Morgunblaðið - 02.09.1983, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 02.09.1983, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1983 25 að bjóða." sagði Bertrand. „Ég bað ekki um neitt, Farskip bauð góðan samning og búið. Ég hef borgað allt annað sjálfur, farmiða og gist- ingu fyrir blaðamenn og sjónvarp erlendis frá — lánaði þeim líka bíla. Ég vissi að ég myndi tapa peningum á því hve fáir keppendur komu, vegna þess hve lengi var verið að ákveða málin hérna, en ég er ekki skipuleggjandi fyrir pen- inga eingöngu. Eg bað LÍA að ganga frá tryggingarmálum, skráningu ökutækja og þ.h. — síð- an segir Morgunblaðið mér, er við erum að koma til íslands að búið sé að fella niður helming af keppn- inni. Hefði ég fengið að vita það áður en Eddan lagði af stað þá hefði ég aldrei lagt af stað,“ sagði Bertrand. „Ég vissi alls ekki um þetta — brjálæði! Allir keppendur og blaðamenn munu tala um það erlendis hvernig keppnin var og Island mun örugg- lega ekki fá gott orð hjá blöðum. Ég yrði líklega að borga keppend- um til að fara til íslands, ef önnur keppni yrði. Mér líkaði mjög vel við íslensku keppendurna og þeir geta komið frítt í þau röll, sem ég skipulegg," sagði Bertrand. „Það sem vantar á Islandi eru ábyrgir aðilar. Kannski er pólitíkin hérna þannig að enginn getur gert neitt. Ég get nefnt sem dæmi eina kostn- aðarhliðina, mynd sem ég lét taka meðan á keppninni stóð. Meiningin var að sýna hana á fundum um allan heim til að kynna rallið að nýju. Kostnaður við gerð hennar er í kringum 12—15.000 dollarar. Ég mun væntanlega sýna hana víða, en ef einhver á íslandi vill sjá hana verður hann að borga!" kvað Bertrand. „Menn virðast ekki hafa gert sér grein fyrir því hvað þeir voru að leika sér með. Ég er atvinnuskipu- leggjandi með réttindi frá FISA og FIA (alþjóðleg sambönd bíla- íþrótta), það eru aðeins fjórir að mér meðtöldum sem hafa rétt til að skipuleggja keppni af þessu tagi. Kannski fæ ég slæmt orð á mig fyrir keppnina innan þessara sambanda, það gæti orðið mér þungur baggi. Ég hef skipulagt röll í 18 ár án álíka vandræða," sagði Bertrand. „Mér finnst virkilega leitt að keppnin skyldi fara svona. Landið hér er hreint frábært, en fólkið ekki að sama skapi, í það minnsta ekki þeir sem ráða — því miður. Meira að segja í dag kom lögreglan inn í hótelherbergi mitt og yfir- heyrði mig í sambandi við eitt- hvert fréttabréf, sem Náttúru- verndarráð sendi frá sér vegna óformlegrar keppni einhverstaðar ... Náttúruverndarráð ... við höf- um séð marga íslendinga aka á grónu landi á meðan á dvöl okkar stóð. Það er sannarlega grátbros- legt að Náttúruverndarráð skuli eiga í striði við okkur, sem reynum að passa að allt fari vel fram — en síðan eru íslendingar látnir fara óáreittir um alla móa. Það ætti fyrst að huga að þeim, síðan okkur," sagði Jean Claude Ber- trand að lokum. G.R. punda fiskar hafa veiðst í ánni og nokkrir 17—18 punda. Sýnt er, að metveiði verður í ánni í sumar, veiðin stendur til 20. september, en í fyrra var met- veiði, svipað magn og hefur veiðst það sem af er þessu sumri. Já, og einnig lax í Thames Lax er alltaf lax hvort sem hann er í Thames eða Leirvogsá. Sá merki atburður gerðist í Thames í fyrradag, að þar veidd- ist fyrsti lax á stöng í áraraðir, enda dó laxinn út í fljótinu sök- um mengunar. Fyrst varð að hreinsa ána, síðan, eða árið 1979, hófst umfangsmikil laxarækt og er vitað til þess að lax hafi geng- ið í dálitlum mæli í ána síðustu árin. Hann var þó tregur á stöngina og mikill verðlauna- pottur beið þess stangaveiði- manns sem veiddi þann fyrsta. Það var Russel Doig sem veiddi laxinn og fékk 250 pund fyrir. Laxinn var rúmlega 6 pund og veiddist í Chertsey Weirhyl fyrir ofan Lundúni. Formaður verð- launasjóðsins og ræktunar- framkvæmdanna, Hugh Fish, lýsti yfir í ræðu er hann veitti Doig-verðiaunin, að hér með teldist Thames hreinsuð. Full- yrti hann síðan að Thames væri hreinasta miðborgará veraldar. Hann hefur greinilega aldrei heyrt á Elliðaárnar minnst, hvað þá þær þúsundir laxa sem upp þær sækja sumar hvert. Stígalagning við Gullfoss. Stígagerð í ausandi regni við Gullfoss Sjálfboðaliðarnir sex frá náttúruverndarsamtökum í Bretlandi og íslenzkt nátt- úruverndarfólk var austur við Gullfoss í 3 daga í sl. viku og vann þar sleitulaust frá þriðjudegi til föstu- dagskvölds. Bjó í sumarbú- stað í Biskupstungum, sem góður náttúruverndarmaður bauð fram. Það kom sér vel því allan tímann var ausandi rigning. Á þriðjudag mældist á næstu veturathugunarstöð- um 45 mm regn. En ekki lét þetta röska fólk það á sig fá. í byrjun var lagfærður stígur- inn niður að Gullfossi, sem er malarborinn og hefur ofaníburð- urinn sigið undan brekkunni ofan í blágresið og blómabrekk- una. Var þar komið fyrir tré borðum sem vörn. En aðalverk- efnið var að leggja stíg, með tröppum, um brattann að efri brún hvammsins við fossinn. EN þar uppi hefur fólk gjarnan stansað og farið beint niður brattann, svo slóðir voru komnar á mörgum stöðum og skemmdu brekkuna. Einar bóndi í Brattholti kom í heimsókn til fólksins sem var að vinna við Gullfoss. Hér er hann að lesa á nýtt skilti frá Náttúruverndarráði með Braga Þórarinssyni starfsmanni ráðsins. Vel þarf að vanda til þegar stígur er lagður í bratta brekku, og duga varla annað en þrep, ef brekkan á ekki að vaðast út. Hér eru sjálfboðaliðarnir að leggja stíg niður að Gullfossi. Myndi: Einar Sæmundsen

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.