Morgunblaðið - 02.09.1983, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1983
27
„Eigum í styrjöld
við kristna menn“
— segir Walid Jumblatt, leiðtogi vinstrimanna í Líbanon
Beirut, 1. september. AP.
WALID Jumblatt, leiðtogi drúsa og líbanskra vinstrimanna, lýsti vfir því í
dag, að stríð væri skollið á milli múhameðstrúarmanna og kristinna í Líban-
on. Kyrrð er nú komin á Beirut að mestu eftir að líbanski herinn lét til
skarar skríða gegn vopnuðum sveitum vinstrimanna, sem ráöið hafa lögum
og lofum í sumum hlutum borgarinnar.
Á blaðamannafundi, sem
Jumblatt efndi til í Damaskus í
Sýrlandi, sagði hann, að nú væri
útséð um allar samningaviðræður
við líbönsku stjórnina og að „við
teljum okkur vera í styrjöld við
kristna menn“. Þegar hann var
spurður hvað nú tæki við, eftir að
líbanski herinn hefði upprætt
vopnaðar sveitir vinstrimanna í
Beirut, sagði hann: „Stríð, aðeins
stríð með öllum tiltækum ráðum."
Jumblatt vildi hins vegar ekki
svara því hvort sannar væru
fregnir um að hermenn hans
hefðu myrt kristna íbúa þorps
nokkurs í fjöllunum fyrir ofan
Beirut i hefndarskyni fyrir árás
líbanska hersins.
Jungwirth vinnur að
sáttum innan FIDE
Telur „óverjandi“ að útiloka Smyslov
og Kasparov frá keppni
(>raz, 1. september. AP.
KURT Jungwirth, forseti austuríska skáksambandsins og varaforseti
FIDE (Alþjóða skáksambandsins), sagði í dag, að það væri „óverjandi"
afstaða að útiloka þá Vasily Smyslov og Garri Kasparov frá þátttöku í
undaneinvígum fyrir heimsmeistarakeppnina í skák. Kvaðst Jungwirth,
sem er nýkominn úr fjögurra daga ferðalagi til Moskvu, reiðubúinn til
þess að láta skáksamband Austurríkis miðla málum og lagði til, að
haldin yrði ráðstefna í Austurríki með þátttöku allra þeirra, sem málið
snerti, svo að úr því yrði skorið “á skákborðinu, hver vera skyldi
heimsmeistari".
Sovézka fréttastofan TASS
skýrði í dag frá heimsókn
Jungwirths til Moskvu. Þar var
tekið fram, að hann hefði komið
í boði sovézka skáksambandsins
en ekkert sagt um það, hvort
fallizt hefði verið á hugsanlega
málamiðlun um að láta einvígin
fara fram í Austurríki eða ann-
ars staðar. Þá var það ekki held-
ur nefnt hvort Florencio Camp-
omanes, forseti FIDE, hefði fall-
izt á slíka málamiðlunarlausn.
Kasparov vann Larsen
— var samt meö verra út úr byrjuninni
Niksic, 1. september. AP.
GARRI Kasparov frá Sovétríkjunum
tókst að vinna upp aftur verri stöðu,
sem hann hafði hlotið út úr byrjun-
inni í skák sinni við danska skák-
meistarann Bent Larsen í 7. umferð
skákmótsins í Niksic í Júgóslavíu.
Larsen, sem tefldi með hvítu, tókst í
fyrstu að ná frumkvæðinu, en Kasp-
arov, sem margir telja væntanlegan
arftaka Anatoly Karpovs sem heims-
meistari, tókst smám saman að bæta
stöðu sína. Þegar skákin kom úr bið,
náði Kasparov yfirhöndinni með því
að gera bæði hróka sína og riddara
afar virka og vann síðan skákina í
56 leikjum.
Önnur úrslit í 7. umferð urðu
þau, að Portisch vann Petrosian,
Ljubojevic vann Seirawan og Mil-
es vann Nikolic. Jafntefli varð hjá
Ivanovic og Gligoric og Spassky og
Timman. Skák þeirra Tals og Mil-
es úr fyrri umferð fór aftur í bið.
Staða efstu manna nú er þannig,
að Kasparov er með vinning,
Miles hefur 4 vinninga og eina
biðskák, en síðan koma þeir
Spassky, Sax, Larsen, Timman og
Andersson með 3% vinning hver.
Áttunda umferð mótsins verður
tefld á laugardag.
Vestrænir diplómatar í Chad
staðfestu að umrædd árás hafi átt
sér stað og fullyrtu að umsvif
skæruliða í þessum hluta landsins
hefðu aukist til mikilla muna að
undanförnu, einkum eftir að hið
óumsamda vopnahlé hófst með til-
komu franska herliðsins til lands-
ins.
Hissine Habre, forseti Chad,
skipaður múhameðstrúarmönnum
en undir stjórn kristinna manna,
sé þeim vanda vaxinn að taka við
stjórninni í miðhálendinu þegar
fsraelar fara þaðan.
Walid Jumblatt
Líbanski stjórnarherinn heldur
áfram að hreinsa til í Vestur-
Beirut og hefur afvopnað fjölda-
marga vinstrisinna og flutt þá í
fangelsi. Enn kváðu þó við skot-
hvellir í einu hverfi borgarinnar
en herinn hafði umkringt það og
gerði sig líklegan til að ráðast til
atlögu. Aflétt hefur verið í Beirut
24 stunda útgöngubanni og flykkt-
ist fólk út á strætin í leit að vist-
um og nauðsynjum.
Ráðherrar í líbönsku stjórninni
eru sagðir mjög ánægðir með
vasklega framgöngu stjórnarhers-
ins í þessari fyrstu raunverulegu
þolraun hans. Eru þeir nú bjart-
sýnni á að herinn, sem er að mestu
Ró að komast
á í Manila
Manila, Filippseyjum, 1. september. AP.
ALLT VAR með kyrrum kjörum í nágrenni forsetahallarinnar í Manila í gær,
eftir miklar óeirðir höfðu geisað þar í kjölfarið á útlor Benigno Aquino,
leiðtoga stjórnarandstööunnar í landinu. Einn námsmaöur lét lífið í óeirðun-
um og átján særðust.
Fréttaskýrendur greindu frá
því, að einu menjar bardagans í
gær hefðu verið brotin umferð-
arljós og brunablettir á götum hér
og þar. Verslanir voru opnar og
mannlífið virtist ganga sinn vana-
gang.
Talið var að um milljón manna
hafi fylgt Aquino til grafar, eða
tekið þátt í útförinni með öðrum
hætti. Þar með er áætlað að alls
hafi 2 milljónir manna vottað
Aquino virðingu sína og er það
mesta fjöldaviðkvæmni sem sést
hefur á Filippseyjum allar götur
síðan að páfinn heimsótti eyjarn-
ar árið 1981.
Lögregluyfirvöld sögðu að flest-
ir hinna særðu hafi verið á aldrin-
um 14—20 ára og 9 þeirra hefðu
særst skotsárum. Sagði lögreglan
að mótmælendur hefðu hreiðrað
um sig á húsþökum og hleypt af
riflum yfir mannhafið. Vitni hafa
sagt að ýmsir hinna særðu hefðu
alls ekki verið þátttakendur að
ólátunum, heldur einungis áhorf-
endur. Fimm manna nefndin, sem
Ferdinand Marcos forseti Filipps-
eyja skipaði til að rannsaka morð-
ið á dögunum, hefur nú starfað í
nokkra daga, en engu skilað af sér
enn sem komið er.
36 tonna
steinbíll
á leiði
Lindcn, New Jersey, 1. september. AP.
ÞKJÁTÍU og sex tonna legsteini
úr grágrýti var á þriðjudag komið
fyrir í kirkjugarði í noröurhluta
New Jersey. Legsteinninn er
nokkuð sérkennilegur, þar sem
hann er líkan af 1982 árgerð af
Mercedes Benz. Steinbíllinn er
legsteinn til minningar um 15 ára
dreng, Raymond Tse, sem lést
fyrir tveimur árum.
Það var David Tse, bróðir
Raymonds, sem lét gera þetta
fyrirferðamikla minnismerki
um hinn látna, en David er
sagður hafa greitt frá 120.000 —
250.000 Bandaríkjadali fyrir
steinbílinn. Fjölskylda Ray-
monds var viðstödd þegar minn-
isvarðanum var komið fyrir í
kirkjugarðinum, en hún neitaði
að láta nokkuð uppi um leg-
steininn. Kunnugir segja þó að
David Tse, hafi einhvern tíma
lofað að gefa yngri bróður sín-
um bíl, en aldrei fengið tækifæri
til þess.
Það tók þrjá myndhöggvara
17 mánuði að ljúka við gerð
steinbílsins, sem er líkan af ’82
árgerð af Mercedes Benz 240D
lúxusvagni í fullri stærð.
Friðarkedja rofin
í Austur-Berlín
Berlín, 1. seplember. AP.
AUSTl'R-ÞÝSKA lögreglan kom í veg fyrir að friðarhópi þar í landi, tækist að
mynda „mannlega keðju“ milli sendiráða Bandaríkjanna og Sovétríkjanna í
Austur-Berlín á fimmtudag.
Vestur-þýska útvarpið greindi
svo frá að 50 Austur-Þjóðverjar
hefðu verið hnepptir í varðhald
vegna atburðarins, sem átti sér stað
í morgunsárið á fimmtudag. Sam-
kvæmt heimildum frá bandaríska
sendiráðinu, söfnuðust mótmælend-
ur úr austur-þýska hópnum „Föst-
um fyrir lífið" fyrir framan sendi-
ráðið um kl. 4:30 að morgni til, og
reyndu að mynda „mannlega keðju"
milli sendiráða stórveldanna. Lög-
reglan komst í spilið áður en tókst
að mynda keðjuna, og fjarlægðu
mótmælendurna.
Tveimur félögum úr friðarhópn-
um tókst að komast inn í banda-
ríska sendiráðið og afhentu þá emb-
ættismönnum bréf, þar sem stór-
veldin eru hvött til að koma á var-
anlegum friði með afvopnunarvið-
ræðum í Genf í Sviss.
*****
Skemmtunin hefst kl. 10 og síöan
veröur dansaö fram á rauöa nótt
Chad:
Skæruliðar brenna þorp
Vdjamena, 1. september. AP.
TALSMAÐUR rfkisstjórnar Chad sakaði í gær skæruliða um fólskulega árás
á óvarið þorp í suðurhluta landsins fyrr í vikunni. Sagði talsmaðurinn að
skæruliðarnir haft smalað fólkinu úr híbýlum sínum, skotið síðan á það, en
lagt eld að kofunum. Tveir féllu og margir særðust.
1 j */
< f LADOI 0 l
Hinir landsfrægu
skemmtikraftar
Dolli og Doddi hafa
aldrei verið í betra
stuði.
/ • r
BJORCVIN
MACNUS
^0
sakaði Moammar Khadafy í gær
um að standa fyrir árásunum í
suðurhlutanum til þess að opna
fleiri viglínur og dreifa þannig
styrk stjórnarhersins á meðan líb-
íski herinn hreiðrar um sig í norð-
urhlutanum. Enn hefur Khadafy
neitað að viðurkenna að líbískir
hermenn berjist í Chad, þrátt
fyrir öll möguleg sönnunargögn.
K.,dOTon.n,»l™P
óh.PP"'
+ + + + + + + + + + + ++++ + + + + + + + +++ + + + + + +