
árið 1982 hafi verið hið versta
í sögu áliðnaðar. Eftirspurn og
verð á álmarkaði lækkaði
þriðja árið í röð. Þar kemur
einnig fram, að árið 1982 voru
Heildarsala áls nam 74.900
tonnum. Útskipað var 61.600
tonnum, þar af voru 56,9%
flutt út til EBE-landa, 32% til
EFTA og 11,1% til annarra
landa. Hreinar sölutekjur
námu 1.078.050.344 ísl. kr.
f árslok 1982 voru starfs-
menn ÍSAL 658, þar af 116 við
stjórnun og skrifstofustörf,
492 fastráðnir, 4 nemar og 46
ráðnir tímabundið.