Morgunblaðið - 28.07.1983, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 28.07.1983, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1983 33 Farskip íhugar hópferö á Donington-rokkhátíöina Þess var getiö á Járnsíöunni í júnílok, aö ekki væri úr vegi aö efna til hópferöa i rokkhátíöirnar í Donington og Reading, sem haldnar veröa tvær síöustu helgarnar í ágúst. Járnsíöan hefur nú fregnaö, aö e.t.v. veröi efnt til feröar á rokkhátíöina, Monsters Of Rock, sem haldin veröur í Donington Park laugardaginn 20. ágúst. Ef af veröur mun ferðin þá farin meö ms. Eddu á vegum Farskips. Þaö eru engir smásveinar, sem troöa upp á Donington í ár fremur venju. Ber þar fyrst aö nefna Whitesnake, þá kjöthleifinn sjálfan Meatloaf (margir hafa reyndar dregiö sönghæfileika hans í efa á undanförnum mánuöum), ZZ Top, Twisted Sister, Dio (hljómsveit hins frábæra bárujárnssöngvara Ronnie James Dio, sem síöast var ( Black Sabbath, en m.a. í upp- runalegri útgáfu Rainbow) og loks hljómsveitina Diamond Head. Ekki munu e.t.v. allir kannast viö sveitir á borð viö ZZ Top, Twisted Sister og Diamond Head. Allt eru þetta rokkarar miklir, en hver á sinn máta. ZZ Top er einhver sér- stæöasta suðurríkjarokksveitin á markaönum, tríó sem leikur frá- bæra blöndu rokks og blús. Twisted Sister er á hraöri uppleiö, sér í lagi í Englandi — þótt allir séu sveinarnir bandarískir, og önnur plata þeirra, You Can’t Stop Rock'n'Roll hefur gert þaö gott. Þá Maggi Stef. safnar liöi Hljótt hefur veriö um Magnús Stefánsson, fyrrum trommuleikara Egó, frá þvi hann sagöi skiliö viö Bubba og félaga. Járnsíöan hefur það nú fyrir satt, að hann sé þessa dagana aö leita aö mönnum í hljómsveit. Hefur hann þegar feng- iö til liös viö sig Sigurö Gröndal, sem eitt sinn var í Árbliki. Enn vantar þó hljómborös- og bassa- leikara, en þeirra er nú ákaft leitað. náöi lag þeirra I am l’m Me hátt á enska listanum. TS leikur grjóthart rokk meö miklum tilþrifum og ekki kæmi á óvart þótt þarna reyndust arftakar Kiss mættir. Bæöi ZZ Top og Diamond Head hafa veriö í fréttunum aö undan- förnu í tengslum viö Donington- hátíöina. ZZ Top leitar þessa dag- ana logandi Ijósi aö hentugum fornbíl, einhverjum í líkingu viö Fordinn þeirra, sem er árgerö 1932 og glæsikerra hin mesta. Vantar sveitina nauðsynlega bil til þess aö aka í inn á sviðiö. Ja, flott skal þaö vera. Diamond Head komst í fréttirnar í síöustu viku vegna skyndilegrar uppstokkunar í sveitinni. Tromm- arinn Duncan Scott og bassaleik- arinn Colin Kimberley hafa sagt skilið viö hana, þannig aö þeir Sean Harris, söngvari, og Brian Tatler, gítarleikari, stóöu uppi tveir fyrir skemmstu. Þeir hafa nú nælt sér í bassaleikarann Merv Golds- worthy, sem áöur lék m.a. í Street- fighter og Tigers Of Pan Tang. Trymbilssætið er þó enn ófyllt. Væntanlega veröur þó búiö aö ganga frá því áöur en til kasta Donington kemur. Þremenningarnir í ZZ Top með '32 Fordinn sinn í baksýn. Þeir leita nú að sambærilegum farkosti fyrir Donington-hátíöina. Lögreglan enn að hrella Anti Nowhere League Þaö á ekki af þeim sveinum í Anti Nowhere League aö ganga. Þeir hafa ítrekað lent upp á kant viö lögregluvaldið og í síöustu viku geröist slíkt rátt eina ferö- ina. Velsæmisdeild bresku lögregl- unnar var þá skipaö aö gera upp- tæk 5.000 eintök af hljómleika- plötu fjórmenninganna, sem tekin haföi verið upp á einhverri listahá- tíö í Júgóslavíu. Þótti orðbragöiö á plötunni ekki vera vel til þess fallið aö gleöja eyru breskra ungmenna og var því gripiö til þess að gera upplagið upptækt. Ekki er lengra síöan en í síöasta mánuöi, að ANL lenti í svipaðri stööu. Þá voru 8.000 eintök af lítilli plötu, sem m.a. hafði aö geyma lagiö „So What“. Þaö lag þótti inni- halda óviöurkvæmilegan orösöfn- uö og var sú plata því tekin og gerö upptæk. Af hrakförum Rod Stewart á Spáni David Coverdale, söngvari White- snako. Meiriháttar Q-vending Undur og stórmerki gerast enn og aiitaf í poppbransanum. Það nýjasta nýtt er aö Q4U hef- ur nælt sár í nýjan trommuleik- ara i stað Kormáks Geirharös- sonar, sem tók viö af trommu- heilanum. Þessi nýi trommari er enginn annar en hinn eini og sanni „Jól Motorhead". Hreint ótrúlegt en satt. Reyndar heitir drengurinn eitthvaö annaö fullu nafni, en treglega gengur aö festa þaö á minniö, þannig aö goösögnin um þennan ofsafengna trymbil llfir enn. Vart er of vægt til oröa tekið þegar sagt er aö Jói sé meö ein- hverjum albestu „b(t“ mönnum í bransanum. Er vart viö ööru aö búast en tónlist Q-sins fari aö hallast á þyngri kantinn. Þetta er ekki eina breytingin innan raöa Q4U þessa dagana. Árni Daníel Júlíusson, ört vax- andi poppskríbent á DV, hefur sagt skiliö viö flokkinn, m.a. vegna anna í biaöamennskunni. Þá hyggur Árni á utanferö eftir áramót, þannig aö um brottför hans heföi oröiö aö ræöa fyrr en síöar. Við höfum af og til hór á Járnsíðunni sagt frá hrakförum ítalskra tónleikagesta. Hafa þær einkum staðiö í tengslum viö óeirðir á tónleikum rokkstjarna. Sögunni víkur nú til Spánar. Borgaryfirvöld í Madrid tóku nefnilega fram fyrir hendur tón- leikahaldara nokkurs í borginni, sem skipulagt haföi tvenna tón- leika með Rod Stewart á litlu úti- vistarsvæöi, sem nefnt er Campo de Gas. Haföi tónleikahaldarinn selt 17.000 miöa inn á svæðið er dagblaöiö El Pais geröi honum grikk. Borgaryfirvöld ákváöu aö aflýsa tónleikunum af öryggis- ástæöum. Einhverra hluta vegna fundu ritstjórar blaösins hvöt hjá sér til aö rita um öryggisgæslu á tón- leikum hans og kváöu fólk eiga rétt á því aö líf þess og limir væru vel tryggöir þegar 2.000 pesetar væru reiddir af hendi fyrir aö- göngumiðann. Vitnaöi blaðiö jafnframt til óeiröa, sem uröu á tónleikum Eddy Grant í Las Palmas á Kanaríeyjum þann 8. júlí. Þar slasaöist fjöldi manna, nokkrir lífshættulega, er átök brutust út. Lögregluyfirvöld í Madrid vöknuöu upp viö vöndan draum. Hófu að stika útivistarsvæöiö út og komust aö því loknu aö þeirri niðurstööu, aö svæöiö þyldi ekki veru meira en 4.500 manna í senn, helmingi færri en tónleika- haldarinn ætiaöi. Niöurstööunni varö ekki hnik- aö. Af tónleikahaldaranum er hins vegar þaö aö segja, aö erfiö- leikar hans eru slíkir aö halda mætti aö hann væri af íslenskum ættum. Fyrir nokkrum dögum neyddist hann nefnilega til að af- lýsa fyrirhugaðri tónleikaferö Crosby, Stills & Nash um Spán vegna dræmra undirtekta í for- sölu. Soloplata Ingva Þórs kynnt á Þórisstöðum Um síðustu helgi var kynnt hljómplata aö bænum Þóris- stööum, skammt frá Seifossi. Þaö er maöur aö nafni Ingvi Þór Kormáksson, sem stendur aö baki plötunni og er hór á ferö 11 laga gripur í því, sem höfundur- inn nefnir sjálfur „vísnajazz- rokk“. Var platan tekin upp í Stemmu og Grettisgati í fyrra svo og nú fyrir skemmstu. Á þessari plötu sinni syngur Ingvi Þór lög stn viö texta ýmissa nútímaskálda, en sjálfur á hann einn textann. Auk þess aö syngja og semja lög, leikur hann á pí- anó. Meö honum er fjöldi að- stoöarmanna, en mest mæöir á Vilhjálmi Guöjónssyni (Galdra- karli), sem leikur á gítar í öllum lögunum og saxófón í sumum. Ingvi Þór er kannski ekki ýkja kunnugur almenningi, en hefur þó komiö víöa viö í „bransanum". Fyrir langalöngu lék hann m.a. í Gaddavtr, þá i Experiment, sem aöallega lék á „vellinum", og nú síöast í Goögá, sem var hússveit í Klúbbnum. Ingvi Þór gefur sjálfur plötu sina út, en Skífan sér um dreif- ingu hennar. Aöspuröur hvort ekki væri skrekkur í honum vegna útgáfunnar á þessum síö- ustu og verstu tímum svaraði hann, aö vissulega væri svo, en ekki tjóaöi aö hugsa um slikt. „Þetta er efni sem ég varö að koma frá mér og ekki mátti drag- ast lengur," sagöi hann. Rod Stawart áaamt kvinmi amni. Umboðssími Toppmanna í heldur fátæklegri umfjöllun um þá annars eðlu aveit Topp- menn hér á Járnsíöunni fyrir nokkru urðum viö aö sætta okkur viö aö birta pistilinn án þess aö geta nafna meölimanna. Viö bætum nú úr þessu aö nokkru leyti. Látum nefnilega síma umboösmannsins fljóta meö aö þessu sinni. Hann er 79559 og heitir umbinn Siguröur Haralds- son. Hann getur væntanlega frætt alla þá er áhuga hafa á um nöfn meölima Toppmanna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.