Morgunblaðið - 28.07.1983, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1983
NOREGUi?
Kynning-
arrit um
Noreg
ÚT ER komið kynningar- og upplýs-
ingarit um Noreg á íslensku.
Markmiðið með útgáfu þess er að
sjá skólum landsins fyrir fræðslu-
efni um siigu, stjórnar- og staðhætti,
atvinnulíf og menningu hinnar
norsku þjóðar, en einnig hefur það
upplýsingagildi fyrir þá sem hafa
áhuga.
Listaverk
Reykjavíkurborgar
Myndlist
Valtýr Pétursson
Það er löng og einkennileg saga,
innkaup Reykjavíkurborgar á
listaverkum. I eina tíð var til inn-
kaupanefnd, sem var mjög þoku-
kennd, svo að ekki sé meira sagt.
Sú nefnd datt eihvern veginn upp
fyrir og nýtt fyrirkomulag varð
til. Það var borgarlögmaður, sem
var þar í forsvari, og gerðist
margt gott, meðan sá ágætis mað-
ur Páll Líndal sat í þeirri stöðu.
Svo komu stjórnir Kjarvalsstaða
til sögunnar, og þá fór nú að fær-
ast líf í tuskurnar. Um tíma var
enginn leikur að átta sig á þeim
forsendum, sem eftir var unnið, og
nú upp á síðkastið hafa vísir lista-
menn og listráðunautur Kjarvals-
staða staðið að innkaupum. Af
þessum línum gefur að skilja, að
þegar haldin er sýning á starfsemi
sem þessari, eða réttara sagt
árangri þessara nefnda, verður
ekki hjá því komist, að misjafnt
verði í pokahorninu. Það er og
reyndin. Sú sýning, sem nú er á
Kjarvalsstöðum, sýnir það greini-
lega, að mörg og stundum annar-
leg sjónarmið hafa ráðið, hvað
borgin eignaðist af listaverkum.
Það spannar aðeins þrjú ár, sem
nú er sýnt, en auðvitað hefur borg-
in keypt listaverk um langan ald-
ur og á sitt af hverju.
Það er skemmtilegt að sjá þessa
sýningu, þótt hún sé í meira lagi
sitt úr hverri áttinni. Það má
náttúrlega endalaust deila um,
hvernig að slíkum innkaupum eigi
að standa, og ætla ég ekki að fara
út í þá sálma hér, en það er gott til
þess að vita, að borgarráðsmenn
virðast meir og meir meðvitandi
um, að það sé skylda borgarinnar
að sýna þeim listamönnum, sem
starfa í Reykjavík, áhuga. Það
verður sjaldan ofmetið framlag
þessa fólks til borgarlífsins, og nú
seinustu árin hefur sýningafjöldi
orðið það mikill, að um snaran
þátt myndlistar í tilveru þess
fólks, er byggir Reykjavíkurborg,
Yfírlit um salinn.
efast enginn.
Það mætti margan upp telja af
sýnendum á þessari sýningu, en
látum það eiga sig að sinni. Þarna
eru áttatíu verk af ýmissri gerð,
og ég er viss um, að fólk getur
fundið ýmislegt við sitt hæfi. Það
eru allar mögulegar stíltegundir
þarna á ferð og engin ein virðist
vera meira í tízku en aðrar. Þarna
eru menn yfir sjötugt og fólk af
yngstu kynslóð listamanna. Þarna
eru snörp átök á köflum, og þarna
eru einnig meinlaus verk, sem
virðast eiga nokkuð erfitt upp-
dráttar. Ég verð að játa, að for-
sendur fyrir þessari sýningu eru
nokkuð óljósar. Því er einskorðað
við þrú ár? Mætti ekki fara eftir
kjörtímabili hverrar borgar-
stjórnar og þeir aðilar, sem til
veljast að hugsa um innkaup
skattborgaranna, þá látnir bera
ábyrgð hverju sinni? Ekki meir
um það. En Reykvíkingar ættu að
taka virkan þátt í listalífi borgar
sinnar með því að koma á þessa
sýningu og sjá eigur sínar.
Leöurjakki
Verö
3.490
kr.
Sportskór
Verö
445
kr.
Svefnpoki
Verð
GOÐ VARA - GOÐ ÞJONUSTA- GOTT VERÐ
•Visrurstr.rti Kl^^^Tsimi 27211
Aðalfundur
Sambands
íslenzkra
rafveitna
Á aðalfundum sýslunefnda Aust-
ur- og Vestur-Húnavatnssýslu sem
lauk fyrir skömmu kom eftirfarandi
fram.
í V-Húnavatnssýslu var niður-
jafnað sýslusjóðsgjald kr.
1.281.000. Stærstu útgjaldaliðir
eru til heilbrigðismála tæplega
300 þús. og atvinnumála liðlega
300 þús., en einnig til byggingar
sýsluhúss um 250 þús. Til vega-
mála er varið liðlega 1.400.000 kr.
Helsta framkvæmd á vegum
sýslunnar er bygging heilsugæslu-
stöðvar, en hún var fokheld í
fyrra. Einnig má nefna sýsluhús
sem verið er að ganga frá, en
sýslusjóður á einn fjórða hluta í
600 fermetra húsi er byggt hefur
verið á Hvammstanga sem versl-
unar-, iðnaðar- og skrifstofuhús-
næði. í þessu húsnæði er skrif-
stofa lögreglunnar á Hvamms-
tanga og þarna er héraðsbóka- og
skjalasafn.
í Austur-Húnavatnssýslu var
niðurjafnað sýslusjóðsgjald
2.730.000 kr. og stærsti útgjalda-
liðurinn var til heilbrigðismála
eða 1.790.000 kr. Til vegamála er
varið 1.400.000 kr. Undanfarin ár
hefur sýslusjóðurinn byggt íbúðir
fyrir aldraða á Skagaströnd og
Blönduósi. Þá hefur verið steyptur
sökkull undir viðbyggingu við
sjúkrahúsið á Blönduósi.
^\skriftar-
síminn er 830 33
AUGLÝSINGASTOFA
MYNDAMÓTA HF