Morgunblaðið - 02.09.1983, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1983
Farþegaþotan sem Rússar skutu niður
„Skotmarkinu
hefiir verið eytt“
— tilkynnti sovézki flugmaðurinn
Skýrsla George P.
Shultz, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna
um atburðarásina
Washington, 1. september. AP.
„SKOTMARKINU hefur verið
eytt.“ Þannig hljódaði tilkynning
sovézka flugmannsins, sem grand-
aói farþegaþotunni frá Suður-Kóreu
á miðvikudag. Skýrði George P.
Shultz, utanríkisráðherra Bandarikj-
anna, frá þessu á fundi með frétta-
mönnum í dag, þar sem hann rakti
atburðarásina, er farþegaþotan var
skotin niður, en hún var þannig:
„Um kl. 16.00 að Greenwich með-
altíma (kl. 16.00 að ísl. tíma) varð
vart við flugvélina á radar Sovét-
manna og fylgdust þeir með henni
frá þeim tíma. Flugvélin villtist af
leið inn í sovézka lofthelgi yfir Kam-
chatka-skaga og yfir Okhotsk-haf og
síðan yfir Sakhalin-eyjar. Sovét-
menn fylgdust með henni í 2Vi
klukkustund. Sovézkur flugmaður
tilkynnti, að hann sæi flugvélina kl.
18.12. Við vitum, að sovézka flugvél-
in var í stöðugu sambandi við stjórn-
turn sinn. Kl. 18.21 var kóreanska
flugvélin í 10.000 metra hæð sam-
kvæmt frásögn sovézka flugmanns-
ins. Kl. 18.26 tilkynnti sovézki flug-
maðurinn, að hann hefði skotið eld-
flaug og að skotmarkinu hefði verið
eytt.
Kl. 18.30 var kóreanska flugvél-
in í 5.000 metra hæð samkvæmt
radartilkynningu og kl. 18.38
hvarf hún af radarskermi. Við vit-
um. að átta sovézkar herþotur að
George Shultz
minnsta kosti fylgdust með far-
þegaflugvélinni á tímabilinu. Sov-
ézki flugmaðurinn, sem skaut
flugvélina niður, tilkynnti á eftir,
að hann hefði skotið eldflaug,
skotmarkinu hefði verið eytt og að
hann væri að fljúga burtu.
Um klukkustundu síðar var sú
fyrirskipun gefin út frá stjórn-
turninum til margra sovézkra leit-
arflugvéla að byrja leitar- og
björgunaraðgerðir í nágrenni þess
staðar, þar sem síðast sást til
kóreönsku flugvélarinnar. Ein
þessara flugvéla tilkynnti, að
fundist hefði olía á yfirborði sjáv-
ar á þessu svæði.
Á miðvikudagskvöld voru emb-
ættismenn bandaríska utanríkis-
ráðuneytisins og þá einkum Ric-
hard Burt, aðstoðarutanríksráð-
herra, í sambandi við sovézka
embættismenn í því skyni að fá
upplýsingar um örlög flugvélar-
innar. Sovétmenn höfðu engar
upplýsingar fram að færa. Strax
og bandarískar heimildir höfðu
verið staðfestar, að flugvélin hefði
verið skotin niður, höfðu Banda-
ríkin fyrir sína hönd og fyrir hönd
Suður-Kóreu samband við sovézka
sendifulltrúann í Washington til
þess að láta í ljós áhyggjur sínar
yfir því, að óvopnuð flugvél með
farþega af mörgum þjóðernum
hefði verið skotin niður. Jafn-
framt kröfðumst við skýringa.
Bandaríkin líta á þessa árás
með viðbjóði. Manntjón virðist
hafa verið mikið. Við fáum ekki
séð neina ástæðu fyrir þessum
hryllilega verknaði."
Shultz var spurður margra
spurninga á þessum fundi með ,
fréttamönnum og þar á meðal,
hvort Sovétmenn hefðu gefið
suður-kóreönsku flugvélinni
nokkra aðvörun, og beðið hana eða
skipað henni að lenda, áður en
þeir skutu hana niður og svaraði
Shultz þá með eftirfarandi orðum:
„Við höfum enga sönnun fyrir
því. Að því er virðist var enginn
möguleiki á sambandi milli flug-
vélanna tveggja. En eins og fram
hefur komið í yfirlýsingu minni,
þá komst sovézka flugvélin, sem
skaut farþegaflugvélina niður, í
sjónfæri við hana, svo að skoða
mátti flugvélina með eigin augum
og sjá þannig, hvað það var, sem
við sjónum blasti."
Su-15-þota (æfingagerð).
Skýringar Rússa
ekki sannfærandi
Moskvu, I, september. AP.
RÚSSAR svöruðu í dag ásökunum
um að þeir hefðu skotið niður
kóreönsku farþegaþotuna með því
að skýra frá því að óþekkt flugvél
hefði tvívegis rofið sovézka loft-
helgi, en þeir hvorki staðfestu né
báru til baka að herþotur þeirra
hefðu grandað farþegaþotunni.
Rússar voru undir síauknum
þrýstingi í allan dag að gefa
skýringu á málinu, en talsmaður
sendiráðs Bandaríkjanna í
Moskvu sagði um frétt Tass um
málið að hún væri „ósannfær-
andi í hæsta rnáta." Þegar annar
stjórnarerindreki var að því
spurður hvort Rússar ættu erfitt
með að gefa skýringu á atburð-
inum sagði hann að það „lægi í
augum uppi“.
Tass-fréttin, sem var birt tæp-
um sólarhring eftir að atburður-
inn gerðist, var svohljóðandi:
„Oþekkt flugvél fór inn í loft-
helgi Sovétríkjanna yfir Kam-
chatka-skaga frá Kyrrahafi og
rauf síðan lofthelgi Sovétríkj-
anna í annað skipti yfir Sakhal-
in-eyju aðfaranótt 1. september.
Flugvélin var ekki með nein sigl-
ingaljós, svaraði ekki fyrir-
spurnum og setti sig ekki í sam-
band við flugumsjónarþjónust-
una.
Orrustuþotur loftvarnarliðs-
ins, sem sendar voru í átt að hin-
um óboðna gesti, reyndu að að-
stoða flugvélina með því að vísa
henni leiðina til næsta flugvall-
ar. En aðkomuflugvélin brást
ekki við merkjagjöfum og við-
vörunum frá sovézku orrustu-
þotunum og hélt flugi sínu
áfram í átt til Japanshafs."
Talsmaður kóreanska flugfé-
lagsins sagði: „Við erum ein-
dregið þeirrar skoðunar að
flugvél okkar hafi villzt af leið.“
Hafi flugvélin villzt yfir Kam-
chatka-skaga og haldið áfram í
suðvestur til Sakhalin-eyju hef-
ur hún verið nokkur hundruð
mílur norðvestur af venjulegri
flugleið frá New York til Seoul.
Er skýringin
ofsóknarótti?
Washington, 1. september. AP.
RÚSSAR hafa miklar áhyggjur af öryggi á þeim slóðum þar
sem kóreanska farþegaþotan var skotin niður og atburdurinn
kann aö hafa stafað af „ofsóknarótta“ þeirra ad sögn tals-
manna bandaríska heraflans í dag.
Sérfræðingar benda á að Rússar
virðist telja Kamchatka-skaga
sérstaklega viðkvæmt svæði því að
þeir skjóti tilraunaeldflaugum inn
á skagann. Þeir benda einnig á að
að Sakhalin-eyja er nálægt megin-
landi Síberíu og að sovézkir eld-
flaugakafbátar séu á sveimi á
Okhotsk-hafi, milli Sakhalin og
Kamchatka.
Pentagon skýrði fyrr í ár frá
verulegri hernaðaruppbyggingu
Rússa á fjórum eyjum, sem þeir
fengu frá Japönum eftir heims-
styrjöldina. Aðalástæðan virðist
hafa verið sú að þeir hafi viljað
tryggja eldflaugakafbátum af
Delta-gerð öruggan griðastað á
Okhotsk-hafi. Með hernaðarupp-
byggingunni ítrekuðu Rússar
einnig þá ætlun sína að halda yfir-
ráðum sínum yfir eyjunum.
Varnarlið Japans greindi frá því
fyrr í þessari viku, að Rússar
hefðu sent rúmlega 10 MIG-23-
þotur til flugvallar á einni eynni,
Etorofu. Þetta var túlkað sem
svar við fyrirætlunum Banda-
ríkjamanna um að koma fyrir
F-16-orrustuþotum á Misana-
flugvelli norðarlega á japönsku
eynni Honshu frá og með næsta
ári.
Þótt öryggi sé Rússum við-
kvæmt mál segjast bandarískir
liðsforingjar ekki skilja árás
þeirra á farþegaþotu, sem engin
ógnun hafi stafað frá. Rússar hafi
haft nægan tíma til að ganga úr
skugga um að hér var um farþega-
þotu að ræða en ekki njósnaþotu.
Fóru Rússar eftir
ströngum reglum?
London, 1. september. AP.
BREZKA stjórnin sagði í dag, að missir suður-kóreönsku
farþegaþotunnar væri „mjög uggvænlegur“ og málið allt
„gersamlega óskiljanlegt". Talsmenn annarra ríkisstjórna í
Evrópu, NATO og flugmálasérfræðingar neituðu að láta í Ijós
álit sitt á atburðinum.
Ritstjóri „Flight International",
David Learmount, sagði í viðtali
við BBC að um tvo möguleika gæti
verið að ræða.
Rússnesku flugmennirnir hafi
„farið eftir bókstafnum" og ekki
notað skynsemina. Vera megi að í
flugstöðvum á svæðinu gildi regl-
ur um að skjóta eigi niður hættu-
legar flugvélar, sem fari inn í
lofthelgina. Þó skyldi ætla að yfir-
maður flugstöðvar gæti beitt
áhrifum sínum ef hann teldi að
flugvélin væri farþegaþota.
Einnig geti verið að orrustuþot-
ur hafi verið sendar á vettvang,
borið kennsl á farþegaþotuna og
síðan farið eftir almennt viður-
kenndum, alþjóðlegum reglum til
þess að koma henni burtu, en far-
þegaþotan ekki farið eftir settum
leikreglum.
„Ef flugvél sem gerist brotleg
fer ekki eftir fyrirmælum orrustu-
þota getur ekkert komið í veg fyrir
að þær skjóti hana niður,“ sagði
Learmount.