Morgunblaðið - 02.09.1983, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 02.09.1983, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1983 23 Gíftirleg reiði í Bandaríkiunum WjLshineton, l..sept. AP. Wa.shington, l..sept. AP. GÍFURLEG reiði einkenndi við- brögð bandarískra þingmanna við ásökununum um að Rússar hefðu skotið niður suður-kóreanska far- þegaþotu með 269 manns innan- borðs. ,,Smánarlegt,“ „hryllilegt,“ „ámælisvert" voru nokkur þau lýs- ingarorð sem þeir notuðu. Forseti fulltrúadeildarinnar, Thomas P. O’Neill, kallaði atburð- inn „ótrúlega villimannlegan verknað." „Sómakært fólk um allan heim mun ekki gleyma þessum loft- hryðjuverkum eða afsaka þau. Bandaríska þjóðin eða þingkjörnir fulltrúar hennar munu vissulega ekki vísa þessu máli frá sér. Út- skýringar og afsakanir munu ekki nægja. Það eina sem dugir er bein ráðstöfun forystu Sovétríkjanna til þess að koma í veg fyrir að harmleikur sem þessi endurtaki sig,“ sagði hann. Patrick J. Leahy, öldungadeild- arþingmaður repúblikana, sagði: „allur heimurinn yrði að fordæma Thomas P. O’Neill þetta svívirðilega brot á alþjóða- lögurn." Howard M. Metzenbaum, öld- ungadeildarþingmaður demó- krata, sagði, að ef Rússar hefðu grandað þotunni, myndi það hafa mjög neikvæð áhrif á viðræðurnar um takmörkun kjarnorkuvígbún- aðar og öll samskiptin við Rússa. Hann sagði að viðræður sem hann og fleiri öldungadeildarþingmenn hefðu átt við Yuri Andropov í Moskvu hefðu vakið vonir um að síðustu tillögur Andropovs gætu komið skriði á samningaviðræður Rússa og Bandaríkjamanna, en nú væri margt sem Rússar yrðu að útskýra. Robert Byrd, leiðtogi demókrata í öldungadeildinni, lagði til að kornsölusamningnum við Rússa yrði sagt upp, þótt það kæmi niður á bandarískum neytendum. Hann sagði að engin skýring gæti verið til á því að óvopnuð farþegaflugvél hefði verið skotin niður. Henry Kissinger, fyrrum utan- ríkisráðherra, kvað Rússa hafa gert sig seka um „svívirðilegan, ófyrirgefanlegan verknað." Verkn- aður Rússa kallaði á „heilmiklar útskýringar". MIG-23-þota eins og þær sem eltu kóreönsku farþegaþotuna. Sams konar atburður 1978: Þá fórust tveir far- þegar og tíu særðust New York, 1. september. AP. ÞAÐ hefur gerzt áður, að farþegavél frá Suður-Kóreu hafi villzt af leið og þá orðið fyrir árás sovézkrar her- flugvélar. Hinn 20. aprfl 1978 réðst sovésk herþota af gerðinni MIG á farþegaþotu frá Suður-Kóreu með 110 manns um borð og neyddi hana til þess að nauðlenda á ísilögðu stöðuvatni í grennd við Murmansk. Tveir farþeganna biðu bana. Kóreanska farþegaþotan hafði villzt inn í sovézka lofthelgi og flogið yfir sovézku landsvæði f nær tvær klukkustundir, er hún var í farþegaflugi frá París til Seoul yfir norðurpólinn með við- komu í Anchorage í Alaska. Auk þeirra tveggja farþega, sem biðu bana, særðust 10 manns, er sov- ézka herþotan flaug í veg fyrir farþegavélina og skaut á hana með þeim afleiðingum, að gat kom á skrokk hennar. „Sovézk flugvél er að skjóta á okkur vinstra megin, einn Kóreu- maður er dáinn og annar maður, japanskur, er alvarlega særður ... og við föllum niður, niður, niður." Þannig skrifaði óttasleginn far- þegi, frú Seiko Shiozake, í dagbók sína, er þessi atburður gerðist. Farþegavélin féjl úr 35.000 feta hæð niður í 3.000 fet á fáeinum mínútum og lenti að lokum á ísi- lögðu stöðuvatni, eins og að fram- an segir. Þar sem Suður-Kórea hafði ekki stjórnmálasamband við Sovétrík- in, sáu Bandaríkjamenn um samn- inga við Rússa og tókst eftir tvo daga að fá leysta úr haldi 106 manns og fengu einnig afhent lík þeirra tveggja sem fórust. Far- þegaþota frá Pan Am sótti síðan fólkið til Murmansk og flaug með það til Helsingfors í Finnlandi. Rússar höfðu hins vegar flugstjór- ann og loftsiglingafræðinginn í haldi eina viku til viðbótar. Flugstjórinn sagði síðar, að hann hefði villzt um 1600 km af leið sökum bilunar í loftsiglinga- tæki. Sovézka fréttastofan TASS hélt því fram, að flugstjórinn hefði ekki sinnt fyrirmælum sov- ézku herþotunnar um að lenda. Héldu Rússar því fram, að allt hefði verið gert til þess að gefa flugstjóra farþegavélarinnar merki um að lenda, þegar hún flaug inn yfir sovézkt landsvæði. En aðstoðarflugstjóri hennar hélt því fram, að þeir hefðu aldrei fengið neina aðvörun. Fylgst með afdrif- um þotunnar í radar Radarstöð í Japan, sem er mönnuð bandarískum hermönnum, hefur án efa rakið feril kóreönsku júmbó-þotunnar allt til eyðingu hennar, og það er eins víst að bandarískir leyniþjónustumenn hafi hlustað á samtal sovésku her- mannanna, sem skutu þotuna niður, að sögn heryfirvalda. Radarnum, sem staðsettur er á Misawa-flugvellinum nálægt nyrsta tanga japönsku eyjarinnar Honshu, er án undantekninga beint að vígi Sovétmanna við Sakhalin, 1367 km norður af Tokyo, og öðrum sovéskum her- virkjum á því svæði. Að því er starfsmaður bandaríska hermála- ráðuneytisins segir, flýgur ekkert yfir eða nálægt Shakhalin sem þeir fylgjast ekki með. Bandaríkjamenn hafa eftirlits- flug á þessu svæði 24 tíma á sól- arhring og hefði eftirlitsvélin get- að fylgst með þegar vélin var skot- in niður. Veður víða um heim Akureyri 6 alskýjsð Amsterdam 22 skýjaó Aþena 30 heióskfrt Barcelona 28 rignfng Berlín 27 heióskfrt BrUeeet 24 rigning Buenoe Aíree 10 rigning Chicago 27 skýjaó Dyflinm 20 heióeklrt Feneyjar 27 þokumóóa Frankfurt 29 skýjaó Faereyjar 12 skýjaó Genf 27 skýjaó Helsinki 19 heióskfrt Jerúsalem 34 heióskirt Jóhannesarborg 22 heióskfrt Las Palmas 25 lóttskýjaó Lissabon 25 ekýjaó London 21 skýjaó Los Angeles 33 skýjaó Madrid 31 rigning Malaga 26 lóttakýjaó Mallorka 26 ekýjaó Miami 31 skýjaó Moskva 20 heióskfrt New York 26 heióskirt Osló 13 skýjaó Parfs 29 skýjaó Reykjavik 8 lóttskýjaó Róm 31 haióakirt San Fransisco 24 rigning Stokkhólmur 24 haióakirt Tókýó 29 rigning Vancouver 22 skýjaó Vfn 25 heíóskfrt Grænlandsjökull: Lík ítal- anna fundin Kaupmannahöfn l.september AP. ÍTÖLSK björgunarsveit hef- ur fundiö lík þriggja ítalskra fjallgöngumanna sem týnd- ust á Grænlandsjökli 10. ágúst síðastliöinn. Hefur þeirra verið leitaö síðan. Ekki hafði þó tekist að kom- ast að líkunum, en menn hafa gert sér grein fyrir því hvað aflaga fór hjá fjalla- köppunum. Felici Maggia, talsmaður ítalska sendiráðsins í Kaupmannahöfn, sagði í gær, að það hefði reynst útilokað að komast að líkunum vegna slæmra aðstæðna. Hann sagði þó, að eitt líkið væri sýnilegt úr lofti og væri það hálfhulið snjó skammt frá jökulsprungu. Er kað- all þar sem liggur ofan í sprung- una. Virðist ljóst, að annar hinna hafi fallið í sprunguna og dregið þann þriðja með sér, eða að báðir hafi fallið. Óljóst er þó hvort að sá sem ekki liggur í sprungunni féll í hana og komst upp úr aftur, eða hvort hann gat ekki losað sig frá taumnum eftir að félagar hans höfðu horfið í sprunguna. Mennirnir áttu aðeins 50 metra eftir ófarna á efsta tind „Hvíta turnsins", jökultinds sem gnæfir 2.100 metra upp í loftið. Björgun- arsveitarmennirnir hafa fleygt fram þeirri kenningu, að krapi hafi gert mannbrodda eins fjall- göngumannsins óvirka, hann hafi því runnið til með fyrrgreindum afleiðingum. ISESjTiUN AMERÍKA PORTSMOUTH/ NORFOLK Bakkafoss City of Harflepool Bakkafoss City of Hartlepool NEW YORK Bakkafoss City of Hartlepool Bakkafoss City of Hartlepool HALIFAX City of Hartlepool City of Hartlepool BRETLAND/ MEGINLAND ■MMINGHAM Álafoss Eyrarfoss Álafoss Eyrarfoss FELIXSTOWE Álafoss Eyrarfoss Álafoss Eyrarfoss ANTWERPEN Álafoss Eyrarfoss Álafoss Eyrarfoss ROTTERDAM Álafoss Eyrarfoss Álafoss Eyrarfoss HAMBORG Álafoss Eyrarfoss Álafoss Eyrarfoss WESTON POINT Helgey Helgey Helgey LISSABON Skeiðsfoss Skeiösfoss LEIXOES Skeiðsfoss Skeiðsfoss BILBAO Skeiösfoss Skeiösfoss NORÐURLÖND/ EYSTRASALT 4. sept. 13. sept. 23. sept. 4. okt. 3. sept. 12. sept. 22. sept. 3. okt. 15. sept. 7. okt. 4. sept. 11. sept. 18. sept. 25. sept. 5. sept. 12. sept. 19. sept. 26. sept. 6. sept. 13. sept. 20. sept. 27. sept. 7. sept. 14. sept. 21. sept. 28. sept. 8. sept. 15. sept. 22. sept. 29. sept. 3. sept. 14. sept. 27. sept. 21. sept. 17. okt. 18. sept. 18. okt. 23. sept. 13. okt. BERGEN Dettifoss 2. sept. Mánafoss 9. sepf. Dettifoss 16. sept. KRISTIANSAND Dettifoss 5. sept. Mánafoss 12. sept. Deetitoss 19. sept. MOSS Dettifoss 2. sept. Mánafoss 13. sept. Dettifoss 16. sept. HORSENS Dettifoss 7. sept. Dettifoss 21. sept. GAUTABORG Dettifoss 7. sept. Mánafoss 14. sept. Dettitoss 21. sept. KAUPMANNAHÖFN Dettifoss 8. sept. Mánafoss 15. sept. Dettifoss 22. sept. HELSINGJABORG Dettifoss 9. sept. Mánafoss 16. sept. Dettifoss 23. sept. HELSINKI Irafoss 19. sept. irafoss 17. okt. GDYNIA írafoss 21. sept. 19. okt. 17. sept irafoss ÞÓRSHÖFN Dettifoss VIKULEGAR STRANDSIGLINGAR -fram ogtil baka frá REYKJAVÍK alla mánudaga frá ÍSAFIRÐI alla þriðjudaga frá AKUREYRI allafimmtudaga ERLENT, EIMSKIP *

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.