Morgunblaðið - 28.07.1983, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 28.07.1983, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1983 Afmæliskveðja: Birgir Thorlacius ráðuneytisstjóri Enda þótt Birgir hafi afþakkað allt stáss og tilstand á sjötugsafmæli sínu, vona ég að hann amist ekki við örstuttri afmæliskveðju. í öndverðum júnímánuði 1972 hringdi þáverandi menntamála- ráðherra, Magnús Torfi ólafsson, til mín og fór þess á leit að ég tæki sæti i síðari grunnskólanefndinni undir forsæti Birgis Thorlaciusar, ráðuneytisstjóra. Ég bað um sólarhrings umþótt- unartíma og fékk hann. Satt að segja var mér um og ó að taka sæti í nefnd undir forsæti þessa margfræga ráðuneytisstjóra er sagður var svo drottnunargjarn og heimaríkur í ráðuneytinu að um það hafa orðið til þjóðsögur og er sú sennilega þekktust er hermir, að kona nokkur hafi komið í menntamálaráðuneytið í ráðherratíð Vilhjálms Hjálmars- sonar og spurt eftir ráðherra. Starfsstúlka í ráðuneytinu kvað ráðherra ekki vera viðstaddan en bætti við: Viltu bara ekki tala við Birgi sjálfan? Ég þóttist líka vita að ekki væri ég hátt skrifaður á þeim bæ, menntamálaráðuneytinu, enda í hópi upphlaupsmanna í kennara- stétt um þær mundir og hafði staðið fyrir æsingafundum, mót- mælagöngum og miður blíðum skrifum gegn menntamálaráð- herra viðreisnarstjórnarinnar og öðrum dánumönnum í ráðuneyt- inu. Ég hikaði því við að fara í nefndina og bar málið undir Kristján heitinn Ingólfsson, er þá hafði tekið sæti í henni, og hvatti hann mig eindregið til að gera slíkt hið sama og bætti við að Birgir væri góður inni við beinið. En yrði kallinn erfiður stæðum við bara þétt saman í nefndinni og létum hann ekki komast upp með neitt múður. Það varð því úr að ég kvað já við beiðni ráðherra og sé ekki eftir því. Skemmst er frá því að segja, að ráðuneytisstjóri reyndist hinn besti samstarfsmaður. Hik mitt og vangaveltur urðu sér því ræki- lega til skammar og sannaðist hér sem oftar að hvorki skyldi trúa orðrómi né dæma menn að óreyndu. Birgir hafði góðar for- sagnir um hvaðeina í nefndar- störfunum og var einkar laginn við að samræma sjónarmið manna og komast að skynsamlegri niður- stöðu. Reyndin varð því ekki sú, að við Kristján snérum bökum sam- an í nefndinni gegn Birgi heldur kom það í hans hlut að sætta okkur Kristján eitt sinn er í odda skarst. Og hann gerði það á þann frumlega hátt að loka okkur inni í herbergi einu í ráðuneytinu og hleypti okkur ekki út fyrr en við höfðum náð sáttum. Þannig vor- um við bókstaflega teknir í karp- húsið. Og aðrir nefndarmenn, þeir Andri ísaksson, Indriði H. Þor- láksson og Páll Líndal, höfðu lúmskt gaman af. Þessi nefndar- störf voru lærdómsrík fyrir mig. Þarna voru saman komnir þeir menn er einna mesta þekkingu höfðu á menningarmálum hér- lendis og þar var ráðuneytisstjóri fremstur í flokki. Grunnskóla- Birgir Thorlacius ráöuneytisstjóri nefndin starfaði frá því í júní- mánuði 1972 og þar til frumvarp- ið, er nefndin samdi, var afgreitt sem lög frá Alþingi á frægum þingfundi 8. maí 1974. Ýmislegt spaugilegt kom á dag- inn meðan nefndin sat á rökstól- um. Frumvarpið var sent fjöl- mörgum aðilum til umsagnar. Sumir töldu að nefndarmenn bæðu um álit annarra af því að þeir vissu ekkért sjálfir. Frum- varpið var, að beiðni ráðherra, kynnt um allt land og önnuðust nefndarmenn kynninguna. Ýms- um fannst þetta algjör óþarfi. Nefndarmenn væru einungis að þessu af því að þeim leiddist í Reykjavík. Sem fyrr segir var ágætt að vinna með ráðuneytisstjóra í nefndinni. Ekki reyndist mér verr að starfa sem skólameistari undir stjórn ráðuneytisins að uppbygg- ingu Menntaskólans í Kópavogi. Birgir hefur leyst margan hnútinn fyrir skólann, verið honum sann- kölluð hjálparhella. Fyrir það færi ég honum nú þakkir, einkum fyrir hönd hinna fjölmörgu nemenda skólans. Lítt mun ég í stuttu spjalli sem þessu rekja ætt Birgis og uppruna og þaðan af síður embættisstörf hans sem eru legíó. Það munu aðr- ir mér þar um fróðari gera miklu betur. En augljóst er að vænt veganesti hefur hann haft úr föð- urhúsum. Birgir er fæddur og upp- alinn á Búlandsnesi við Berufjörð sunnanverðan á þeim slóðum sem þorpið Djúpivogur stendur við rætur Búlandstinds. Hann er kominn af merku fólki i báðar ættir. Föðurmóðir hans, Kristín Rannveig Tómasdóttir, var syst- urdóttir Jónasar Hallgrímssonar skálds, og móðir hans, Ragnhildur Pétursdóttir frá Akureyjum á Breiðafirði, var systir Sigurðar Eggerz ráðherra. Faðir Birgis, Ólafur Thorlacius, var afar vin- sæll og virtur læknir í Berufjarð- arhéraði um 30 ára skeið. Þau hjónin, Ragnhildur og ólafur, bjuggu rausnarbúi á Búlandsnesi sem var Kristjörð svonefnd og kostajörð, m.a. var þar æðarvarp mikið á þeim tíma og hefur Birgir í barnæsku eflalaust vaðið dúninn í hné. Æskuheimili Birgis var rómað fyrir gestrisni, glaðværð, myndarskap og menningaráhuga af öllum þeim er til þekktu. Birgir er heiðursmaður og höfð- ingi mikill. Hann er víðlesinn, stálminnugur, sjófróður og segir ágætlega frá. ósjaldan hefur hann gert okkur skólastjórum glatt i geði á strembnum samstarfs- nefndarfundum og lífgað þá upp með óborganlegum athugasemd- um og smellnum gamansögum en af þeim kann hann ógrynni. Hann hefur verið röggsamur ráðuneytis- stjóri, raunsær og glöggskyggn embættismaður, virtur og vinsæll af þeim er kynntust honum — embættismaður er sett hefur svip á samtíð sína. Það eru engin ellimörk á afmæl- isbarninu. Birgir er ágætlega á sig kominn andlega og líkamlega og segir sjálfur að sér hafi sjaldan orðið misdægurt, hann hafi aðeins legið eina banalegu um ævina. Margir samstarfsmenn Birgis munu nú sakna hans, er hann læt- ur af störfum og hefðu helst kosið að hann gegndi embættinu áfram meðan hann er hestfær og ölfær, eins og sagt var áður fyrr. Af fundi hans í ráðuneytinu fór mað- ur jafnan hressari en maður kom. Eitt sinn hafði ég orð á því við hann, hversu gaman væri jafnan að koma í ráðuneytið og hve góður vinnustaður það væri. Hann svar- aði og sagði eitthvað á þessa leið: Já, hér vinnur gott fólk, hér er gott að vera. Síðan bætti hann við og kímdi: Ég vorkenni afganginum af mannkyninu sem ekki vinnur í ráðuneytinu. í þessu spjalli var ekki ætlunin fyrst og fremst að mæra Birgj sjötugan enda ekki á mínu færi að gera það svo sem ég hefði viljað og vert væri. Þessi stutta afmælis- kveðja er einungis lítill þakklætis- vottur af minni hálfu fyrir ágætt samstarf í áratug og ógleymanleg kynni. Ég óska Birgi og hans ágætu konu, Sigríði, alls hins besta á ókomnum árum. Ingólfur A. Þorkelsson ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða aö berast blaðinu með góð- um fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hlið^ stætt með greinar aðra daga. f minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu til- efni, að frumort Ijóð um hinn látna eru ekki birt á minningar- orðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. Sparneytnir bílar þurfa ekki að vera þröngir og óþægilegir. Það sannar MAZDA 323 Mazda 323 hefur meira rými, þægindi og betri búnað en sambærilegir bílar og umfram allt er hann ótrúlega sparneytinn. Eftirtalinn búnaður fylgir öllum gerðum: Stillanleg hæð á framsæti • Litað gler í rúðum • Rúllubelti • Öryggisljós að aftan • 60 ampera rafgeymir • Quarts klukka ■ Niðurfellanlegt aftursæti í tvennu lagi ■ 3 hraða rúðuþurrkur ■ Tauáklæði á sætum • Bensínlok og farangurs- geymsla opnanleg innan frá • Halogen framljós • Stokkur milli framsæta - Farangursgeymsla klædd í hólf og gólf • 3 hraða mið- stöð Útispegill stillanlegur innan frá og fjölmargt fleira. Enn- fremur er þurrka og sprauta á afturrúðu í Hatchback gerðum. Nú eftir lækkun innflutningsgjalds, þá er MAZDA 323 á ótrúlega hagstæðu verði: MAZDA 323 1.3 DX 3 dyra Kr. 245.000 MAZDA 323 1.3 DX 5 dyra Kr. 249.500 MAZDA 323 1.3 DX Saloon Kr. 262.300

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.