Morgunblaðið - 28.07.1983, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1983
37
Minning:
Stefán O. Thordersen
hakarameistari
að rumska af þeim djúpa svefni,
sem hún féll í á svæfingaborðinu
suður í Reykjavík fyrir mörgum
mánuðum?
Nú er Elsa Sigurðardóttir vökn-
uð af svefni sínum og komin heim
— alkomin. Ekki í húsið sitt að
Engjavegi 21 heldur til þess heim-
ilis, sem bíður okkar allra handan
við landamæri lífs og dauða. Veg-
urinn heim varð henni lengri og
torsóttari en flestum. Heimkoman
hefur verið góð þreyttum ferða-
langi.
Það er erfitt að kveðja hinstu
kveðju manneskju, sem verið hef-
ur í hópi nánustu vina og tilheyrt
næsta umhverfi manns frá æsku-
árum. Þau hjónin, Kristján
Kristjánsson og Elsa Sigurðar-
dóttir, bjuggu í næstu íbúð við for-
eldra mína í Alþýðuhúsinu á ísa-
firði um nokkurra ára skeið þegar
ég var barn og mikill samgangur
var á milli fjölskyldnanna. Allt
frá því voru þau Kristján og Elsa í
hópi nánustu og tryggustu vina
okkar. Margar ferðir hef ég átt til
þeirra bæði á meðan þau bjuggu í
Alþýðuhúsinu og eins eftir að þau
fluttust á Engjaveginn. Margar
minningar eru því við Elsu bundn-
ar frá ýmsum skeiðum ævi minn-
ar.
Þegar ég síðar þurfti á stuðn-
ingi og hjálp að halda til þess að
Alþýðuflokkurinn næði aftur fót-
festu á Vestfjörðum leitaði ég lið-
sinnis þeirra hjóna. Þau voru jafn-
aðarmenn, svo liðsbónin kom þeim
síður en svo á óvart, en þeim mun
kærara var þeim að veita mér lið
sem liðveislan var fremur af vin-
áttunnar rótum runnin. Voru fáir
sem jafn glaðir og fúsir gengu til
baráttunnar eins og þau Elsa og
Kristján. Ávallt var stuðningur
þeirra og hjálp velkomin, heimili
þeirra mér opið og vinátta þeirra
jafn fölskvalaus.
Elsa Sigurðardóttir var mynd-
arleg kona í sjón og raun. Heimili
hennar er vandað og vel búið og
þangað er gott að koma. Hún var
glaðvær og fjörug og hafði létta
lund — ávallt kát og hress. Þau
hjón voru einstaklega samrýnd og
samtaka. Kristján hefur mikið
misst.
Sagt er, að menn taki stundum
tryggð við stað. í rauninni er þá
átt við fólkið, sem menn tengja
staðnum fremur en ópersónulega
strönd, fjall eða eyri.
ísafjörður er í mínum huga
fólkið, sem þar býr og atburðir,
sem þar hafa gerst, fremur en hús,
fjöll og fjara. En fólk flytur á
brott. Og fólk deyr.
„Að skilja, það er að deyja svo-
lítið," er orðtak, sem ég lærði einu
sinni í tíma hjá Þórarni heitnum
skólameistara. Sérhver viðskiln-
aður við fólkið, sem tengist mynd
ísafjarðar í hugskoti mínu, lætur
þá mynd deyja svolítið. Þannig
breytist smám saman lifandi
mynd líðandi stundar í ilm liðinna
daga.
Elsa Sigurðardóttir er látin.
Mínir vinir fara nú fjöld. Myndir
dofna og dvína. En vestanblærinn
er farinn að bera með sér ilm
hinna liðnu daga.
Sighvatur Björgvinsson
Minning:
Fædd 4. ágúst 1889
Dáin 18. júlí 1983
í dag kveðjum við Önnu Sigurð-
ardóttur frá Hrepphólum í
Hrunamannahreppi, en hún lést á
Hrafnistu í Hafnarfirði þann 18.
júlí sl.
Foreldrar Önnu voru hjónin
Sigurður Jónsson og Jóhanna
Guðmundsdóttir frá Ásum í
Gnúpverjahreppi. — Anna giftist
1924 Rögnvaldi Þorsteinssyni
múrarameistara, frá Baugsstöð-
um í Stokkseyrarhreppi, en hann
andaðist árið 1948.
Einkabarn þeirra var Áslaug,
sem bjó á heimili foreldra sinna
og síðar með móður sinni eftir að
Fæddur 9. ágúst 1907.
Dáinn 19. júlí 1983.
Fregnin um andlát góðvinar
míns, Stefáns ó. Thordersen, kom
mér að vísu ekki með öllu á óvart,
þar eð hann hafði átt við mikla
vanheilsu að stríða um árabil.
Ég sat hjá honum síðast fyrir
skömmu í Vífilsstaðaspítala og við
röbbuðum saman glaðlega. Ekki
datt mér þá í hug að endalokin
væru svo nærri, enda þótt honum
væri mjög þungt fyrir brjósti eins
og svo oft endranær.
Stefán fæddist í Reykjavík 9.
ágúst 1907, og hefði því orðið 76
ára í næsta mánuði. Hann var
sonur hjónanna Vigdísar Stef-
ánsdóttur Thordersen og ólafs
Thordersen söðlasmiðs. Þau hjón
fluttu til Hafnarfjarðar er Stefán
var á barnsaldri og ólst hann þar
upp hjá þeim.
Langafi Stefáns í föðurætt var
Helgi Thordersen biskup og var
ættarnafnið frá honum komið.
í Hafnarfirði hóf Stefán nám í
bakaraiðn, en fluttist brátt til
Reykjavíkur og vann í Björnsbak-
aríi hjá Birni Björnssyni bakara-
meistara uns hann lauk námi.
Árið 1929 þegar hann var orðinn
meistari í sínu fagi sigldi hann til
Kaupmannahafnar og dvaldi þar
eitt ár og stundaði framhaldsnám
við Teknologisk Institut.
Eftir heimkomuna hélt hann
áfram störfum í Björnsbakaríi og
vann þar óslitið þar til hann varð
að hætta störfum sakir heilsu-
brests fyrir um það bil sjö árum.
Stefán gegndi ýmsum trúnað-
arstörfum. Hann var m.a. í stjórn
Sveinafélags bakara, Bakara-
meistarafélagsins og Landssam-
bands bakarameistara um langt
árabil.
Hann var einn af stofnendum
Sultu- og efnagerðar bakara og í
stjórn þess fyrirtækis í mörg ár.
Við Stefán kynntumst fyrst árið
1954, er hann gekk í Frímúrara-
regluna, þrem árum eftir að ég
gerðist þar félagi. Kynni okkar
urðu brátt náin og áður en langt
um leið vorum við orðnir góðir
vinir.
1 reglunni störfuðum við saman
í mörg ár og eftir því sem ég
kynntist Stefáni meira, komst ég
betur að raun um hvern mann
hann hafði að geyma. Hann var
fluggáfaður og var margt til lista
lagt, afbragðs ræðumaður og
söngmaður góður, söng t.d. í
Karlakór iðnaðarmanna allt frá
stofnun hans, í mörg ár. Betri og
glaðværari félaga var vart hægt
að finna enda hrókur alls fagnað-
ar á gleðistundum.
Stefán var með afbrigðum
minnugur og hafði alltaf frá
mörgu að segja, enda fjölfróður á
ýmsum sviðum. Hann rakti stund-
um ættir, bæði sína og annarra,
svo nákvæmlega, jafnvel með ár-
faðir hennar andaðist. Áslaug, sól-
argeisli móður sinnar og lífsfyll-
ing, lést árið 1975.
Fyrir nokkrum árum atvikaðist
það svo að leiðir okkar önnu lágu
saman, kunningsskapur myndað-
ist, sem smám saman varð að
góðri vináttu. Nú á kveðjustund
rifjast upp ótal margar samveru-
stundir liðinna ára, fyrst á Hóla-
vallagötu, síðar á Hrafnistu í
Hafnarfirði, þar sem Anna dvald-
ist síðustu árin, sátt við örlög sín
og í sérstaklega góðri umsjá, sem
hún sannarlega kunni að meta,
Veit ég með vissu að Anna þakkar
af alhug öllu því góða fólki á
Hrafnistu, sem hjálpaði henni og
hjúkraði. Þar féll aldrei skuggi á.
tölum, að ég var undrandi. Elsku-
legri og drenglyndari mann en
Stefán er vart hægt að hugsa sér.
Hann var svo hjálpfús, örlátur og
góðviljaður að sjaldgæft er. Mér
og fjölskyldu minni hefur hann
reynst hinn tryggasti vinur. Lista-
maður var hann í sínu fagi og var
gaman að sjá hann búa til og
skreyta kökur eins og t.d. kransa-
kökur. Slíkar kökur bjó hann til
fyrir mig, fyrir nokkur hátíðleg
tækifæri. Var hann þá sjaldnast
fáanlegur til að taka við borgun,
sagði þetta bara gjöf frá sér og
konu sinni, en þau voru oft gestir
okkar og við þeirra, og eigum við
hjónin margar ljúfar endurminn-
ingar frá þeim samverustundum.
Stefán var tvíkvæntur. Með
fyrri konu sinni, Dómhildi Skúla-
dóttur, átti hann son, en þau hjón-
in slitu samvistum. Þessi sonur,
Ólafur Thordersen, er búsettur í
Ytri-Njarðvík. Hann er kvæntur
Guðnýju Jónsdóttur og eiga þau
þrjú börn, og heita þau Vigdís,
Stefán og ólafur.
Síðari kona Stefáns, Sigþrúður
Einarsdóttir Thordersen, er ættuð
frá Stokkseyri. Einkabarn þeirra
hjónanna, Margrét, giftist Þor-
finni Egilssyni lögfræðingi. Þau
slitu samvistum. Börn þeirra tvö
heita Egill og Sigþrúður. Einnig
átti Stefán eitt barnabarnabarn,
son Stefáns nafna hans, heitir
hann ólafur Viggó.
Frú Sigþrúður hefur búið Stef-
áni indælt og smekklegt heimili,
enda mjög listræn kona. Hún hef-
ur fengist mikið við málaralist,
einnig útsaum og ýmsa handa-
vinnu. Hún er dugleg og góð hús-
móðir. Mikið hefur á henni mætt,
einkum síðan maður hennar veikt-
ist, og hefur hún verið honum hin
mesta stoð og stytta í þjáningum
hans, umhyggjusöm og nærgætin.
Stefán hefur þurft að leggjast
inn á Vífilsstaðaspltala alloft síð-
ustu árin og eru það ófáar ferðir,
sem kona hans og Margrét dóttir
þeirra hafa farið þangað til þess
að heimsækja hann. Margrét hef-
ur reynst þeim báðum hin besta
dóttir og barnabörnin verið þeim
til gleði.
Við Þórdís, kona mín, og fjöl-
skylda okkar vottum frú Sigþrúði
og fjölskyldunni allri innilega
samúð okkar vegna fráfalls Stef-
áns, þökkum trausta vináttu og
óskum honum Guðs blessunar og
velfarnaðar á þeim leiðum, sem
hann nú hefur lagt út á.
Útförin fer fram í dag frá
Dómkirkjunni kl. 15.00.
Erlingur Þorsteinsson
Stefán ó. Thordersen bakara-
meistari lést að Vífilsstöðum 17.
júlí sl. á 76. aldursári. Hann var
fæddur 9. ágúst 1907. Stefán lærði
bakaraiðn innanlands og utan og
tók sveinspróf í þeirri grein 20.
Gestrisnin og höfðingsskapur-
inn var henni í blóð borinn, hverja
heimsókn gerði hún að sérstakri
hátíð; glettin, fróð og skemmtileg.
apríl 1926. Hann var mjög dugleg-
ur starfsmaður, fjölhæfur, iðinn
og skyldurækinn alla sína starfs-
tíð. Lengst og síðast vann hann í
Björnsbakaríi, Vallarstræti 4, og
var meðeigandi þess. En síðustu
árin hefur hann barist við van-
heilsu af ýmsu tagi.
Stefán var félagslyndur og góð-
ur samstarfsmaður, alltaf tilbúinn
þegar með þurfti. Okkar fundum
bar fyrst saman fyrir réttum 40
árum, þegar hann gerðist meðlim-
ur Bakarameistarafélags Reykja-
víkur eftir að hafa fengið
meistararéttindi í sinni iðngrein.
Fljótlega komst hann í stjórn
þessa félags sem ritari í nokkur
ár. í stjórn fyrirtækja þess var
hann meira og minna alla tíð.
Hann var tillögugóður og hafði
einkar gott lag á því að koma því
efni til skila sem til umræðu var á
fundum hverju sinni.
Stefán var söngelskur, eins og
fleiri bakarar á þessum árum.
Hann var í Karlakór iðnaðar-
manna, sem einu sinni var til.
Annars er ég ókunnugur um ætt
og afkomendur Stefáns en ég veit
þó að hann var einn af afkomend-
um Helga Thordersen biskups.
Tilgangur minn með þessum fá-
tæklegu línum er að koma á fram-
færi innilegu þakklæti mínu fyrir
langa samfylgd og snurðulaust
samstarf í mörg ár. Einnig viljum
við hjónin hér með votta Sigþrúði
konu hans og öllum öðrum ætt-
ingjum hans okkar innilegustu
samúð.
Gísli Ól.
Kveðja frá Landssambandi
bakarameistara.
Landssamband bakarameistara
kveður í dag einn af stofnfélögum
sínum, Stefán ó. Thordersen, bak-
arameistara. Hann var kjörinn í
fyrstu stjórn Landssambands
bakarameistara og gegndi ýmsum
trúnaðarstörfum fyrir sambandið
og sat m.a. í mörg ár í prófnefnd í
bakaraiðn fyrir bakarameistara
og innti þau störf vel af hendi.
Um leið og stjórn Landssam-
bands bakarameistara vottar ætt-
ingjum Stefáns samúð sína eru
honum þökkuð vel unnin störf á
liðnum árum.
f.h. Landssambands
bakarameistara
Jón Albert Kristinsson
Það var erfitt átak fyrir Önnu að
flytjast frá óvenju fallegu heimili
sínu að Hólavallagötu, þar sem
hún hafði lifað langa ævi í blíðu og
stríðu, en hún hélt reisn sinni til
dauðadags þótt þrekið dvínaði og
heilsunni hrakaði. Stolt og æðru-
laus bauð hún lasleika og háum
aldri birginn og sjaldan var kvart-
að þótt hún væri sárþjáð. „Ég
nenni ekki að tala um aumingja-
skapinn í sjálfri mér, tölum held-
ur um eitthvað skemmtilegt,” var
viðkvæði hennar þegar spurt var
um heilsuna. Slík hetja var hún
Anna.
Sálarþrek hennar var með ólík-
indum, kjarkurinn óbilandi, hún
gladdist yfir litlu, reyndi að njóta
lífsins og gerði það þrátt fyrir
margvíslega þjakandi lífsreynslu.
Öfundsverð var hún af hinni
sterku trú og vissu um það hvert
hún færi og hverja hún hitti aftur
handan við þennan heim.
Að leiðarlokum þakka ég ljúfar
samverustundir. Sól hefur til við-
ar hnigið, langur dagur er að baki.
Kjartan Magnússon
Anna Sigurðardótt-
ir frá Hrepphólum
Flaggstangir
úr trefjagleri, fellanlegar með
festingu, fleiri stæröir.
Islensk flögg
allar stærðir
Flaggstang-
arhúnar
FLAGGLÍNUR
FLAGGLÍNUFEST-
INGAR
SÓLÚR
MINKAGILDRUR
MÚSA- OG ROTTUGILDRUR
BORÐLAMPAR
HENGILAMPAR
VEGGLAMPAR
OLÍUOFNAR
GASLUKTIR
OLÍULAMPAR
Útigrill
GRILLTENGUR — GAFFLAR
VIÐARKOL — KVEIKILÖGUR
Gasferðatæki
OLÍUPRÍMUSAR
STEINOLÍA, 2 TEG.
PLASTBRÚSAR
Garðyrkjuáhöld
ALLS KONAR
GARÐSLÖNGUR
GREINAKLIPPUR
GREINASAGIR
GRASKLIPPUR
HRÍFUR OG BRÝNI
GARÐSLÁTTUVÉLAR
GARÐVRKJUHANSKAR
BLÓMASTANGIR
(Tonskinstokkar)
•
Handverkfæri
ALLS KONAR.
Múraraverkfæri
ALLS KONAR
Málbönd
ALLS KONAR
Málning og lökk
VIDAROLÍUR
TJÖRUR, ALLS KONAR
Vængjadælur
NR. 0, 1, 2, 3.
BÁTADÆLUR
•
Plötublý
HESSÍANSTRIGI
•
Björgunarvesti
ÁRAR — ÁRAKEFAR
BÁTADREKAR — KEÐJUR
Silunganet
Handfæravindur
MEÐ STÖNG
Sjóveiðistengur
MED HJÓLI
SJÓSPÚNAR — PILKAR
Stillongs
Ullarnærföt
REGNFATNAÐUR
KULDAFATNADUR
GUMMÍSTÍGVÉL
VEIÐISTÍGVÉL
FERÐASKÓR
Föstudaga opiö til kl. 7
• \
'tf
Ananaustum
Simi 28855