Morgunblaðið - 28.07.1983, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 28.07.1983, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1983 15 Teresa Quimby róar hér dóttur sína Kathleen eftir bestu getu, en þá litlu var farið að lengja eftir eftirmiðdagslúrnum sínum. Barbara, Kathleen og Carol völdu allar ísland fremur en önnur Evrópulönd, Og létu Vel af dvölinni hér. MorgunblaAiS/Guðjðn voru, og kann því lítið annað en já og nei,“ sagði Teresa hlæjandi þegar við spurðum um íslensku- kunnáttu hennar. Hún sagðist þó harðákveðin í því að fara á næsta námskeið, svo hún gæti slegið um sig með íslensku þegar heim kæmi. Þau hjónin eiga eftir eins árs dvöl á landinu og sagði Teresa að hún hefði hug á að nota þann tíma til að kynnast íslenskri menningu betur, og vildi mjög gjarnan að sonur sinn kynntist ís- ienskum börnum, en tækifærin til þess væru frekar fá. í heild kvaðst Teresa njóta lífsins hér og hefði ekki yfir neinu að kvarta, nema þá helst því sem enginn gæti við gert, þ.e. rokinu. „Það er staðreynd að það heyrist alltaf mest í þeim sem eru óánægðir og kvarta, og eru það helst þeir sem eru nýkomnir hingað og því er ágætt að það komi fram að flestir hé'r eru ánægðir, að minnsta kosti fjöl- skyldufólkið," sagði Teresa að lok- um, en þegar hér var komið við sögu, var dóttirin Kathleen orðin leið á aðkomumönnum sem tafið höfðu eftirmiðdagslúrinn hennar alltof lengi. Völdu ísland frekar en önnur Evrópulönd Næst bar okkur að garði hjá stofnun sem nefnist „Fámily Serv- ice Center" eða fjölskylduþjónust- unni, en þar hittum við þrjár eig- inkonur bandarískra hermanna, þær Barböru Harris, Kathleen Brainerd og Carol Dettman. Bar- bara og Kathleen vinna báðar hjá fjölskylduþjónustunni og felst starf þeirra einkum í því að fræða nýkomnar fjölskyldur um landið og möguleikana sem það býður upp á. Konurnar þrjár sögðu allar að þær hefðu valið ísland fremur en önnur Evrópulönd, en þó hafði hver sína ástæðu fyrir valinu. Þær sögðust hafa fengið fræðslu um landið áður en þær komu, og Bar- bara sagðist hafa talað við fólk sem áður hefði verið hér á landi á vegum hersins, og hefðu allir við- mælendur hennar mælt með dvöl- inni hérlendis. „Sumir biðja um að vera sendir hingað aftur og jafn- vel mörgum sinnum" sagði Carol en hún sagðist kunna mjög vel við sig á íslandi. Þær voru allar sam- mála um að koirian hingað hafi ekki valdið þeim neinum vonbrigð- um, nema þá helst veðrið. Þær töldu ísland ekki vera nógu vel kynnt í Bandaríkjunum og sögðu að allir fáanlegir bæklingar um landið sýndu ekki á nokkurn hátt hvernig landið og þjóðin væru í dag. Eins og áður sagði, vinna bæði Barbara og Kathleen á daginn, og af þeim sökum sögðust þær ekki hafa haft tíma til að læra ís- lensku, en Carol, sem ekki vinnur úti, sagðist hafa notað tímann til að ferðast og kynnast íslending- um. Hún sagðist hafa komið hingað í desember og eitt af því fyrsta sem hún gerði var að fara í heitu pottana í Laugardalnum, og þar hafi hún strax komist í sam- band við íslenskt mannlíf. „Nú hef ég eignast marga íslenska vini og spila bridge við þá nokkrum sinn- um í mánuði, annaðhvort heima hjá þeim, eða hér. Þetta hefur gef- ið mér tækifæri til að sjá íslensk heimili, sem flest eru mjög hlý og þægileg, og einnig gefið íslending- unum tækifæri til að komast í snertingu við bandarískt heimil- islíf," sagði Carol, en hún virtist hafa kynnst íslendingum einna best af öllum viðmælendum Mbl. í þessari Keflavíkurför, og kvað Carol fslendinga yndislegt fólk. Konurnar eiga allar börn og sögð- ust Barbara og Kathleen hafa sent börn sín í reiðskóla við Selfoss, og væru í hópnum sem þar dvelst bæði íslensk börn og bandarísk. Þær voru mjög ánægðar með að geta sent börnin þangað sem þau gætu kynnst íslenskum krökkum, því þrátt fyrir tungumálaerfið- leika tækist börnum alltaf að koma sér saman í leikjum. Carol, Barbara og Kathleen voru allar mjög jákvæðar gagn- vart lífinu á vellinum, en viður- kenndu að eflaust væri erfiðara fyrir ungu, ógiftu hermennina að búa hér, því hjá þeim ríkir út- göngubann frá kl. 11:30 á kvöldin til kl. 6 á morgnana. Þær sögðust skilja mæta vel ástæður heima- manna fyrir útgöngubanninu, en fyrir unga pilta, sem væru vanir ferðafrelsi heima hjá sér, væri ekki auðvelt að láta loka sig inni á þeim tíma sem aðrir eru úti að skemmta sér. Konurnar sögðust ekki hafa farið mikið út á lífið utan vallarins, og sögðust sakna töluvert næturlífsins, og sögðu að á vellinum væri aðeins starfandi einn klúbbur fyrir hvert stig inn- an hersins, þ.e. annars vegar fyrir óbreytta hermenn og hins vegar foringja. Einn helsta kostinn við að búa á vellinum sögðu þær vera stuttar vegalengdir milli staða og kæmi það sér vel þegar útivinnandi hús- mæður eiga í hlut, því þær ættu auðvelt með að komast frá ef eitthvað kæmi upp. Allar konurnar, sem blm. Mbl. rabbaði við, eiga eftir að vera.hér í u.þ.b. eitt ár í viðbót og efst á listanum yfir verkefni ársins voru ferðalög um landið, sem þær voru allar sammála um að væri mjög fallegt. Það sem vakti mesta undr- un okkar var hve jákvæðar allar konurnar voru gagnvart veru sinni hér, og hve mikil löngun var hjá þeim öllum að komast í kynni við íslenskt mannlíf, og þar sem þær sögðust nokkuð vissar um að lík viðhorf ríktu hjá flestum fjöl- skyldunum sem búa á Keflavík- urvelli, virðast orð Teresu Quimby rétt, að hæst heyrist í þeim sem mest kvarta. hgj ÍSLANDSREISIIR röfrar og fegurð Flugleiðir gefa þér kost á að kynnast töfrum landsins og fegurð, sem þú hefur ef til vill aðeins lesið um í ferðaþæklingum fyrir útlendinga og ferðahandþókum. Gististaðir eru allir mjög góðir, allt frá fyrsta flokks hótelum til fallegra tialdstæða, -og allt þará milli. Miðað er við aðferðalangurinn nýti sér skipulagða ferðaþjónustu á hverjum áfangastað eða nýti sér t.d. bílaleigur til að ferðast á eigin vegum. Hér er um að ræða svo að segja ótakmarkaða möguleika til að njóta sumarleyfisins á sem hagkvæmastan hátt. Sérstakt verð Sumarreisur Flugleiða eru íslandsferðir fyrir íslendinga, boðnar á sérstöku verði, sem er 30% ægra en venjuleg fargjöld, en kaupa þarf einhverja sumarreisuþjónustu á áfangastað fyrir að minnsta <osti 600 krónur fyrir hvern ferðalang, - 250 krónur Fyrir börn. isafjörður Sumarreisuþjónusta: Hótel ísafjörður, sigling um Hornstrandir, sigling um Djúpið, útsýnisferð um oæinn. Sérstaklega áhugaverð 4ra daga ferð um Hornstrandir, einn fegursta stað á Vestfjörðum. Helgarferð, sem hefst á föstudegi og lýkur á ■nánudegi. Akureyri - Húsavík sumarreisuþjónusta: Hótel KEA, Varðborg, Akureyri, viývatnsferðir, Eyjafjarðarsigling, útsýnisferðir um Dæinn. Hótel Húsavík, bílaleiga, sjóstangaveiðiferðir og Eldárferð, sem er sérstaklega yfirgripsmikil dagsferð frá Húsavík um Tjörnes, Ásbyrgi, Hljóðakletta og til Dettifoss. Paðan er farið til Mývatns og aftur til Húsavíkur. Ógleymanleg náttúrufegurð í rammíslensku umhverfi. Egilsstaðlr - Höfn Sumarreisuþjónusta: Hótel Valaskjálf, Gistihúsið Egilsstöðum, bílaleiga gefur kost á könnunarferðum um fegurstu staði Austfjarða og Héraðs. Jöklaferðir hf. á Hornafirði gefa nú ferðalöngum kost á sérstakri jöklaferð með lúxus snjóbíl. Þessar jöklaferðir eru afar vinsælar. Farið er á Vatnajökul í sérstaklega innréttuðum snjóbíl og ferðast þægilega um jökulinn í 3-4 klukkustundir. Petta er útsýnisferð, sem á sér varla nokkurn líka. Reykjavík Sumarreisuþjónusta: Hótel Esja, Hótel Loftleiðir. Útsýnisferðir til Gullfoss og Geysis með Kynnisferðum, auk fjölda annarra ferða þeirra. Útsýnisferð um Reykjavík, dagsferðir og kvöldferð sem endar á Broadway. Söfn, tónleikar, leikhús, skemmtistaðir, íþróttastaðir o.m.fl. Lágmarksdvöl á áfangastað er 4 dagar en hámarksdvöl 21 dagur. FLUGLEIDIR Gott fólk hjá traustu félagi Nánarl upplýslngar fást hjá söluskrifstofum okkar, umboðs- mönnum og ferðaskrlfstofum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.