Morgunblaðið - 07.08.1983, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. ÁGÚST 1983
53
í 5 herbergjum og eldhúsi og
börnin fyrir sunnan,“ segir hún
og bætir við: „Og sit þar sem
fastast."
En hvernig stóð á því að
Hulda gerðist kennari? „Vetur-
inn áður en ég vann á Reykja-
lundi og eftir að Árni veiktist, þá
fór ég að kenna í barnaskólanum
í stundakennslu. Fékk 25 tíma á
viku. Ég hefði svarið fyrir það að
mér mundi þykja svona
skemmtilegt að vera með börn-
um — en ekki við verslunar-
störf," bætir Hulda við sposk.
„Raunar hafði mér þótt gaman
að því að afgreiða, en gat ekki
hugsað mér að sitja á skrifstofu.
En ég komst þokkalega frá
kennslunni, held ég, og fannst
þetta starf mjög áhugavert.
Samt gerðist ég matráðskona í
sjúkraskýlinu eftir að ég kom
heim aftur. Svo sótti ég um
kennslu 1973, en þá komu tveir
réttindakennarar, sem kenndu
þann vetur. Ég leigði þeim íbúð-
ina á móti mér og sjálf var ég
með handavinnukennslu og einn-
ig hjálparkennslu heima, tók pilt
sem þurfti og átti rétt á hjálp.
Én það dugði mér ekki. Þá kom
togarinn til Þingeyrar og ég fór
að skrá bónusinn í frystihúsinu.
Það var nú meiri vinnan. Ég
vann frá kl. 7 á morgnana til
klukkan 7 á kvöldin í frystihús-
inu, var að borða kvöldverð þeg-
ar aðrir voru að fá sér kvöldkaffi
og var svo með uppgjörið á happ-
drættinu á nóttunni. En þetta
var í eina skiptið sem ég hefi
komist í hátekjur, sem kom mér
aldeilis í koll árið eftir, þegar ég
hætti og varð réttindalaus kenn-
ari í 11. launaflokki. Og síðan
1975 hefi ég kennt í barnaskól-
anum.“
Vil umgangast allar
kynslóðir
— Og líkaði það svo vel að þú
ákvaðst að gera það að ævi-
starfi?
„Kennarastarfið er oft erfitt
og krefjandi, en einn góður dag-
ur bætir upp marga daga þegar
lítið virðist miða áfram. Mér
þykir skemmtilegt að kenna. Ég
slitna þá heldur ekki úr tengsl-
um við þann aldursflokk. Svo
leigi ég alltaf piltum á aldri við
krakkana mína, sem verða mitt
heimilisfólk úr því þau eru ann-
ars staðar. Vil hafa í kring um
mig ungt fólk á þeirra aldri. Fólk
á mínum aldri er ekki gjaldgeng-
ir leigjendur hjá mér. Kunningj-
ana hitti ég annars staðar og
þeir koma í heimsókn til mín. En
ég vil heyra önnur sjónarmið en
minnar eigin kynslóðar". Hulda
er aldrei lengi hátíðleg í einu og
nú hlær hún dátt og bætir við:
„Þá fæ ég líka að vera þeim
mamma og get ráðskast með
þá.“
— Ekki er það þó næg skýring
þess að þú lagðir í þetta erfiða
nám?
„Sumarið 1979 fór ég á
stærðfræðinámskeið fyrir kenn-
ara í Reykjavík og var þá í fyrsta
skipti á ævinni í heimavist í Sjó-
mannaskólahúsinu. Var ekki
fyrr heimavistarhæf. Þar frétti
ég að ætti að fara að hefja rétt-
indanám. Eitt kvöldið sló ég því
fram við krakkana mína, hvort
ég ætti ekki bara að sækja um
það. Mig vantaði svolítið upp á
þau 4 ár við kennslu, sem krafist
var, en sérkennslan bætti það
upp. Svo fannst mér þetta vera
fjarstæða og geymdi umsóknar-
eyðublöðin. Loks fyllti ég þau út
og hugsaði með mér að ég mundi
fá nei, og þá gæti ég hætt að
hugsa um þetta. Svarið var já-
kvætt. Ég bæði gladdist og fór að
kvíða fyrir því að byrja aftur
margra ára nám eftir 37 ár og
það í háskóla. Var raunar eins og
Sveinn Dúfa við þetta. Ég þurfti
að taka 2 valgreinar og allar
uppeldisgreinarnar. Valdi mér
yngribarnakennslu og íslensku
og þeim áfanga lauk ég 1981.“
Sprengisandur — Kjölur
Ferðafólk
Erum með ferðir með leiðsögn
um Sprengisand og Kjöl.
Fariö frá Reykjavík noröur Sprengisand og til Akur-
eyrar mánudaga og fimmtudaga kl. 8.00. Frá Akur-
eyri um Kjöl til Reykjavíkur miðvikudaga og laugar-
daga kl. 8.30.
Fariö er á einum degi hvora leið.
Verö aöra leiöina kr. 1.600,00. Báöar leiöir kr.
2.900,00. Innifaliö í veröi er leiðsögn og matur þrisvar
á dag.
Þaulkunnugur fararstjóri. Ferö sem seint gleymist.
Noröurleið
Samkvæmt tilkynningu samgönguráöherra dags. 3.
febrúar 1983 sem birt var í Stjórnartíöindum B 28.
febr. 1983 hefti B5 nr. 37—65 um skipan 40 rás-
anna, vekjum viö athygli á aö eftirtaldar rásir eru
úthlutaöar Félagi farstöðvaeigenda á ístandi: Rás-6
kallrás félagsmanna, rásir 10, 11, 12, 14, 15, 30, 31,
32, 33, 34 og 35 samtalsrásir.
Félaginu er í mun aö skipan ráöherra sé virt hvaö
varöar notkun rásanna, félagsmönnum og öörum
landsmönnum til öryggis og heilla.
Félag farstöðvaeigenda á íslandi.
Landsstjórn.
Bananar Del Monte — Appelsínur Outspan —
56/72/88 Klementínu Menoias — Epli rauð PASM —
Epli rauð Argentína — Epli rauð NZ — Epli rauð Chile
— Epli frönsk Golden — Epli græn Granny Smith ARG
— Sítrónur Outspan — Grapefruit OS — Grapefruit
Ruby Read — Gular melónur HD — Vatnsmelónur
Ítalía — Vínber bli — Vínber græn — Perur Ástralía
— Plómur rauðar — Ferskiur — Nektarínur — Döðlur
— Avocado — Ananas — ferskur — Kókoshnetur.
EGGERT KRISTJANSSON HF
Sundagörðum 4, simi 85300
Bíðið á meðan smurt er
eða skiljið bllinn eftir.
<
2
Látíðsmyrja
bílinn regíulega
Meó því aö láta smyrja bifreióina reglulega, eykur þú þar meó
endingu, jafnframt því sem endursöluverð bifreiðarinnar
verður hærra.
Viö hjá Heklu hf. bjóöum uppá fullkomna smurþjónustu
á öllum tegundum bifreiða í smurstöð okkar.
Líttu viö hjá okkur, næst þegar bifreiðin þarfnast smurningar.
SJÁ NÆSTU SÍÐU