Morgunblaðið - 02.09.1983, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1983
23
Gíftirleg reiði í
Bandaríkiunum
WjLshineton, l..sept. AP.
Wa.shington, l..sept. AP.
GÍFURLEG reiði einkenndi við-
brögð bandarískra þingmanna við
ásökununum um að Rússar hefðu
skotið niður suður-kóreanska far-
þegaþotu með 269 manns innan-
borðs. ,,Smánarlegt,“ „hryllilegt,“
„ámælisvert" voru nokkur þau lýs-
ingarorð sem þeir notuðu.
Forseti fulltrúadeildarinnar,
Thomas P. O’Neill, kallaði atburð-
inn „ótrúlega villimannlegan
verknað."
„Sómakært fólk um allan heim
mun ekki gleyma þessum loft-
hryðjuverkum eða afsaka þau.
Bandaríska þjóðin eða þingkjörnir
fulltrúar hennar munu vissulega
ekki vísa þessu máli frá sér. Út-
skýringar og afsakanir munu ekki
nægja. Það eina sem dugir er bein
ráðstöfun forystu Sovétríkjanna
til þess að koma í veg fyrir að
harmleikur sem þessi endurtaki
sig,“ sagði hann.
Patrick J. Leahy, öldungadeild-
arþingmaður repúblikana, sagði:
„allur heimurinn yrði að fordæma
Thomas P. O’Neill
þetta svívirðilega brot á alþjóða-
lögurn."
Howard M. Metzenbaum, öld-
ungadeildarþingmaður demó-
krata, sagði, að ef Rússar hefðu
grandað þotunni, myndi það hafa
mjög neikvæð áhrif á viðræðurnar
um takmörkun kjarnorkuvígbún-
aðar og öll samskiptin við Rússa.
Hann sagði að viðræður sem hann
og fleiri öldungadeildarþingmenn
hefðu átt við Yuri Andropov í
Moskvu hefðu vakið vonir um að
síðustu tillögur Andropovs gætu
komið skriði á samningaviðræður
Rússa og Bandaríkjamanna, en nú
væri margt sem Rússar yrðu að
útskýra.
Robert Byrd, leiðtogi demókrata
í öldungadeildinni, lagði til að
kornsölusamningnum við Rússa
yrði sagt upp, þótt það kæmi niður
á bandarískum neytendum. Hann
sagði að engin skýring gæti verið
til á því að óvopnuð farþegaflugvél
hefði verið skotin niður.
Henry Kissinger, fyrrum utan-
ríkisráðherra, kvað Rússa hafa
gert sig seka um „svívirðilegan,
ófyrirgefanlegan verknað." Verkn-
aður Rússa kallaði á „heilmiklar
útskýringar".
MIG-23-þota eins og þær sem eltu kóreönsku farþegaþotuna.
Sams konar atburður 1978:
Þá fórust tveir far-
þegar og tíu særðust
New York, 1. september. AP.
ÞAÐ hefur gerzt áður, að farþegavél
frá Suður-Kóreu hafi villzt af leið og
þá orðið fyrir árás sovézkrar her-
flugvélar. Hinn 20. aprfl 1978 réðst
sovésk herþota af gerðinni MIG á
farþegaþotu frá Suður-Kóreu með
110 manns um borð og neyddi hana
til þess að nauðlenda á ísilögðu
stöðuvatni í grennd við Murmansk.
Tveir farþeganna biðu bana.
Kóreanska farþegaþotan hafði
villzt inn í sovézka lofthelgi og
flogið yfir sovézku landsvæði f
nær tvær klukkustundir, er hún
var í farþegaflugi frá París til
Seoul yfir norðurpólinn með við-
komu í Anchorage í Alaska. Auk
þeirra tveggja farþega, sem biðu
bana, særðust 10 manns, er sov-
ézka herþotan flaug í veg fyrir
farþegavélina og skaut á hana
með þeim afleiðingum, að gat kom
á skrokk hennar.
„Sovézk flugvél er að skjóta á
okkur vinstra megin, einn Kóreu-
maður er dáinn og annar maður,
japanskur, er alvarlega særður ...
og við föllum niður, niður, niður."
Þannig skrifaði óttasleginn far-
þegi, frú Seiko Shiozake, í dagbók
sína, er þessi atburður gerðist.
Farþegavélin féjl úr 35.000 feta
hæð niður í 3.000 fet á fáeinum
mínútum og lenti að lokum á ísi-
lögðu stöðuvatni, eins og að fram-
an segir.
Þar sem Suður-Kórea hafði ekki
stjórnmálasamband við Sovétrík-
in, sáu Bandaríkjamenn um samn-
inga við Rússa og tókst eftir tvo
daga að fá leysta úr haldi 106
manns og fengu einnig afhent lík
þeirra tveggja sem fórust. Far-
þegaþota frá Pan Am sótti síðan
fólkið til Murmansk og flaug með
það til Helsingfors í Finnlandi.
Rússar höfðu hins vegar flugstjór-
ann og loftsiglingafræðinginn í
haldi eina viku til viðbótar.
Flugstjórinn sagði síðar, að
hann hefði villzt um 1600 km af
leið sökum bilunar í loftsiglinga-
tæki. Sovézka fréttastofan TASS
hélt því fram, að flugstjórinn
hefði ekki sinnt fyrirmælum sov-
ézku herþotunnar um að lenda.
Héldu Rússar því fram, að allt
hefði verið gert til þess að gefa
flugstjóra farþegavélarinnar
merki um að lenda, þegar hún
flaug inn yfir sovézkt landsvæði.
En aðstoðarflugstjóri hennar hélt
því fram, að þeir hefðu aldrei
fengið neina aðvörun.
Fylgst með afdrif-
um þotunnar í radar
Radarstöð í Japan, sem er mönnuð bandarískum hermönnum, hefur án efa
rakið feril kóreönsku júmbó-þotunnar allt til eyðingu hennar, og það er eins
víst að bandarískir leyniþjónustumenn hafi hlustað á samtal sovésku her-
mannanna, sem skutu þotuna niður, að sögn heryfirvalda.
Radarnum, sem staðsettur er á
Misawa-flugvellinum nálægt
nyrsta tanga japönsku eyjarinnar
Honshu, er án undantekninga
beint að vígi Sovétmanna við
Sakhalin, 1367 km norður af
Tokyo, og öðrum sovéskum her-
virkjum á því svæði. Að því er
starfsmaður bandaríska hermála-
ráðuneytisins segir, flýgur ekkert
yfir eða nálægt Shakhalin sem
þeir fylgjast ekki með.
Bandaríkjamenn hafa eftirlits-
flug á þessu svæði 24 tíma á sól-
arhring og hefði eftirlitsvélin get-
að fylgst með þegar vélin var skot-
in niður.
Veður
víða um heim
Akureyri 6 alskýjsð
Amsterdam 22 skýjaó
Aþena 30 heióskfrt
Barcelona 28 rignfng
Berlín 27 heióskfrt
BrUeeet 24 rigning
Buenoe Aíree 10 rigning
Chicago 27 skýjaó
Dyflinm 20 heióeklrt
Feneyjar 27 þokumóóa
Frankfurt 29 skýjaó
Faereyjar 12 skýjaó
Genf 27 skýjaó
Helsinki 19 heióskfrt
Jerúsalem 34 heióskirt
Jóhannesarborg 22 heióskfrt
Las Palmas 25 lóttskýjaó
Lissabon 25 ekýjaó
London 21 skýjaó
Los Angeles 33 skýjaó
Madrid 31 rigning
Malaga 26 lóttakýjaó
Mallorka 26 ekýjaó
Miami 31 skýjaó
Moskva 20 heióskfrt
New York 26 heióskirt
Osló 13 skýjaó
Parfs 29 skýjaó
Reykjavik 8 lóttskýjaó
Róm 31 haióakirt
San Fransisco 24 rigning
Stokkhólmur 24 haióakirt
Tókýó 29 rigning
Vancouver 22 skýjaó
Vfn 25 heíóskfrt
Grænlandsjökull:
Lík ítal-
anna fundin
Kaupmannahöfn l.september AP.
ÍTÖLSK björgunarsveit hef-
ur fundiö lík þriggja ítalskra
fjallgöngumanna sem týnd-
ust á Grænlandsjökli 10.
ágúst síðastliöinn. Hefur
þeirra verið leitaö síðan.
Ekki hafði þó tekist að kom-
ast að líkunum, en menn
hafa gert sér grein fyrir því
hvað aflaga fór hjá fjalla-
köppunum.
Felici Maggia, talsmaður ítalska
sendiráðsins í Kaupmannahöfn,
sagði í gær, að það hefði reynst
útilokað að komast að líkunum
vegna slæmra aðstæðna. Hann
sagði þó, að eitt líkið væri sýnilegt
úr lofti og væri það hálfhulið snjó
skammt frá jökulsprungu. Er kað-
all þar sem liggur ofan í sprung-
una. Virðist ljóst, að annar hinna
hafi fallið í sprunguna og dregið
þann þriðja með sér, eða að báðir
hafi fallið. Óljóst er þó hvort að sá
sem ekki liggur í sprungunni féll í
hana og komst upp úr aftur, eða
hvort hann gat ekki losað sig frá
taumnum eftir að félagar hans
höfðu horfið í sprunguna.
Mennirnir áttu aðeins 50 metra
eftir ófarna á efsta tind „Hvíta
turnsins", jökultinds sem gnæfir
2.100 metra upp í loftið. Björgun-
arsveitarmennirnir hafa fleygt
fram þeirri kenningu, að krapi
hafi gert mannbrodda eins fjall-
göngumannsins óvirka, hann hafi
því runnið til með fyrrgreindum
afleiðingum.
ISESjTiUN
AMERÍKA
PORTSMOUTH/
NORFOLK
Bakkafoss
City of Harflepool
Bakkafoss
City of Hartlepool
NEW YORK
Bakkafoss
City of Hartlepool
Bakkafoss
City of Hartlepool
HALIFAX
City of Hartlepool
City of Hartlepool
BRETLAND/
MEGINLAND
■MMINGHAM
Álafoss
Eyrarfoss
Álafoss
Eyrarfoss
FELIXSTOWE
Álafoss
Eyrarfoss
Álafoss
Eyrarfoss
ANTWERPEN
Álafoss
Eyrarfoss
Álafoss
Eyrarfoss
ROTTERDAM
Álafoss
Eyrarfoss
Álafoss
Eyrarfoss
HAMBORG
Álafoss
Eyrarfoss
Álafoss
Eyrarfoss
WESTON POINT
Helgey
Helgey
Helgey
LISSABON
Skeiðsfoss
Skeiösfoss
LEIXOES
Skeiðsfoss
Skeiðsfoss
BILBAO
Skeiösfoss
Skeiösfoss
NORÐURLÖND/
EYSTRASALT
4. sept.
13. sept.
23. sept.
4. okt.
3. sept.
12. sept.
22. sept.
3. okt.
15. sept.
7. okt.
4. sept.
11. sept.
18. sept.
25. sept.
5. sept.
12. sept.
19. sept.
26. sept.
6. sept.
13. sept.
20. sept.
27. sept.
7. sept.
14. sept.
21. sept.
28. sept.
8. sept.
15. sept.
22. sept.
29. sept.
3. sept.
14. sept.
27. sept.
21. sept.
17. okt.
18. sept.
18. okt.
23. sept.
13. okt.
BERGEN
Dettifoss 2. sept.
Mánafoss 9. sepf.
Dettifoss 16. sept.
KRISTIANSAND
Dettifoss 5. sept.
Mánafoss 12. sept.
Deetitoss 19. sept.
MOSS
Dettifoss 2. sept.
Mánafoss 13. sept.
Dettifoss 16. sept.
HORSENS
Dettifoss 7. sept.
Dettifoss 21. sept.
GAUTABORG
Dettifoss 7. sept.
Mánafoss 14. sept.
Dettitoss 21. sept.
KAUPMANNAHÖFN
Dettifoss 8. sept.
Mánafoss 15. sept.
Dettifoss 22. sept.
HELSINGJABORG
Dettifoss 9. sept.
Mánafoss 16. sept.
Dettifoss 23. sept.
HELSINKI
Irafoss 19. sept.
irafoss 17. okt.
GDYNIA
írafoss 21. sept.
19. okt.
17. sept
irafoss
ÞÓRSHÖFN
Dettifoss
VIKULEGAR
STRANDSIGLINGAR
-fram ogtil baka
frá REYKJAVÍK
alla mánudaga
frá ÍSAFIRÐI
alla þriðjudaga
frá AKUREYRI
allafimmtudaga
ERLENT,
EIMSKIP
*