Morgunblaðið - 28.07.1983, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1983
Lfównynd QuAmundur Ragnar Guðmundaaon.
• Sigurvegarar í kvennaflokki, frá vinstri: Steinunn Guönadóttir, sem
varö í þriðja sæti, Guöný Eiríksdóttir, en hún sigraði í mótinu, Elísabet
Jóhannsdóttir, sem varö í ööru sæti, og lengst til hægri er Árni Þór
Árnason frá Austurbakka hf.
Opna tennismótið:
Christian var
í sérflokki
OPNA Dunlop-mótið í tennis fór
fram um helgina í Kópavogi.
Keppt var í karla- og kvenna-
flokki og voru keppendur alls 40,
32 karlar og 8 konur.
í karlaflokki uröu úrslit þau aö
Christian Straub sigraöi Kristján
Baldursson í úrslitaleik 6—3 og
6—0. í undanúrslitum lék Kristján
viö Arnar Arinbjarnarson og vann
hann 4—6, 6—4 og 6—4, en
Christian lék gegn Klaus Peter og
sigraöi auðveldlega 6—0 og 6—1,
en þannig enduöu flestir leikir
hans og haföi hann mikla yfirburöi
á þessu móti.
í kvennaflokki sigraöi Guðný
Eiríksdóttir Elísabetu Jóhannes-
dóttur í úrslitaleik 6—2 og 6—0 og
var eins meö hana og Christian aö
hún var í nokkrum sérflokki á
þessu móti.
Þaö vakti athygli á þessu móti
hve gott veöur var á meöan þaö
fór fram, logn og blíöa, en þaö hef-
ur ekki verið of algengt hér sunn-
anlands, en aö sögn áhugamanna
um tennis þá er alltaf gott veöur
þegar tennismót er haldiö hér á
landi, en þrátt fyrir þaö veröur
næsta mót ekki fyrr en í lok ágúst.
— sus.
• Þessir kappar sigruöu í karlaflokki, taliö frá vinstri: Claus Peter lenti
í 3. sæti, Christian Straub, sem vann, og Kristján Baldursson sem varö
annar. Meö þeim á myndinni er Árni Þór Árnason.
Nýtt heimsmet
TÉKKNESKA hlaupakonan Jarm-
ila Kratochilova setti í gær nýtt
heimsmet í 800 metra hlaupi í
Þýskalandi. Tími hennar var
Sumarmót í
handknattleik
Sumarmót HSÍ í handknattleik
veróur haldiö dagana 11. til 14.
ágúst í íþróttahúsinu vió
Strandgötu í Hafnarfirði og er
þaó landsliósnefnd kvenna sem
sér um mótiö aó þessu sinni.
Keppt veröur í meistaraflokki
kvenna og karla og í 2. flokki
kvenna. Þátttökutilkynningar þurfa
aö berast til Arnþrúðar Karlsdóttur
í sima 54716 eða Þóröar Sigurös-
sonar í síma 72156 fyrir 3. ágúst.
FH
Aöalfundur handknattleiksdeild-
ar FH veröur haldinn í kvöld í
kaffistofu Barkar hf. og hefst
hann kl.22, eöa strax aö loknum
leik FH og Einherja í 2.deild.
1:53,28, en eldra metiö átti Olisar-
enko frá Sovátríkjunum, en þaö
setti hún í Moskvu áriö 1980.
Körfuknattleiksbannið:
Minn qIwqkIdíi i# nf of woi^Aiif
Mifijuy divdricy |i ci di veruur
— segir Einar Bollason, þjálfari Hauka
„Mér finnst þetta frekar
mannréttindamál en aö þaó varói
aöeins spurninguna hvort leyfa
eigi erlendum leikmönnum aö
leika hér á landi eöa ekki. Menn
sem eru giftir hér og hafa unniö
sína vinnu, stofnaó heimili og
borgað sína skatta og þar fram
eftir götunum geta varla verió
undir sama hatti og þeir erlendu
leikmenn sem hér hafa verió und-
anfarin ár og leikiö körfubolta á
launum,“ sagöi Einar Bollason,
þjálfari Hauka, þegar Mbl. bar
þaö undir hann hvernig máliö
sneri aö honum varöandi bann
viö erlendum leikmönnum I
körfuboltanum næsta vetur.
Eins og viö skýröum frá á þriöju-
daginn þá eru nú uppi hugmyndir í
Bandaríkjunum aö banna íslend-
ingum aö leika meö áhugamanna-
liöum þar i landi en eins og kunn-
ugt er hafa nokkrir íslendingar
leikiö körfubolta þar jafnframt því
sem þeir hafa stundaö nám. Ef af
þessu banni verður, yröi þaö mjög
alvarlegt mál fyrir körfuknattleik-
inn hér á landi því þaö hefur ávallt
veriö mikil lyftistöng fyrir körfu-
knattleikinn aö fá menn aftur til
landsins eftir aö þeir hafa stundaö
nám og leikiö körfubolta í Banda-
ríkjunum.
„Þaö er alveg Ijóst aö ef af
þessu banni veröur er þaö mjög
alvarlegt fyrir okkar menn, því
bæöi Axel Nikulásson og Matthías
Matthíasson ætluöu sér aö dvelja
ytra í vetur og einnig erum viö ný-
búnir aö fá bréf frá þjálfara Ken-
tucky, sem var hór á landi fyrir
skömmu, þar sem hann lætur í Ijós
áhuga á aö fá nokkra pilta til
Bandaríkjanna til aö leika körfu-
bolta. Hann nafngreinir nokkra og
segist hafa áhuga á fleirum og
hann biöur okkur um aö hafa sam-
band viö foreldra þessara pilta og
skýra þeim frá þessu. Hann segir
jafnframt aö þeir muni fá ókeypis
skólavist og ýmislegt fleira. Þetta
er auövitaö mikiö tækifæri fyrir
þessa pilta og ég get sagt þér aö
bæöi Finnar og Svíar hafa gert
mikiö af þvi aö fara til Bandaríkj-
anna og hefur þaö veriö körfubolt-
anum þar mikil lyftistöng."
Einnig sagöi Einar aö þaö heföi
aldrei veriö meiningin hjá Haukum
að banna erlendum leikmönnum
sem væru hér búsettir til lengri
tíma aö leika, heldur aö koma í veg
fyrir aö fengnir væru leikmenn
hingað á launum og á þingi KKÍ var
Þór — KA
leika í kvöld
ÞÓR OG KA leika fyrri leik ainn í
Akureyrarmótinu í knattapyrnu í
kvöld og verður aö ajálfaögöu
leikiö á Akureyri. Leikurinn hefat
kl. 20 og veröur örugglega gaman
aó fylgjast meö leik þessara
nágranna því bæöi liöin munu
ætla sér sigur í þessari vióureign.
• Axel Nikulásson, ÍBK. Fær
hann ekki að leika körfubolta í
Bandaríkjunum?
þetta samþykkt, þannig aö þaö
hlyti aö endurspegla fjáhagshliöina
á málinu, en aö banna leik-
mönnum sem heföu allar sömu
skyldur og íslendingar aö leika
væri mannréttindabrot og ekkert
annaö.
„Þaö er von mín að stjórn KKÍ
grípi fljótt Inní þetta mál þannig aö
þaö leysist farsællega. Viö munum
gera allt til aö Webster fái aö leika
meö okkur næsta vetur og ef þaö
fæst ekki er ég hlynntur því aö fara
lengra meö máliö,“ sagöi Einar aö
lokum.
Kristinn Guönason formaöur
körfuknattleiksdeildar Hauka tók
mjög í sama streng og Einar og
sagöi aö hann heföi bent á þessa
hættu strax á umræddu þingi en
þá heföu menn ekki tekiö þetta al-
varlega, taliö aö þaö væri engin
ástæöa til aö óttast aö Bandaríkja-
menn geröu eitthvaö í málinu, en
nú virtist annaö vera aö koma á
daginn.
„Viö í Haukum viljum ekki aö
erlendir leikmenn fái aö leika hér
eins og hefur veriö undanfarin ár,
fyrir borgun, en um menn sem
hafa búsetu hér og allar sömu
skyldur og Islendingar finnst mér
ekki gilda þaö sama. Ég veit aö
þetta stenst ekki samkvæmt regl-
um FIBA og viö munum berjast
fyrir aö þessu veröi kippt í lag, viö
sættum okkur alls ekki viö þetta
eins og þaö er í dag. Þegar ég
benti á þetta á þinginu á sínum
tíma voru fáir sem sáu þennan
möguleika en nú er hann ef til vill
aö koma í Ijós og ef svo veröur þá
er nauðsynlegt aö taka þessa sam-
þykkt til endurskoðunar."
Morgunblaöiö haföi einnig sam-
band viö Þórdísi Kristjánsdóttur
formann KKÍ og tjáði hún okkur aö
frá sínum bæjardyrum séö væri
nokkuö augljóst að Webster fengi
ekki aö leika hér fyrr en hann heföi
fengiö íslenskan ríkisborgararétt,
samþykkt þingsins hljóöaöi þannig
og stjórn KKÍ gæti lítiö gert annað
en framfylgja þeirri samþykkt. Hún
kvaöst annars ekki vilja tjá sig um
máliö aö svo komnu máli.
En hvernig fá erlendir menn
ríkisborgararétt hér á landi ? Við
lögöum þá spurningu fyrir Halldór
Frímannsson, fulltrúa í dómsmála-
ráöuneytinu.
„Þaö er Alþingi sem samþykkir
lög um aö einhver ákveöinn maöur
sé oröinn íslenskur ríkisborgari og
viö sjáum um aö framkvæma þá
samþykkt. Annars gengur þetta
þannig fyrir sig að umsóknir eru
sendar til okkar og viö förum yfir
þær, sendum þær síöan viökom-
andi lögreglustjóra til umsagnar og
þaöan fer umsóknin til Alþingis
sem tekur máliö fyrir og oftast er
þaö gert í þinglok. í reglugerö um
ríkisfang segir aö hafi erlendur
maöur eöa kona veriö gift íslensk-
um ríkisborgara í þrjú ár þá geti
viökomandi fengiö íslenskt ríkis-
fang enda hafi maki, sem hefur ís-
lenskt ríkisfang, veriö ísienskur
ríkisborgari i aö minnsta kosti
fimm ár.“
Halldór sagöi einnig aö í þessu
ákveöna tilfelli sem spurt væri um
gætu þeir ekki gert neitt annaö en
aö gefa út vottorð um aö viökom-
andi maður heföi sótt um rikis-
borgararétt.
Samkvæmt heimildum sem Mbl.
aflaöi sér hefur DeCarsta Webster
veriö búsettur hér á landi síöan
1979 og hann hefur veriö giftur í
rúm tvö ár þannig aö samkvæmt
reglugerö um íslenskt ríkisfang fær
hann ekki íslenskan ríkisborgara-
rétt fyrr en næsta vor, en hvaö
gerist þangaö til veröur tíminn aö
leiöa í Ijós.
— sus
Verðlaun fyrir
fallegasta markið
Hver skoraði fallegasta markiö
í knattspyrnunni í sumar? Um
þaö veróa sjálfsagt ekki allir
sammála og kann þar aö sannast
hið fornkveóna, aö hverjum þyki
sinn fugl fagur.
Engu aö síöur hefur Seiko-
umboöiö hérlendis, Þýsk-íslenska
verslunarfélagiö hf., ákveöiö aö
veita verðlaun fyrir fallegasta
markiö í 1. deild íslandsmótsins og
bikarkeppninni frá og meö 16 liöa
úrslitunum. Knattspyrnudómarar
hafa tekiö aö sér aö veita umsögn
um fallegustu mörkin i þeim leikj-
um sem þeir dæma eöa sjá sem
áhorfendur og veröur reynt að
velja fallegasta markiö úr, sam-
kvæmt skýrslum þeirra.
Hér er um tilraun aö ræöa og
hefur veriö beöiö meö aö skýra
opinberlega frá henni þar sem
stjórn knattspyrnudómarasam-
bandsins vildi sjá til hvernig dóm-
arar tækju þessari nýbreytni.
Þegar keppnistímabilinu lýkur
veröur mark sumarsins valiö og
verölaun veitt. Þaö verða Seiko-
armbandsúr meö sérstakri áletrun.
Þegar síöasta heimsmeistara-
keppni í knattspyrnu fór fram voru
Seiko-úr notuö viö dómgæslu. Þá
voru framleidd Seiko-úr meö sér-
stakri áletrun FIFA, alþjóðaknatt-
spyrnusambandsins. Dómararnir,
sem dæmdu í keppninni, fengu slík
úr. Seiko-umboöiö hérlendis,
Þýsk-íslenska verslunarfélagiö hf.,
fékk nokkur þessara úra og veröur
eitt þeirra veitt í verölaun fyrir fal-
legasta markið nú í haust.
Jaóarsmótiö
í golfi
GOLFKLÚBBUR Akureyrar heldur
hið árlega Jaðarsmót dagana 30.
og 31. júlí, eöa næstu helgi.
Leiknar veröa 36 holur. Mótiö er
sem fyrr opiö öllum kylfingum.
Jaöarsvöllurinn eöa „Stóri-
Boli“ eins og margir kalla hann er
18 holu völlur í afar skemmtilegu
landslagi.
Kylfingar eru hvattir til aó fjöl-
menna á Jaröarsmótiö á Akureyri
um helgina.