Morgunblaðið - 02.09.1983, Page 15

Morgunblaðið - 02.09.1983, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1983 . * wp ' A i® % n JLv ftV & Nýja strengjasveitin Tónlist Egill Friöleifsson Bústaðakirkja 30. ágúst 1983. Stjórnandi: Josef Vlach Efnisskrá: H. Purcell, Svíta Arth- urs konungs W.A. Mozart, Diverti- mento nr. 2 í B-dúr K137 L. Janacek, Svíta B. Britten, Tilbrigði um stef eftir F. Bridge. Nýja strengjasveitin hóf nýtt starfsár með tónleikum í Bú- staðakirkju sl. þriðjudagskvöld. Sveitina skipa um 20 ungir vel- menntaðir fiðlungar. Nýja strengjasveitin á sér ekki langa sögu, en vakti strax athygli fyrir ágætan leik, þó hún hafi tæpast spilað með slíkum ágætum og nú. Að þessu sinni var stjórn- andi tékkneski fiðluleikarinn og hljómsveitarstjórinn Josef Vlach og var auðheyrt að þar fór réttur maður á réttum stað. Þó taktsláttur hans sé á stundum með nokkuð sérstökum hætti, sem bendir til að e.t.v. sé hann vanari að halda á fiðlunni en tónsprotanum, kom það ekki að sök því hann hafði mjög gott vald á hljómsveitinni, sem laut vilja hans í hvívetna. Þegar sam- an fer áhugi ungra hljóðfæra- leikara og ákveðin leiðsögn kunnáttumanns verður árangur- inn góður. Hljómur sveitarinnar var jafn og þéttur og fallegur, og yfir leiknum hvíldi mikil fágun en um leið frískleiki. Tónleikarnir hófust á sex þátta Svítu Arthurs konungs eftir Purcell og langaði mig sér- staklega að minnast á fjórða þáttinn „Song tune“, sem var al- veg sérstaklega fínlega mótaður, og sömuleiðis var rismikill loka- þátturinn leikinn með heilmikl- um tilþrifum. Og ekki átti hljómsveitin heldur í vandræð- um með Divertimento Mozarts. Fyrir mér var forvitnilegasta verk efnisskrárinnar Svíta eftir landa stjórnandans Leos Janac- ek enda var Josef Vlach þar greinilega á heimavelli og þetta fallega verk hljómaði fagurlega í fáguðum flutningi hljómsveitar- innar. Tónleikunum lauk svo með Tilbrigðum Brittens um stef eftir Bridge og hljómaði það einnig mætavel. Á síðustu árum hefur hljómsveitum og kammerhópum ýmiss konar fjölgað mjög hér í höfuðstaðnum og er það vel. Stundum hvarflar þó að manni efasemdir um að allir þessir hópar eigi sérlega langra lífdaga von, því markaðurinn hlýtur að mettast og baráttan um hylli áhorfenda er hörð. Virðist liggja beinast við að álykta sem svo, að þeir haldi velli sem skila nógu góðu verki. Því er á þetta minnst hér að ef Nýja strengjasveitin stendur jafn vel að tónleikum framtíðarinnar og í þetta sinn, þarf hún ekki að bera kvíðboga fyrir tilveru sinni. Þetta var í alla staði vandaður og velheppn- aður konsert. Bárujárn í besta flokki Hljóm- plotur Siguröur Sverrisson Dio Holy Diver Vertigo/ Fálkinn Svo Ronnie James Dio er mætt- ur til leiks á ný. Og þvílíkt og ann- að eins „comeback" hjá kappanum. Holy Diver er án nokkurs vafa besta þungarokksplata þessa árs og þótt leitað væri lengra aftur í tímann. Það er ekki nema um ár frá því Dio sagði skilið við Black Sabbath vegna ágreinings um efni og út- færslur hljómsveitarinnar. Þetta ár hefur þessi stórsnjalli rokk- söngvari nýtt vel. Hann hefur safnað um sig þremur þrælgóðum hljóðfæraleikurum og saman mynda þessir fjórmenningar Dio- sveitin, sem vinnur einkar vel saman. Dio er eðlilega sá, sem mest ber á í þessum kvartett, en hinir eru hreint engir aukvisar: Jimmy Bain á bassa, Vivian Campbell á gítar og Vinnie Appice á trommur. Tvö þessara nafna eru kunnugleg, Bein og Appice. Dio hefur leikið með báðum áður. Með Bain í Rainbow og Appice í Black Sabbath. Campbell er hins vegar aðeins tvítugur og lítt þekktur innan þungarokksheima. Þrátt fyrir ungan aldur kemur hann stórkost- lega á óvart. Leikni hans á köflum er slík að mann undrar. Ekki þarf að leita lengi að góð- um lögum á Holy Diver. Þau eru beinlínis í röðum, einungis mis- munandi frábær. Fyrir minn smekk er þessi plata hreinasta gersemi og ég held að ekki sé út í hött að ætla titillagið Holy Diver besta stykkið. Nokkur önnur koma þar fast á hæla, en ég læt það eiga sig að raða þeim niður. Segja má, að Ronnie James Dio sé í raun loksins orðinn eigin herra eftir margra ára baráttu fyrir stórfrægð og auknum frama. Þrátt fyrir þennan áfanga fellur hann ekki í þá gryfju að láta hljómsveitina þjóna einskonar „back-up“-hlutverki. í Dio hefur hver maður sitt hlutverk og fær að láta hæfileikana njóta sín. Fyrir vikið er þetta hljómsveit, sem hlýtur að skipa sér í fremstu röð innan þungarokksins á skömmum tíma. Ef ekki, er Bleik illa brugðið. 15 Samsýning á Akureyri Bragi Ásgeirsson Fimm ungir myndlistar- menn standa fyrir kynningu á nýbylgjumálverkinu í nýju íþróttahöllinni á Akureyri og lýkur henni næstkomandi sunnudag, 4. september. Allir eru þeir vígðir hinu nýja málverki í bak og fyrir og þó gætir hjá þeim svipaðs misskilnings og skoðana- bræðra þeirra fyrir sunnan. Raunar eru aðeins tveir þeirra Akureyringar, þeir Kristján Steingrímsson og Guðmundur Oddur Magnús- son. Reykvíkingarnir eru Omar Stefánsson og bræðurn- ir Tumi og Pétur Magnússyn- ir. Allir eru hinir ungu menn forframaðir úr hinni svo- nefndu Nýlistardeild Mynd- lista- og handíðaskóla ís- lands en þó án þess að hafa lagt sérstaka rækt við pentskúfinn, — slíkt kom síðar með nýjum straumum að utan. Nefndur misskiln- ingur liggur í því, að málað er beint á tilfallandi efni án tillits til endingargildis. Yf- irleitt mála þeir er ruddu listastefnunni braut einmitt með hinum sigildu efnum olíu, akryl, vatnslitum og þekjulitum og oftast á sígilt efni, svo sem striga eða grunnaðan dúk en á vandað- an pappír með vatnslitunum. Þetta atriði er mikilvægt til athugunar því að sú árátta, að mála á forgengileg efni er, var og verður einung- is lítill hluti myndverka- sköpunar — er þannig ekkert nýtt. Að öðru leyti eru tilþrifin hjá hinum ungu mönnum oft og tíðum hressileg og þeir mála af mikilli linnlifun og sköpunargleði líkt og á að vera ungra manna háttur. Óneitanlega mála jafn ungir menn undir sterkum áhrif- um frá þeim málurum ytra sem helst eru á oddinum en það er ósköp eðlilegt — aðal- atriðið er, að þeir sýna lofs- vert framtak og dugnað og ættu listunnendur á Akur- eyri ekki að láta þessa sýn- ingu fram hjá sér fara þótt ýmsa muni hún hneyksla. Þótti mér rétt og sjálfsagt að geta þessarar sýningar norð- an heiða og mun að auki fljótlega skrifa pistil um áhrif mín af myndlistar- mennt þeirra Akureyringa eins og hún kom mér fyrir sjónir. Kópavogsvöllur í kvöld kl. 18.30. Kópavogsbúar fjölmennið á völlinn, á síðasta heimaleik Breiöabliks í sumar. vmai Þverbrekku 8 Kópavogi - Símar 42040 og 44140 □ D PANEIOINAR HF. Smárahvammi, Kópavogi. Sími 44210.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.