Morgunblaðið - 07.08.1983, Síða 5

Morgunblaðið - 07.08.1983, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. ÁGÚST 1983 53 í 5 herbergjum og eldhúsi og börnin fyrir sunnan,“ segir hún og bætir við: „Og sit þar sem fastast." En hvernig stóð á því að Hulda gerðist kennari? „Vetur- inn áður en ég vann á Reykja- lundi og eftir að Árni veiktist, þá fór ég að kenna í barnaskólanum í stundakennslu. Fékk 25 tíma á viku. Ég hefði svarið fyrir það að mér mundi þykja svona skemmtilegt að vera með börn- um — en ekki við verslunar- störf," bætir Hulda við sposk. „Raunar hafði mér þótt gaman að því að afgreiða, en gat ekki hugsað mér að sitja á skrifstofu. En ég komst þokkalega frá kennslunni, held ég, og fannst þetta starf mjög áhugavert. Samt gerðist ég matráðskona í sjúkraskýlinu eftir að ég kom heim aftur. Svo sótti ég um kennslu 1973, en þá komu tveir réttindakennarar, sem kenndu þann vetur. Ég leigði þeim íbúð- ina á móti mér og sjálf var ég með handavinnukennslu og einn- ig hjálparkennslu heima, tók pilt sem þurfti og átti rétt á hjálp. Én það dugði mér ekki. Þá kom togarinn til Þingeyrar og ég fór að skrá bónusinn í frystihúsinu. Það var nú meiri vinnan. Ég vann frá kl. 7 á morgnana til klukkan 7 á kvöldin í frystihús- inu, var að borða kvöldverð þeg- ar aðrir voru að fá sér kvöldkaffi og var svo með uppgjörið á happ- drættinu á nóttunni. En þetta var í eina skiptið sem ég hefi komist í hátekjur, sem kom mér aldeilis í koll árið eftir, þegar ég hætti og varð réttindalaus kenn- ari í 11. launaflokki. Og síðan 1975 hefi ég kennt í barnaskól- anum.“ Vil umgangast allar kynslóðir — Og líkaði það svo vel að þú ákvaðst að gera það að ævi- starfi? „Kennarastarfið er oft erfitt og krefjandi, en einn góður dag- ur bætir upp marga daga þegar lítið virðist miða áfram. Mér þykir skemmtilegt að kenna. Ég slitna þá heldur ekki úr tengsl- um við þann aldursflokk. Svo leigi ég alltaf piltum á aldri við krakkana mína, sem verða mitt heimilisfólk úr því þau eru ann- ars staðar. Vil hafa í kring um mig ungt fólk á þeirra aldri. Fólk á mínum aldri er ekki gjaldgeng- ir leigjendur hjá mér. Kunningj- ana hitti ég annars staðar og þeir koma í heimsókn til mín. En ég vil heyra önnur sjónarmið en minnar eigin kynslóðar". Hulda er aldrei lengi hátíðleg í einu og nú hlær hún dátt og bætir við: „Þá fæ ég líka að vera þeim mamma og get ráðskast með þá.“ — Ekki er það þó næg skýring þess að þú lagðir í þetta erfiða nám? „Sumarið 1979 fór ég á stærðfræðinámskeið fyrir kenn- ara í Reykjavík og var þá í fyrsta skipti á ævinni í heimavist í Sjó- mannaskólahúsinu. Var ekki fyrr heimavistarhæf. Þar frétti ég að ætti að fara að hefja rétt- indanám. Eitt kvöldið sló ég því fram við krakkana mína, hvort ég ætti ekki bara að sækja um það. Mig vantaði svolítið upp á þau 4 ár við kennslu, sem krafist var, en sérkennslan bætti það upp. Svo fannst mér þetta vera fjarstæða og geymdi umsóknar- eyðublöðin. Loks fyllti ég þau út og hugsaði með mér að ég mundi fá nei, og þá gæti ég hætt að hugsa um þetta. Svarið var já- kvætt. Ég bæði gladdist og fór að kvíða fyrir því að byrja aftur margra ára nám eftir 37 ár og það í háskóla. Var raunar eins og Sveinn Dúfa við þetta. Ég þurfti að taka 2 valgreinar og allar uppeldisgreinarnar. Valdi mér yngribarnakennslu og íslensku og þeim áfanga lauk ég 1981.“ Sprengisandur — Kjölur Ferðafólk Erum með ferðir með leiðsögn um Sprengisand og Kjöl. Fariö frá Reykjavík noröur Sprengisand og til Akur- eyrar mánudaga og fimmtudaga kl. 8.00. Frá Akur- eyri um Kjöl til Reykjavíkur miðvikudaga og laugar- daga kl. 8.30. Fariö er á einum degi hvora leið. Verö aöra leiöina kr. 1.600,00. Báöar leiöir kr. 2.900,00. Innifaliö í veröi er leiðsögn og matur þrisvar á dag. Þaulkunnugur fararstjóri. Ferö sem seint gleymist. Noröurleið Samkvæmt tilkynningu samgönguráöherra dags. 3. febrúar 1983 sem birt var í Stjórnartíöindum B 28. febr. 1983 hefti B5 nr. 37—65 um skipan 40 rás- anna, vekjum viö athygli á aö eftirtaldar rásir eru úthlutaöar Félagi farstöðvaeigenda á ístandi: Rás-6 kallrás félagsmanna, rásir 10, 11, 12, 14, 15, 30, 31, 32, 33, 34 og 35 samtalsrásir. Félaginu er í mun aö skipan ráöherra sé virt hvaö varöar notkun rásanna, félagsmönnum og öörum landsmönnum til öryggis og heilla. Félag farstöðvaeigenda á íslandi. Landsstjórn. Bananar Del Monte — Appelsínur Outspan — 56/72/88 Klementínu Menoias — Epli rauð PASM — Epli rauð Argentína — Epli rauð NZ — Epli rauð Chile — Epli frönsk Golden — Epli græn Granny Smith ARG — Sítrónur Outspan — Grapefruit OS — Grapefruit Ruby Read — Gular melónur HD — Vatnsmelónur Ítalía — Vínber bli — Vínber græn — Perur Ástralía — Plómur rauðar — Ferskiur — Nektarínur — Döðlur — Avocado — Ananas — ferskur — Kókoshnetur. EGGERT KRISTJANSSON HF Sundagörðum 4, simi 85300 Bíðið á meðan smurt er eða skiljið bllinn eftir. < 2 Látíðsmyrja bílinn regíulega Meó því aö láta smyrja bifreióina reglulega, eykur þú þar meó endingu, jafnframt því sem endursöluverð bifreiðarinnar verður hærra. Viö hjá Heklu hf. bjóöum uppá fullkomna smurþjónustu á öllum tegundum bifreiða í smurstöð okkar. Líttu viö hjá okkur, næst þegar bifreiðin þarfnast smurningar. SJÁ NÆSTU SÍÐU

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.