Morgunblaðið - 28.07.1983, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1983
5
Valtýr Pétursson sýnir
í Þrastalundi í 10. sinn
VALTÝR Pétursson listmálari,
opnar í dag málvcrkasýningu í
veitingastofunni Þrastalundi við
Sog. Þessi sýning er tíunda einka-
sýning hans í Þrastalundi, þar sem
hjónin Kristín Harðardóttir og
Trausti Víglundsson hafa rekið
veitingastofu í tíu ár.
„Ég vildi breyta um stíl og
ákvað að fara „off BroadwayV
sagði Valtýr Pétursson á fundi
með blaðamönnum í gær, er
hann var spurður um ástæðu
þess að hann hefur kosið að sýna
utan höfuðborgarinnar á hverju
sumri í þessi tiu ár. Hann sagði
tilefni sýningarinnar nú vera tíu
ára starfsafmæli hjónanna
Kristínar og Trausta í Þrasta-
lundi.
Valtýr kvaðst fyrir löngu vera
hættur að hafa tölu á einkasýn-
ingum sínum hér á landi, en
hann hefur einnig tekið þátt i
fjölda sýninga erlendis.
Á sýningunni verða 21 mál-
verk sem öll eru máluð á undan-
förnum mánuðum. Sýningin
verður opin daglega næstu tvær
vikur frá klukkan 9 til 23.30.
Þrastalundur er eign Ung-
mennafélags íslands, en þau
Kristín Harðardóttir og Trausti
Víglundsson hafa sem fyrr segir
rekið þar veitingastofu í tíu ár
og hafa málverkasýningar jafn-
an verið fastur liður í starfsem-
inni.
Mynd þessi var tekin á vinnustofu Valtýs Péturssonar í gær. Talið frá
vinstri: Trausti Víglundsson, Valtýr og eiginkona hans, Herdís Vigfús-
dóttir, Kristín Harðardóttir og Þráinn Stefánsson, sem tók þátt í rekstri
veitingastofunnar í Þrastalundi í upphafi. Ljósm.: Mbl. ól.K.M.
Uppselt með
ms. Eddu í
síðustu ferð
FARÞEGAFERJAN m.s. Edda hélt
úr höfn í Reykjavík í gærkvöldi með
fullfermi af bílum og farþegum og er
þetta í annað skipti sem uppselt er
með skipinu það sem af er sumri.
Aðeins eru eftir sex hringferðir m.s.
Eddu að þessu sinni.
Fararstjóri í þessari ferð skips-
ins er Guðni Guðmundsson, rekt-
or, en hljómsveitin Örlagatríóið,
undir stjórn Friðriks Theodórs-
sonar, skemmtir. Einnig er Litli
sirkusinn um borð, en það er dag-
skrá ætluð börnum á öllum aldri.
Á heimleiðinni skemmtir Róbert
Arnfinnsson, leikari, farþegum.
Norðurlanda-
mótið í skák:
Curt Hansen
er langefstur
GUÐMUNDUR Sigurjónsson gerði
jafntefli við Norðmanninn Thiller í
biðskák, sem tefld var í gærmorgun
á Norðurlandamótinu í skák, sem
fram fer í Esbjerg í Danmörku um
þessar mundir. Biðskák sína úr
sjöundu umferð, við Svíann Lars
Ake Schneider, vann Guðmundur á
hinn bóginn. Þá vann Dan Hansson
skák sína við Andrias Ziska frá Fær-
eyjum.
Staðan í úrvalsflokki Norður-
landamótsins, þegar þrjár um-
ferðir eru eftir, er sú, að Daninn
Curt Hansen er lang-efstur, með 7
vinninga af 8 mögulegum. Guð-
mundur Sigurjónsson er með 4
vinninga og Dan Hansson 3. ,
f dag mun Guðmundur tefla við
Andrias Ziska en Dan Hansson
mun tefla við Finnann Heikki
Westerinnen.
Kæru-
frestur
30 dagar
KÆRUFRESTUR álagningar
skatta fyrir tekjuárið 1982, en
skattárið 1983, er 30 dagar frá
framlagningu álagningarskrár
hjá skattstjórum í skattumdæm-
um landsins.
Álagningarskrá var lögð
fram í gær og hafa menn þvi 30
daga til að kæra niðurstöðu
skattútreiknings síns.
ÚBb KARNABÆR
P V LAUGAVEGI 66 - GLÆSIBÆ - AUSTURSTRÆTI 22 SÍMI FRÁ SKIPTIBORÐI 85055
Og umboðsmenn um allt land
í Reykjavík: Austurstræti 22 — Laugavegi 20 — Laugavegi 66 — Glæsibæ.
Úti á landi: Epliö — Isafiröi, Eyjabær — Vestmannaeyjum, Fataval — Keflavík, Álfhóll — Siglufirði,
Nína — Akranesi, Ram — Húsavík, Bakhúsiö — Hafnarfiröi, Austurbær — Reyöarfiröi, Kaupfél.
Rangæinga — Hvolsvelli, Sparta — Sauöárkróki, Skógar — Egilsstööum, isbjörninn — Borgarnesi,
Lea — Ólafsvík, Lindin — Selfossi, Paloma — Vopnafiröi, Patróna — Patreksfiröi, Báran —
Grindavík, Þórshamar — Stykkishólmi, Hornabær — Höfn Hornafiröi, Aþena — Blönduósi, Nesbær
— Neskaupstaö, Pex — Akureyri.
RMANNAHELGINA
og
gleymið ekki
að hafa ...
bros
á vör
Mikið úrval af léttum
sportfatnaði á
hagstæðu verði