Morgunblaðið - 02.09.1983, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1983
3
Okumenn aka of hratt
í nágrenni skólanna
Rætt við Lúðvík Eiðsson lögreglumann, sem að undanförnu
hefur unnið við hraðamælingar í nágrenni skólanna
„ÞAÐ LÍÐUR aldrei
sá dagur, að ökumenn
aki ekki alltof hratt í
nágrenni skólanna.
Yfirleitt er um að
ræða fólk, sem býr í
nágrenninu og á börn
í grunnskóla. Við höf-
um stöðvað þá öku-
menn, sem hafa ekið
of hratt og rætt við þá
um þær hættur sem af
of hröðum akstri stafi.
Þeir sem hafa ekið
alltof hratt hafa verið
kærðir. Ökumenn
hafa undantekningar-
laust tekið ábending-
um mjög vel,“ sagði
Lúðvík Eiðsson, lög-
reglumaður, en hann
hefur að undanförnu
unnið að hraðamæl-
ingum við grunnskóla
borgarinnar.
„Við höfum mælt
meðalhraða öku-
tækja. Þó flestir aki
gætilega þá eru
alltaf til undantekn-
ingar; ökumenn sem
aka á um 70 kíló-
metra hraða og það
gefur auga leið hvað
slíkur akstur getur
haft í för með sér.
Ökumenn hafa nán-
ast undantekn-
ingarlaust sagt að
þeir hafi ekki áttað
sig á hraðanum; að
um hugsunarleysi
hafi verið að ræða.
Við munum halda
áfram að mæla
hraða ökutækja við
skóla borgarinnar
næstu vikur. Þús-
undir barna streyma
nú í skólana og því
brýnt að. ná niður
ökuhraða í nágrenni
þeirra," sagði Lúðvík
Eiðsson.
MorjfunblaöiðJúlíus.
Lögreglumenn vinna að radarmælingum á Sogavegi í gær.
Foreldrar komu að máli við lögregluna þegar bfll valt í Eskihlíð og lýstu þeirri skoðun sinni, að ökuhraði væri
alltof mikill um götuna. Skömmu áður en bifreiðin valt höfðu börn verið að leik einmitt við Ijósastaurinn.
Fimm umferðarslys í
gær — 5 í slysadeild
FIMM umferðarslys urðu í gærdag
og voru flmm manns fluttir í slysa-
deild. í engu tilvikanna slasaðist
fólk alvarlega. Þrettán ára gömul
stúlka varð fyrir bifreið á Suður-
landsbraut fyrir framan húsið
númer 32. Stúlkan raun hafa
hlaupiö út á götuna og varð fyrir
bifreið, sem ekið var i austurátt.
Hún mun ekki hafa slasast alvar-
lega.
í Eskihlíð valt Volkswagen-
bifreið. Bifreið mun hafa verið
ekið í veg fyrir Volkswagen-bif-
reiðina. Ökumaðurinn sveigði
frá en ekki tókst betur til en svo,
að bifreiðin valt á ljósastaur.
Ökumaðurinn var fluttur í slysa-
deild.
Skömmu áður en slysið átti
sér stað, voru börn að leik ein-
mitt á þeim stað þar sem bifreið-
in valt. Ibúar í nágrenninu
kvörtuðu sáran yfir of hröðum
akstri í Eskihlíðinni við lögregl-
una. Að undanförnu hefur lög-
reglan mælt ökuhraða í Eski-
hlíðinni, sem og við aðra skóla í
borginni.
Rétt um kiukkan ]6 ‘ gærdag
varð enn eitt slysið. Fimm ára
gamalt barn datt út úr bifreið,
sem ekið var eftir Tryggvagötu.
Afturhurð bifreiðarinnar mun
hafa opnast með þeim afleiðing-
Læknar huga að meiðslum stúlkunnar, sem varð fyrir binCÍ? * Suður-
landsbraut. M;ndir Mbl. Július.
um að barnið datt út og hafnaði
á götunni. Það var flutt í slysa-
deild. Aldrei verður nógsamlega
fyrir fólki brýnt að gæta þess, að
barnalæsingar séu notaðar í bif-
reiðum.
í Kópavogi varð kona fyrir bif-
reið, sem ekið var út úr inn-
keyrslu. Konan skarst á höfði og
var flutt í slysadeild. Slysið varð
upp úr klukkan hálffjögur.
Loks varð árekstur á gatna-
mótum Skeiðarvogs og Suður-
landsbrautar laust eftir klukkan
10 í gærmorgun. ökumaður ann-
arrar bifreiðarinnar var fluttur í
siysadeild, en meiðsli hans munu
ekki talin alvarleg.
KYNNIÐ YKKUR
DAIHATSU gæði
verð — kjör og þjónustu
Daihatsu-umboóiu
Ármúla 23, s. 85870 — 81733.