Morgunblaðið - 28.07.1983, Qupperneq 48
BILLINN
BILASALA SlMt 79944 SMIÐJUVEGI4 KOPMOT'
munirt trúlofunarhringa
iitmvndalistann fffl)
(@uU & &útm
Laugavegi 35
FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1983
Mezzoforte-strákarnir gera þaö gott þessa dagana f Evrópu, en hérna sjást þeir í þann mund að gæða sér á
forláta köku er gerö var í tiiefni af því að tónleikaferðalagi þeirra um Bretland er iokið. Var myndin tekin í
garðveislu er hljómsveitin hélt daginn eftir lokatónleikana í Englandi. Ljósm. Mbl. Gunnlaugur RðRnvaidsson
Mezzoforte:
5-600.000 plötur
hafa selst erlendis
Vinsældir aukast í V-Þýzkalandi og Japan
„Þeir hjá Deutsche Grammophone hafa unnið geysilega mikið undir-
búningsstarf í V-Þýskalandi og það er nú að skila sér hægt og bítandi,"
sagði Steinar Berg ísleifsson, forstjóri Steina hf., er Morgunblaðið ræddi
við hann í Lundúnum í gærdag.
Velgengni Mezzoforte hefur
farið ört vaxandi í V-Þýskalandi
á undanförnum vikum og er
tveggja laga platan „Garden
Party" nú komin í 36. sæti smá-
skífulistans þarlendis. Lyfti hún
sér upp um 6 sæti frá því í síð-
ustu viku. Stóra platan, „Sur-
prise, Surprise" tók hins vegar
undir sig mikið stökk, fór úr 76.
sæti í það 41.
V-þýski plötumarkaðurinn er
stærri en sá enski, næstur á eftir
þeim bandaríska og japanska. í
Japan er plata hljómsveitarinn-
ar komin í 19. sæti yfir erlendar
plötur. Mezzoforte hefur selt
næstum jafn margar plötur í
Þýskalandi og í Bretlandi. Alls
nemur heildarplötusalan um
200.000 breiðskífum og á milii 3
og 400.000 smáskífum.
„Við erum eðlilega ákaflega
ánægðir með hvernig gengið hef-
ur í V-Þýskalandi, en þróunin
þar er á allan hátt mun hægari
en í Bretlandi. Líkari því sem
gerist í Bandaríkjunum. Plöt-
urnar eru lengi að mjaka sér upp
vinsældalistana, en þegar á
toppinn er komið er algengt að
þær sitji þar allt upp í 6-8 vik-
ur,“ sagði Steinar.
Að sögn hans er þegar búið að
gera ráð fyrir 7 tónleikum i
stærstu borgum V-Þýskalands í
haust, auk þess sem efnt verður
til tónleika bæði í Belgíu og
Hollandi. Þá er Frakkland einn-
ig inn í myndinni, allt þó óstað-
fest, og frekara tónleikahald í
Englandi. Þá hefur verið gerður
samningur um útgáfu í Kanada,
en að sögn Steinars hafa við-
brögð Bandaríkjamanna valdið
vonbrigðum.
„Við höfum fengið samnings-
tilboð frá Bandaríkjunum, en
einfaldlega ekki nægilega góð.
Okkur liggur ekkert á og höfnum
hiklaust tilboðum, sem við telj-
um óviðunandi. Tímaþátturinn
er svo afstæður í þessum
bransa."
En það eru fleiri en Mezzo-
forte, sem vakið hafa athygli er-
lendis þessa dagana. Þann 8. ág-
úst kemur út tveggja laga plata
með Jóhanni Helgasyni í Eng-
landi. Er þar að finna lagið
„Take Your Tirne", sem varð
vinsælt hér heima í fyrra. Er það
í splunkunýrri útgáfu. Jóhann
kemur fram undir nafninu Joe
Ericson erlendis.
Sjá viðtal við Mezzoforte á
miðopnu.
Patreksfjörður:
„Engar formlegar tillögur
hafa borist frá Svíum“
segir Uffe Ellemann-Jensen um kjarnorku-
vopnalaust svæði á Norðurlöndum
„VIÐ HÖFUM í fyrsta lagi ekki fengið neinar formlegar tillögur frá Svíum,
um kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum, og við getum vitaskuld ekki
tjáð okkur um slíkar tillögur áður en þær berast,“ sagði Uffe Ellemann-
Jensen, utanríkisráðherra Danmerkur, í samtali við Morgunblaðið í gær.
Ráðherrann var spurður hvort
rétt væri að danska ríkisstjórnin
hefði vísað á bug hugmynd
sænsku ríkisstjórnarinnar um að
Norðurlönd yrðu lýst kjarnorku-
vopnalaust svæði frá áramótum
1984—85. Frétt þessa efnis var
lesin í útvarpsfréttum í gærkvöldi.
Uffe Ellemann-Jensen sagði að
hér væri lýst mjög stuttaralega
því sem hann hefði sagt í viðtali
við Svenska Dagbladet fyrir
nokkrum dögum. Blaðið hefði bor-
ið undir sig spurningu framan-
greinds efnis og hann hefði svarað
henni á þá leið að engar formlegar
tillögur hefðu borist frá Svíum.
Hann hafi þá verið inntur álits á
lausafregnum um efni slíkra til-
lagna og sagðist hann þá hafa sagt
að sér virtist sem þær væru
óraunsæjar. „Okkar afstaða er og
hefur verið sú, að þessi mál beri að
skoða í samhengi við öryggismál
allrar Evrópu og, hvað okkur
varðar, einnig með hliðsjón af
stefnu Atlantshafsbandalagsins,
þar sem við erum aðilar að banda-
laginu. Við höfum gert Svíum
grein fyrir þessari afstöðu okkar
og þeim er hún kunnug," sagði
Uffe Ellemann-Jensen ennfremur.
í gærkvöldi bauð utanríkisráð-
herrann gestgjöfum sínum til
kvöldverðar í danska sendiráðinu
og var það síðasti liður opinberrar
heimsóknar hans hingað til lands,
en hann heldur heimleiðis síðdegis
í dag. „Þetta er í fyrsta skipti sem
ég kem til íslands og ég hef hrifist
mjög af landinu og þjóðinni. Dvöl-
in hér hefur í einu orði verið dá-
samleg," sagði Uffe Ellemann-
Jensen þegar hann var spurður
Reyna að ná
Sermelik
af hafsbotni
KAFARARNIK tveir á Patreksfirði
sem keyptu flak grænlenska rækju-
togarans Sermelik, sem liggur á
hafsbotninum skammt út af mynni
Patreksfjarðar, eru að undirbúa
björgun hans.
Ásgeir Einarsson, annar kafar-
anna, sagði í samtali við Mbl. í
gær, að ætlun þeirra væri að fara
út að flakinu á hraðbát um eða
eftir helgina til að kafa niður að
honum og kanna aðstæður. Siðan
væri fyrirhugað að fara fljótlega á
stærri bát og kafa eftir ýmsum
lausum hlutum til að létta hann,
en Ásgeir sagðist ekki vita fyrir
víst hvenær ráðist yrði í að hífa
sjálft skipið upp.
Veður hefur hamlað því í sumar
að hægt hafi verið að fást við skip-
ið, að sögn Ásgeirs, en það liggur
að því er virðist óskemmt á sand-
botni eina og hálfa mílu utan við
mynni Patreksfjarðar, en þar er
einmitt straumröst sem gerir
verkið erfiðara en ella. Togarinn
er 52 metrar að lengd og sökk fyrir
rúmum tveimur árum. Ásgeir
sagði einnig að þeir hefðu aflað
tilboða í belgi sem þeir hygðust
nota til að lyfta togaranum á flot,
Einar hlaut við-
urkenningu fyrir
bestan árangur
EINAR Vilhjálmsson spjótkastari
fékk í gær viðurkennngu fyrir best-
an árangur Norðurlandabúa á frjáls-
íþróttamótinu í Stokkhólmi en hann
kastaði spjótinu 90,66 m og sigraði
glæsilega eins og sagt var frá í gær.
Þetta kast Einars er að sjálf-
sögðu glæsilegt íslandsmet en
hann stefnir á að ná enn betri ár-
angri á næstunni. Einar sigraði á
þessu móti sjálfan heimsmeistar-
ann Petronoff, en hann varð að
láta sér lynda þriðja sæti.
Uffe Ellemann-Jensen
um ferðalag hans hingað til lands.
Hann bætti því við í gamansömum
tón, að sér væri óskiljanlegt
hvernig hann hefði getað, áður en
hann kom hingað, haft afskipti af
málum tengdum fslandi án þess
að hafa haft minnstu hugmynd
um hvernig hákarlar væru á
bragðið!
I en þeir hefðu reynst of dýrir og
myndu þeir því nota það ráð að
hífa hann upp með björgunar-
| pramma.
Verslunar-
mannahelgin:
Sólrfkast um
suðaustan-
vert landið
GERT er ráð fyrir suð-vestan-
átt með hlýju og björtu veðri á
norðaustanverðu landinu í
dag og á morgun, en votviðri
hér sunnanlands. Þó gæti
hann hangið þurr hér á suð-
vesturhorni landsins. Á laug-
ardag er gert ráð fyrir norð-
anátt og kólnandi veðri. Raun-
ar er spáð köldu veðri um allt
land á laugardag og sunnudag,
að sögn Magnúsar Jónssonar
veðurfræðings. Norðanáttinni
mun væntanlega fylgja rign-
ingarhraglandi norðanlands,
en létta mun til sunnan- og
suðaustanlands. „Ef ég ætlaði
að eltast við sólina um helgina
þá myndi ég fara á suðaustur-
hluta landsins," sagði Magnús
Jónsson.
Morgunblaðið/ ÓI.K. Mag.
Reykjavík í gær. Ein af fáum
sólskinsstundum sumarsins.
Auglýsendur athugið:
MORGUNBLAÐIÐ kemur
ekki út sunnudaginn 31. júlí
og síðasta tölublað fyrir versl-
unarmannahelgi kemur því út
laugardaginn 30. júlí. Skila-
frestur auglýsinga í það blað
er til kl. 18,1 dag, fimmtudag-
inn 28. júlí. Vegna frídags
verslunarmanna kemur fyrsta
tölublað Morgunblaðsins eftir
helgina út miðvikudaginn 3.
ágúst. Skilafrestur auglýsinga
í það blað er til kl. 11, þriðju-
daginn 2. ágúst.