Morgunblaðið - 28.07.1983, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1983
23
Hús í rúst ----------- Tveir ísraelskir hermenn athuga rústir húss í eigu Araba nærri Kiryat Arba, landnámi
gyðinga noröaustur af Hebron á vesturbakka Jórdanár. Landnemarnir töldu húsið byggt á landi sínu og
eyðiiögðu það. (Símamynd AP.)
Norðmenn veiða sfld
að nýju í Norðursjó
()sló, 27. juli. Fra Kolf Löyström fréttaritara Mbl.
NORSKA utanríkisráðuneytið freistar þess nú að fá Efnahagsbandalag Evr-
ópu til aö heimila Norömönnum að veiða allan þann sfldarkvóta, sem þeim
hafði áður verið úthlutaður í Norðursjó, en í gær ákváðu sjávarútvegsráðherr-
ar bandalagsins að þeir fengju aðeins að veiöa 20.500 tonn, en fyrr höföu
þeim veriö úthlutuð 31.500 tonn.
Norðmenn voru um tíma útilok-
aðir frá öllum síldveiðum á yfir-
ráðasvæði EBE-ríkjanna vegna
innbyrðis ágreinings ríkjanna um
skiptingu fiskveiða. Norsk yfir-
völd tóku málið upp við EBE og
sögðu óeðlilegt að norskir sjómenn
yrðu látnir líða fyrir innbyrðis
ágreining ríkjanna. Jafnframt
hótuðu Norðmenn að útiloka sjó-
menn bandalagsríkjanna frá
norskri lögsögu ef lausn fyndist
ekki á málum og Norðmenn fengju
aðgang að síldarmiðunum á ný.
EBE-ríkin náðu enn ekki sam-
komulagi um aflaskiptingu sín á
milli, þar sem Danir beittu neit-
unarvaldi sínu.
200 handteknir
vegna Emanuellu
Meirihluti hlynntur
stjórn Helmut Kohls
Bonn, 27. júlí. AP.
SAMKVÆMT skoðanakönnun, sem
gerð var opinber í dag, bera Vestur-
Þjóðverjar traust til ríkisstjórnar
Helmut Kohls kanslara, en fellur
betur við fyrirrennara hans, Helmut
Schmidt.
Kom fram, að 53% töldu stjórn
Kohls framför frá stjórn
Schmidts, en 75% töldu Schmidt
hæfan kanslara. Hins vegar töldu
59% Kohl hæfan í embættið. Þá
leist 53% vel á hinn nýja leiðtoga
stjórnarandstöðunnar, Hans-
Jochen Vogel.
Elisabeth Noelle-Neumann,
framkvæmdastjóri hjá Allens-
bach-fyrirtækinu, sagði meiri-
hluta þeirra 4030 Þjóðverja, sem
spurðir voru, telja ríkisstjórnina
bæta sambúðina við Bandaríkin
með því að minnka samskipti sín
við Sovétstjórnina.
Meirihlutinn gagnrýndi þó
stefnu stjórnarinnar í efnahags-
og félagsmálum. Kvartað var und-
an atvinnuleysi og öryggisleysi
ellilífeyrisþega.
Övinsælasti stjórnmálamaður
landsins, að mati 52% þeirra sem
spurðir voru, var Franz Josef
Strauss, formaður systurflokks
kristilegra demókrata í Bæjara-
landi.
Tímaritið Bunte komst að þeirri
niðurstöðu í skoðanakönnun
Bonn, Vestur-I*ýzkalandi, 27. júlí. AP.
FJÁRKÉGARI sendi nýlega arsenik á
skrifstofur þriggja þingmanna Jafnað-
armanna í Bonn og hótaði að byrla
vinstrisinnum innan flokksins eitur ef
honum væru ekki greiddar nær ellefu
milljarðar íslenzkra króna, að sögn yf-
irvalda í dag.
Engar handtökur hafa enn farið
fram vegna máls þessa, en Rudolf
Gerling, saksóknari í Bonn, segist
ekki útiloka þann möguleika að um
geðbilaðan mann sé að ræða. Fyrsta
bréfið, sem sent var frá Darmstadt
þann 7. júlí, hafði að geyma 3.8
grömm af arseniki. Þar var skrifað
að „allir vinstrisinnaðir stjórnmála-
menn Jafnaðarmannaflokksins"
yrðu eitri að bráð, nema flokkurinn
greiddi óþekktum samtökum með
nafninu „Baráttusamtök fyrir vernd
frá vinstri og hægri" eina milljón
marka. Gerling sagði fréttamönnum
að peningana hefði átt að nota til að
prenta áróðursplögg til að andæfa
frjálslyndis- og vinstristefnu.
Öryggismálaráðgjafi Jafnaðar-
mannaflokksins, Hans-Peter Weber,
Göngugarpar
Muestair, Sviss. 27. júlí. AP.
ÞRIR svissneskir göngugarpar
luku í gær 538 klukkustunda
stanslausri gönguferð beint af aug-
um, þvert yflr Sviss þar sem landið
er breiðast. Prfluðu þeir upp og
niður öll þau fjöll sem á vegi þeirra
urðu og sveigðu aldrei af braut
sinni.
Þeir voru hressir í bragði eftir
gönguna og sögðust geta gengið i
nokkra daga í viðbót án teljandi
erfiðleika. Þeim taldist svo til að
þeir hefðu klifið samtals 43.370
metra, en þeir klifu m.a. 32 tinda
og fjöll sem eru 2.000 metrar á
hæð eða meira. Sögðu þeir það
stórkostlegasta við ferðina hafa
verið að koma á slóðir þar sem
enginn hefði farið um áður.
blaðsins, að 64% hinna 1000, sem
blaðið spurði, vildu fá Helmut
Schmidt í embætti forseta
Vestur-Þýskalands, en Karl Carst-
ens hefur lýst yfir, að hann muni
ekki gefa kost á sér að nýju á
næsta ári.
í skoðanakönnun Sample-
stofnunarinnar í Hamborg vildu
hins vegar 66% aðspurðra Car-
stens áfram sem forseta.
Kómarborg, 27, júlí. AP.
ÍTALSKA lögreglan hefur handtekið
rösklega 200 manns í sambandi við
leitina að ræningjum stúlkunnar
Emanuellu Orlandi, að því er AP-
fréttastofan sagði í dag.
Komið hefur fram í fréttum, að
ræningjar hennar krefjast þess að
Mehmet Agca, tilræðismaðurinn
við Jóhannes Pál páfa II, verði lát-
inn laus. Ekki hefur verið látið
neitt uppskátt um hvort þessar
handtökur og yfirheyrslur yfir
fólkinu hafa gefið lögreglunni ein-
hverjar vísbendingar. Ýmsir
þeirra sem hafa verið handteknir
síðustu daga eru alræmdir eitur-
lyfjasalar og neytendur fíkniefna
og hvers kyns óreiðufólk.
Mannræningjarnir hafa hvað
eftir annað hótað að stúlkan verði
líflátin ef ekki verði fallist á kröf-
ur um að leysa Acga úr haldi, en
hafa jafnan ákveðið að framlengja
frestinn. Jóhannes Páll páfi II
hefur margsinnis beðið ræningj-
ana í ræðum að sleppa stúlkunni,
en hún er dóttir starfsmanns í
Páfagarði.
ERLENT
Begin stóð af
sér vantraust
Jerúsalem, 27. júlí. AP.
ÍSRAELSKA þingið felldi í dag þrjár vantrauststillögur, sem voru bornar fram á
stjórn Begins, forsætisráðherra. Atkvæði féllu 59—53 í öllum atkvæðagreiðslun-
um. Knesset kom saman í dag eftir sumarhlé og lögðu talsmenn Verkamanna-
flokksins l.ommúnista og Shinui, sem er miðflokkur, snarlega fram vantrauststil-
lögur.
Menachem Begin, sem hefur lítt áfergju á umræðurnar í dag. Fjár-
verið í sviðsljósinu upp á síðkastið málaráðherra ísraels, Yoram Ari-
og hefur sætt vaxandi ámæli fyrir að dor, varði stjórnina við umræðurnar
gegna ekki starfi sínu sem skyldi, en Begin tók ekki til máls.
var í þingsölum og virtist hlýða með
Hyggst kúga út
fé með arseniki
segir að flokkurinn muni ekki láta
beita sig fjárkúgun.
Enn eitt Hagkaupsveróiö!
Nýi,hreini appelsínusafinn
UANDA
kostaraöeins 29.95kr.pr. lítra!
Blanda er framleidd af
Mjólkursamlagi S.A.H.á
Blönduósi, úr C-vítamínríku
appelsinuþykkni frá Brasilíu
blönduöu meö íslensku
lindarvatni. Engum sykri eöa
aukaefnum er bætt í safann.
Þeir sem fylgjast meö
verölagi vita hvarer
hagkvæmast aöversla!
1 Mm
| appeisínu isafi tvniííV
opiöíSkeifunnitilkl.2l íkvöld
HAGKAUP