Morgunblaðið - 02.09.1983, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1983
5
Kynning á afleiðing-
um bráðabirgðalaga
— segir Ásmundur Stefánsson, forseti ASI
„Það cr náttúrlega Ijóst að við erum að reyna að koma á framfæri við lýsingaherferð nú eða hvort þeim
fólk þeim afleiðingum sem bráðabirgðalög ríkisstjórnarinnar hafa. Lögin finnist sjónarmið þeirra ekki
voru sett í vor, eins og allir vita, og þau banna samninga og setja koma fram sem skyldi í fjölmiðl-
kauphækkunum það þröng mörk að kaupmáttur stefnir óðfluga niður á
við. í dag vantar 33—36% upp á að fólk hafí það kaup sem það ætti að
hafa samkvæmt samningum, sem þýðir eins og fram kemur í auglýsing-
unni að fólk sem býr við lágmarkstekjur og ætti að hafa rúmlega 14
þúsund krónur á mánuði í tekjur, verður að sætta sig við 10.500 krónur.
Hjá því fólki vantar því 3500 krónur upp á það kaup sem samningar gera
ráð fyrir,“ sagði Ásmundur Stefánsson, forseti Alþýðusambands Islands,
en auglýsing frá ASÍ og fleiri launþegasamtökum undir yfírskriftinni
„Áskorun til rfkisstjórnarinnar“ birtist í öllum dagblöðunum í gær.
„Þetta ástand er að okkar mati
mjög alvarlegt, bæði það grund-
vallaratriði að lögin taka af okkur
samningsréttinn og hitt, sem ég
var að nefna, að kaupmátturinn
sem afleiðing af þessum lögum,
fellur svo gífurlega að þúsundir
heimila í landinu ramba á barmi
gjaldþrots. Við gerum okkur það
fullkomlega ljóst að ef þessu held-
ur fram, þá hlýtur tekjusamdrátt-
urinn að leiða til samdráttar hjá
fyrirtækjunum einnig, því fyrir-
tækin halda ekki lengi áfram að
framleiða vörur eða veita þjón-
ustu, sem enginn hefur efni á að
kaupa. Við getum því áður en var-
ir verið komin í svipaða stöðu og
þjóðirnar hér í kringum okkur,
sem búa við slíkt atvinnuleysi, en
við megum væntanlega ekkert
okkar til þess hugsa, að slíkt eigi
eftir að koma fyrir hér á landi,"
sagði Ásmundur.
„Það er ljóst að óánægja fólks
vegna bráðabirgðalaganna fer ört
vaxandi. Nýjasta dæmið um það
er ef til vill þessi áhugamannah-
ópur um endurbætur í húsnæð-
ismálum. Þær kröfur sem settar
eru fram, eru í raun mjög svipaðs
eðlis og ASÍ hefur sett fram við
stjórnvöld, eins og fram kemur í
ályktun sem við sendum frá okkur
fyrir skömmu. Ég held að það, að
þessi hópur skuli myndast nú, sem
ég tel mjög af hinu betra, sýni
ótvírætt að þessi lög eru farin að
þrengja þannig að fólki, að þess
megi vænta, að af frumkvæði
fólksins sjálfs spretti upp hópar á
ýmsum sviðum, til þess að reyna
brjóta lögin með einhverjum
hætti á bak aftur," sagði Ásmund-
ur ennfremur.
„Ég held að það sé svolítið mis-
jafnt, ég held að við eigum mjög
undir högg að sækja í Morgun-
blaðinu til dæmis, sem gefur
stjórnarsjónarmiðunum alltaf
nokkuð rýmri uppslátt en okkar,“
sagði Ásmundur aðspurður um
hvers vegna ráðist er í þessa upp-
um.
„Til dæmis birti Morgunblaðið
ekki fréttabréf ASÍ, sem við send-
■ um frá okkur í vor, til þess að gera
grein fyrir hvað í bráðabirgðalög-
unum fælist. Ég skrifaði ritstjór-
um Morgunblaðsins bréf, þegar
þeir höfðu i leiðara yeitst að því,
að ASÍ væri með einfeldningsleg-
an áróður í þessu fréttabréfi, og
óskaði eftir að það yrði birt. Því
var ekki sinnt af hálfu ritstjóra og
bréf mitt ekki birt heldur, ég held
að ég ýki ekki þó ég segi, að Morg-
unblaðið hafi í sumar nokkuð
skýrt sýnt, að það hefur meiri
áhuga á að koma sjónarmiðum
ríkisstjórnarinnar á framfæri, en
þeim sjónarmiðum sem ríkjandi
eru innan verkalýðssamtakanna.
Þetta kemur jafnvel fram í því,
hvaða staður er valinn auglýsing-
unni frá okkur í blaðinu í dag. En
auðvitað er þetta misjafnt eftir
blöðum, sem betur fer.
Ég held einnig að í máli eins og
þessu, geti verið mjög æskilegt að
draga fram atriði skýrt og á ein-
faldan hátt til að minna fólk á
stöðuna og vekja það til umhugs-
unar um hana. Við höfum ekki
gert þetta áður að auglýsa svona í
öllum blöðum, en við treystum því
að það gefi góða raun,“ sagði Ás-
mundur Stefánsson aö lokum.
Nýtt skip afhent
Eimskip í gærdag
AFHENDING nýs stórflutningaskips til Eimskips fór fram í gærdag í Hamborg,
að sögn Þorkels Sigurlaugssonar, forstöðumanns áætlunardeildar Eimskips. Skip-
inu var gefíð nafnið Lagarfoss, en Viggó E. Maack, framkvæmdastjóri tæknisviðs
Eimskips, tók við því.
Samningur um kaup á skipinu var
gerður í mars sl. Skipið var smíðað í
Þýskalandi árið 1977 og hefur um
4.000 tonna burðargetu, en lestar-
rými er 225.000 rúmfet. Lengd m/s
Lagarfoss er 93 metrar og breidd
14,5 metrar. Aðalvél skipsins er af
MAK-gerð og er ganghraði þess 14
mílur á klst. Þá eru á skipinu tveir
15 tonna kranar sem geta lyft 30
tonnum saman.
Skipið er þriðja stærsta skip í eigu
Eimskips á eftir ekjuskipunum m/s
Álafoss og m/s Eyrarfoss. Kaupverð
skipsins er um 100 millj. ísl. kr.
Verkefni skipsins verða aðallega á
sviði stórflutninga; flutninga á sjáv-
arafurðum, byggingavörum og flutn-
ingar fyrir stóriðju, og kemur skipið
til landsins um 10. september nk.
með fullfermi af rafskautum fyrir
Álverksmiðjuna í Straumsvík, og fer
síðan aftur með fullfermi af áli til
Rotterdam.
Nokkrar breytingar verða gerðar á
skipinu sem koma til með að gera
það fjölhæfara í flest verkefni.
Breytingarnar, sem fara fram í
október nk., eru m.a. fólgnar í styrk-
ingu botnsins til sérstakra þunga-
flutninga, lestar skipsins verða gerð-
ar box-laga og einangraðar, auk þess
sem kælivélar verða settar í skipið
til flutnings á saltfiski.
í skipinu er hægt að hafa milliþil-
far sem eykur á hentugleika þess til
að flytja mismunandi farma. I skip-
inu verða og þverskips skiirúm sem
eykur á möguleika þess til að flytja
mismunandi vörutegundir og ná
þannig betri nýtingu í rekstri.
Auk stórflutninga getur skipið
annast gámaflutninga og er skipið
sérstaklega útbúið til slíkra flutn-
inga.
Skipstjóri á Lagarfossi verður
Haukur Dan Þórhallsson og yfirvél-
stjóri Guðfinnur Pétursson.
1 G l II Ll L 1 1 ) 1 r/ El K 1 F/ El Rl 1 /1
til að gera virkilega góð kaup á hinum eina og sanna si
Stor-
UTSOLUMARKAÐI
sem er í HÚSGAGNAHÖLLINNI við Bfldshöfða
Opiö frá kl. 1—7 í dag og á morgun laugardag kl. 10—4
Gullnáma
fyrir þá sem sauma
heima:
Efni, gifurlegt úrval, renni-
lásar, allar stæröir, tvinni,
allir litir.
Barnaföt
é telpur og drengi.
/ ■■
□ VINNUFATNAÐUR FRÁ
BELGJAGERÐINNI
□ JAKKAFÖT
□ STAKIR JAKKAR
□ BUXUR ALLAR STÆRDIR
□ PEYSUR
□ SKYRTUR
□ BOLIR
□ ÚLPUR
□ BLÚSSUR
□ HLJÓMPLÖTUR
□ KASSETTUR
Gullkista:
Eldri vörur og lítið
gallaðar á kr. 100—150
Stakir jakkar
verð kr. 790
Jakkaföt verð kr. 1990,
lítil númer
□ SPORTFATNAÐUR
□ JOGGINGSKÓR
□ ÆFINGAGALLAR
□ T-BOLIR
□ GARDÍNUEFNI
□ STORISEFNI BREIDD
□ 90—270 CM
□ YTRI-GARDÍNUEFNI
□ VELÚR-GARDÍNUEFNI
□ 100% BÓMULLAREFNI
□ ELDHÚSGARDÍNUR
□ TILBÚNAR
□ SÆNGURFATNAÐUR
□ HANDKLÆÐI
□ LOPAPEYSUR
□ LEIKFÖNG
□ GJAFAVÖRUR
Skór — skór
Herraskór Barnaskór
Dömuskór Kuldaskór
SKOLAFOT - HLJOMPLOTUR - KASSETTUR -
M
DAGLEGA KL. 1
Karnabær ☆ Belgjagerðin ☆ Steinar ☆ Hummel ☆
Z-brautir ☆ Gluggatjöld ☆ Skóverslun Axels 0.