Morgunblaðið - 07.08.1983, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. ÁGÚST 1983
61
í Bandaríkjunum eru framin 400 morð í hverri viku ...
Yfirgnæfandi meirihluti fólks styður dauðarefsinguna
- REFSINGAR
■ RAUÐA-KÍNA
Oreigarnir eru
farnir að
Til er bóndi nokkur í Kanton í
Kína, sem á þrjú hús, eitt fyrir
sjálfan sig, eitt fyrir konu sína og
dóttur og eitt leigir hann út. Hann
fer ferða sinna í eigin bíl og á
stundum í dálitlum útistöðum við
verkamcnnina, sem vinna á býlinu
hans: „l»að linnir aldrei kaupkröf-
unum hjá þeim,“ segir hann.
„Hann er mjög framfarasinn-
aður, finnst ykkur ekki?“ sagði
embættismaður kommúnista-
flokksins á staðnum þegar hann
hafði hlýtt á sögu bóndans með
ánægjublik í augum og skoðað
japanska sjónvarpstækið hans,
kasettutækið og kíkinn.
Fyrir nokkrum árum hefði
svona saga hljómað eins og
hvert annað guðlast í eyrum
Kínverja. Leigt vinnuafl var þá
samnefnari alls hins illa, sem
viðgekkst áður en kommúnistar
komust til valda, og eftirsókn
nýríka bóndans eftir þessa
heims gæðum hefði í besta falli
borgað fyrir hann farið út í
villta vestrið þeirra í Kína þar
sem hann hefði verið látinn
strita við grjótbrot. Dagar Maós
formanns eru hins vegar liðnir
undir lok og nú er dagskipunin
þessi: „Verðið rík“.
í Kína eru nú tugir þúsunda
ríkra bænda. Blöðin segja frá því
í smáatriðum hvernig þeir fóru
að því að auðgast — af snáka-
rækt, andarækt, ræktun fáséðra
lækningajurta — og hvernig þeir
ausa út peningunum á báðar
hendur. Ekki þykir lengur taka
því að minnast á reiðhjól og
tölvuúr, nú er það einkabíllinn,
Það, sem skiptir þó kannski
mestu, er, að í Bandaríkjunum eru
framin 400 morð í hverri viku, þar
af 40, sem segja má um, að séu
gerð í „glæpsamlegum tilgangi",
og þótt einn maður yrði líflátinn á
hverjum virkum degi myndi það
hvergi hrökkva til að fyrirkoma
öllum morðingjunum.
Bandarískur almenningur hefur
hins vegar engan áhuga á þessari
hlið mála. Yfirgnæfandi meiri-
hluti fólks styður dauðarefsing-
una, öfugt við það, sem var fyrir
20 árum, og menn eru fyrir löngu
hættir að deila um það hvort
dauðarefsingin hafi í raun nokkur
áhrif á glæpatíðnina. Henry
Schwarzschild, formaður þeirrar
nefndar bandarísku mannrétt-
indasamtakanna, sem fjallar um
dauðarefsingar, segir, að nú vaki
það eitt fyrir fólki að koma fram
hefndum. „Óþverri á borð við
Barefoot á það skilið að verða
drepinn," segja nú flestir.
Schwarzchild og margir aðrir
halda því fram, að ef Bandaríkja-
menn vilji í raun fækka morðun-
um í landinu þá væri þeim nær að
beita sér fyrir auknu eftirliti með
skammbyssum og öðrum vopnum.
Það sé fyrst og fremst auðveldur
aðgangur að banvænum vopnum,
ekki aftaka nokkurra morðingja,
sem geri Bandaríkin að jafn
hættulegum stað og raun ber
vitni.
- ROBERT CHESSHYRE
berast á
sem allt snýst um. Kennimenn
kommúnismans hafa líka lagt
blessun sína yfir bílismann, í rit-
um Marx og Engles er nefnilega
hvergi staf að finna, sem mælir
honum í mót.
Frá Guangdong í suðri til
Sichuan í vestri og handan fjall-
anna í Tíbet flykkist fólk á
„frjalsu markaðina" þar sem
verðlagningin er að mestu eftir-
litslaus og lítið fylgst með því,
sem selt er. Þessir markaðir sjá
nú Kínverjum fyrir þeim mat og
þeirri vöru, sem opinbera kerfið
var ófært um að útvega, og yfir-
völdin skora líka beinlínis á
bændurna að taka þátt í þessari
starfsemi.
Á dögum Maós voru frjálsu
markaðirnir taldir hættuleg
ógnun við kommúnurnar en nú
er um þær sagt, að þær séu ein
af mörgum og „skeliflegum mis-
tökum" formannsins. Víða hafa
þær verið lagðar niður og
samvinnufélög stofnuð í þeirra
stað, nokkur hópur manna eða
jafnvel fjölskyldur, sem standa
stjórnvöldum skil á ákveðinni
framleiðslu en hirða síðan af-
raksturinn af því, sem umfram
er.
Það er einmitt rétturinn til
umframframleiðslunnar, sem
hefur glætt framtakið meðal
kínverskra bænda og tekjur
þeirra hafa líka stóraukist á síð-
ustu þremur árum. Bændurnir
hrósa þó ekki aðeins sigri yfir
þeirri þráhyggju Maós, að allir
skuli vera jafnir, og yfir andúð
hans á frjálsu framtaki. Þótt
flokkurinn leggi höfuðáherslu á,
að hjón eigi aðeins eitt barn, er
það látið viðgangast óátalið, að
bændafólkið eigi tvö.
Hætt er þó við, að þetta geri
að engu þá stefnu kínversku
stjórnarinnar að fækka mann-
fólkinu í landinu um 300 milljón-
ir manna á 60—70 árum og
minnkar einnig líkurnar á að
takast megi að fjórfalda fram-
leiðsluna fram til áramóta.
— JONATHAN MIRSKY
LITIR: GULT — RAUTT — SVART — BRÚNT
Sérstakt kynningarverö
[h]hekia HF y
NYIR
VALKOSTIR
með Atlantik og Eddu
HAMBORG
17. ágúst — 2 vikur
1 vika sigling með Ws EDDU — 1 vika gisting
í Hamborg m/morgunmat.
Verð
M 14.360.-
Verð
13.720.
SKOTLAND
24. ágúst — 2 vikur
Rútuferð um „Lake Distict" upp til Invemess
í Skotlandi 5 daga sigling með M'fe EDDU —
9 daga rútuferð með íslenskri rútu. Gisting
á viðkomustöðum með hálfu fæði.
31. ágúst - 2 vikur
5 daga sigling með M/s EDDU - 9 daga
gisting með morgunmat, þar af 7 í London.
LONDON
Verð kr.:
15.800.-
GOLFí
SKOTLANDI
14. september - 1 vika
3ja daga sigling með M4 EDDU - 4 daga
gisting með hálfu fæði í Skotlandi.
„Greenfee" allan tímann. Flogið tilbaka frá
Glasgow.
Mtdivm
Ferðaskrifstofa. Iðnaðarhusinu. Hallveigarstig 1 simar 28388 og 28580